Skóla- og frístundaráð - Fundur nr. 315

Skóla- og frístundaráð

Ár 2026, 17. ágúst, var haldinn 315. fundur skóla- og frístundaráðs. Fundurinn hófst í fundarherberginu Hofi á Höfðatorgi, Borgartúni 12-14 í Reykjavík kl. 9.49.
Eftirtalin voru komin til fundar í fundarherberginu Hofi: Bjarni Fritzson formaður (D), Hafrún Kristjánsdóttir (D), Halldór Bachmann (B), Sanna Magdalena Mörtudóttir (A), Stein Olav Romslo (S) og Þorvaldur Davíð Kristjánsson (C). Auk þeirra eftirtaldir áheyrnarfulltrúar: Guðrún Kaldal, framkvæmdastjórar frístundamiðstöðva; Guðrún Elísabet Ómarsdóttir, foreldrar barna í grunnskólum og Kristín Björnsdóttir, kennarar í grunnskólum. Auk þeirra eftirtaldir starfsmenn skóla- og frístundasviðs: Steinn Jóhannsson sviðsstjóri, Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir, Arndís Steinþórsdóttir, Frans Páll Sigurðsson, Guðrún Sigtryggsdóttir, Hjörtur Ágústsson og Sigrún Sveinbjörnsdóttir.
Eygló Traustadóttir ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning og umræða um forsendur fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar 2027-2031 og úthlutun fjárheimilda 2027. SFS26080046

    Halldóra Káradóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Kl. 10.06 tekur Helgi Áss Grétarsson sæti á fundinum. 

  2. Fram fer kynning og umræða um húsnæðismál grunnskóla og frístundastarfs. SFS26080007

    Dagur Bollason, Guðni Guðmundsson, Daníel Benediktsson og Þórdís Eik Friðþjófsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Skóla- og frístundaráð leggur fram svohljóðandi bókun:

    Skóla- og frístundaráð þakkar fyrir góða og upplýsandi kynningu á húsnæðismálum grunnskóla borgarinnar. Ráðið er vel meðvitað um þær áskoranir sem blasa við í málaflokknum. Ljóst er að víða er þörf á umfangsmiklum úrbótum og að viðhaldsþörfin kalli á enn frekari fjárframlög en hingað til hafa verið veitt. Jafnframt liggur fyrir að ástand húsnæðis hefur í mörgum tilvikum áhrif á daglega starfsemi og rekstur skólanna. Ráðið telur að húsnæðismál skóla verði meðal brýnustu verkefna borgarinnar á komandi árum og leggur áherslu á að markvisst verði unnið að því að skapa það fjárhagslega svigrúm sem þarf til að ráðast í nauðsynlegar endurbætur og uppbyggingu. Öruggt, heilnæmt og vel við haldið skólahúsnæði er ein af grunnforsendum góðs skóla- og frístundastarfs og verður áfram í forgangi.

  3. Lagt fram rekstraruppgjör skóla- og frístundasviðs, janúar – mars 2026. SFS26080006

    Fylgigögn

  4. Lögð fram svohljóðandi tillaga um skipan í valnefnd íslenskuverðlauna unga fólksins í bókmenntaborginni Reykjavík:

    Lagt er til að Þorvaldur Davíð Kristjánsson og Sanna Magdalena Mörtudóttir taki sæti í valnefnd íslenskuverðlauna unga fólksins í bókmenntaborginni Reykjavík.

    Samþykkt. SFS26080039

    Fylgigögn

  5. Lögð fram svohljóðandi tillaga um skipan í valnefnd hvatningarverðlauna skóla- og frístundaráðs:

    Lagt er til að Bjarni Fritzson, Magnea Gná Jóhannsdóttir og Stein Olav Romslo verði skipuð í valnefnd hvatningarverðlauna skóla- og frístundaráðs.

    Samþykkt. SFS26080040

    Fylgigögn

  6. Lagt fram minnisblað sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs um skóladagatal grunnskóla Reykjavíkur skólaárið 2027-2028.

