Skóla- og frístundaráð
Ár 2026, 23. febrúar, var haldinn 308. fundur skóla- og frístundaráðs. Fundurinn hófst í fundarherberginu Hofi á Höfðatorgi, Borgartúni 12-14 í Reykjavík kl. 13.20.
Eftirtalin voru komin til fundar í fundarherberginu Hofi: Helga Þórðardóttir formaður (F), Árelía Eydís Guðmundsdóttir (B), Kristinn Jón Ólafsson (P), Marta Guðjónsdóttir (D), Stefán Pálsson (V) og Þorkell Sigurlaugsson (D). Eftirtalinn fulltrúi tók sæti á fundinum með fjarfundabúnaði með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar: Sabine Leskopf (S). Auk þeirra eftirtaldir áheyrnarfulltrúar: Albína Hulda Pálsdóttir, foreldrar barna í leikskólum; Andrea Sigurjónsdóttir, starfsfólk í leikskólum; Guðjóna Eygló Friðriksdóttir, skólastjórar í grunnskólum; Guðrún Gunnarsdóttir, leikskólastjórar; Guðrún Kaldal, framkvæmdastjórar frístundamiðstöðva og Kristín Björnsdóttir, kennarar í grunnskólum. Auk þeirra eftirtaldir starfsmenn skóla- og frístundasviðs: Steinn Jóhannsson sviðsstjóri, Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir, Arndís Steinþórsdóttir, Frans Páll Sigurðsson, Guðrún Sigtryggsdóttir, Ólafur Brynjar Bjarkason, Soffía Pálsdóttir og Eygló Traustadóttir sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning og umræða um nemendagrunn, innritun og matsferil í grunnskólum Reykjavíkurborgar. SFS26020068
Freyja Birgisdóttir, Sigrún Jónína Baldursdóttir, Þórdís Jóna Sigurðardóttir, Arndís Eva Finnsdóttir og Elínrós Benediktsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:
Samstarfsflokkarnir fagna kynningu Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu á nemendagrunni og matsferli, og þakka fyrir þá mikilvægu vinnu að stuðla að gagnadrifnu menntakerfi á landsvísu. Reykjavíkurborg hefur átt ríkan þátt í þessari vegferð. Mikil vinna hefur farið fram innan borgarinnar við breytingar á ferlum, verklagi og stafrænum innviðum. Bjargey, nemendagrunnur borgarinnar, lagði grunn að þróun Frigg nemendagrunnsins á landsvísu. Á sama hátt hófst Miðja máls og læsis innan Reykjavíkurborgar og veitir nú sérfræðiþjónustu á landsvísu. Stafræn innritun á landsvísu væri ekki að raungerast núna, nema fyrir tilstilli samstarfs ríkis, sveitarfélaga og ekki síst reynslu og þekkingar Reykjavíkurborgar. Samstarfsflokkarnir leggja áherslu á að samræmdur nemendagrunnur tryggi að ekkert barn falli utan kerfis, og að matsferillinn styrki einstaklingsmiðað nám og snemmtæka íhlutun. Næsta skref er innritunin 18. mars og hvetur meirihlutinn til áframhaldandi samstarfs við innleiðingu þessara tímamótakerfa.
Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Með matsferli og stöðu- og framvinduprófum hafa skólarnir prófin undir höndum, hafa val um hvenær þau verði lögð fyrir nemendur, og ráða tímasetningu á próftöku. Próf sem lögð verða fyrir nemendur í einum skóla á tilteknum degi, verða því kannski lögð fyrir nemendur í næsta skóla, viku síðar sem dregur úr áreiðanleika prófanna. Það er tæpast tilviljun að á sama tíma og samræmd próf voru lögð af hér á landi, komum við langverst út úr Pisakönnunum. En í stað þess að taka aftur upp samræmd próf, komu fræðsluyfirvöld á flóknu „matsferli“ og svokölluðum „stöðu- og framvinduprófum“ hvorugt er sambærilegt samræmdum prófum. Samræmdur mælikvarði á nám er grundvallarforsenda fyrir framförum í skólastarfi. Mikilvægi samræmdra prófa felst ekki síst í því að þau upplýsa um hvort og þá hvaða markmiðum skólastarfsins sé náð og hvaða markmiðum ekki. Þannig má nýta þau til að greina vandann og stuðla að umbótum í skólastarfi. Þá er framfarastuðull prófanna frá 4.-10. bekkjar mikilvægur til að geta aðstoðað strax þá nemendur sem standa höllum fæti í námi.
Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Framsóknar vill koma á framfæri ánægju með að samræmdur matsferillinn og nemendagrunnurinn á vegum Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu sé orðinn að veruleika. Framsóknarflokkurinn hefur verið leiðandi í að bæta gæði og þekkingu í menntakerfinu fyrir bæði börn, foreldra og kennarasamfélagið í heild. Þetta er hluti af þeirri vegferð.
-
Fram fer kynning og umræða um umferðaröryggi við starfsstaði skóla- og frístundasviðs og forgangsröðun verkefna. SFS26020070
Carl Henrik Larsson og Stefán Agnar Finnsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar samstarfsflokkanna í skóla- og frístundaráði þakka fyrir ágæta yfirferð á forgangsröðun umferðaröryggisaðgerða við starfsstaði skóla- og frístundasviðs. Það er afar mikilvægt að rýna betur ferla, verklag, bráðabirgðaaðgerðir, ábyrgð, tímalínur og fjármögnun til að tryggja kvikari vinnslu og upplýsingagjöf vegna öryggisráðstafana við starfsstaði skóla- og frístundasviðs. Sem dæmi má nefna að um árabil vantaði gangbraut og gangstétt norðanmegin við Waldorfskólann Sólstafi í Sóltúni, sem nú hefur verið bætt úr. Hins vegar vantar enn gangstétt og gangbraut sunnanmegin í Miðtúni þar sem fjöldi barna fer til grunnskóla og foreldrar með börn í leikskóla.
Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks hafa margítrekað lagt til að snjallgangbrautir verða settar upp við alla grunnskóla í borginni til að auka umferðaröryggi skólabarna. Slíkur tæknibúnaður skynjar gangandi vegfarendur sem nálgast og kveikir þá LED götulýsingu, sem sett er upp þannig að einungis gangbrautin og sá sem fer yfir verða lýstir upp. Þessi aðferð eykur öryggi barna sem eru á leið úr og í skóla. Þá kviknar lýsing í gangbrautarmerkinu og viðvörunarljós fyrir akandi umferð. Þessari tegund gangbrauta hefur nú þegar verið komið upp við fjóra skóla sem tilraunaverkefni, að tillögu okkar Sjálfstæðismanna, sem hafa reynst vel í svartasta skammdeginu. Það er ekki nóg að slíkum gangbrautum sé komið upp við einn skóla í hverju hverfi, það þarf að gera við alla skóla til að auka umferðaröryggi. Árið 2020 var gerð úttekt á gönguþverunum við skóla borgarinnar varðandi gangbrautarljós, gangbrautavörslu og sérmerktar upplýstar gangbrautir. Í ljós kom að umferðaröryggi við skólana er mjög ábótavant. Margítrekað hefur verið bent á að bæta þurfi umferðaröryggi við skólana og ljóst að samkvæmt úttektinni er brýnt að hefjast handa sem fyrst til að bæta það. Það er orðið löngu tímabært að bæta umferðaröryggi við skóla borgarinnar og að koma með nútímalausnir sem nýtast vel í skammdeginu í Reykjavík.
Áheyrnarfulltrúi framkvæmdastjóra frístundamiðstöðva leggur fram svohljóðandi bókun:
Áheyrnarfulltrúi frístundamiðstöðva þakkar fyrir góða kynningu á umferðaröryggi við starfsstaði skóla- og frístundasviðs og forgangsröðun verkefna. Áheyrnarfulltrúi vill benda á að göngustígur sem að liggur frá Laugardalslaug að Laugardalshöll þverar bílastæði við World Class. Þar hafa orðið nokkur slys á fólki þegar bílar þvera göngustíginn. Mikil umferð gangandi fer um göngustíginn daglega og mikilvægt er að koma í veg fyrir að bílar þveri stíginn. Ósk er um að sviðið fylgi því eftir að tryggja öryggi barna og unglinga sem að fara um stíginn til að sinna sínu frístundastarfi.
