Skóla- og frístundaráð - Fundur nr. 319

Skóla- og frístundaráð

Ár 2026, 28. september, var haldinn 319. fundur skóla- og frístundaráðs. Fundurinn hófst í fundarherberginu Hofi á Höfðatorgi, Borgartúni 12-14 í Reykjavík kl. 9.45.
Eftirtalin voru komin til fundar í fundarherberginu Hofi: Bjarni Fritzson formaður (D), Friðjón R. Friðjónsson (D), Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir Waage (M), Magnea Gná Jóhannsdóttir (B), Sanna Magdalena Mörtudóttir (A), Skúli Helgason (S) og Þorvaldur Davíð Kristjánsson (C). Auk þeirra eftirtaldir áheyrnarfulltrúar: Árni Jónsson, stjórnendur frístundastarfs; Guðrún Elísabet Ómarsdóttir, foreldrar barna í grunnskólum; Indriði Nökkvi Þóreyjarson, Reykjavíkurráð ungmenna og Kristín Björnsdóttir, kennarar í grunnskólum. Eftirtalinn áheyrnarfulltrúi tekur sæti á fundinum með fjarfundabúnaði með vísan til heimildar í 2. málsl. 4. mgr. 44. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Guðjóna Eygló Friðriksdóttir, skólastjórar í grunnskólum. Auk þeirra eftirtaldir starfsmenn skóla- og frístundasviðs: Steinn Jóhannsson sviðsstjóri, Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir og Frans Páll Sigurðsson. Eftirtaldir starfsmenn taka sæti á fundinum með rafrænum hætti: Arndís Steinþórsdóttir, Guðrún Kaldal og Hjörtur Ágústsson. Guðrún Sigtryggsdóttir ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning og umræða um niðurstöður PISA 2025. SFS26090134

    Guðmundur Bjarki Þorgrímsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihlutinn þakkar fyrir kynningu á niðurstöðum Pisa 2025. Niðurstöðurnar eru sláandi og sú staða sem þær sýna óásættanleg. Þær undirstrika mikilvægi þess að halda áfram markvissri vinnu við að efla grunnfærni, bæta námsárangur og tryggja jöfn tækifæri allra barna til náms. Allir sem koma að menntamálum barna þurfa að líta sér nær og skoða eigin ábyrgð og starfshætti, þar á meðal við sem förum með pólitíska ábyrgð. Mikilvægt er að forðast of einfaldar skýringar á niðurstöðunum og horfa þess í stað heildstætt á íslenska skólakerfið. Skoða þarf meðal annars kröfur í námi, námsefni, námsmat, kennsluhætti, starfsumhverfi kennara og þann stuðning sem nemendur fá. Jafnframt þurfum við að læra af þeim löndum sem náð hafa betri árangri, skoða hvað þau gera öðruvísi og horfa til tillagna OECD og sérfræðinga á sviði menntamála um raunhæfar og markvissar úrbætur. Meirihlutinn tekur niðurstöðunum alvarlega og boðar sókn í menntamálum með það að markmiði að snúa þróuninni við og bæta námsárangur barna í Reykjavík.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Miðflokksins þakkar góða og greinargóða kynningu á niðurstöðum PISA. Niðurstöðurnar kalla á opna og fordómalausa umræðu um skipulag og framkvæmd skólastarfs, þar sem hagsmunir og námsárangur barnanna eru ávallt í fyrirrúmi. Augljóst er að núverandi staða er óásættanleg og mikilvægt er að taka skólamálin föstum tökum. Mikilvægt er að fram fari óháð og heildstæð úttekt á framkvæmd stefnunnar um skóla án aðgreiningar. Meta þarf hvort stefnan, eins og hún hefur verið útfærð og fjármögnuð, þjóni þörfum allra nemenda eða hvort hún hafi í einhverjum tilvikum haft neikvæð áhrif á námsárangur, vinnufrið og líðan barna. Slík skoðun snýst ekki um að draga úr réttindum barna heldur að tryggja að sérhvert barn fái kennslu, stuðning og námsumhverfi við hæfi. Jafnframt þarf að meta árangur teymiskennslu, sérstaklega á yngsta stigi grunnskóla. Skoða þarf hvort skýr ábyrgð sé á námi hvers barns, hvort næg samfella og festa sé í kennslunni og hvort fyrirkomulagið styðji með mælanlegum hætti við grunnfærni í lestri, ritun og stærðfræði. Sérstaklega þarf að skoða líðan barna í því fyrirkomulagi. Hvort þau fá sama utanumhald og upplifi sig eins örugg.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:

