Skóla- og frístundaráð - Fundur nr. 214

Skóla- og frístundaráð

Ár 2021, 24. ágúst, var haldinn 214. fundur skóla- og frístundaráðs. Fundurinn hófst í fundarherberginu Hofi á Höfðatorgi, Borgartúni 12-14 í Reykjavík kl. 12.33. Eftirtaldir voru komnir til fundar í fundarherberginu Hofi: Skúli Helgason formaður (S), Alexandra Briem (P) og Elín Oddný Sigurðardóttir (V), Kolbrún Baldursdóttir (F) og Örn Þórðarson (S). Auk þeirra eftirtaldir starfsmenn skóla- og frístundasviðs: Helgi Grímsson sviðsstjóri, Anna Garðarsdóttir, Guðrún Sigtryggsdóttir og Ingibjörg Margrét Gunnlaugsdóttir. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með fjarfundabúnaði með vísan til heimildar í auglýsingu nr. 894/2021 um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra skv. VI. bráðabirgðarákvæði sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011: Diljá Ámundadóttir Zoëga (C) og Valgerður Sigurðardóttir (D). Auk þeirra eftirtaldir áheyrnarfulltrúar: Albína Hulda Pálsdóttir, foreldrar barna í leikskólum; Brynjar Bragi Einarsson Reykjavíkurráð ungmenna; Guðrún Gunnarsdóttir, leikskólastjórar í leikskólum; Haraldur Sigurðsson, framkvæmdastjórar frístundamiðstöðva; Jón Ingi Gíslason, kennarar í grunnskólum; Magnús Þór Jónsson, skólastjórar í grunnskólum og Ragnheiður Davíðsdóttir, foreldrar barna í grunnskólum. Jafnframt eftirtaldir starfsmenn skóla- og frístundasviðs: Soffía Vagnsdóttir. 
Guðrún Sigtryggsdóttir ritaði fundargerð. 

Þetta gerðist:

  1. Lagðar fram niðurstöður stýrihóps um umbætur á skipulagi og umhverfi leikskólastarfs Reykjavíkurborgar, dags. í maí 2021. Jafnframt lögð fram svohljóðandi tillaga skóla- og frístundaráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna, minnisblað sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 20. ágúst 2021, auk umsagna fjármála- og áhættustýringarsviðs Reykjavíkurborgar dags. 6. júlí 2021 og 20. ágúst 2021: 

    a)    Tillaga stýrihóps um umbætur og skipulag leikskólastarfs varðandi opnunartíma verði samþykkt og taki gildi 1. janúar 2022. 
    b)    Opnunartími leikskóla borgarinnar verði 7:30 til 16:30 hjá öllum leikskólum frá 1. nóvember 2021. 
    c)    Opnunartími skilgreindra leikskóla, einn til tveir í hverju hverfi, verði frá 7:30 til 17:00 frá 1. janúar 2022 að því gefnu að aðstæður leyfi að teknu tilliti til heimsfaraldursins. 
    d) Foreldrar með dvalarsamning fram yfir kl. 16.30 geta í september 2021 tilkynnt hvort þeir óski eftir að halda dvalartímanum eftir 1. janúar 2022. Nú þegar verði hætt að gera dvalarsamninga eða samþykkja breytingar á dvalarsamningum í þá veru að dvalartími fari fram yfir kl. 16:30 nema í þeim leikskólum sem verða skilgreindir sem leikskólar með opnunartíma til kl. 17:00. 
    e)    Unnið verður með flutningsumsóknir foreldra, sem óska eftir að halda dvalartímanum, inn í þá leikskóla sem verða opnir til kl. 17, áður en unnið verður úr öðrum umsóknum inn í þá leikskóla og flutningur veittur eftir því sem pláss leyfa.
    f) Komi til þess að eftirspurn eftir leikskóla með dvalartíma til kl. 17:00 verði umfram laus pláss fái þeir hópar foreldra forgang sem samkvæmt jafnréttismati frá júní 2020 má áætla að myndu eiga erfiðast með að bregðast við styttri opnunartíma. 

