Skóla- og frístundaráð
Ár 2026, 13. apríl, var haldinn 311. fundur skóla- og frístundaráðs. Fundurinn hófst í fundarherberginu Hofi á Höfðatorgi, Borgartúni 12-14 í Reykjavík kl. 13.20.
Eftirtalin voru komin til fundar í fundarherberginu Hofi: Helga Þórðardóttir formaður (F), Ásta Björg Björgvinsdóttir (B), Ellen Jacqueline Calmon (S), Friðjón R. Friðjónsson (D), Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir (C) og Sabine Leskopf (S). Eftirtalinn fulltrúi tekur sæti á fundinum með fjarfundabúnaði með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar: Tinna Helgadóttir (P). Auk þeirra eftirtaldir áheyrnarfulltrúar: Albína Hulda Pálsdóttir, foreldrar barna í leikskólum; Arnheiður Helgadóttir, skólastjórar í grunnskólum; Guðrún Gunnarsdóttir, leikskólastjórar; Guðrún Kaldal, framkvæmdastjórar frístundamiðstöðva; Indriði Nökkvi Þóreyjarson, Reykjavíkurráð ungmenna og Kristín Björnsdóttir, kennarar í grunnskólum. Auk þeirra eftirtaldir starfsmenn skóla- og frístundasviðs: Steinn Jóhannsson sviðsstjóri, Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir, Guðrún Sigtryggsdóttir, Hjörtur Ágústsson, Ingunn Ásta Sigmundsdóttir, Ólafur Brynjar Bjarkason, Soffía Pálsdóttir og Eygló Traustadóttir sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Lögð fram tillaga sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 8. apríl 2026, um úthlutun styrkja úr þróunar- og nýsköpunarsjóði skóla- og frístundaráðs, B-hluta fyrir skólaárið 2026-2027 ásamt yfirliti yfir umsóknir í B-hluta þróunar- og nýsköpunarsjóðs skóla- og frístundaráðs og reglum um styrkveitingar skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur vegna styrkja í B-hluta þróunar- og nýsköpunarsjóðs skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur Látum draumana rætast.
Tillaga úthlutunarnefndar þróunar- og nýsköpunarsjóðs skóla- og frístundaráðs um að eftirtaldir aðilar hljóti styrki ráðsins árið 2026:
1) Umsækjandi: Ægisborg, Gullborg, Grandaborg, Laugasól, skrifstofa skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar og Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Heiti verkefnis: Leikur, nám og gleði. Upphæð: 4 milljónir króna.
2) Umsækjandi: Suðurmiðstöð, Austurmiðstöð, Norðurmiðstöð, Vesturmiðstöð, skrifstofa leikskólamála SFS, stjórnsýsla gögn og gæði SFS og Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Heiti verkefnis: Skólanámskrá, starfsáætlun og innra mat leikskóla Reykjavíkurborgar. Upphæð: 4 milljónir króna.
3) Umsækjandi: Hólabrekkuskóli, Breiðholtsskóli, Fellaskóli, Seljaskóli, Ölduselsskóli og Háskóli Íslands. Heiti verkefnis: Starri (Starling), markviss orðaforðakennsla. Upphæð: 6 milljónir króna.
4) Umsækjandi: Langholtsskóli, Mixtúra, Nýsköpun og þróun SFS, skrifstofa frístundamála SFS, þverfaglegur teymisstjóri SFS, skrifstofa leikskólamála SFS, Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Rauðaborg, Brúin, Tjörnin, Laugarnesskóli og Langholtsskóli. Heiti verkefnis: Stafræn borgaravitund-Heildræn innleiðing hjá leikskólum, grunnskólum og frístundastarfi Reykjavíkur. Upphæð: 4 milljónir króna.
5) Umsækjandi: Tjörnin, Íþróttafræðideild Háskóla Íslands, frístundaheimili Tjarnarinnar og félagsmiðstöðvar Tjarnarinnar. Heiti verkefnis: Aukin hreyfing í daglegu frístundastarfi starfsstaða Tjarnarinnar. Upphæð: 4 milljónir króna.
6) Umsækjandi: Suðurmiðstöð, leikskólar í Breiðholti, grunnskólar í Breiðholti, frístundaheimili í Breiðholti, mennta- og barnamálaráðuneytið, Háskóli Íslands og Miðja máls og læsis. Heiti verkefnis: LÆM -Læsi allra mál. Upphæð: 6 milljónir króna.
