Skóla- og frístundaráð
Ár 2026, 12. október, var haldinn 320. fundur skóla- og frístundaráðs. Fundurinn hófst í fundarherberginu Hofi á Höfðatorgi, Borgartúni 12-14 í Reykjavík kl. 9.45.
Eftirtalin voru komin til fundar í fundarherberginu Hofi: Bjarni Fritzson formaður (D), Hlédís Maren Guðmundsdóttir (M), Magnea Gná Jóhannsdóttir (B), Sanna Magdalena Mörtudóttir (A), Skúli Helgason (S) og Þorvaldur Davíð Kristjánsson (C). Eftirtalinn fulltrúi tók sæti á fundinum með fjarfundabúnaði með vísan til heimildar í 2. málsl. 4. mgr. 44. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Friðjón R. Friðjónsson (D). Auk þeirra eftirtaldir áheyrnarfulltrúar: Árni Jónsson, stjórnendur frístundastarfs; Guðrún Elísabet Ómarsdóttir, foreldrar barna í grunnskólum; Kristín Björnsdóttir, kennarar í grunnskólum og Ragnheiður Andrésdóttir, Reykjavíkurráð ungmenna. Auk þeirra eftirtaldir starfsmenn skóla- og frístundasviðs: Steinn Jóhannsson sviðsstjóri, Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir, Arndís Steinþórsdóttir, Guðrún Kaldal, Guðrún Sigtryggsdóttir, Hjörtur Ágústsson og Ragnheiður E. Stefánsdóttir. Eygló Traustadóttir ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 7. október 2026, þar sem tilkynnt er að Skúli Helgason taki sæti í skóla- og frístundaráði í stað Stein Olav Romslo. MSS26060016
Fylgigögn
-
Fram fer kynning og umræða um öryggisstefnu og verklag við öryggismál. SFS26090008
Eyþór Víðisson, Sigríður Lovísa Tómasdóttir og Ingunn Ásta Sigmundsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Kl. 9.57 tekur Friðjón R. Friðjónsson sæti á fundinum og aftengist fjarfundabúnaði.
Skóla- og frístundaráð leggur fram svohljóðandi bókun:
Skóla- og frístundaráð fagnar þeirri heildrænu nálgun sem birtist í öryggisstefnu og verklagi skóla- og frístundasviðs. Öruggt skóla- og frístundastarf er ein af grunnforsendum farsældar barna og starfsfólks. Mikilvægt er að áfram verði lögð áhersla á forvarnir, skýrt verklag, fræðslu og reglulegar æfingar þannig að starfsemi borgarinnar sé sem best í stakk búin til að bregðast við ólíkum aðstæðum. Ráðið hefur jafnframt áhyggjur af vísbendingum um að öryggisatvik gagnvart starfsfólki séu í sumum tilvikum að verða bæði fleiri og alvarlegri og telur mikilvægt að þeirri þróun sé mætt með markvissum forvörnum, stuðningi við starfsfólk og áframhaldandi þróun verklags. Sú umræða mun jafnframt nýtast í áframhaldandi vinnu ráðsins við mótun og eftirfylgni forvarnaráætlunar skóla- og frístundaráðs. Jafnframt þarf að huga vel að aðgangsstýringu í því húsnæði þar sem börn dvelja og tryggja að öryggi þeirra sé ávallt haft að leiðarljósi.
Áheyrnarfulltrúi kennara í grunnskólum leggur fram svohljóðandi bókun:
Áheyrnarfulltrúi grunnskólakennara þakkar fyrir góða kynningu á öryggisstefnunni. Gott er að sjá að margir þættir er varða öryggismál í skólum séu í vinnslu. Einnig er jákvætt að rafrænt skráningarkerfi sé komið í notkun til skráningar á atvikum sem komið hafa upp. Brýnt er að unnið sé markvisst að úrbótum á ýmsum þáttum er varða öryggi, þ.á.m. að samræma verkferla og viðbragð í skólum borgarinnar. Markviss fræðsla til starfsfólks og einföld atriði eins og að allt starfsfólk hafi nafnspjald geta haft góð áhrif til aukinnar öryggistilfinningar. Fjöldi innganga í hverja skólabyggingu getur verið mikill og flókið að tryggja öryggi þeirra sem nema og starfa í skólanum skyldu einstaklingar eða hópar ráðast til inngöngu og veitast að nemum eða starfsfólki. Slík atvik hafa komið upp á síðustu vikum og brýnt að kortleggja skólabyggingar með tilliti til þess.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning og umræða um Púlsinn, bráða- og viðbragðsteymi. SFS26100036
Andrea Marel Þorsteinsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Kl. 10.45 víkur Ragnheiður E. Stefánsdóttir af fundinum.
Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihluti skóla- og frístundaráðs fagnar verkefninu Púlsinum og þeirri þverfaglegu samvinnu sem þar fer fram. Mikilvægt er að halda áfram að styrkja tengsl milli snemmtækrar íhlutunar, stuðningsúrræða og viðbragða þegar áhyggjur vakna af stöðu barna og ungmenna. Meirihlutinn telur mikilvægt að líta á forvarnir, snemmtæka íhlutun og viðbrögð sem samfellda heild þar sem markmiðið er ekki aðeins að bregðast við vanda heldur einnig að greina hann og mæta honum áður en hann vex og verður flóknari. Reynsla og lærdómur af Púlsinum getur því nýst vel í áframhaldandi vinnu ráðsins við að tengja þessa þætti betur saman og efla forvarnir, velferð og öryggi barna og ungmenna.
Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Þakkað er fyrir vandaða kynningu á Púlsinum, sem felur í sér mjög mikilvægt starf bráða- og viðbragðsteymis vegna barna á aldrinum 10-18 ára, sem beita eða hóta líkamlegu ofbeldi sem metið er svo að hafi verið beitt af ásetningi. Verkefnið er afar mikilvægt inngrip til að mæta einni alvarlegustu birtingarmynd áhættuhegðunar meðal barna og ungmenna. Púlsinn hefur haft aðsetur í Suðurmiðstöð í Mjódd en hún verður nú lögð niður um áramótin og þá flytur Púlsinn í Borgartúnið. Það er áhyggjuefni að Púlsinn hverfi úr Mjódd þar sem starfsfólk Púlsins hefur verið í aðstöðu til að beita sér í nærumhverfinu. Verkefnið er að mestu fjármagnað með tímabundnum 240 m. kr styrk frá mennta- og barnamálaráðuneytinu sem rennur út í lok næsta árs. Afar brýnt er að verkefnið haldi áfram að þeim tíma loknum og virkt samtal verði við ríkisvaldið um framhald á stuðningi ráðuneytisins við þetta bráðnauðsynlega samstarfsverkefni sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Barna- og fjölskyldustofu.
-
Drög að fjárhagsáætlun skóla- og frístundasviðs 2027, trúnaðarmál.
Frestað. SFS26100006
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, sbr. 2. dagskrárlið fundargerðar borgarstjórnar frá 6. október 2026, sem vísað var til meðferðar skóla- og frístundaráðs:
Lagt er til að borgarstjórn samþykki að setja íslenskukennslu barna af erlendum uppruna í forgang. Skóla- og frístundasviði verði falið að móta aðgerðir þess efnis, með jöfnuð barna að leiðarljósi. Aðgerðirnar taki til leikskóla, grunnskóla og frístundastarfs með það að markmiði að öll börn öðlist góð tök á íslensku sem grundvöll að námi, félagsfærni og inngildingu í samfélagið. Tillögurnar skulu lagðar fram í skóla- og frístundaráði og leikskóla- og daggæsluráði fyrir lok nóvember 2026 og í framhaldi í borgarráði og til umræðu og afgreiðslu í borgarstjórn.
Greinargerð fylgir.
Tillögunni er vísað inn í vinnu skóla- og frístundasviðs um að móta og leggja fram tillögur
að aðgerðum sem miða að því að bæta námsárangur. MSS26100014Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihlutinn styður við þá áherslu sem lögð er á eflingu íslenskukunnáttu barna og ungmenna í Reykjavík. Góð færni í íslensku er ein af mikilvægustu forsendum námsárangurs, félagslegrar þátttöku og jafnra tækifæra. Sérstaklega er mikilvægt að börn af erlendum uppruna fái markvissan stuðning frá upphafi skólagöngu, enda er það lykill að farsælli inngildingu, virkri þátttöku í skóla- og frístundastarfi og sterkari tengingu við íslenskt samfélag. Tillagan fellur vel að þeirri vinnu sem nú stendur yfir um sókn í skólamálum og mun nýtast við áframhaldandi þróun aðgerða til að bæta námsárangur og styrkja stöðu fjölbreytts nemendahóps í leikskóla-, grunnskóla- og frístundastarfi borgarinnar.
Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Samfylkingin leggur áherslu á að Reykjavíkurborg setji í forgang íslenskukennslu barna með annað móðurmál sem lykilþátt í þeirri sóknaráætlun í menntamálum sem nú er unnið að á skóla- og frístundasviði. Ísland ver minna fjármagni í tungumálakennslu aðfluttra íbúa en flestar aðrar þjóðir innan OECD og þó fjárveitingar til málaflokksins hafi nær þrefaldast á undanförnum 10 árum hefur það ekki haldist í hendur við fjórföldun á fjölda grunnskólanema með annað móðurmál en íslensku. Sögulegt tækifæri er fyrir borgina að stórefla íslenskukennslu þessa hóps þar sem borgin nýtur nú í fyrsta sinn eftir áralanga baráttu jafnaðarmanna, framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til að fjármagna þessa kennslu, alls 749 m.kr. á ári. Afar brýnt er að þetta fjármagn skili sér strax til eflingar íslenskukennslunnar eins og lög gera ráð fyrir. Mikilvægt er að hefja málörvun og uppbyggingu íslensks málumhverfis strax í leikskóla og auka til muna snemmtækan stuðning með því að margfalda kennslustundir í íslensku fjöltyngdra barna strax á yngsta stigi grunnskólans. Þannig má vinna að því markmiði að börn af erlendum uppruna standi jafnfætis jafnöldrum sínum í grunnskólum borgarinnar. Það er ein áhrifaríkasta aðgerðin til að stuðla að auknum jöfnuði í borginni sem kemur öllum til góða.
Fylgigögn
-
Samþykkt að taka inn á dagskrá með afbrigðum svohljóðandi tillögu skóla- og frístundaráðsfulltrúa Samfylkingarinnar:
Lagt er til að skóla- og frístundaráð samþykki þá stefnu að grunnskólar borgarinnar leggi sérstaka áherslu á að nýta gagnreyndar kennsluaðferðir í undirstöðugreinum s.s. íslensku, stærðfræði og náttúruvísindum með það að markmiði að bæta námsárangur og auka faglegan stuðning við kennara á vettvangi. Áfram verði stutt við að grunnskólar hafi frelsi og svigrúm til að þróa aðferðir og verklag sem leiði til framþróunar í skólastarfi. Sviðsstjóra verði falið að láta framkvæma könnun á notkun gagnreyndra aðferða í grunnskólum borgarinnar í dag og móta tillögur um hvernig megi tryggja aukna notkun þeirra með eðlilegum aðlögunartíma og í nánu samráði við skólastjórnendur og kennarasamfélagið. Þar verði m.a. ávarpað hvernig verði best staðið að markvissri miðlun á gagnreyndum aðferðum til kennara og annars starfsfólks í grunnskólum borgarinnar. Tekið verði mið af innlendum og erlendum fyrirmyndum varðandi markvissa notkun gagnreyndra kennsluhátta í grunnskólum borgarinnar. Áhersla verði lögð á að nýta háskólasamfélagið þ.m.t. gildandi samning skóla- og frístundasviðs við menntavísindasvið Háskóla Íslands varðandi útfærslu og innleiðingu stefnunnar. Miðað skal við að fyrstu tillögur sviðsstjóra um útfærslur stefnunnar liggi fyrir sem hluti af sóknaráætlun borgarinnar í menntamálum fyrir lok nóvember 2026 og drög að innleiðingaráætlun eigi síðar en 1. mars 2027.
Greinargerð fylgir.
