Skóla- og frístundaráð
Ár 2026, 22. júní, var haldinn 314. fundur skóla- og frístundaráðs. Fundurinn hófst í fundarherberginu Hofi á Höfðatorgi, Borgartúni 12-14 í Reykjavík kl. 9.50.
Eftirtalin voru komin til fundar í fundarherberginu Hofi: Bjarni Fritzson formaður (D), Hafrún Kristjánsdóttir (D), Hlédís Maren Guðmundsdóttir (M), Magnea Gná Jóhannsdóttir (B), Sanna Magdalena Mörtudóttir (A), Stein Olav Romslo (S) og Þorvaldur Davíð Kristjánsson (C). Auk þeirra eftirtaldir áheyrnarfulltrúar: Guðrún Kaldal, framkvæmdastjórar frístundamiðstöðva; Guðrún Elísabet Ómarsdóttir, foreldrar barna í grunnskólum; Indriði Nökkvi Þóreyjarson, Reykjavíkurráð ungmenna og Kristín Björnsdóttir, kennarar í grunnskólum. Auk þeirra eftirtaldir starfsmenn skóla- og frístundasviðs: Steinn Jóhannsson sviðsstjóri, Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir, Arndís Steinþórsdóttir, Frans Páll Sigurðsson, Guðrún Sigtryggsdóttir, Hjörtur Ágústsson, Ragnheiður E. Stefánsdóttir og Soffía Pálsdóttir.
Eygló Traustadóttir ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 4. júní 2026, þar sem greint er frá því að á fundi borgarstjórnar 2. júní 2026 hafi eftirtalin verið kosin í skóla- og frístundaráð:
Bjarni Fritzson formaður
Þorvaldur Davíð Kristjánsson
Hafrún Kristjánsdóttir
Magnea Gná Jóhannsdóttir
Sanna Magdalena Mörtudóttir
Hlédís Maren Guðmundsdóttir
Stein Olav RomsloTil vara:
Rúnar Freyr Gíslason
Sandra Hlín Guðmundsdóttir
Friðjón R. Friðjónsson
Halldór Bachmann
Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir
Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir
Skúli HelgasonJafnframt lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 18. júní 2026, um að Isabel Alejandra Díaz taki sæti sem varafulltrúi í stað Skúla Helgasonar.
MSS26060016
Fylgigögn
-
Þorvaldur Davíð Kristjánsson er kosinn varaformaður skóla- og frístundaráðs. SFS26060060
-
Lagt fram yfirlit sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 9. júní 2026, yfir áheyrnarfulltrúa í skóla- og frístundaráði. SFS26060049
Fylgigögn
-
Lagt fram fundadagatal skóla- og frístundaráðs júní – desember 2026. SFS26060066
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á Verkefnalista Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar í borgarstjórn, verkefnalisti.is. SFS26060136
Áheyrnarfulltrúi framkvæmdastjóra frístundamiðstöðva leggur fram svohljóðandi bókun:
Áheyrnarfulltrúi frístundamiðstöðva þakkar fyrir kynningu á verkefnalista. Áheyrnarfulltrúi óskar eftir því að opnunartími frístundaheimila til kl. 17 og breytingar á reglum frístundaheimila verði skýr sem fyrst þannig að hægt sé að skipuleggja frístundaárið og upplýsa foreldra.
Áheyrnarfulltrúi Reykjavíkurráðs ungmenna leggur fram svohljóðandi bókun:
Því er fagnað að meirihlutinn ætlar að fara í einkunnagjöf í tölustöfum, barnvænt sveitarfélag og önnur góð verkefni. Aftur á móti þarf að passa mjög vel upp á samráð við ungmenni við þessar tillögur til dæmis símabann sem ekkert samráð hefur verið haft um.
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga skóla- og frístundaráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins, dags. 15. júní 2026:
Lagt er til að skóla- og frístundasviði verði falið að leggja fram tillögur um breytingar á reglum um kynningar, auglýsingar og gjafir í skóla- og frístundastarfi Reykjavíkurborgar, með sérstakri áherslu á að auðvelda þeim sem reka íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf að kynna starfsemi sína og æfingatíma í grunnskólum borgarinnar. Samhliða verði horft til þess að efla samstarf skóla við íþrótta-, æskulýðs- og tómstundaaðila. Tillögur skulu liggja fyrir eigi síðar en 31. ágúst 2026.
