Skóla- og frístundaráð - vinnufundur

Skóla- og frístundaráð

Ár 2019, 20. ágúst, var haldinn 166. fundur skóla- og frístundaráðs. Fundurinn hófst í fundarherberginu Kerhólum á Höfðatorgi, Borgartúni 12-14 í Reykjavík kl. 13.20. Fundinn sátu Skúli Helgason formaður (S), Alexandra Briem (P), Marta Guðjónsdóttir (D), Pawel Bartoszek (C) og Örn Þórðarson (D). Auk þeirra sátu fundinn eftirtaldir áheyrnarfulltrúar: Anna Metta Norðdahl, starfsfólk í leikskólum; Guðrún Gunnarsdóttir, leikskólastjórar; Guðrún Kaldal, framkvæmdastjórar frístundamiðstöðva; Jón Ingi Gíslason, kennarar í grunnskólum og Sigríður Björk Einarsdóttir, foreldrar barna í grunnskólum. Jafnframt sátu fundinn Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir, Guðmundur G. Guðbjörnsson, Haukur Viðar Alfreðsson, Haukur Þór Haraldsson, Ingibjörg Gísladóttir, Ingibjörg M. Gunnlaugsdóttir, Kristján Gunnarsson, Ragnheiður E. Stefánsdóttir, Róbert Rafn Birgisson, Sigríður María Hreiðarsdóttir, Soffía Pálsdóttir og Soffía Vagnsdóttir. Eygló Traustadóttir ritar fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á áherslum og forgangsröðun skóla- og frístundaráðs 2020-2024.

  2. Fram fer kynning á fjárhagsramma skóla- og frístundasviðs 2020.

    -    Kl. 13.35 tekur Valgerður Sigurðardóttir sæti á fundinum. 

  3. Fram fer umræða og hugmyndavinna um hagræðingartækifæri í rekstri skóla- og frístundasviðs.

    -    Kl. 15.30 víkja Guðmundur G. Guðbjörnsson, Haukur Viðar Alfreðsson, Róbert Rafn Birgisson og Sigríður María Hreiðarsdóttir af fundinum.

  4. Fram fer umræða og hugmyndavinna um þau verkefni skóla- og frístundasviðs sem standa þarf vörð um.

Fundi slitið klukkan 17:00

Skúli Helgason Alexandra Briem

Marta Guðjónsdóttir Pawel Bartoszek