    Niðurstöður PISA 2025 sýna að frammistaða íslenskra unglinga er töluvert lakari en meðal OECD-ríkjanna og Norðurlanda. Frammistaða nemenda í Reykjavík er heldur betri en í öðrum landshlutum en lækkun frá 2022 hins vegar meiri hér og á höfuðborgarsvæðinu. Nemendur með innflytjendabakgrunn sitja eftir í lesskilningi einkum þeir sem fæddir eru erlendis. Styrkja þarf íslenskukennslu þeirra. Leggja þarf meiri áherslu á kennslu í náttúruvísindum en færri kennslustundum er varið í að kenna íslenskum unglingum náttúruvísindi en í Evrópu. Aukin þörf er fyrir kennsluhætti sem krefjast virkrar rannsóknarþátttöku nemenda. Félags- og efnahagsleg staða nemenda er sterkari hér á landi en í Evrópu almennt. Hins vegar eru nemendur með veikari félags- og efnahagslega stöðu líklegri en aðrir nemendur til þess að skorta grunnhæfni í öllum greinum sem mæld eru í PISA en þeir eru 28% nemenda sem er óvenju hátt hlutfall borið saman við önnur lönd. Ánægjulegt er að íslenskir nemendur skora almennt hátt þegar kemur að þrautseigju, forvitni, líðan í skóla og sjálfstjórnun náms. Það eru mikilvægir styrkleikar sem styðja við sjálfstæði og virkni í námi. Brýnt er að draga skýran lærdóm af niðurstöðunum og horfa þar m.a. til umbóta á kennsluháttum, námsgagnaútgáfu og að styrkja stöðu nemenda með innflytjendabakgrunn.

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 17. september 2026, um samþykkt borgarráðs um aðgerðir í skólamálum vegna niðurstaðna PISA könnunar. MSS26090052

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Miðflokkurinn fagnar því að meirihlutinn hyggist taka stöðu skólamála föstum tökum og leggja áherslu á markvissar aðgerðir til að bæta námsárangur. Jafnframt er ánægjulegt að fyrirhugað sé að móta aðgerðirnar í samráði við kennara og annað starfsfólk skólanna, enda býr það yfir ómetanlegri þekkingu og reynslu. Miðflokkurinn leggur áherslu á að jafnframt verði náms- og starfsumhverfi barna tekið til ítarlegrar skoðunar, meðal annars bekkjarstærðir, vinnufriður, aðbúnaður og öryggi nemenda. Forgangsverkefni skólanna á að vera að tryggja börnum trausta kennslu í grunnfögum og öruggt námsumhverfi. Önnur verkefni og gæluverkefni verða að víkja á meðan unnið er að þessum brýnu grunnverkefnum.

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 17. september 2026, um samþykkt borgarráðs um framtíð skólamála í Reykjavík. MSS26090053

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihlutinn leggur áherslu á að brugðist verði við niðurstöðum PISA með markvissum hætti og er stefnt á að aðgerðir til að bregðast við þeim verði lagðar fram fyrir lok nóvember. Lykilatriði er að ráðist verði í heildstæða endurskoðun á menntakerfinu með það að markmiði að efla læsi, styrkja grunnfærni í stærðfræði og náttúruvísindum og bæta námsárangur barna og ungmenna. Meirihlutinn leggur áherslu á að í fyrirhuguðu samtali um framtíð skólamála verði einnig fjallað um hlutverk frístundastarfs. Skóli og frístundir eru órjúfanlegir þættir í uppvexti barna og mikilvægt að horft sé til þess hvernig þessi svið geta í auknum mæli unnið saman að auknum námsárangri, vellíðan og farsæld barna og ungmenna.

