Stafrænt ráð - Fundur nr. 66

Stafrænt ráð

Ár 2026, 28. janúar var haldinn 66. fundur stafræns ráðs. Fundurinn hófst í Höfðatorgi kl. 13:30. Eftirtalin voru komnir til fundar í fundarherberginu Hofi: Dóra Björt Guðjónsdóttir, Björn Gíslason og Einar Sveinbjörn Guðmundsson. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar: Árelía Eydís Guðmundsdóttir, Kristinn Jón Ólafsson, og Sandra Hlíf Ocares. Jafnframt eftirtalið starfsfólk þjónustu- og nýsköpunarsviðs: Óskar Jörgen Sandholt, Eva Pandora Baldursdóttir. Sólveig Skaftadóttir ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 22. janúar 2026 um kosningu í stafrænt ráð. MSS22060050. 

    Fylgigögn

  2. Fram fer kynning á GreenInCities. MSS23070077.

    Óskar Dýrmundur Ólafsson og Þóra Óskarsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. 

    - Kl. 13:38 tekur Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns sæti á fundinum með rafrænum hætti.

    - Kl. 13:59 víkur Sandra Hlíf Ocares af fundi.

    Fylgigögn

  3. Lagt fram erindisbréf dags. 13. janúar 2026 um stýrihóp um mótun aðgerðaráætlunar lýðræðisstefnu Reykjavíkurborgar. ÞON25090014. 

    Samþykkt.

    Fylgigögn

  4. Lögð fram heimildarbeiðni um að hefja vinnu við að tengja landupplýsingakerfi Reykjavíkurborgar við umsóknarsmiðinn á Mínum síðum. Lagt er til að stafrænt ráð samþykki verkefnið og að það sé skilgreint í fyrsta forgangi. ÞON25120010. 

    Samþykkt.

    Fylgigögn

  5. Fulltrúar Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Hver er heildarkostnaður þjónustu- og nýsköpunarsviðs á árinu 2025, í fyrsta lagi vegna aðkeyptrar vinnu verktaka sem sinna viðveru á tækniborði og vettvangsþjónustu á skrifstofu upplýsingatækniþjónustu? Hver er heildarfjöldi stöðugilda slíkrar verktöku og  skipting þeirra niður á tækniborð með fast aðsetur í Borgartúni og svo á vettvangi? Í öðru lagi vegna aðkeyptrar vinnu verktaka sem sinna kerfisumsjón og vöktun, hversu mörg stöðugildi þessara verktaka eru með fast aðsetur í Borgartúni? Í þriðja lagi, hversu mörg Microsoft leyfi aðkeyptir verktakar nota í störfum sínum fyrir Reykjavikurborg? Loks er óskað eftir hversu mörg verkefni á sviðinu hafa verið unnin með aðkeyptri aðstoð utanaðkomandi ráðgjafa og verkefnastjóra, sem og skiptingu þeirra í erlenda ráðgjöf og innlenda ráðgjöf og hversu mörgum verkefnum sviðið hefur unnið að án þess að kaupa utanaðkomandi ráðgjöf. ÞON26010024.

    Vísað til umsagnar þjónustu- og nýsköpunarsviðs. 

Fundi slitið kl. 14:23

Dóra Björt Guðjónsdóttir Árelía Eydís Guðmundsdóttir

Björn Gíslason Einar Sveinbjörn Guðmundsson

Kristinn Jón Ólafsson Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð stafræns ráðs frá 28. janúar 2026 - Prentvæn útgáfa