Áheyrnarfulltrúi leikskólastjóra leggur fram svohljóðandi bókun:
Áheyrnarfulltrúi leikskólastjóra þakkar fyrir góða kynningu á umferðaröryggi við starfsstaði skóla- og frístundasviðs og forgangsröðun verkefna. Áheyrnarfulltrúi vill benda á að huga þarf betur að umferðaröryggi og bílastæðamálum við skóla sem lenda í húsnæðishrakningum og fara tímabundið í bráðabirgðahúsnæði. Bæði umferðaröryggi og bílastæðamálum er ógnað við leikskólann Kvistaborg og grunnskólann Fossvogskóla í Haðalandi 26 og gera þarf bragarbót á, t.d. að bæta lýsingu og úthluta gangbrautaverði í umferðargæslu. Tryggja þarf að allir hagaðilar fái upplýsingar um framkvæmdir sem fram fara í grennd við skóla, svo tryggja megi umferðaröryggi sem best.
Áheyrnarfulltrúi foreldra barna í leikskólum leggur fram svohljóðandi bókun:
Áheyrnarfulltrúi foreldra leikskólabarna vill benda á að nauðsynlegt er að bæta umferðaröryggi við marga leikskóla í Reykjavík. Margir foreldrar ganga eða hjóla með börn sín í leikskóla og við eigum rétt á að vera örugg á leiðinni. Meira öryggi fyrir óvarða vegfarendur er lykilatriði til þess að gera fjölskyldum kleift að nýta virka ferðamáta í daglega lífinu. Börn á leikskólaaldri geta verið óútreiknanleg og eru það lítil að ökumenn sjá þau yfirleitt seint og illa þrátt fyrir endurskinsmerki og góða lýsingu og það er ekki hægt að ætlast til þess að börn á leikskólaaldri geri aldrei mistök í umferðinni. Þegar verða slys á börnum í umferðinni þurfa breytingar á umferðarmannvirkjum að gerast hratt til að bæta öryggi.
-
Fram fer kynning og umræður um leikskólaleið Reykjavíkurborgar, umbætur í náms- og starfsumhverfi leikskóla. Jafnframt lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 19. febrúar 2026, um samþykkt borgarstjórnar frá 17. febrúar 2026 á tillögum stýrihóps um umbætur í náms- og starfsumhverfi leikskóla. MSS25050076
Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar samstarfsflokkanna í skóla- og frístundaráði eru sannfærðir um að með þessum breytingum á skipulagi leikskólastarfs í Reykjavík séu mörkuð vatnaskil. Breytingarnar fela í sér að boðið verður upp á 36 tíma endurgjaldslausa dvöl fyrir öll leikskólabörn fyrir utan fæðisgjald en tekið er hóflegt gjald fyrir 38 tíma vistun. Þá eru innleiddir nýir afsláttarflokkar sem taka betur mið af raunverulegum aðstæðum einstæðra foreldra, efnaminni foreldra og foreldra barna með lítið bakland. Gjöldin hækka hjá þeim sem hæstar hafa tekjurnar. Lagðar eru fram nýjar tillögur um systkinasameiningu, umsjónarmenn leikskólahúsnæðis, aukna íslenskukennslu fyrir starfsfólk og umsækjendur með annað móðurmál en íslensku, einn lokunardag í vetrarfríi og starfsþjálfun. Markmið vinnunnar er að bæta náms- og starfsaðstæður í leikskólum Reykjavíkur, styrkja faglegt starf, bæta mönnun og minnka álag, samhliða því að auka fyrirsjáanleika og stöðugleika í starfi leikskólans. Tillögurnar byggja á þverpólitísku starfi sem kynnt var á haustdögum og fór í kjölfarið í umfangsmikið samráðsferli við foreldra, starfsfólk, leikskólastjórnendur og verkalýðsfélög. Unnið var úr tæplega 200 umsögnum sem bárust í gegnum samráðsgáttina. Vandlega verður fylgst með innleiðingu aðgerðanna, árangur metinn reglulega og brugðist við ef þörf krefur.
Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks telja fyrirliggjandi tillögur fela í sér ýmsar jákvæðar breytingar, svo sem innleiðingu systkinaforgangs og aukna íslenskukennslu fyrir starfsfólk. Að öðru leyti lýsa fulltrúarnir verulegum áhyggjum af þeirri þjónustuskerðingu og því óhagræði sem breytingarnar geta skapað fyrir fjölskyldur í borginni. Virðist meirihlutinn keppa að því að bjóða ódýrustu leikskólavistina á höfuðborgarsvæðinu, þegar eðlilegra væri að keppa að því að bjóða bestu þjónustuna. Fulltrúarnir draga í efa að fyrirliggjandi gjaldskrárbreytingar muni stórbæta starfsumhverfi leikskóla, en telja mikilvægustu aðgerðina til að endurheimta fagfólk aftur, að leikskóladagurinn verði endurskipulagður til samræmis við grunnskólann. Þá leggjast fulltrúarnir gegn þjónustuskerðingum í vetrarleyfum en leikskólaþjónusta hefur verið skert verulega á síðustu árum. Foreldrar með börn í grunnskóla og leikskóla geta þurft að leysa allt að 70 frídaga barna sinna árlega, en fólk á almennum vinnumarkaði nýtur aðeins 24-30 frídaga árlega. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks undirstrika mikilvægi þess að leikskólaþjónusta í Reykjavík sé fjölskylduvæn, fjölbreytt og sveigjanleg. Fjölskyldum bjóðist úrval valkosta, svo sem borgarreknir leikskólar, sjálfstætt starfandi leikskólar, daggæsla á vinnustöðum og heimgreiðslur, svo dæmi séu tekin.
Áheyrnarfulltrúi leikskólastjóra leggur fram svohljóðandi bókun:
Áheyrnarfulltrúi leikskólastjóra þakkar fyrir kynningu á Reykjavíkurleiðinni. Reykjavíkurleið í leikskólamálum bregst ekki nægilega vel við bráðum vanda leikskólanna hér og nú, þó þar megi finna margt gott. Fyrsti hluti leiðarinnar snýr fyrst og fremst að gjaldskrárbreytingu með hvata til að stytta dvalartíma barna, sem er mjög jákvætt, en það gæti tekið tíma fyrir breytingar að koma fram. Stytting dvalartíma barna leiðir jafnframt til lægri rekstrarkostnaðar þar sem stöðugildum fækkar. Það getur dregið úr starfsmannaveltu og mögulega auðveldað ráðningar, þó leysir það ekki kjarnavandann um styttri vinnutíma starfsfólks til fulls. Systkinasameining styður jafnframt við barnafjölskyldur og börn og fellur vel að styttri dvalartíma barna.
Áheyrnarfulltrúi foreldra barna í leikskólum leggur fram svohljóðandi bókun:
Áheyrnarfulltrúi foreldra leikskólabarna bendir á að æskilegt væri að fulltrúar foreldra leikskólabarna hefðu verið með í þessari vinnu frá upphafi en ekki bara á seinni stigum þessarar vinnu. Jákvæðar breytingar hafa verið gerðar frá upphaflegum tillögum en sérstakt gjald fyrir skráningardaga og lokun einn dag í vetrarleyfi munu koma verst við fjölskyldur með lítið bakland. Núverandi gögn sýna að 50-60% fjölskyldna nýta sér vistun á skráningardögum. Umsjónarmenn fasteigna leikskóla og aukin íslenskukennsla eru góðar breytingar. Blíð byrjun er gott skref en ætti að vera stærra, 2 dagar fyrir alla nýja starfsmenn og 3 til viðbótar fyrir fólk sem er ekki með reynslu af starfi úr leikskóla. Nýtt fyrirkomulag á systkinasameiningu er framför.
Á móti kemur að fyrirvari breytinganna er mjög lítill fyrir foreldra sem þurfa að gera breytingar á vinnufyrirkomulagi eða slíku. Eins vantar allt mat á því hvaða áhrif þessar breytingar geta haft á börn og fjölskyldur í viðkvæmri stöðu vegna félagslegra aðstæðna og/eða stuðningsþarfa.Kl. 15.35 víkur Guðrún Kaldal af fundinum.
Kl. 15.57 víkur Frans Páll Sigurðsson af fundinum.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 17. febrúar 2026, um samþykkt borgarráðs frá 17. febrúar 2026 á viðauka við þjónustusamninga við sjálfstætt starfandi leikskóla. SFS25060014
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga skóla- og frístundaráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, sbr. 11. lið fundargerðar skóla- og frístundaráðs frá 26. janúar 2026 og 7. lið fundargerðar skóla- og frístundaráðs frá 9. febrúar 2026:
Lagt er til að málefni leikskólans Vinagerðis verði sett á dagskrá næsta reglulega fundar skóla- og frístundaráðs.