    Áheyrnarfulltrúi stjórnenda frístundastarfs leggur fram svohljóðandi bókun:

    Áheyrnafulltrúi frístundastarfsins fagnar því að fara eigi í stórsókn þegar kemur að málefnum barna og unglinga í Reykjavík. Tillagan gerir ráð fyrir stórsókn í menntamálum en eins og fram kemur í Menntastefnu Reykjavíkur til 2030, sem skóla- og frístundasvið starfar eftir, þá fjallar stefnan um börnin, þarfir þeirra og velferð í nútíð og framtíð en um leið valdeflingu starfsfólks og aukna fagmennsku í skóla- og frístundastarfi. Jafnframt má benda á skoðanagrein Steins Jóhannssonar sviðsstjóra og Soffíu Pálsdóttur skrifstofustjóra frístundamála á Vísi í febrúar 2026 þar sem fram kemur að með réttu megi kalla starfsemi frístundaheimila og félagsmiðstöðva þriðju stóru stoðina í menntakerfi borgarinnar. Það er því mikilvægt að frístundastarfið verði skrifað inn í tillögurnar til að stórsóknin nái til allra þátta í starfsemi sviðsins sem um leið mun auka líkur á góðum árangri.

    Fylgigögn

  4. Lögð fram að nýju svohljóðandi tillaga skóla- og frístundaráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, sbr. 10. lið fundargerðar skóla- og frístundaráðs frá 14. september 2026:

    Fulltrúi Samfylkingarinnar óskar eftir því að á næsta fundi skóla- og frístundaráðs verði ítarleg kynning á niðurstöðum PISA könnunar sem lögð var fyrir nemendur í grunnskólum 2025. Sérstök áhersla verði lögð á að kynna stöðu nemenda í Reykjavík borið saman við aðra landshluta og fyrri PISA kannanir með greiningum á helstu skýringum niðurstaðna. Loks verði kynnt til hvaða aðgerða sviðið hefur gripið og telur vænlegast að grípa til, til að bæta námsárangur í grunnskólum borgarinnar í lesskilningi, stærðfræði og náttúruvísindum.

    Samþykkt. SFS26090098

    Fylgigögn

  5. Lögð fram að nýju svohljóðandi tillaga skóla- og frístundaráðsfulltrúa Vinstrisins, sbr. 11. lið fundargerðar skóla- og frístundaráðs frá 14. september 2026:

    Skóla- og frístundaráð samþykkir að mótuð verði heildarstefna um sértækt hlutverk skólasafna í Reykjavík. Víðtækt samráð skal hafa við skólasöfnin, Félag fagfólks á skólabókasöfnum, Upplýsingu – Félag bókasafns- og upplýsingafræða og aðrar fagstéttir og hlutaðeigandi sem að máli kunna að skipta.

    Samþykkt að vísa tillögunni inn í vinnu sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs við að greina stöðu skólasafna í grunnskólum Reykjavíkur og leggja fram tillögur að aðgerðum. SFS26090093

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúinn samþykkir málsmeðferðatillöguna um að vísa tillögunni inn í þá greiningarvinnu sem á sér stað á skólabókasöfnum. Rétt er þó að benda á að vel hefði verið hægt að samþykkja tillöguna um að móta heildarstefnu fyrir skólasöfn og hefjast svo handa við stefnumótun þegar niðurstöður greiningarinnar á skólabókasöfnum liggja fyrir.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihlutinn þakkar fyrir tillöguna og þau sjónarmið sem þar koma fram. Meirihlutinn bendir á að að hans frumkvæði var í september sett af stað vinna við kortlagningu skólasafna Reykjavíkurborgar og vísar því tillögunni inn í þá vinnu sem þegar er til staðar. Þau atriði sem fram koma í tillögunni verða höfð til hliðsjónar og tekin til skoðunar í þeirri vinnu, enda mikilvægt að áframhaldandi uppbygging skólasafna byggi á heildarsýn, faglegri greiningu og þörfum skólasamfélagsins.

