Skóla- og frístundaráð - Fundur nr. 291

Skóla- og frístundaráð

Ár 2025, 5. maí, var haldinn 291. fundur skóla- og frístundaráðs. Fundurinn hófst í fundarherberginu Hofi á Höfðatorgi, Borgartúni 12-14 í Reykjavík kl. 13.15.
Eftirtalin voru komin til fundar í fundarherberginu Hofi: Helga Þórðardóttir formaður (F), Alexandra Briem (P), Helgi Áss Grétarsson (D), Magnea Gná Jóhannsdóttir (B), Marta Guðjónsdóttir (D), Sabine Leskopf (S) og Stefán Pálsson (V). Auk þeirra eftirtaldir áheyrnarfulltrúar: Albína Hulda Pálsdóttir, foreldrar barna í leikskólum; Edith Oddsteinsdóttir, foreldrar barna í grunnskólum; Guðjóna Eygló Friðriksdóttir, skólastjórar í grunnskólum; Guðrún Gunnarsdóttir, leikskólastjórar; Guðrún Kaldal, framkvæmdastjórar frístundamiðstöðva; Leona Iguma, Reykjavíkurráð ungmenna og Lilja Margrét Möller, kennarar í grunnskólum. Auk þeirra eftirtaldir starfsmenn skóla- og frístundasviðs: Steinn Jóhannsson sviðsstjóri, Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir, Arndís Steinþórsdóttir, Frans Páll Sigurðsson, Guðrún Sigtryggsdóttir, Hjörtur Ágústsson, Ólafur Brynjar Bjarkason, Soffía Pálsdóttir og Eygló Traustadóttir sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning og umræða um stöðu innritunar í leikskóla vorið 2025. SFS25040140

    Eyrún Einarsdóttir og Hildur Lilja Jónsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Ánægjulegt er að sjá hvað innritun í leikskóla gengur vel, sérstaklega mikilvægur þáttur hér er þátttaka sjálfstætt starfandi skóla í Völu innritunarkerfi sem kemur í veg fyrir tvískráningar, einfaldar ferlið til muna og kemur í veg fyrir misskilning. Einnig er ánægjulegt að sjá þann árangur sem náðst hefur með nýju verklagi um systkinatillit, en það getur sparað fjölskyldum töluvert umstang ef hægt er að bjóða systkinum pláss í sama skóla. Nú er ljóst að leggja verður áherslu á mönnun leikskóla, en í því skyni hefur skóla- og frístundasvið nú þegar kynnt hugmyndir að breytingum á reglum um leikskólastarf. Þeim hugmyndum er m.a. ætlað að bæta starfsaðstæður sem og að draga verulega úr þörf fyrir fáliðunaraðgerðir í leikskólum borgarinnar og auka þar með fyrirsjáanleika í lífi barnafjölskyldna.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Vísbendingar eru um að það hafi tekist að stytta biðlista á leikskóla í Reykjavík og er það jákvætt. Ein ástæða þessa er sú að stór árgangur er að hætta í leikskóla og hefja nám í grunnskóla á meðan færri eru að sækja um leikskólavist. Óumdeilt er að það er langt í land að hægt verði að standa við loforð sem gefin voru rétt fyrir kosningar vorið 2022 um að öll börn frá 12 mánaða aldri fengju pláss á leikskóla. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa oft lagt til að gripið sé til fjölbreyttra lausna í dagvistunarmálum barna á leikskólaaldri, svo sem með því að borgin auki samstarf sitt við einkaaðila, innleiði heimgreiðslur til foreldra og efli dagforeldrakerfið.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Þakkað er fyrir góða kynningu á stöðu innritunar í leikskóla borgarinnar. Ánægjulegt er að sjá að vinna sem ráðist var í undir forystu Framsóknar í skóla- og frístundaráði er farin að skila sér og nú hafa nær öll börn 18 mánaða og eldri fengið boð um vistun á leikskólum borgarinnar haustið 2025. Mikilvægt er að fylgja því vel eftir og leita allra leiða til að tryggja að það raungerist. Fæðingarorlof foreldra er enn 12 mánuðir og ríkisstjórnin virðist ekki hafa nein áform um að lengja það í 18 mánuði. Það er því brýnt að horft sé til fjölbreyttra lausna til að mæta foreldrum sem bíða eftir vistun svo sem með heimgreiðslum, áframhaldandi eflingu á dagforeldrakerfinu og samninga við einkaaðila og vinnustaði um rekstur leikskóla með það að markmiði að fjölga dagvistunarplássum í Reykjavík og mæta þannig betur barnafjölskyldum. Það verður að vera okkar forgangsatriði sem þjónandi forysta fyrir borgarbúa.