    Lagt er til að um verði að ræða tveggja ára tilraunaverkefni, frá 1. janúar 2022 til 31. desember 2024, og verði árangur og reynsla af starfinu metinn á áföngum á tímabilinu. Mælikvarðar og markmið skulu skilgreind nánar í upphafi verkefnis og mat á árangri taki tillit til barna, starfsmanna, stjórnenda, foreldra, þróunar á dvalartíma barna og lykiltölum í rekstri. Þeir leikskólar sem verða opnir til 17:00 fái fjárheimildir til að tryggja fullnægjandi mönnun á lengri opnunartíma skólans.
    Sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs er falið að leggja fram tillögu að breytingum á reglum Reykjavíkurborgar um leikskólaþjónustu eigi síðar en á fundi skóla- og frístundaráðs þann 14. september 2021. SFS2019100023

    Greinargerð fylgir. 

    Samþykkt með fjórum atkvæðum skóla- og frístundaráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna og vísað til borgarráðs. Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Flokks fólksins sitja hjá. 

    Aðrar tillögur stýrihóps um umbætur og skipulag leikskólastarfs varðandi skipulag dagsins, úthlutunarlíkan leikskóla, uppbyggingu gjaldskrár, framtíðarsýn varðandi stærð barnahópa og leik- og heildarrými barna auk aðgerða til að bregðast við nýliðunarvanda leikskólakennara og koma til móts við mönnunarvanda leikskóla eru samþykktar með fjórum atkvæðum skóla- og frístundaráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna og vísað til borgarráðs. Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Flokks fólksins sitja hjá. SFS2019100023

    -    Kl. 13:10 víkur Ingibjörg Margrét Gunnlaugsdóttir af fundinum. 

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Það hefur verið sérstakt forgangsmál meirihlutans að bæta starfsaðstæður í leikskólum, grunnskólum og frístundastarfi og tillögur um breyttan opnunartíma, breytt skipulag leikskóladagsins, nýtt úthlutunarlíkan og fleira þjóna sama markmiði. Lögð er áhersla á að viðhalda gæðum leikskólastarfsins með styttri viðverutíma barna en jafnframt er gripið til mótvægisaðgerða sem taka mið af niðurstöðum jafnréttismats. Þar verður sérstaklega komið til móts við þarfir foreldra sem eiga erfitt með að mæta styttingu opnunartíma um 15-30 mínútur á dag. Reykjavík gengur þar með lengra til móts við þarfir foreldra en gert hefur verið í öðrum sveitarfélögum sem stytt hafa opnunartíma leikskóla s.s. Kópavogi, Akureyri, Reykjanesbæ og víðar.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks undrast það að ekki sé samfella í þeim tillögum sem núna eru kynntar, þar sem opnunartími er skertur frá 1. nóvember, en hins vegar er ekki gripið til þeirra mótvægisaðgerða sem skýrslan segir nauðsynlegar, þ.e. lengri opnun á völdum leikskólum innan hverfa, fyrr en 1. janúar 2022. Mikilvægt er að það sé festa og samfella í allri grunnþjónustu sem borgin veitir og því nauðsynlegt að breyting verði gerð á þessu.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Meirihlutinn í skóla- og frístundaráði leggur til að opnunartími leikskóla borgarinnar verði 7:30 til 16:30 hjá öllum leikskólum frá 1. nóvember 2021. Þetta eru umdeild ákvörðun. Kveikjan er sögð hafa komið frá leikskólunum sjálfum. Þessi ákvörðun hefur slæmar afleiðingar fyrir marga foreldra, þeirra sem hafa ekki sveigjanlegan vinnutíma og starfa fjarri leikskóla barna sinna. Almennt eru börn í leikskóla í sínu hverfi en foreldrar vinna sjaldnast í sínu hverfi heldur jafnvel langt frá og sitja jafnvel fastir í umferðarteppu á þessum tíma. Engin fulltrúi foreldra sat í stýrihópnum sem vann tillöguna og finnst fulltrúa Flokks fólksins það ekki góður bragur. Nú brennur á mörgum foreldrum að nota vistvænar samgöngur t.d. hjóla. Stytting opnunartíma leikskóla kemur illa við þessa foreldra sérstaklega þá sem báðir vinna fjarri leikskóla barna sinna. Fulltrúi Flokks fólksins er tortrygginn út í samráðsferlið og telur að úti í samfélaginu sé stór hópur foreldra afar ósáttur með skerðingu þjónustunnar. Raddir þeirra hafa ekki komist til eyrna meirihlutans í skóla- og frístundaráði. Foreldrar eru fullfærir um að skipuleggja tíma sinn með börnum sínum og þekkja þarfir barna sinna best. Þeir þurfa ekki stýringu frá borginni. Þessi meirihluti er að skerða þjónustu víðar. Nú á einnig að stytta opnunartíma þjónustumiðstöðva.