    Fylgigögn

  6. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 24. september 2026, um breytingar á samþykkt skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar. MSS26080081

    Frestað. 

    Fylgigögn

  7. Lagt fram rekstraruppgjör skóla- og frístundasviðs, janúar – júní 2026. SFS26080006

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:

    Niðurstaða rekstraruppgjörs skóla- og frístundasviðs vekur athygli í ljósi þess að rekstur sviðsins hefur verið í góðu jafnvægi frá því ný fjárhagslíkön grunnskóla og leikskóla voru innleidd fyrir nokkrum misserum. Hér vekja athygli sérstakar afskriftir að fjárhæð 300 milljónir króna sem felast í því að afskrifaður er sérstaklega hönnunar- og undirbúningskostnaður vegna fyrirhugaðra framkvæmda yfir langt árabil þar sem forsendur hafa breyst, einkum tengt leikskólauppbyggingu og frístundastarfi. Þessar sérstöku afskriftir eiga sér ekki fordæmi í rekstri sviðsins á liðnum árum og tengjast greinilega þeirri viðleitni meirihlutaflokkanna að draga upp svartari mynd af fjárhag borgarinnar en efni standa til. Það er greinilega gert til að réttlæta harkalegar niðurskurðaraðgerðir með fjöldauppsögnum sem birst hafa á undanförnum mánuðum og ekki sér fyrir endann á.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi gagnbókun:

    Meirihlutinn hafnar þeirri fullyrðingu Samfylkingarinnar að afskriftirnar séu til þess fallnar að draga upp villandi mynd af fjárhag borgarinnar eða réttlæta niðurskurð. Að afskriftir af þessu tagi hafi ekki komið fram á liðnum árum er ekki rök fyrir því að þær séu óþarfar eða óeðlilegar nú. Meta verður hvort forsendur séu áfram fyrir eignfærslu kostnaðarins og gera skýra grein fyrir niðurstöðunni. Fulltrúi Samfylkingarinnar lýsir sjálfur því að um sé að ræða hönnunar- og undirbúningskostnað sem fallið hefur til yfir langt árabil vegna verkefna þar sem forsendur hafa breyst. Eðlilegt er að spurt sé hvernig til þess kostnaðar var stofnað, hvers vegna verkefnin urðu ekki að veruleika og hvernig staðið var að eftirfylgni þeirra. Fullyrðingar um pólitískan tilgang afskriftanna svara ekki þeim spurningum. Meirihlutinn leggur áherslu á að skýrt sé greint á milli reglulegs rekstrar og sérstakra afskrifta. Gagnsæ framsetning beggja þátta er forsenda málefnalegrar umræðu um fjárhag sviðsins.

    Fylgigögn

  8. Lagt fram svar sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 10. september 2026, við fyrirspurn skóla- og frístundaráðsfulltrúa Samfylkingarinnar um hvernig eigi að tryggja þjónustu við innleiðingu breytinga á stjórnskipulagi, sbr. 9. lið fundargerðar skóla- og frístundaráðs frá 31. ágúst 2026. SFS26090010

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihlutinn þakkar fyrir fyrirspurnina og svarið. Markmið breytinganna er að efla þjónustu við börn og fjölskyldur í borginni. Mikilvægt er að fylgst sé vel með áhrifum þeirra skipulagsbreytinga sem nú eru í innleiðingu og að þjónusta við börn og fjölskyldur haldist áfram aðgengileg, samfelld og í nærumhverfi notenda. Meirihlutinn tekur undir það sem fram kemur í svarinu að breytingarnar lúta fyrst og fremst að skipulagi, stjórnun og ábyrgðarkeðju þjónustunnar en ekki aðgengi barna og fjölskyldna að þjónustu. Þá er sérstaklega mikilvægt að vakandi auga sé haft með þjónustu við viðkvæma hópa, þar á meðal börn með sértækar stuðningsþarfir og börn með annað móðurmál en íslensku. Meirihlutinn fagnar því að fyrir liggi áform um reglulegt mat á áhrifum breytinganna og leggur áherslu á að brugðist verði hratt við ef fram koma vísbendingar um skert aðgengi eða lakari þjónustu á innleiðingartímanum.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:

    Þakkað er fyrir ítarlegt og málefnalegt svar. Enginn vafi er á því að stjórnendur og starfsfólk sviðsins leggur sig fram um að leysa af fagmennsku úr þeirri vandasömu stöðu sem fylgir skipulagsbreytingunum og þeim fjöldauppsögnum sem þeim hefur fylgt. Því miður er viðbúið að stærri hluti þjónustu sérfræðinga muni fara fram á miðlægum skrifstofum í stað þess að vera veitt sem nærþjónusta úti í hverfunum. Komið hefur æ betur fram á liðnum vikum að um vanhugsaðar aðgerðir var að ræða af hálfu meirihlutans án eðlilegs samráðs við starfsfólk eða virðingar fyrir þeim mikla fjölda starfsfólks sem missti vinnuna. Það síðastnefnda vekur sérstaka athygli því mannvirðing var eitt af yfirlýstum markmiðum aðgerðanna. Draga þarf þann lærdóm af aðgerðunum að nauðsynlegt er að undirbúa og útfæra þær mun betur en gert var og tryggja að ekki sé verið að fórna meiri hagsmunum fyrir minni í mikilvægum málaflokkum eins og forvörnum, skipulögðum frístundum, virkni og vinnu einstaklinga á fjárhagsaðstoð og síðast en ekki síst vinnu við inngildingu barna og fjölskyldna af erlendum uppruna.

    Fylgigögn

  9. Lagt fram svar sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 14. september 2026, við fyrirspurn skóla- og frístundaráðsfulltrúa Samfylkingarinnar og Vinstrisins um aðkomu skóla- og frístundaráðs að vinnu með fjárhagsáætlun 2027, sbr. 19. lið fundargerðar skóla- og frístundaráðs frá 17. ágúst 2026. SFS26080053

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihlutinn þakkar fyrir fyrirspurnina og svarið. Gerð fjárhagsáætlunar er eitt af mikilvægustu verkefnum borgarinnar og því mikilvægt að kjörnir fulltrúar hafi tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri á meðan á vinnunni stendur. Meirihlutinn fagnar því að sérstakur samráðsfundur hafi verið haldinn með kjörnum fulltrúum og að þeim hafi jafnframt gefist kostur á að senda inn ábendingar í kjölfar fundarins. Slíkt samráð styrkir undirbúning og umræðu um forgangsröðun verkefna og ráðstöfun fjármuna innan sviðsins.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Miðflokkurinn fagnar því að leitað sé þvert á flokka að leiðum til hagræðingar og betri nýtingar fjármuna. Slíkt samráð þarf þó að vera raunverulegt, markvisst og vel undirbúið svo þekking og hugmyndir allra fulltrúa nýtist. Vinnufundurinn 7. september var að mati undirritaðrar óskilvirkur og illa undirbúinn. Fulltrúar fengu aðeins örfáar mínútur til að móta hugmyndir og voru síðan beðnir um að skila nafnlausum tillögum. Slíkt fyrirkomulag gaf lítið svigrúm til faglegrar umræðu, sameiginlegrar forgangsröðunar eða raunverulegrar úrvinnslu tillagna. Fulltrúi Miðflokksins hefur mikinn áhuga á að taka virkan þátt í að finna skynsamlegar hagræðingarleiðir sem verja grunnþjónustu borgarinnar. Undirrituð tók einnig þátt í vinnufundum á vegum velferðarráðs sem voru mun markvissari, skilvirkari og skiluðu áþreifanlegri niðurstöðum. Það verklag mætti hafa til fyrirmyndar. Miðflokkurinn leggur áherslu á að aðkoma minnihluta og áheyrnarfulltrúa að vinnu við fjárhagsáætlun verði efnisleg og fari fram með góðum fyrirvara. Samráð má ekki vera aðeins til málamynda heldur þarf það að vera þannig úr garði gert að raunhæfar tillögur geti orðið til og haft áhrif á niðurstöðuna.