  2. Fram fer kynning og umræða um sumarstarf frístundaheimila og félagsmiðstöðva 2025. SFS25040141

    Áheyrnarfulltrúi framkvæmdastjóra frístundamiðstöðva leggur fram svohljóðandi bókun:

    Áheyrnarfulltrúi framkvæmdastjóra frístundamiðstöðva óskar eftir því að skóla- og frístundaráð skoði lengingu á starfstíma félagsmiðstöðva yfir sumarið. Í reglum um félagsmiðstöðvar kemur fram að félagsmiðstöðvar eru lokaðar frá miðjum júlí þar til að skóli hefst í lok ágúst. Mikilvægt er að skóla- og frístundasvið bjóði upp á þjónustu fyrir unglinga frá miðjum júlí og þar til að vetrarstarf skóla- og frístundasviðs hefst.

  3. Lagt fram minnisblað sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 28. apríl 2025, um úthlutun styrkja úr þróunar- og nýsköpunarsjóði skóla- og frístundaráðs, B-hluta fyrir skólaárið 2025-2026 ásamt yfirliti yfir umsóknir í B-hluta þróunar- og nýsköpunarsjóðs skóla- og frístundaráðs og reglum um styrkveitingar skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur vegna styrkja í B-hluta þróunar- og nýsköpunarsjóðs skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur Látum draumana rætast.

    Tillaga úthlutunarnefndar þróunar- og nýsköpunarsjóðs skóla- og frístundaráðs um að eftirtaldir aðilar hljóti styrki ráðsins árið 2025:

    1)    Umsækjandi: Klambrar, Stakkaborg, Nóaborg, Menntavísindasvið HÍ og Nýsköpunarmiðstöð menntamála. Heiti verkefnis: Tónlistariðkun í þremur leikskólum. Upphæð: 8 milljónir króna.

    2)    Umsækjandi: Rimaskóli, Austurbæjarskóli, Menntavísindasvið HÍ, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og Austurmiðstöð. Heiti verkefnis: Heillaspor í skólastarfi. Upphæð: 6 milljónir króna.

    3)    Umsækjandi: Grandaskóli, Rimaskóli, Laugarnesskóli, Vesturmiðstöð, frístundaheimilið Undraland, Mixtúra, Nýmennt HÍ og Menntavísindasvið HÍ. Heiti verkefnis: HugSmiðja – Hugsandi skólasamfélag. Upphæð: 8 milljónir króna.

    4)    Umsækjandi: Grunnskólar í Suður-, Norður- og Vesturmiðstöð. Heiti verkefnis: Markvisst innra mat. Upphæð: 5 milljónir króna.

    5)    Umsækjandi: Félagsmiðstöðin 100og1, frístundaheimilið Draumaland, frístundamiðstöðin Tjörnin, Menntavísindasvið HÍ, Vesturmiðstöð og Girerd leikhúsið. Heiti verkefnis: Leiklist, dans og sköpun í Miðborginni. Upphæð: 4 milljónir króna.

    6)    Umsækjandi: Frístundamiðstöðvarnar Tjörnin, Brúin, Kringlumýri og Miðberg, mannréttinda- og lýðræðisskrifstofa Reykjavíkurborgar, fagskrifstofa frístundamála á skóla- og frístundasviði og Samtökin 78. Heiti verkefnis: Skjól í stormi. Upphæð: 7 milljónir króna.

    7)    Umsækjandi: Vesturmiðstöð, Hlíðaskóli, Háteigsskóli, félagsmiðstöðvarnar Gleðibankinn og 105 og íþróttafélagið Valur. Heiti verkefnis: Ábyrgt og jákvætt samfélag á miðstigi. Upphæð: 4 milljónir króna.

    8)    Umsækjandi: Félagsmiðstöðin Hundraðogellefu, Fellaskóli, Hólabrekkuskóli, Suðurmiðstöð, Menntavísindasvið HÍ og Netumferðarskólinn. Heiti verkefnis: Farsæld til framtíðar. Upphæð: 8 milljónir króna.

    9)    Umsækjandi: Borgaskóli, Engjaskóli, Víkurskóli, félagsmiðstöðin Vígyn, Mixtúra og HÍ. Heiti verkefnis: Hverfið okkar í nærmynd - rödd samfélagsins. Upphæð: 4 milljónir króna.