    Áheyrnarfulltrúi foreldra barna í leikskólum leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Áheyrnarfulltrúi foreldra leikskólabarna mótmælir fyrirhugaðri styttingu á opnunartíma leikskóla Reykjavíkurborgar. Stytting opnunartíma leikskóla og skerðing á þjónustu sem lögð er til mun hafa neikvæð áhrif á fjölmargar fjölskyldur og oft þær fjölskyldur sem hafa minnst bakland og þurfa mest á leikskólavist að halda. Skert þjónusta leikskóla eykur ekki endilega gæðasamverustundir foreldra og barna heldur getur aukið álag á fjölskyldur. Það er jákvætt að farið verður í mótvægisaðgerðir með lengri opnun eins leikskóla í hverju hverfi en þessi breyting mun minnka þjónustu í nærumhverfi íbúa og leiða til meiri aksturs í andstöðu við markmið borgarinnar í umhverfismálum. Niðurstöður jafnréttismatsins sýna líka ótvírætt að stytting opnunartíma hefur meiri áhrif á mæður en feður. Mikilvægt að standa sérstaklega vel að upplýsingamiðlun til foreldra/forráðafólks nú þegar þessi skerðing á þjónustu hefur verið ákveðin. Upplýsingum þarf að miðla á íslensku, ensku, pólsku og algengustu tungumálum foreldra/forráðafólks leikskólabarna í Reykjavík og sérstaklega til þeirra fjölskyldna sem þegar hafa verið að nýta þessa þjónustu. Mikilvægt er að vandað verði til verka þegar mælikvarðar og markmið til þess að meta áhrif þessa tilraunaverkefnis verða skilgreind og haft verði samráð við fulltrúa foreldra við það.

        Áheyrnarfulltrúi leikskólastjóra í leikskólum leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Vegna mikils álags í starfsumhverfi leikskóla, leikskólakennaraskorts, mikillar starfsmannaveltu og fleiri ytri og innri rekstrar-íþyngjandi ástæðum, var farið í vinnu við að bæta starfsumhverfi leikskóla. Settur var á fót starfshópur sem hafði það verkefni að vinna að umbótum og skipulagi leikskólastarfs. Ein af sex tillögum hans, eftir mjög stranga og erfiða vinnu og aðkomu hagaðila, var að leggja til styttri opnunartíma leikskóla um hálftíma á dag, frá 07:30-17:00 niður í 07:30-16:30. Það er fagnaðarefni að þessi tillaga hefur verið samþykkt í tilraunarskyni næstu tvö árin, en á sama tíma komið til móts við þau börn/fjölskyldur sem nauðsynlega þurfa á lengri vistun að halda með lengri opnum í einum til tveimur leikskólum í hverju hverfi. Þessi breyting styður við og þéttir faglegt starf, eykur öryggi á starfsstað og minnkar álag og hefur jákvæð áhrif á skólabrag. 

    Fylgigögn

  2. Lögð fram svohljóðandi tillaga skóla- og frístundaráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna ásamt minnisblaði sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 18. ágúst 2021: 

    Lagt er til að frístundamiðstöðvarnar Ársel og Gufunesbær verði sameinaðar undir einni yfirstjórn. Eftir sameiningu verði í yfirstjórn einn framkvæmdastjóri ásamt fjármálastjóra, deildarstjóra barnastarfs og deildarstjóra unglingastarfs. Skóla- og frístundaráð samþykkir að fela sviðsstjóra að undirbúa og framkvæma breytinguna með þeim hætti að hún komi til framkvæmda eigi síðar en 1. janúar 2022 og að frá þeim tíma verði ein yfirstjórn. Lagt er til að skóla- og frístundasvið feli skrifstofustjóra frístundamála á fagskrifstofu að stýra sameiningarferlinu. Náið samráð verði haft við stjórnendur frístundamiðstöðvanna og aðra þá aðila er málið varðar. 