Greinargerð fylgir.
Samþykkt. Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrisins sitja hjá við afgreiðsluna. SFS26060089
Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Undanfarin ár hafa ákveðin félagasamtök haft meira aðgengi að grunnskólum borgarinnar til kynningar á starfsemi sinni en önnur. Miðflokkurinn fagnar áformum meirihlutans um að auka jafnræði og fjölbreytileika í kynningum á frístunda- og æskulýðsstarfi í grunnskólum. Vonandi megi það verða til þess að auka heilbrigði og velsæld barna í Reykjavík.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga skóla- og frístundaráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins, dags. 15. júní 2026:
Lagt er til að Matsferill Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu (MMS) verði lagður fyrir í borgarreknum grunnskólum einu sinni á ári og gengið verði til samtals við sjálfstætt starfandi skóla um að gera slíkt hið sama. Jafnframt verði tryggt að unnið verði markvisst með niðurstöður prófanna og þeim fylgt eftir með aðgerðum, með það að markmiði að hámarka líkur á námslegum framförum allra nemenda. Markmiðið er að tryggja jafnræði í námi, styðja faglegt starf skóla og bæta námsárangur og til lengri tíma að skólakerfi Reykjavíkurborgar verði í fremstu röð. Til þess að svo megi verða eru sett tvö mælanleg markmið sem fylgt verður eftir með árlegum gögnum matsferilsins:
1. Að hækka, á hverju skólastigi og ár frá ári, hlutfall nemenda sem nær væntri framvindu milli ára samkvæmt aldursbundnum viðmiðum matsferils.
2. Að fækka markvisst í þeim hópi nemenda sem mælist undir hæfniviðmiðum í lesskilningi, lesfimi og stærðfræði, jafnt í öllum skólum óháð félagslegri stöðu.Greinargerð fylgir.
Samþykkt. Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrisins sitja hjá við afgreiðsluna. Vísað til borgarráðs. SFS26060088
Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Miðflokkurinn fagnar áherslu á samanburðarhæfum mælingum sem geta metið stöðu einstaka skóla sem og skólakerfisins í heild. Mikilvægt er að fylgja því verkefni eftir, að gæta þess að aðferðir við mælingar meti það sem þeim er ætlað og leita leiða til að mæla það sem eftir stendur óljóst.
Áheyrnarfulltrúi kennara í grunnskólum leggur fram svohljóðandi bókun:
Kennarar fagna því eindregið að Matsferill sé kominn í gagnið. Treysta þarf fagfólkinu í skólunum til að taka ákvarðanir um að nýta mælitæki sem þessi og langflestir skólar hafa nú þegar nýtt sér Matsferilinn í öllum árgöngum og munu gera það áfram. Kennarar vilja nýta niðurstöðurnar skólastarfi og kennslu til framdráttar.
Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Vinstrisins tekur undir það að treysta þurfi fagfólkinu í skólunum til að taka ákvarðanir um að nýta mælitæki sem þessi.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi ályktunartillaga skóla- og frístundaráðs:
Skóla- og frístundaráð skorar á íslenska ríkið að setja í forgang að útbúa námsefni fyrir öll fög og alla bekki, í samræmi við endurskoðun á aðalnámskrá grunnskóla sem tók gildi haustið 2024. Jafnframt er skorað á ríkið að tryggja nægt fjármagn til kaupa á námsefni, svo nemendur og kennarar hafi aðgang að vönduðu námsefni. Lög um námsgögn nr. 71/2007 kveða á um ábyrgð og stuðning ríkisins við þróun, gerð og útgáfu námsgagna fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla, sem og öflun námsgagna fyrir grunnskóla. Þrátt fyrir skýr lagafyrirmæli um ábyrgð ríkisins er framboð á námsgögnum takmarkað og fjármagn til þróunar og kaupa á námsefni hefur rýrnað um árabil. Um 70% kennara nota námsefni sem útbúið er í skólanum oft eða mjög oft. Það eykur álag á skólakerfið og gerir kennurum erfiðara fyrir að sinna kennslu með þeim verkfærum sem þeir þurfa. Rannsóknir á áhrifaþáttum í menntun sýna að gæði námsgagna eru ein af grunnstoðum árangursríks skólastarfs, ásamt skýrri aðalnámskrá og sjálfstæðum, fagmenntuðum kennurum. Alþjóðlegar rannsóknir á starfsaðstæðum kennara benda jafnframt til þess að íslenskir kennarar verji meiri tíma í undirbúning og stjórnsýsluleg verkefni en kennarar í flestum samanburðarlöndum. Þegar lögbundið námsefni er ekki til staðar, eða er orðið úrelt, þurfa kennarar að fylla í eyðurnar sjálfir. Það dregur úr tíma til eiginlegrar kennslu, faglegs undirbúnings og þróunar skólastarfs. Skortur á fjölbreyttu og vönduðu námsefni bitnar ekki síst á þeim nemendum sem þurfa mest á stuðningi að halda, þar á meðal börnum sem alast upp við félagslega krefjandi aðstæður og börnum með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn. Slíkur skortur getur aukið ójöfnuð milli nemenda og þrýsting á sérkennslu og stoðþjónustu.