    Fylgigögn

  10. Lagt fram svar sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 17. september 2026, við fyrirspurn skóla- og frístundaráðsfulltrúa Vinstrisins um stuðning við starfsfólk frístundastarfs eftir stjórnskipulagsbreytingar, sbr. 12. lið fundargerðar skóla- og frístundaráðs frá 31. ágúst 2026. SFS26080136

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihlutinn þakkar fyrir fyrirspurnina og svarið. Mikilvægt er að starfsfólk frístundaþjónustunnar njóti áfram öflugs faglegs stuðnings til að sinna metnaðarfullu starfi í þágu barna og fjölskyldna í hverfum borgarinnar. Meirihlutinn tekur undir það sem fram kemur í svarinu að markmið breytinganna er ekki að draga úr faglegum stuðningi heldur að endurskipuleggja hann þannig að hann nýtist sem best. Jafnframt er mikilvægt að fylgjast náið með áhrifum breytinganna á starfsumhverfi stjórnenda og starfsfólks og tryggja að ráðgjöf, fræðsla og faglegt samstarf haldist öflugt á innleiðingartímanum. Meirihlutinn leggur áherslu á að áfram verði unnið í nánu samtali við stjórnendur og starfsfólk frístundaþjónustunnar þannig að nýtt skipulag styðji við faglegt starf, öflugt bakland og góða þjónustu við börn og fjölskyldur um alla borg.

    Fylgigögn

  11. Lagt fram svar sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 9. september 2026, við fyrirspurn skóla- og frístundaráðsfulltrúa Vinstrisins um störf skólaliða og útvistun ræstinga, sbr. 10. lið fundargerðar skóla- og frístundaráðs frá 31. ágúst 2026. SFS26080134

    Fylgigögn

  12. Lagt fram svar sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 15. september 2026, við fyrirspurn skóla- og frístundaráðsfulltrúa Vinstrisins um verkefni sem hafa átt bakland í frístundamiðstöðvum, sbr. 11. lið fundargerðar skóla- og frístundaráðs frá 31. ágúst 2026. SFS26080135

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihlutinn þakkar fyrir fyrirspurnina og svarið. Mikilvægt er að starfsemi sem reynst hefur börnum og ungmennum vel, svo sem ungmennaráð, starf fyrir eldri ungmenni og Hinsegin félagsmiðstöðin, njóti áfram faglegs stuðnings og skýrrar ábyrgðar innan þjónustunnar. Meirihlutinn fagnar því að í svarinu komi fram að þær skipulagsbreytingar sem ráðist hefur verið í beinist fyrst og fremst að stjórnsýslu og skipulagi en ekki að þeirri starfsemi sem veitt er börnum og ungmennum. Þá er mikilvægt að tryggja áfram öflugt lýðræðisstarf ungmennaráða, stuðning við fjölbreytt frístundastarf og að sérþarfir ólíkra hópa ungmenna séu áfram hafðar að leiðarljósi. Meirihlutinn leggur jafnframt áherslu á að fylgst verði vel með framkvæmd breytinganna og að áfram verði unnið í nánu samstarfi við starfsfólk og notendur þjónustunnar til að tryggja að styrkleikar verkefnanna haldist og þróist til framtíðar.

    Fylgigögn

  13. Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Nýverið kom í ljós að persónuupplýsingar barna í öðru sveitarfélagi voru aðgengilegar í gegnum vef fyrirtækis sem sinnir þar mötuneytisþjónustunni. Hvernig er persónuvernd leik- og grunnskólabarna tryggð þegar upplýsingum um þau er miðlað til fyrirtækja sem Reykjavíkurborg hefur samið við um mötuneytisþjónustu? Hefur Reykjavíkurborg framkvæmt úttektir eða eftirlit með meðferð þessara upplýsinga hjá viðkomandi aðilum?

    SFS26090221

  14. Fram fer umræða um fréttir af vettvangi skóla- og frístundastarfs. SFS26070077

Fundi slitið kl. 11:36

Bjarni Fritzson Friðjón R. Friðjónsson

Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir Magnea Gná Jóhannsdóttir

Skúli Helgason Sanna Magdalena Mörtudottir

Þorvaldur Davíð Kristjánsson

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 28. september 2026