    10)    Umsækjandi: Fellaskóli, Jafnréttisskólinn, félagsmiðstöðin Hundraðogellefu, ráðgjafa- og viðbragðsteymi um óæskilega kynferðislega hegðun barna og ungmenna, Miriam Petra fræðsluaðili um fordóma og inngildingu, Chanel Björk hjá Mannflórunni og Menntavísindasvið HÍ. Heiti verkefnis: Handbókin Kynverund og kúltúr: Kynfræðsla fyrir börn og ungmenni með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn. Upphæð: 6 milljónir króna.

    11)    Umsækjandi: Suðurmiðstöð, leikskólar í Breiðholti, grunnskólar í Breiðholti, frístundaheimili í Breiðholti, Háskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri. Heiti verkefnis: LÆM – Læsi allra mál. Upphæð: 7 milljónir króna.

    12)    Umsækjandi: Fellaskóli, leikskólarnir Ösp og Holt og Menntavísindasvið HÍ. Heiti verkefnis: Málþroski og læsi - að virkja þátttöku foreldra. Upphæð: 8 milljónir króna.

    Samþykkt. SFS25030056 

    Fylgigögn

  4. Lögð fram að nýju svohljóðandi tillaga skóla- og frístundaráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, sbr. 19. lið fundargerðar skóla- og frístundaráðs frá 10. mars 2025 og 11. lið fundargerðar skóla- og frístundaráðs frá 24. mars 2025:

    Þar sem húsnæðisvandi Hjallastefnunnar hefur á þessu kjörtímabili ekki verið til umræðu í skóla- og frístundaráði telja fulltrúar Sjálfstæðisflokksins nauðsynlegt að á næsta fundi ráðsins verði lagðar fram þær tímabundnu lausnir sem unnið er að á vettvangi skóla- og frístundasviðs. Á sama fundi leggi sviðið einnig fram framtíðarlausn fyrir húsnæðisvanda skólastarfs Hjallastefnunnar.

    Tillögunni er vísað til borgarráðs. SFS25030053

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Þakkað er fyrir upplýsingar um tímabundnar lausnir á húsnæði fyrir næsta skólaár. Afar brýnt er að eyða þeirri óvissu sem uppi er varðandi skólastarf Hjallastefnunnar í Reykjavík. Hjallastefnan er ómetanlegur þáttur í því að tryggja fjölbreytni í skólastarfi í Reykjavík og afar bagalegt að húsnæðismál skólans séu í ólestri. Framsókn styður að Hjallastefnunni verði úthlutað lóð undir skólabyggingu til framtíðar. 

    Fylgigögn

  5. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 3. febrúar 2025, þar sem svohljóðandi tillögu fulltrúa í ungmennaráði Kjalarness, sbr. 2. lið fundargerðar borgarstjórnar frá 28. janúar 2025, er vísað til meðferðar skóla- og frístundaráðs, ásamt minnisblaði sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 28. apríl 2025:

    Lagt er til að borgarstjórn samþykki að fela skóla- og frístundasviði að gera úttekt á túlkun grunnskóla í borginni á matsviðmiðum aðalnámskrár við lok 10. bekkjar. Skal úttektin fara fram skólaárið 2026-2027. Borið hefur á óánægju í samfélaginu varðandi einkunnakerfi grunnskóla.

    Greinargerð fylgdi.

    Tillögunni er vísað frá með fjórum atkvæðum skóla- og frístundaráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn þremur atkvæðum skóla- og frístundaráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. MSS25010158