Samþykkt. SFS26060122
Áheyrnarfulltrúi kennara í grunnskólum leggur fram svohljóðandi bókun:
Það er virkilega jákvætt að skóla- og frístundaráð leggi áherslu á eflingu á námsefnisframboði. Til að skólakerfið okkar verði í fremstu röð þarf að stórefla framboð á fjölbreyttu námsefni. Allt of miklum og dýrmætum tíma kennara er varið í að útbúa námsefni þar sem vöntunin er mikil. Það myndi hafa mikil og góð áhrif á starfsaðstæður kennara ef boðið yrði upp á fjölbreytt nútímalegt námsefni. Kjörnir fulltrúar eru í lykilstöðu til að hafa áhrif á gang mála og kalla eftir aðgerðum af hálfu mennta- og barnamálaráðuneytisins sem ber ábyrgð á námsefnisútgáfu.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs ásamt drögum að samningi skóla- og frístundasviðs og Myndlistaskólans í Reykjavík, reglum Reykjavíkurborgar um styrki, dags. 25. maí 2017 og minnisblaði Myndlistaskólans í Reykjavík, ódags.:
Lagt er til að meðfylgjandi samningur við Myndlistaskólann í Reykjavík til eins árs verði samþykktur að upphæð 22.000.000 kr. Tímabil samnings verði 1. ágúst 2026 – 31. júlí 2027. Gerður er fyrirvari um að uppfylltar séu samningsbundnar skyldur samkvæmt núgildandi samningum.
Greinargerð fylgir.
Samþykkt. Vísað til borgarráðs. SFS25030161
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 11. júní 2026, ásamt umsögnum skólaráðs Árbæjarskóla, dags. 26. maí 2026, skólaráðs Víkurskóla, dags. 13. maí 2026 og skólaráðs Klettaskóla, dags. 11. júní 2026:
Lagt er til að þátttökubekkur Klettaskóla verði fluttur frá Árbæjarskóla í Víkurskóla. Þátttökubekkurinn verði hluti af starfsemi Víkurskóla í stað Klettaskóla. Breytingin taki gildi 1. ágúst 2026.
Greinargerð fylgir.
Samþykkt. Vísað til borgarráðs. SFS26020026
Kl. 10.44 tekur Guðjóna Eygló Friðriksdóttir sæti á fundinum.
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 11. júní 2026, um breytingar á reglum um þjónustusamninga Reykjavíkurborgar við tónlistarskóla, ásamt reglunum með merktum breytingum, núgildandi reglum, samkomulagi um stuðning við tónlistarnám og jöfnun á aðstöðumun nemenda til tónlistarnáms, dags. 29. mars 2022, viðauka við samkomulag um stuðning við tónlistarnám og jöfnun á aðstöðumun nemenda til tónlistarnáms, dags. 5. maí 2025 og reglum um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til stuðnings við tónlistarnám og jöfnunar á aðstöðumun nemenda, dags. 31. ágúst 2016.
Greinargerð fylgir.