    Samþykkt. SFS26080003

    Fylgigögn

  7. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 18. júní 2026, um samþykkt borgarstjórnar um símafrí í grunnskólum. MSS26060098

    Fylgigögn

  8. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 2. júlí 2026, um samþykkt borgarráðs á afturköllun breytinga á reglum um þjónustu frístundaheimila og reglum um þjónustu félagsmiðstöðva. SFS25020020

    Fylgigögn

  9. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 2. júlí 2026, um samþykkt borgarráðs um breytingar á reglum Reykjavíkurborgar um þjónustu frístundaheimila og reglum um þjónustu félagsmiðstöðva. SFS25020020

    Fylgigögn

  10. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 2. júlí 2026, um samþykkt borgarráðs um breytingu á gjaldskrá frístundaheimila og sértækra félagsmiðstöðva. SFS25020020

    Fylgigögn

  11. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 2. júlí 2026, um samþykkt borgarráðs um breytingu á rekstri móttökudeildar vegna umsækjenda um alþjóðlega vernd. SFS26050077

    Fylgigögn

  12. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 2. júlí 2026, um samþykkt borgarráðs um að leggja matsferilinn fyrir alla árganga í borgarreknum grunnskólum einu sinni á ári. SFS26060088

    Fylgigögn

  13. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 16. júlí 2026, um samþykkt borgarráðs um samstarfssamning við Móðurmál, samtök um tvítyngi, um afnot af húsnæði. SFS23090177

    Fylgigögn

  14. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 16. júlí 2026, um samþykkt borgarráðs um samstarfssamning við Móðurmál, samtök um tvítyngi, vegna kennslu barna í móðurmáli þeirra. SFS23090177 

    Fylgigögn

  15. Lagt fram svar sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 15. júlí 2026, við fyrirspurn skóla- og frístundaráðsfulltrúa Vinstrisins um kostnað við að leggja fyrir matsferil í öllum árgöngum grunnskóla, sbr. 22. lið fundargerðar skóla- og frístundaráðs frá 22. júní 2026. SFS26060088

    Fylgigögn

  16. Lagt fram svar sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 15. júlí 2026, við fyrirspurn skóla- og frístundaráðsfulltrúa Samfylkingarinnar og Vinstrisins um kostnað við innleiðingu símafrís í grunnskóla, sbr. 23. lið fundargerðar skóla- og frístundaráðs frá 22. júní 2026. SFS26060183

    Fylgigögn

  17. Lagt fram bréf sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 13. júlí 2026, um embættisafgreiðslu sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, eitt mál. SFS26060274

    Fylgigögn

  18. Fram fer umræða um fréttir af vettvangi skóla- og frístundastarfs. SFS26070077

  19. Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrisins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Hvernig verður aðkomu skóla- og frístundaráðs háttað að vinnu með fjárhagsáætlun sviðsins fyrir árið 2027? Þá er sérstaklega átt við aðkomu fulltrúa minnihlutans og áheyrnarfulltrúa.

    SFS26080053

  20. Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrisins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Í dag mæta kennarar aftur til starfa í grunnskólum borgarinnar. Hvernig verður símafrí framkvæmt í sérhverjum skóla í haust? Er lagt upp með viðbótarfjármagn til skóla sem vilja kaupa geymsluskápa í samræmi við kröfur í drögum að reglugerð um símafrí?

    SFS26060183

  21. Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Hver er áætlaður árlegur kostnaður við að útvega strætókort til nemenda í grunnskólum Reykjavíkurborgar? Hér er verið að vísa til reglna um strætókort til nemenda í grunnskólum Reykjavíkurborgar þar sem skilyrði fyrir afhendingu strætókorta/farmiða eru útlistuð. Hafði áður verið gert ráð fyrir því að gjaldfrelsi í strætó fyrir börn í grunnskóla myndi hafa áhrif á þennan kostnaðarlið skóla- og frístundasviðs?

    SFS26080063

Fundi slitið kl. 11:43

Bjarni Fritzson Hafrún Kristjánsdóttir

Halldór Bachmann Helgi Áss Grétarsson

Sanna Magdalena Mörtudottir Stein Olav Romslo

Þorvaldur Davíð Kristjánsson

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 17. ágúst 2026