    Sóley Mjöll Ásgeirsdóttir og Hulda Valdís Valdimarsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar í ungmennaráði Kjalarness lögðu fram tillögu um að gerð verði úttekt á túlkun grunnskóla í Reykjavík á hæfniviðmiðum aðalnámskrár grunnskóla við lok 10. bekkjar og að úttektin fari fram skólaárið 2026-2027. Samstarfsflokkarnir hafa skilning á áhyggjum ungmenna um að ekki sé samræmi í einkunnagjöf milli skóla. Við endurskoðun greinasviða aðalnámskrár grunnskóla var markmiðið að gera hæfniviðmið skýrari og einfaldari, en í ítarefni sem fylgir endurskoðuninni verða gefin út námsmarkmið fyrir hvert hæfniviðmið. Miðstöð menntunar og skólaþjónustu vinnur núna að þróun og innleiðingu matsferils sem ætlað er að draga upp heildstæða mynd af stöðu náms og framförum nemenda reglulega yfir skólagönguna. Miðstöðin hefur fengið til liðs við sig 26 skóla sem starfa innan 14 sveitarfélaga til að aðstoða við innleiðingu á stöðu- og framvinduprófum og er innleiðingin þeirra nú þegar hafin. Vonir eru bundnar við að nýr matsferill styðji enn frekar við réttmætt mat á námslegri stöðu nemenda við lok 10. bekkjar. Samstarfsflokkarnir í skóla - og frístundaráði telja eðlilegt að bíða eftir niðurstöðum úr vinnu Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu áður en ráðist yrði í úttekt á túlkun hæfniviðmiða í grunnskólum Reykjavíkur.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fyrirliggjandi tillaga Sóleyjar Mjallar Ásgeirsdóttur fulltrúa í ungmennaráði Kjalarness varpar ljósi á þann vanda að núverandi skipan við einkunnagjöf til nemenda í 10. bekk í grunnskóla er ekki í lagi. Leiðin sem stungið er upp á til að borgin byrji að taka á þessu er skynsamleg. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins styðja því efnislega tillöguna en á fundi borgarstjórnar 3. september 2024 lögðu fulltrúar flokksins fram svohljóðandi tillögu: „Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkir að Reykjavíkurborg fari þess á leit við barna- og menntamálaráðherra að samræmd próf verði tekin upp að nýju í 4., 7. og 10. bekk grunnskóla í þeim tilgangi að bæta námsárangur grunnskólanema. Samræmdu prófunum fylgi kennsluátak fyrir þá nemendur sem helst þurfa á því að halda.“ Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins harma þá málsmeðferð meirihlutans að vísa tillögunni frá.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Þakkað er fyrir góða tillögu. Það er dýrmætt að heyra raddir ungmenna á því hvernig þau upplifa menntakerfið. Við verðum alltaf að vera vakandi fyrir því hvernig námsmatið okkar er framkvæmt og hvernig við getum betur bætt það og samræmt. Nú er ríkið að vinna að nýju samræmdu námsmati og Framsókn bindur miklar vonir við innleiðingu á því og áréttar mikilvægi þess að skóla- og frístundasvið fylgi þeirri innleiðingu eftir. 

    Fylgigögn

  6. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 3. febrúar 2025, þar sem svohljóðandi tillögu fulltrúa í ungmennaráði Árbæjar og Holta, sbr. 6. lið fundargerðar borgarstjórnar frá 28. janúar 2025, er vísað til meðferðar skóla- og frístundaráðs, ásamt minnisblaði sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 22. apríl 2025:

    Lagt er til að borgarstjórn samþykki að fela skóla- og frístundaráði að finna leiðir til að auka samstarf grunn- og framhaldsskóla í Reykjavík vegna framhaldsskólakynninga fyrir 10. bekkinga og hvetji til þess að stóra framhaldsskólakynningin verði haldin árlega að hausti til.

    Greinargerð fylgdi.

    Skóla- og frístundaráð leggur fram svohljóðandi breytingatillögu:

    Lagt er til skóla- og frístundasviði verði falið að finna leiðir til að auka samstarf grunn- og framhaldsskóla í Reykjavík vegna framhaldsskólakynninga fyrir 10. bekkinga og tryggi að haldnar verði kynningar á framhaldsskólum fyrir grunnskóla borgarinnar, sér í lagi þau ár sem stóra kynningin fer ekki fram í samráði við Reykjavíkurráð ungmenna. Þær lausnir verði lagðar fyrir skóla- og frístundaráð til afgreiðslu.

    Breytingatillagan er samþykkt.

    Tillagan er samþykkt svo breytt. MSS25010162

    Magnea Þórey Guðlaugsdóttir og Hulda Valdís Valdimarsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Kl. 15.16 víkur Frans Páll Sigurðsson af fundinum. 

    Fylgigögn

  7. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 3. febrúar 2025, þar sem svohljóðandi tillögu fulltrúa í ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða, sbr. 7. lið fundargerðar borgarstjórnar frá 28. janúar 2025, er vísað til meðferðar skóla- og frístundaráðs, ásamt minnisblaði sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 28. apríl 2025:

    Lagt er til að að borgarstjórn samþykki að fela skóla- og frístundaráði að festa lífsleiknikennslu í grunnskólum borgarinnar í sessi sem sérstaka námsgrein og samræma áherslur og kennsluaðferðir milli grunnskóla í borginni. Miða skal við að unnið verði að samþykktinni skólaárið 2025-2026.

    Greinargerð fylgdi.