Samþykkt. Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Vinstrisins situr hjá við afgreiðsluna. Vísað til borgarráðs. SFS22060110
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 12. júní 2026, varðandi endurnýjun og framlengingu samninga við tónlistarskóla í Reykjavík vegna neðri stiga tónlistarnáms og endurnýjun samninga vegna efri stiga tónlistarnáms ásamt drögum að viðauka við þjónustusamning vegna neðri stiga tónlistarnáms, drögum að þjónustusamningi við tónlistarskóla vegna neðri stiga tónlistarnáms, drögum að þjónustusamningi við tónlistarskóla vegna efri stiga tónlistarnáms, núgildandi reglum um þjónustusamninga Reykjavíkurborgar við tónlistarskóla, reglum um þjónustusamninga Reykjavíkurborgar við tónlistarskóla með ráðgerðum breytingum, samkomulag um stuðning við tónlistarnám og jöfnun á aðstöðumun nemenda til tónlistarnáms, dags. 29. mars 2022, viðauka við samkomulag um stuðning við tónlistarnám og jöfnun á aðstöðumun nemenda til tónlistarnáms, dags. 5. maí 2025 og reglum um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til stuðnings við tónlistarnám og jöfnunar á aðstöðumun nemenda, dags. 31. ágúst 2016.
Greinargerð fylgir.
Samþykkt. Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Vinstrisins situr hjá við afgreiðsluna. Vísað til borgarráðs. SFS22050078
Fylgigögn
-
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 11. júní 2026, um staðfestingu skóladagatala grunnskóla í Reykjavík 2026-2027.
Samþykkt. SFS25050073
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 11. júní 2026, um samþykkt borgarráðs varðandi fyrirkomulag kennslu vegna nemenda sem eru í innlögn á BUGL. SFS26050011
Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrisins leggja fram svohljóðandi bókun:
Gott er að viðeigandi samráð hafi átt sér stað varðandi fyrirkomulag kennslu og að faglegar forsendur liggja til grundvallar breytinganna. Mikilvægt er að húsnæðismál fyrir skóla við BUGL verði leyst farsællega í samstarfi við ríkið, BUGL og Laugalækjarskola. Skólahúsnæði styður við gæði náms og er það sérstaklega mikilvægt fyrir þennan viðkvæma nemendahóp sem hér er um að ræða.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 11. júní 2026, um samþykkt borgarráðs um viðmið um hámarksfjölda nemenda í sjálfstætt starfandi grunnskólum utan Reykjavíkur. SFS22040100
Fylgigögn
-
Lagt fram fjárhagsuppgjör skóla- og frístundasviðs fyrir árið 2025 ásamt greinargerð skóla- og frístundasviðs. SFS24080105
Kl. 11.40 víkur Ragnheiður E. Stefánsdóttir af fundinum.
Fylgigögn
-
Lagt fram yfirlit yfir bókfærðan kostnað vegna ferða skóla- og frístundasviðs október-desember 2025, dags. 11. júní 2026. SFS24080107
Fylgigögn
-
Lagt fram yfirlit yfir innkaup skóla- og frístundasviðs yfir 10 m.kr., árið 2025, dags. 1. júní 2026. SFS24080106
Fylgigögn
-
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 11. júní 2026, um hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs 2026. SFS26060038
Fylgigögn
-
Fram fer umræða um fréttir af vettvangi skóla- og frístundastarfs. SFS24080154
-
Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi tillögu:
Lagt er til að samráð verði haft við KFR og FSR - Kennarafélag Reykjavíkur og Skólastjórnendafélag Reykjavíkur um útfærslu tillögurnar um að leggja matsferilinn fyrir alla árganga í borgarreknum grunnskólum einu sinni á ári og hvernig unnið verði með niðurstöðurnar sem og birtingu þeirra.
Frestað. SFS26060088
-
Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:
Hver er kostnaðurinn og tíminn sem er áætlaður í að fari í að útfæra þá tillögu skóla- og frístundaráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um að leggja matsferilinn fyrir alla áranga í borgarreknum grunnskólum einu sinni á ári?
SFS26060088
-
Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrisins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:
Huga þarf að ýmsum þáttum vegna innleiðingar símafrís, þar með talið geymslurými fyrir síma og tíma skólastarfsfólks vegna utanumhalds. Hver er áætlaður kostnaður við innleiðingar símafrís í alla grunnskóla Reykjavíkur haustið 2026?
SFS26060183
Fundi slitið kl. 11:52
Bjarni Fritzson Hafrún Kristjánsdóttir
Hlédís Maren Guðmundsdóttir Magnea Gná Jóhannsdóttir
Sanna Magdalena Mörtudottir Stein Olav Romslo
Þorvaldur Davíð Kristjánsson
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 22. júní 2026