No translated content text
Stafrænt ráð
Ár 2022, miðvikudaginn 12. október, var haldinn 5. fundur stafræns ráðs. Fundurinn var haldinn á Höfðatorgi og hófst kl. 13:30. Eftirtalin voru komnir til fundar í fundarherberginu Hofi: Kristinn Jón Ólafsson, Aðalsteinn Haukur Sverrisson, Björn Gíslason, Elísabet Guðrúnar Jónsdóttir, Friðjón R. Friðjónsson og Sanna Magdalena Mörtudóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Þröstur Sigurðsson.
Fundarritari var Eva Pandora Baldursdóttir.
Þetta gerðist:
-
Lögð fram drög að fjárhagsáætlun þjónustu- og nýsköpunarsviðs fyrir árið 2023 ásamt drögum að greinargerð. Trúnaðarmál. ÞON22100025.
- kl 13:35 tekur Skúli Helgason sæti á fundinum.
Bókanir undir þessum lið voru færðar í trúnaðarbók stafræns ráðs.
-
Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu, dags. 6. október 2022, um bókun aðgengis- og samráðsnefndar í málefnum fatlaðs fólks um rafræn skilríki og aðgengi sbr. 2. lið fundargerðar aðgengis- og samráðsnefndar í málefnum fatlaðs fólks frá 6. október 2022. MSS22090069.
Vísað til umsagnar þjónustu- og nýsköpunarsviðs.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á þjónustustefnu Reykjavíkurborgar.
Silja Lind Haraldsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. ÞON20060041.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á Mínum síðum. ÞON21100035.
Erla Rós Gylfadóttir og Sigurður Fjalar Sigurðarson taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á skipulagi og hugmyndafræði vefsins reykjavik.is. ÞON20060042.
Ingunn Eyþórsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á pólsk-íslenskum vélþýðingum á vef Reykjavíkurborgar. ÞON22100035.
Ingunn Eyþórsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á stafrænum verkefnum velferðarsviðs. ÞON20060042.
Inga Pétursdóttir Jessen og Magnús Bergur Magnússon taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 15:30
Kristinn Jón Ólafsson Aðalsteinn Haukur Sverrisson
Björn Gíslason Elísabet Guðrúnar Jónsdóttir
Friðjón R. Friðjónsson Sanna Magdalena Mörtudottir
PDF útgáfa fundargerðar
5. Fundargerð Stafræns ráðs frá 12. október 2022.pdf