    Skóla- og frístundaráð leggur fram fram svohljóðandi breytingatillögu:

    Lagt er til að skóla- og frístundasviði sé falið að fylgja því eftir að kennsla í lífsleikni fari fram með samræmdum hætti og árangri af því fylgt eftir. Einnig er lagt til að skóla- og frístundaráð hvetji barna- og menntamálaráðuneytið til að festa lífsleikni í sessi sem sérstaka námsgrein í endurskoðun á aðalnámskrá og tryggja fjölbreytt úrval námsgagna sem nýtist í lífleikni.

    Frestað. MSS25010163

    Ragnheiður Andrésdóttir og Hulda Valdís Valdimarsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. 

    Fylgigögn

  8. Lagt fram bréf sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs um embættisafgreiðslu sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 28. apríl 2025, eitt mál. SFS22080009

    Fylgigögn

  9. Fram fer umræða um fréttir af vettvangi skóla- og frístundastarfs. SFS24080154 

  10. Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi tillögu:

    Lagt er til að skóla- og frístundasviði verði falið að vinna að sérskólaúrræði fyrir þau börn sem ekki komust að í Klettaskóla. Úrræðið verði tilbúið til notkunar í haust í byrjun skólaárs þannig að þeim nemendum sem uppfylltu skilyrði til inngöngu í Klettaskóla verði tryggð skólavist í sérskólaúrræði.

    Greinargerð fylgir.

    Frestað. SFS25050014

     

    Fylgigögn

  11. Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi tillögu:

    Lagt er til að skóla- og frístundasvið taki til skoðunar hvernig koma megi betur til móts við hagsmuni barna og ungmenna sem eiga foreldra er reisa lífsviðurværi sitt á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar. Í þessu felst að sviðið taki málið til þverfaglegrar skoðunar, svo sem í samstarfi við önnur svið borgarinnar, t.d. velferðarsvið og menningar- og íþróttasvið. Markmið vinnunnar væri að fjölga tækifærum barna sem eiga tekjulága foreldra og háðir eru fjárhagsaðstoð borgarinnar.

    Frestað. SFS25050015

  12. Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Óskað er upplýsinga um hækkanir á leigusamningi við tónlistarskóla, til hvaða tónlistarskóla þær taka og um hversu mikla hækkun er að ræða. Þá er óskað eftir upplýsingum um hvort jafnræðis gæti milli tónlistarskóla í borginni sem eru í leiguhúsnæði á vegum borgarinnar hvað leiguverð snertir.

    Vísað til borgarráðs. SFS25050016
     

  13. Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Hvenær er áætlað að starfsemi geti hafist á nýjan leik við húsnæði Brákarborgar að Kleppsvegi 150-152?

    SFS25050017

  14. Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Neðangreind fyrirspurn var lögð fram í skóla- og frístundaráði 27. maí 2024 og ítrekuð síðast 27. janúar 2025. Fyrirspurninni er enn ósvarað og er því óskað eftir að svar við henni berist sem fyrst.
    Hversu margir starfslokasamningar hafa verið gerðir við skólastjórnendur og stjórnendur skóla- og frístundasviðs á tímabilinu 1. janúar 2015 til og með 15. maí 2024? Hver er kostnaður Reykjavíkurborgar við hvern starfslokasamning á föstu og gildandi verðlagi? Hversu há upphæð hefur þurft að greiða fyrir starfslok á þessu tímabili á föstu og gildandi verðlagi? Hversu langur er hver starfslokasamningur sem skóla- og frístundasvið hefur gert við stjórnendur? Hvert er starfsheiti og aldur starfsmanns á bakvið hvern starfslokasamning? Hvaða skýring liggur að baki hverjum starfslokasamningi að þessi leið er valin? Er fjöldi starfslokasamninga við stjórnendur skóla- og frístundasviðs hjá Reykjavíkurborg sambærilegur við nærliggjandi sveitarfélög? Hversu margir skólastjórnendur hafa sagt upp störfum á tímabilinu 1. janúar 2015 til og með 15. maí 2024?

    SFS24050122

  15. Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Samkvæmt fréttum var lagt fyrir nemendur í 7. bekk í Breiðholtsskóla svokallað stöðumat. Er hægt að fá nánari upplýsingar um niðurstöður þessa stöðumats og hver sé námsleg staða árgangsins miðað við jafnaldra sína?

    SFS25050018

Fundi slitið kl. 16.00

Helga Þórðardóttir Alexandra Briem

Helgi Áss Grétarsson Magnea Gná Jóhannsdóttir

Marta Guðjónsdóttir Sabine Leskopf

Stefán Pálsson

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 5. maí 2025