Stafrænt ráð
Ár 2024, miðvikudaginn 24. apríl, var haldinn 36. fundur stafræns ráðs. Fundurinn var haldinn á Höfðatorgi og hófst kl. 13:00. Eftirtalin voru komin til fundar í fundarherberginu Hofi: Alexandra Briem, Aðalsteinn Haukur Sverrisson, Björn Gíslason, Friðjón R. Friðjónsson, Kristinn Jón Ólafsson og Skúli Helgason. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Anna Kristinsdóttir, Lena Mjöll Markusdóttir og Óskar J. Sandholt.
Fundarritari var Eva Pandora Baldursdóttir.
Þetta gerðist:
-
Lagðar fram fundargerðir verkefnaráðs, dags. 21. janúar 2024, 15. febrúar 2024, 21. febrúar 2024 og 7. mars 2024. ÞON20060042.
Eva Björk Björnsdóttir og Þröstur Sigurðsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.
- kl. 13:04 tekur Andrea Jóhanna Helgadóttir sæti á fundinum.
Fylgigögn
-
Lögð fram drög að umsögn stafræns ráðs um aðgerðaráætlun Reykjavíkurborgar 2024-2026 um þátttöku í alþjóðlegum rannsóknar- og nýsköpunarverkefnum, dags. 22. apríl 2024. MSS23050179.
Stafrænt ráð leggur fram svohljóðandi bókun:
Stafrænt ráð samþykkir umsögnina um aðgerðaráætlun Reykjavíkurborgar 2024-2026 um þátttöku í alþjóðlegum rannsóknar- og nýsköpunarverkefnum með fyrirvara um styttingu á orðalagi og einföldun sem verður unnið milli funda. Sú niðurstaða verður svo framsend til forsætisnefndar.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu, dags. 18. apríl 2024, ásamt fylgigögnum. MSS24040172.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu, dags. 18. apríl 2024, ásamt fylgigögnum. MSS24040172.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf Cities Coalition for Digital Rights, dags. 11. apríl 2024, ásamt minnisblaði þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 18. apríl 2024, um Cities Coalition for Digital Rights. ÞON23030004.
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 13:32
Alexandra Briem Aðalsteinn Haukur Sverrisson
Andrea Helgadóttir Björn Gíslason
Friðjón R. Friðjónsson Kristinn Jón Ólafsson
Skúli Helgason
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð Stafræns ráðs frá 24. apríl 2024