7) Umsækjandi: Grandaskóli, Rimaskóli, Laugarnesskóli, Austurmiðstöð, Undraland, Mixtúra og Menntavísindasvið og Nýmennt Háskóla Íslands. Heiti verkefnis: HugSmiðja - Hugsandi skólasamfélag. Upphæð: 4 milljónir króna.
8) Umsækjandi: Tjörnin, Brúin, Kringlumýri og Miðberg ásamt öllum félagsmiðstöðvum í Reykjavík, mannréttinda- og lýðræðisskrifstofa Reykjavíkur, skrifstofa frístundamála SFS og Samtökin 78. Heiti verkefnis: Skjól í stormi. Upphæð: 4 milljónir króna.
9) Umsækjandi: Vesturmiðstöð, Grandaskóli, Vesturbæjarskóli, Hagaskóli, Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Miðstöð útivistar og útináms (Siglunes), Borgarsögusafn Reykjavíkur (Sjóminjasafnið og Viðey), Slysavarnarskóli sjómanna, Hafrannsóknarstofnun, Faxaflóahafnir, Tækniskólinn og Náttúruminjasafn Íslands. Heiti verkefnis: Skólaskip - fræðsluverkefni um hafið og sjósókn. Upphæð: 6 milljónir króna.
10) Umsækjandi: Fellaskóli, Holt, Ösp og Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Heiti verkefnis: Málþroski og læsi - að virkja þátttöku foreldra. Upphæð: 4 milljónir króna.
11) Umsækjandi: Suðurmiðstöð, Norðurmiðstöð, Austurmiðstöð, Vesturmiðstöð og skólastjórnendur í öllum miðstöðum. Heiti verkefnis: Markvisst innra mat. Upphæð: 4 milljónir króna.Samþykkt. SFS26020063
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga áheyrnarfulltrúa kennara í grunnskólum, sbr. 13. lið fundargerðar skóla- og frístundaráðs frá 9. mars 2026 ásamt minnisblaði sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 27. mars 2026, um tillöguna:
Fulltrúi grunnskólakennara leggur til að skóla- og frístundaráð fái kynningu á gervigreindarlausninni Viskubrunnur og kanni möguleika á því að Reykjavíkurborg kaupi áskrift fyrir alla grunnskóla borgarinnar að lausninni. Lausnin er til þess fallin að gera kennurum kleift að ná fram töluverðum tímasparnaði við lausn ýmissa verkefna sem þeir þurfa að inna af hendi en forsvarsmenn Viskubrunns eru kennarar sem hafa útbúið fjölmargar útfærslur á viðfangsefnum sem gagnast kennurum og eiga beint við grunnskólastarf. Þeir hafa einnig verið í samstarfi við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu við útfærslu á Nemendagrunni.
Tillögunni er vísað frá. Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðsluna. SFS26030059
Þorbjörg St. Þorsteinsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 4. desember 2025, um betri nýtingu á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar, samantekt á áhugaverðum tillögum eftir samráð við almenning ásamt minnisblaði sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 7. apríl 2026, um samantekt skóla- og frístundasviðs varðandi betri nýtingu á tíma og fjármunum.
Vísað til borgarráðs. MSS25040003
Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Flokks fólksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Í desember síðastliðnum samþykkti borgarstjórn að fela sviðum og skrifstofum miðlægrar stjórnsýslu að rýna tillögur um betri nýtingu á tíma og fjármunum Reykjavíkur. Eftirfarandi tillögum var vísað til skóla- og frístundasviðs: 1. Umsjónarmenn fasteigna sjái um að þjónusta skóla í stað verktaka 2. Skoða samlegð í stjórnun félags- og frístundamiðstöðva 3. Betri nýting á húsnæði leikskóla, grunnskóla, frístundaheimila og félagsmiðstöðva 4. Innkaup verði innan rammasamninga og mögulega í gegnum miðlægt vöruhús. Skóla-og frístundaráð þakkar sviðinu fyrir góða rýningu á tillögunum og góðar hugmyndir að hagræðingaraðgerðum á sviðinu.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 7. apríl 2026, um verklagsreglur um fyrirspurnir og tillögur í ráðum og nefndum Reykjavíkurborgar og beiðnir borgarfulltrúa um aðgang að gögnum. MSS23090170
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 9. apríl 2026, um embættisafgreiðslur sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, tvö mál. SFS22080009
Fylgigögn
-
Fram fer umræða um fréttir af vettvangi skóla- og frístundastarfs. SFS24080154
Fundi slitið kl. 14:17
Helga Þórðardóttir Ásta Björg Björgvinsdóttir
Ellen Jacqueline Calmon Friðjón R. Friðjónsson
Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir Sabine Leskopf
Tinna Helgadóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 13. apríl 2026