Stafrænt ráð
Ár 2026, miðvikudaginn 11. mars, var haldinn 69. fundur stafræns ráðs. Fundurinn hófst í Hofi kl. 13.30. Eftirtalin voru komnir til fundar í fundarherberginu Hofi: Dóra Björt Guðjónsdóttir, Árelía Eydís Guðmundsdóttir, Ásta Þórdís Skjalddal, Björn Gíslason, Einar Sveinbjörn Guðmundsson og Pétur Marteinn Urbancic Tómasson. Jafnframt eftirtalið starfsfólk þjónustu- og nýsköpunarsviðs: Óskar Jörgen Sandholt og Agnes Guðjónsdóttir. Sólveig Skaftadóttir ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Lögð fram heimildarbeiðni þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 19. febrúar, um að hefja vinnu við við fasa 2 í verkefninu „Korta- og boðgreiðslur á Mínum síðum” ásamt fylgigögnum. Lagt er til að stafrænt ráð samþykki verkefnið og að það sé skilgreint í fyrsta forgangi. ÞON25050004.
Samþykkt.
- Kl. 13:34 tekur Helga Margrét Marzellíusardóttir sæti með rafrænum hætti.
Fylgigögn
-
Lögð fram heimildarbeiðni þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 24. febrúar 2026, um að hefja verðfyrirspurn og undirbúning nýs sameiginlegs könnunarhugbúnaðar ásamt fylgigögnum. Lagt er til að stafrænt ráð samþykki verkefnið og að það sé skilgreint í fyrsta forgangi. ÞON26020017.
Samþykkt.
Fulltrúi Flokks fólksins situr hjá við afgreiðslu málsins.
Fylgigögn
-
Lögð fram heimildarbeiðni þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 24. febrúar 2026, um að fara í útboð á lausn fyrir rafrænar undirritanir ásamt fylgigögnum. Lagt er til að stafrænt ráð samþykki verkefnið og að það sé skilgreint í fyrsta forgangi. ÞON26020016.
Samþykkt.
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga þjónustu- og nýsköpunarsviðs að Reykjavíkurborg segi sig úr alþjóðlega samstarfsnetinu Cities Coalition for Digital Rights. ÞON20110011.
Frestað.
-
Lögð fram aðgerðaráætlun út frá stefnu um fjölmenningarborgina Reykjavík. MSS25110035.
Samþykkt.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 5. mars 2026 um tillögu fulltrúa Framsóknarflokksins um aðgengi að borgarstjórnarfundum á streymisveitum. MSS25050139.
Vísað til meðferðar skrifstofu borgarstjórnar.
Fylgigögn
- Tilkynning um afgreiðslu forsætisnefnd 27. febrúar 2026
- Upprunaleg tillaga fulltrúa Framsóknarflokksins um aðgengi að borgarstjórnarfundum á streymisveitum
- Umsögn 2 um tillögu fulltrúa Framsóknarflokksins um aðgengi að borgarstjórnarfundum á streymisveitum
- Umsögn um tillögu fulltrúa Framsóknarflokksins um aðgengi að borgarstjórnarfundum á streymisveitum
Fundi slitið kl. 13:58
Dóra Björt Guðjónsdóttir Árelía Eydís Guðmundsdóttir
Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir Björn Gíslason
Einar Sveinbjörn Guðmundsson Helga Margrét Marzellíusardóttir
Pétur Marteinn Urbancic Tómasson
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð stafræns ráðs frá 11. mars 2026 - Prentvæn útgáfa