Skóla- og frístundaráð - Fundur nr. 318

Skóla- og frístundaráð

Ár 2026, 14. september, var haldinn 318. fundur skóla- og frístundaráðs. Fundurinn hófst í fundarherberginu Hofi á Höfðatorgi, Borgartúni 12-14 í Reykjavík kl. 9.45.
Eftirtalin voru komin til fundar í fundarherberginu Hofi: Bjarni Fritzson formaður (D), Hafrún Kristjánsdóttir (D), Hlédís Maren Guðmundsdóttir (M), Magnea Gná Jóhannsdóttir (B), Sanna Magdalena Mörtudóttir (A), Skúli Helgason (S) og Þorvaldur Davíð Kristjánsson (C). Auk þeirra eftirtaldir áheyrnarfulltrúar: Arnheiður Helgadóttir, skólastjórar í grunnskólum; Árni Jónsson, stjórnendur frístundastarfs; Guðrún Elísabet Ómarsdóttir, foreldrar barna í grunnskólum; Kristín Björnsdóttir, kennarar í grunnskólum og Ragnheiður Andrésdóttir, Reykjavíkurráð ungmenna. Auk þeirra eftirtaldir starfsmenn skóla- og frístundasviðs: Steinn Jóhannsson sviðsstjóri, Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir, Arndís Steinþórsdóttir, Guðrún Kaldal, Guðrún Sigtryggsdóttir, Hjörtur Ágústsson og Ragnheiður E. Stefánsdóttir. 
Eygló Traustadóttir ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning og umræða um drög að nýrri samþykkt fyrir skóla- og frístundaráð Reykjavíkurborgar. MSS26080081

    Helga Björk Laxdal tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.

  2. Fram fer kynning og umræða um forvarnastarf fyrir börn og unglinga í Reykjavík. SFS26090071

    Guðrún Halla Jónsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Kl. 10.43 víkur Ragnheiður E. Stefánsdóttir af fundinum.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúarnir fagna þeirri metnaðarfullu vinnu sem unnin er á sviði forvarna fyrir börn og unglinga. Forvarnir eru ein öflugasta leið samfélagsins til að styðja við farsæld barna, efla þátttöku þeirra í skóla- og frístundastarfi og draga úr líkum á að vandamál vaxi og verði flóknari síðar á lífsleiðinni. Nálgun sem byggir á snemmtækum stuðningi, öflugu samstarfi við fjölskyldur og samvinnu ólíkra kerfa er lykilforsenda árangurs. Fulltrúarnir vilja jafnframt undirstrika að forvarnir verða eitt af þeim málefnum sem meirihlutinn mun leggja sérstaka áherslu á á þessu kjörtímabili. Mikilvægt er að áfram verði byggt á gagnreyndri þekkingu, mælingum á árangri, markvissri samvinnu og að börn og ungmenni fái þann stuðning sem þau þurfa á réttu stigi og á réttum tíma.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Samfylkingarinnar þakkar fyrir góða kynningu forvarnarfulltrúa borgarinnar. Mikilvægi forvarnarmála í borginni er meira en oftast áður við þær aðstæður að skýrari vísbendingar eru um aukna unglingadrykkju, alvarleg ofbeldisatvik og áhættuhegðun hjá afmörkuðum hópi ungmenna þó mikill meirihluti ungmenna standi sig vel, líði vel í skóla- og frístundastarfi og sé virkur í íþróttum eða öðru skipulögðu frístundastarfi. Samfylkingin lagði fram tillögu í borgarstjórn á þriðjudag um víðtækar samstilltar aðgerðir í forvarnarmálum og er henni ætlað að byggja ofan á góðan árangur af íslenska forvarnarmódelinu, en líka kalla að borðinu alla helstu hagaðila með ákalli um náið samstarf skóla, starfsfólks frístundastarfs, foreldra, ungmenna, íþróttahreyfingar og fleiri til að tryggja að samfélagið taki höndum saman um að skapa börnum og ungmennum öruggt umhverfi án vímuefna. Tillögunni hefur verið vísað til velferðarráðs en mikilvægt er að hún komi jafnframt til umræðu í skóla- og frístundaráði og íþrótta- og útilífsráði.