    Greinargerð fylgir. 
    Samþykkt og vísað til borgarráðs. SFS2021080139

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Hér er um að ræða sameiningu á yfirstjórn til samræmis við nýja hverfaskiptingu og svæði þjónustumiðstöðva, sem er liður í innleiðingu verkefnisins Betri borg fyrir börn í allri borginni. Þær breytingar sem hér eru til umræðu snúa að yfirstjórn þjónustunnar í hverfinu. Þær munu ekki hafa áhrif á starfið á hverri starfsstöð eins og það snýr að börnum, foreldrum eða starfsfólki þeirra, en með því að sameina yfirstjórn næst bæði hagræði og einföldun.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Mikilvægt er að sameiningin verði ekki til þess að draga úr þeirri þjónustu sem frístunda- og félagsmiðstöðvunum er ætlað að veita börnum og foreldrum í hverfunum. 

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fram kemur að ánægja er með frístundastarf en er ánægja með þessa sameiningu? Fram kemur að sameining hefur ekki verið borin undir notendur, foreldrahópinn. Það var ekki talið nauðsynlegt að mati skóla- og frístundasviðs en kannski hefði mátt upplýsa notendur um þessa breytingu? Fulltrúi Flokks fólksins óskar þess að þetta verði farsælt. Gæta þarf vel að því að þjónustan skerðist ekki, aukist frekar og verði bara enn betri ef eitthvað er. Einnig þarf að huga að því að engin „týnist“ þegar eining er orðin svo stór sem raun ber vitni.

    Fylgigögn

  3. Lagður fram samstarfssamningur milli menningar- og ferðamálasviðs og skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar um samrekið almennings- og skólabókasafn í Úlfarsárdal. Jafnframt lagt fram minnisblað sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 4. ágúst 2021. 

    Samþykkt og vísað til borgarráðs. SFS20210800151

    Bókun skóla- og frístundaráðs:

    Það er sérstakt fagnaðarefni að samstarf hafi verið innsiglað milli skóla- og frístundasviðs og menningar- og ferðamálasviðs um að hið nýja almennings- og skólabókasafn í Úlfarsárdal verði samrekið og undir stjórn fagfólks Borgarbókasafnsins. Það er skýrt framfaraskref sem gefur fyrirheit um framtíðina.

    Fylgigögn

  4. Fram fer umræða um málefni Fossvogsskóla. SFS2021070022

    -    Kl. 14.06 tekur Ingibjörg Margrét Gunnlaugsdóttir sæti á fundinum. 

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Ákveðið var í vikunni að nemendur í 2.-4. bekk Fossvogsskóla stundi nám í nýju húsnæði Hjálpræðishersins við Suðurlandsbraut næstu vikurnar og byggði ákvörðunin ekki síst á samráði við foreldra viðkomandi barna sem létu álit sitt í ljósi í viðhorfskönnun. Niðurstöður hennar voru afgerandi og enginn fótur er fyrir fréttum um að utanaðkomandi aðilar hafi haft áhrif á niðurstöður könnunarinnar. Grenndarkynningu varðandi fyrirhugaða uppsetningu færanlegra húsa lýkur á morgun og eru húsin komin til landsins. Stefnt er að því að þau verði tekin í notkun um miðjan september. Samráð við foreldra hefur ráðið miklu varðandi þær tímabundnu ráðstafanir sem ákveðnar hafa verið á skólahaldi komandi vetrar meðan framkvæmdir fara fram við skólann og er mikilvægt að svo verði áfram og upplýsingagjöf til foreldra og starfsfólks verði bætt og fullnægjandi um alla þætti þeirra framkvæmda sem framundan eru.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks hafa í þrjú ár fylgst með baráttu nemenda, foreldra og starfsfólks Fossvogsskóla fyrir lagfæringum á húsnæði skólans þannig að það uppfylli kröfur um heilnæmt skólahúsnæði. Óteljandi athugasemdir og ábendingar hafa fengið lítinn hljómgrunn eða viðbrögð hjá borgaryfirvöldum. Um það vitnar umfjöllun í fjölmiðlum og gagnrýni frá aðilum máls. Það er lýsandi í málinu öllu og þeim vinnubrögðum sem hafa verið undanfarinn þrjú ár í málinu bæði gangvart foreldrum sem fengu ekki upplýsingar í málinu fyrr en þeir réðu til sín lögfræðing sem óskaði eftir gögnum í málinu á grundvelli upplýsingalaga. Ennfremur hafa fulltrúar Sjálfstæðisflokks þurft að leita aðstoðar innri endurskoðanda vegna skorts á upplýsingum um stöðu mála í Fossvogsskóla. Það er ekki í samræmi við góða stjórnsýslu að halda upplýsingum frá þeim sem málið varðar, sérstaklega í máli sem snýst um heilsufar og heilbrigði barna og fullorðinna. 