Tillögunni er vísað inn í vinnu skóla- og frístundasviðs um að móta og leggja fram tillögur að aðgerðum sem miða að því að bæta námsárangur. Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Miðflokksins og Vinstrisins sitja hjá við afgreiðsluna. SFS26100059
Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Tillaga Samfylkingarinnar felur í sér að Reykjavík taki forystu í innleiðingu gagnreyndra aðferða í skólastarfi borgarinnar. Mörkuð verði sú stefna að grunnskólar borgarinnar leggi sérstaka áherslu á að innleiða gagnreyndar kennsluaðferðir í undirstöðugreinum á borð við íslensku, stærðfræði og náttúruvísindi með það að markmiði að bæta námsárangur í grunnskólum og auka stuðning við kennara á vettvangi. Gagnreyndar eru þær kennsluaðferðir sem eru studdar endurteknum vísindalegum samanburðarrannsóknum þar sem sýnt hefur verið fram á að viðkomandi aðferðir skili jákvæðum árangri fyrir nám og þroska nemenda. Tillagan er innlegg í sóknarstefnu í menntamálum sem sviðið vinnur nú að skv. tillögu meirihlutans og á að liggja fyrir í lok nóvember. Lagt er til að sviðsstjóra verði falið að láta vinna innleiðingaráætlun sem feli í sér miðlun upplýsinga um gagnreyndar aðferðir til kennara og skólastjórnenda, sem skólarnir geti nýtt sér og valið úr með hliðsjón af stefnuáherslum hvers skóla, samsetningu nemendahópa o.s.frv. Áréttað er að áfram verði stutt við að grunnskólar borgarinnar hafi frelsi og svigrúm til að þróa aðferðir og verklag sem geti stuðlað að framþróun í skólastarfi. Þá gegna starfendarannsóknir kennara t.d. veigamiklu hlutverki í skólastarfinu og lögð er áhersla á áframhaldandi stuðning við þær.
Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Hér er lagt til að borgin marki nýja stefnu um gagnreyndar kennsluaðferðir án þess að skýrt sé hvaða hlutverk fagleg dómgreind kennara eigi að hafa við val þeirra. Ef markmiðið er raunverulega gagnreynt skólastarf væri æskilegra að byrja á að meta árangur þeirra aðferða og stefna sem borgin hefur þegar innleitt. Að lokum er vert að nefna Kveikjum neistann berum orðum, en það er eitt umfangsmesta rannsóknar- og þróunarverkefni íslensks grunnskólastarfs og fellur að verulegu leyti að markmiðum tillögunnar sem er lögð fram til höfuðs þess. Gagnreynd menntastefna má ekki verða til gagnrýnislausrar innleiðingar á hugðarefnum kennaraakademíunnar. Það þarf gagnrýna skoðun á gildandi stefnu og sjálfstætt árangursmat, ekki síður en virðingu fyrir fagþekkingu kennara.
Áheyrnarfulltrúi kennara í grunnskólum leggur fram svohljóðandi bókun:
Mikilvægt er að borin sé virðing fyrir fagmennsku kennara. Í háskólanámi fá kennaranemar menntun sem nýtist þeim í starfi, þ.á.m. kennslu um gagnreyndar kennsluaðferðir. Brýnt er að unnið sé að bættum starfsaðstæðum kennara og álag í starfi þeirra minnkað. Á vordögum kom út skýrsla Ingvars Sigurgeirssonar og Lilju M. Jónsdóttur um álagsþætti í kennarastarfinu og skýrslan varpaði ljósi á fjölmargt sem vinna þarf að til að bæta úr álaginu. Einnig þarf að fjölga starfsþróunarmöguleikum fyrir kennara. Mikið hefur verið rætt um skort á námsgögnum sem er alvarlegur. Víða er pottur brotinn í starfsumhverfi kennara og við skyldum forðast það að kalla á aukna miðstýringu í stað þess að bæta það sem raunverulega þarf að bæta. Kjörnir fulltrúar mættu endilega beita sér markvisst fyrir því að úr því sé bætt fremur en að segja kennurum hvernig þeir eigi að kenna. Kennarar eru jú sérfræðingar í kennslu.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 1. október 2026, um samþykkt borgarstjórnar um endurreisn íslenska forvarnarmódelsins. MSS26090114
Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Samfylkingarinnar fagnar því að meirihlutinn taki undir mikilvægi íslenska forvarnarmódelsins, sem var einmitt grunnurinn að tillögu Samfylkingarinnar um víðtækar aðgerðir í forvarnarmálum, sem lögð var fram í borgarstjórn 8. september síðastliðinn og hefur nú verið vísað til skóla- og frístundaráðs. Tillaga meirihlutans snýr fyrst og fremst að gagnaöflun og rýningu þeirra og það er vel, en gögnin gera lítið nema þau leiði til aðgerða úti í hverfunum, hjá fagfólkinu sem þekkir börnin. Barna- og fjölskylduteymi í fjórum hverfum borgarinnar, eins og Samfylkingin hefur lagt til í borgarstjórn, er sá vettvangur sem þarf til að vinna áfram með niðurstöðurnar og því í raun forsenda þess að tillaga meirihlutans skili árangri. Miðlæg skrifstofa í Borgartúni getur ekki ein gegnt því hlutverki. Áður en borgin skuldbindur sig til lengri tíma þarf líka að liggja fyrir kostnaðarmat og skýr ábyrgð á eftirfylgninni.