  3. Lagt fram og kynnt minnisblað sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 9. september 2026, um uppfærð viðmið um skólasókn og vinnslu skólasóknarmála í leik- og grunnskólastarfi Reykjavíkur. SFS26090072

    Hákon Sigursteinsson, Hulda Björk Finnsdóttir og Ingunn Ásta Sigmundsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúarnir þakka fyrir góða kynningu og fagna uppfærðum viðmiðum um skólasókn, sem styðja við markmið farsældarlaga um snemmtæka íhlutun og samþættingu þjónustu. Jákvætt er að ábyrgð ólíkra aðila sé skýrð, samstarf heimila og skóla eflt og verklag samræmt þvert á skóla og sveitarfélög. Brýnt er að brugðist sé hratt og markvisst við ófullnægjandi skólasókn og börn studd til virkrar þátttöku í skólastarfi. Sérstaklega mikilvægt er að bregðast snemma við skólaforðun sem rekja má til vanlíðunar, kvíða eða annarra aðstæðna í lífi barns og tryggja viðeigandi stuðning í samstarfi við barnið og fjölskyldu þess. Dæmi eru einnig um að börn séu tekin í frí á miðju skólaári og því er mikilvægt að efla vitund foreldra um mikilvægi reglulegrar skólasóknar fyrir nám, námsframvindu og velferð barna. Gott og traust samstarf foreldra og skóla er lykill að árangri og mikilvæg forsenda þess að hægt sé að bregðast snemma við og styðja hvert barn með markvissum hætti.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:

    Skólaforðun er ein af alvarlegustu áskorunum íslenska menntakerfisins og ástæða er til að þakka starfsfólki skóla- og frístundasviðs fyrir árvekni og ötula vinnu undanfarinn tæpan áratug við að ná yfirsýn yfir stöðu mála og leggja fram aðgerðir um að ná betur til og virkja þau börn sem ekki sýna fullnægjandi skólasókn. Frumkvæði borgarinnar leiddi til ákveðinnar vitundarvakningar og opinberrar umræðu sem nú hefur leitt af sér að mennta- og barnamálaráðuneytið hefur á þessu ári gefið út samræmd viðmið á landsvísu um hvernig skólar eigi að bregðast við skólaforðun nemenda. Vitundarvakningin hefur skilað sér í meiri umræðu um vandann og viðmiðin eru mjög skýr en það er klárlega verk að vinna að draga úr skólaforðun í góðu samstarfi við foreldra og skólasamfélagið.

    Fylgigögn

  4. Lögð fram svohljóðandi tillaga skóla- og frístundaráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:

    Lagt er til að skóla- og frístundasviði verði falið að greina stöðu skólasafna í grunnskólum Reykjavíkur og leggja fram tillögur að aðgerðum til að efla faglegt starf, bókakost og lestrarhvatningu í grunnskólum borgarinnar í samráði við félag fagfólks á skólasöfnum. Greiningin taki meðal annars til aðstöðu skólasafna, bókakosts, skráningar útlána, faglegs stuðnings, fjárframlaga til bókakaupa og þess hvernig skólasöfn eru nýtt sem vettvangur læsis, íslensku, menningar og lestrarhvatningar.

    Greinargerð fylgir.

    Samþykkt. SFS26090047

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Læsi er ein mikilvægasta undirstaða náms, þátttöku og farsældar barna. Skólasöfn gegna þar lykilhlutverki með því að veita börnum aðgengi að bókum, efla lestraráhuga og styðja við íslensku og menningarstarf innan skólanna. Fulltrúarnir telja mikilvægt að fyrir liggi heildstæð mynd af stöðu skólasafna í grunnskólum Reykjavíkur svo hægt sé að greina styrkleika, áskoranir og tækifæri til úrbóta. Markmiðið er að tryggja sem jafnast aðgengi barna að bókum, lestri og faglegu lestrarstarfi óháð því í hvaða skóla þau stunda nám.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Samfylkingarinnar styður tillögu meirihlutans um úttekt á skólabókasöfnum borgarinnar. Þau gegna veigamiklu hlutverki í að hvetja til aukins áhuga barna á lestri, sem er ein stærsta áskorun menntakerfisins í samtímanum. Fulltrúi Samfylkingarinnar hvetur til þess að í þessari úttekt verði jafnframt horft til mögulegrar samlegðar á milli Borgarbókasafnsins og skólabókasafna borgarinnar. Nú þegar eru tvö fordæmi um bókasöfn sem eru í senn almenningsbókasafn og skólabókasafn, í Úlfarsárdal og í Klébergsskóla á Kjalarnesi og er eðlilegt að horfa til farsællar reynslu af þeim samrekstri þegar horft er til framtíðar skólabókasafna í borginni. Hins vegar er mikilvægt að hafa í huga að slíkt samstarf er ekki í öllum tilvikum jafn fýsilegt, m.a. vegna aðgengismála en sjálfsagt að rýna vandlega tækifæri og helstu áskoranir í hverju tilviki fyrir sig.

    Fylgigögn

  5. Lögð fram að nýju svohljóðandi tillaga áheyrnarfulltrúa kennara og skólastjóra, sbr. 7. lið fundargerðar skóla- og frístundaráðs frá 31. ágúst 2026:

    Áheyrnarfulltrúar kennara og skólastjórnenda leggja til að skóla- og frístundaráð fái kynningu á öryggisstefnu borgarinnar, framkvæmd og verkferlum er varða hana. Í störfum sínum verða kennarar og starfsfólk skóla fyrir ofbeldi og geta í sumum tilvikum hlotið varanlegan skaða af. Afar mikilvægt er að í starfsumhverfinu sé verklag og verkferlar skýrir og starfsfólk sé tryggt í hættulegum aðstæðum.