Samþykkt. SFS26010127
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 12. febrúar 2026, ásamt umsögn foreldraráðs Vinagerðis, ódags.:
Lagt er til að leikskólanum Vinagerði verði lokað frá og með 15. september 2026. Vegna lokunar Vinagerðis er lagt er til að öll börn sem innrituð eru í leikskólann Vinagerði og stefndu á áframhaldandi dvöl þar skólaárið 2026-2027 fái forgang á flutning í aðra leikskóla Reykjavíkurborgar til samræmis við óskir foreldra þeirra og laus pláss í viðkomandi leikskólum. Breytingin eigi sér stað í tengslum við innritun í pláss sem losna vegna barna sem fara í grunnskóla haustið 2026 en innritun hefst þann 2. mars 2026.
Greinargerð fylgir.
Samþykkt. Vísað til borgarráðs. SFS26020057
Áheyrnarfulltrúi foreldra barna í leikskólum leggur fram svohljóðandi bókun:
Áheyrnarfulltrúi foreldra leikskólabarna tekur undir ábendingar frá foreldraráði Vinagerðis um að mikilvægt er að vel verði stutt við leikskólann og að starfsemi og mönnun Vinagerðis haldist stöðug fram að lokun. Þar að auki þarf að hugsa strax að langtímalausn fyrir hverfið, þannig að börn í hverfinu hafi möguleika á leikskólaplássi í nágrenninu.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga skóla- og frístundaráðsfulltrúa Framsóknarflokksins, sbr. 10. lið fundargerðar skóla- og frístundaráðs frá 9. febrúar 2026:
Framsókn leggur til að skóla- og frístundasviði verði falið í samvinnu við umhverfis- og skipulagssvið að finna bráðabirgðahúsnæði fyrir leikskólann Vinagerði vegna fyrirhugaðrar lokunar leikskólans. Sviðin kanni einnig fýsileika þess að koma upp færanlegum einingum fyrir leikskólann við leik- eða grunnskólalóð í hverfinu. Markmiðið er að tryggja samfellda skólagöngu leikskólabarna sem stunda nám í Vinagerði.
Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi breytingatillögu:
Starfsfólk borgarinnar hefur snúið við hverjum steini í leit að lausn á málefnum leikskólans Vinagerðis með það að markmiði að unnt væri að halda áfram leikskólastarfsemi í hverfinu. Skóla- og frístundaráð æskir þess að starfsfólk skóla- og frístundasviðs og umhverfis- og skipulagssviðs haldi áfram að leita leiða til að finna sem farsælasta lausn á málinu.
Samþykkt.
Tillagan er samþykkt svo breytt. SFS26020044
Kl. 16.19 víkur Guðrún Sigtryggsdóttir af fundinum.
Fylgigögn
-
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra skóla- og frístundarsviðs, dags. 12. febrúar 2026, um stuðning og samstarf vegna MemmmPlay, opna leikskólans. SFS25030126
Kl. 16.20 víkur Arndís Steinþórsdóttir af fundinum.
Fylgigögn
-
Lagt fram svar sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 18. febrúar 2026, við fyrirspurn skóla- og frístundaráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um áætlanir um leikskólann Vinagerði, sbr. 12. lið fundagerðar skóla- og frístundaráðs frá 26. janúar 2026 og 8. lið fundargerðar skóla- og frístundaráðs frá 9. febrúar 2026. SFS26010128
Kl. 16.22 víkur Kristinn Jón Ólafsson af fundinum.
Fylgigögn
-
Fram fer umræða um fréttir af vettvangi skóla- og frístundastarfs. SFS24080154
-
Áheyrnarfulltrúi leikskólastjóra leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:
Óskað er eftir samanburði á starfsaðstæðum í leikskólum í Reykjavík, borgar- og einkarekinna leikskóla, við nágrannasveitafélögin í Mosfellsbæ, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði. Óskað er eftir að skoðað verði: Opnunartími skóla, lokunardagar skóla, fjöldi skipulagsdaga, skráningardagar/vetrarfrí, 2. janúar, jóla- og páskafrí, dvalatímareglur og kjör starfsmanna, þ.m.t. föst yfirvinna og akstur.
SFS26020125
Fundi slitið kl. 16:24
Helga Þórðardóttir Árelía Eydís Guðmundsdóttir
Marta Guðjónsdóttir Sabine Leskopf
Stefán Pálsson Þorkell Sigurlaugsson
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 23. febrúar 2026