Áheyrnarfulltrúi stjórnenda í frístundastarfi leggur fram svohljóðandi bókun:
Áheyrnarfulltrúi frístundastarfsins fagnar skýrri stefnu þegar kemur að starfi við íslenska forvarnarmódelið. Frístundastarfið hefur verið ein af lykilstoðum forvarnarstarfs og viðbragðs þegar kemur að áskorunum sem upp kunna að koma. Fagfólk í frístundastarfinu er tilbúið í samtal um þau tækifæri sem niðurstöður rannsókna mun leiða í ljós og að taka þátt í að ná betri árangri þegar kemur að forvörnum barna og unglinga.
Fylgigögn
-
Lagt fram svar sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 1. október 2026, við fyrirspurn skóla- og frístundaráðsfulltrúa Samfylkingarinnar og Vinstrisins um framkvæmd símafrís í grunnskólum, sbr. 20. lið fundargerðar skóla- og frístundaráðs frá 17. ágúst 2026. SFS26060183
Fylgigögn
-
Lagt fram svar sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 30. september 2026, við fyrirspurn skóla- og frístundaráðsfulltrúa Vinstrisins um kostnað við strætókort til nemenda í grunnskólum, sbr. 21. lið fundargerðar skóla- og frístundaráðs frá 17. ágúst 2026. SFS26080063
Fylgigögn
-
Samþykkt að taka inn á dagskrá með afbrigðum drög að samþykkt skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar ásamt breytingartillögum forsætisnefndar. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 24. september 2026, um breytingar á samþykkt skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar. MSS26080081
Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar, Framsóknarflokksins, Samfylkingarinnar og Miðflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Framsóknar, Miðflokks, Samfylkingar, Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar í skóla- og frístundaráði telja ekki ráðlegt að samþykktum ráðsins verði breytt með þeim hætti að fulltrúi stjórnenda frístundaheimila og félagsmiðstöðva og fulltrúi Reykjavíkurráðs ungmenna missi rétt til setu á fundum ráðsins með málfrelsi og tillögurétt. Mikilvægt er að tryggja að rödd barna og ungmenna fái að heyrast þegar fjallað er um málefni sem þau varða. Jafnframt skiptir máli að sjónarmið stjórnenda frístundaheimila og félagsmiðstöðva komi með beinum hætti inn í umræðu ráðsins, líkt og sjónarmið annarra fulltrúa skóla- og frístundasamfélagsins. Fulltrúarnir leggjast ekki gegn því að fulltrúi Samtaka sjálfstæðra skóla eigi seturétt á fundum skóla- og frístundaráðs, en telur rétt að árétta að kennarar í sjálfstætt starfandi skólum eru aðilar að Kennarafélagi Reykjavíkur og skólastjórnendur sjálfstætt starfandi skóla geta verið aðilar að Félagi skólastjórnenda í Reykjavík. Bæði félög hafa nú áheyrnafulltrúa á fundum ráðsins.
Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Vinstrisins tekur undir fyrri hluta umsagnar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar, Framsóknar, Samfylkingarinnar og Miðflokks skóla- og frístundaráðs sem er eftirfarandi: Fulltrúar Framsóknar, Miðflokks, Samfylkingar, Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar í skóla- og frístundaráði telja ekki ráðlegt að samþykktum ráðsins verði breytt með þeim hætti að fulltrúi stjórnenda frístundaheimila og félagsmiðstöðva og fulltrúi Reykjavíkurráðs ungmenna missi rétt til setu á fundum ráðsins með málfrelsi og tillögurétt. Mikilvægt er að tryggja að rödd barna og ungmenna fái að heyrast þegar fjallað er um málefni sem þau varða. Jafnframt skiptir máli að sjónarmið stjórnenda frístundaheimila og félagsmiðstöðva komi með beinum hætti inn í umræðu ráðsins, líkt og sjónarmið annarra fulltrúa skóla- og frístundasamfélagsins. Fulltrúi Vinstrisins telur ekki þörf á því á þessu stigi að fulltrúi Samtaka sjálfstæðra skóla eigi seturétt á fundum skóla- og frístundaráðs. Þess má geta að fulltrúar starfsfólks skólanna eiga aðkomu að ráðinu.
Áheyrnarfulltrúi Reykjavíkurráðs ungmenna leggur fram svohljóðandi bókun:
Það að taka áheyrnarfulltrúa Reykjavíkurráðs ungmenna úr skóla- og frístundaráði er gríðarleg afturför í lýðræðisþátttöku barna og ungmenna í Reykjavík. Skóla- og frístundaráð er mikilvægur aðili í að rödd barna heyrist og að ungmenni geti haft áhrif á umhverfi sitt og samfélag. Við hvetjum til þess að fallið verði frá þessum breytingum og haldið áfram að styðja Reykjavíkurráð ungmenna í lýðræðisþátttöku. Það hefur verið markmið Reykjavíkurráðs ungmenna að auka frekar en minnka aðkomu ungmenna að ráðum og nefndum Reykjavíkurborgar samanber tillaga sem lögð var fram af ungmennum á fundi með borgarstjórn í febrúar 2026 og ennþá á eftir að taka fyrir af forsætisnefnd. Með þessum breytingum væri unnið gegn hugmyndum um barnvæn sveitarfélög en innleiðing á því verkefni er á verkefnalista meirihlutans í borgarstjórn. Öll skóla- og frístundamál í borginni koma ungmennum við.
Áheyrnarfulltrúi stjórnenda frístundastarfs leggur fram svohljóðandi bókun:
Við skipan áheyrnarfulltrúa í skóla- og frístundaráð er mikilvægt að horft sé til hlutverks frístundastarfs í málefnum barna og unglinga. Frístundastarf er mikilvægur vettvangur uppeldis og þroska þar sem félagsfærni, sjálfsmynd, þátttaka, lýðræðisvitund, ábyrgð og heilbrigður lífsstíll eru efld. Við breytingar á skipan áheyrnarfulltrúa þarf því að horfa til þeirrar þekkingar, reynslu og þeirra sjónarmiða sem mikilvægt er að eigi rödd við borðið, en ekki eingöngu þess sem lög gera lágmarkskröfu um. Sama á við um fulltrúa Reykjavíkurráðs ungmenna. Raunverulegt samráð við börn og ungmenni felst ekki aðeins í því að leita sjónarmiða þeirra í einstökum málum heldur að tryggja þeim reglulegan vettvang til þátttöku þar sem ákvarðanir sem þau varða eru teknar. Greina þarf skýrt á milli þátttöku sem veitir raunhæf tækifæri til áhrifa og sýndarsamráðs. Einföldun stjórnsýslu má ekki veikja tengsl ráðsins við vettvanginn eða draga úr aðkomu þeirra sem búa yfir mikilvægri reynslu og þekkingu. Við skorum því á skóla- og frístundaráð að hverfa frá tillögu um að takmarka aðgengi áheyrnarfulltrúa frístundastarfs og Reykjavíkurráðs ungmenna að ráðinu.
Fylgigögn
-
Fram fer umræða um fréttir af vettvangi skóla- og frístundastarfs. SFS26070077
Fundi slitið kl. 12.03
Bjarni Fritzson Friðjón R. Friðjónsson
Hlédís Maren Guðmundsdóttir Magnea Gná Jóhannsdóttir
Skúli Helgason Sanna Magdalena Mörtudottir
Þorvaldur Davíð Kristjánsson
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 12. október 2026