    Samþykkt. SFS26090008

    Kl. 11.22 tekur Jóhanna H. Marteinsdóttir sæti á fundinum.

    Fylgigögn

  6. Lögð fram minnisblöð sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 9. september 2026, um stöðu ráðninga í borgarreknum grunnskólum 9. september 2026 og stöðu ráðninga og biðlista í frístundaheimili 8. september 2026. SFS26090009

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar meirihlutans fagna því sérstaklega að staða ráðninga í grunnskólum og frístundaheimilum Reykjavíkurborgar hafi batnað verulega milli ára. Það er afar mikilvægt fyrir nemendur, starfsfólk og skólasamfélagið allt að skólaárið hefjist með sterkri og góðri mönnun. Meirihlutinn hefur lagt ríka áherslu á að styrkja starfsaðstæður í skólum og frístundastarfi borgarinnar og þessar niðurstöður eru því mikið fagnaðarefni. Sérstaklega er ánægjulegt að bætt mönnun frístundaheimila endurspeglist í mun færri börnum á biðlista. Þann 8. september voru 435 börn á biðlista, samanborið við 1.117 börn á sama tíma í fyrra. Markmiðið er að sjálfsögðu að ekkert barn þurfi að bíða eftir plássi. Ráðningar standa enn yfir, en stór hluti starfsfólks er námsfólk í hlutastarfi og mikil aðsókn hefur verið að lausum störfum. Gögnin sýna þó að áfram eru áskoranir við mönnun stuðningsstarfa og í ákveðnum sérgreinum kennslu. Meirihlutinn mun því áfram leggja áherslu á markvissa vinnu við að tryggja skólum og frístundaheimilum þann mannafla sem þarf til að mæta fjölbreyttum þörfum barna og skapa góð skilyrði fyrir farsælt skóla- og frístundastarf í öllum hverfum borgarinnar.

    Fylgigögn

  7. Lagt fram svar sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 9. september 2026, við fyrirspurn skóla- og frístundaráðsfulltrúa Samfylkingarinnar um stöðu ráðninga í grunnskólum og frístundastarfi, sbr. 8. lið fundargerðar skóla- og frístundaráðs frá 31. ágúst 2026. SFS26090009

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Samfylkingarinnar þakkar fyrir veittar upplýsingar um stöðu ráðningarmála í grunnskólum og frístundastarfi borgarinnar. Ánægjulegt er að sjá að staðan hefur batnað frá fyrra ári bæði í grunnskólum einkum varðandi ráðningu kennara en líka á frístundaheimilum þar sem biðlistar eru styttri en í fyrra. Þó eru til staðar áskoranir tengdar sérstaklega ráðningu starfsfólks til að mæta sérstökum stuðningsþörfum nemenda í grunnskólunum.

    Fylgigögn

  8. Lagt fram minnisblað um embættisafgreiðslur sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 3. september 2026, samantekt um ráðningar skólastjóra febrúar – ágúst 2026. SFS26060274

    Fylgigögn

  9. Fram fer umræða um fréttir af vettvangi skóla- og frístundastarfs. SFS26070077

  10. Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi tillögu:

    Fulltrúi Samfylkingarinnar óskar eftir því að á næsta fundi skóla- og frístundaráðs verði ítarleg kynning á niðurstöðum PISA könnunar sem lögð var fyrir nemendur í grunnskólum 2025. Sérstök áhersla verði lögð á að kynna stöðu nemenda í Reykjavík borið saman við aðra landshluta og fyrri PISA kannanir með greiningum á helstu skýringum niðurstaðna. Loks verði kynnt til hvaða aðgerða sviðið hefur gripið og telur vænlegast að grípa til, til að bæta námsárangur í grunnskólum borgarinnar í lesskilningi, stærðfræði og náttúruvísindum.

    Frestað. SFS26090098

  11. Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi tillögu:

    Skóla- og frístundaráð samþykkir að mótuð verði heildarstefna um sértækt hlutverk skólasafna í Reykjavík. Víðtækt samráð skal hafa við skólasöfnin, Félag fagfólks á skólabókasöfnum, Upplýsingu – Félag bókasafns- og upplýsingafræða og aðrar fagstéttir og hlutaðeigandi sem að máli kunna að skipta.

    Greinargerð fylgir.

    Frestað. SFS26090093

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 11:37

Bjarni Fritzson Hafrún Kristjánsdóttir

Hlédís Maren Guðmundsdóttir Magnea Gná Jóhannsdóttir

Skúli Helgason Sanna Magdalena Mörtudottir

Þorvaldur Davíð Kristjánsson

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 14. september 2026