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Í sumar fullyrti meirihlutinn að samhljómur hafi verið um ákveðna niðurstöðu, (sviðsmynd 2) í skoðanakönnun sem Reykjavík sendi á starfsfólk og foreldra barna í Fossvogsskóla. Nú er fullyrt að misbrestur hafi verið á framkvæmd könnunarinnar, hún hafi borist seint og keyrð í gegn á sólarhring. Könnunin var þess utan opin öllum sem foreldrar voru ekki sáttir við. Ef þetta er eins og foreldrar segja þá sætir það furðu að ekki hafi tekist betur til aðferðarfræðilega séð. Þetta mál er ekki búið og situr í fólki fyrir margar sakir. Sumir tala um stjórnunarlegt þrot sem erfitt er að bæta enda heilsa barna búin að vera undir. Vel kann að vera að það þurfi að láta reyna á þetta mál hjá dómstólum, hvort Reykjavíkurborg hafi hreinlega brotið lög um aðbúnað nemenda með því að mismuna börnum og skerða tækifæri þeirra til menntunar. Mætt hefur á mörgum í þessu máli. Erfiðast var að ekki var hlustað strax 2019 og hversu ósvífin svör bárust frá Heilbrigðisnefnd þegar fyrirspurnir voru lagðar fram um málið í umboði foreldra. Eftir er að sjá hvort hinar færanlegu skólastofur verði tilbúnar á réttum tíma.
     
    Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Það er rangt með farið að könnunin hafi verið öllum opin. Hún var send í Mentor kerfinu, og yfirfarin til að tryggja að eingöngu væru talin atkvæði frá foreldrum barna í 2.-4. bekk í Fossvogsskóla. Niðurstöðurnar gefa því rétta mynd af vilja foreldra í umræddum árgöngum sem og kennara og starfsfólks sem vinna mun með umræddum nemendum.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Flokks fólksins hefur upplýsingar um að könnunin umrædda hafi verið öllum opin úr fjölmiðlum og er vísað í orð foreldra. Ekki skal því segja til um hvort þar sé á ferð einhver misskilningur. Hvort niðurstöðurnar gefa því rétta mynd af vilja foreldra í umræddum árgöngum sem og kennara og starfsfólks sem vinna mun með umræddum nemendum skal látið ósagt.

  5. Lagt fram bréf borgarstjórans í Reykjavík,dags. 24. júní 2021, varðandi nýjan leikskóla í Völvufelli. SFS2021060303

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Verkefnið Brúum bilið er metnaðarfyllsta uppbyggingaráætlun í leikskólamálum í áratugi en með því fjölgar leikskólaplássum um vel á annað þúsund með byggingu nýrra leikskóla um alla borg, viðbygginga, opnun ungbarnadeilda og fjölgun plássa á sjálfstætt reknum leikskólum. Bygging nýs leikskóla í Völvufelli skapar tækifæri til að sameina í einn öflugan tíu deilda leikskóla sem uppfyllir allar helstu kröfur um fyrsta flokks aðbúnað, starfsemi sem í dag er rekin í þremur leikskólum í Efra Breiðholti í húsum sem öll eru komin á aldur og myndu þarfnast mikils viðhalds á komandi árum.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Í undirbúningi er að sameina þrjá leikskóla, Ösp og Holt sem er í tveimur húsum í einn nýjan skóla í Völvufelli í samræmi við hugmyndir í drögum að deiliskipulagi Breiðholts III. Fulltrúi Flokks fólksins bókaði um málið á fyrri stigum um mikilvægi þess að vanda vel til verksins t.d. að hugmyndin að tillögunni sé vel kynnt og að allir þeir sem málið snertir séu hafðir með í ráðum. Einnig að aðgengi fyrir fjölbreytt samgöngutæki sé fullnægjandi.

    Fylgigögn

  6. Lagt fram bréf borgarstjórans í Reykjavík, dags. 1. júlí 2021, bréf sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs til borgarráðs, dags. 29. júní 2021, minnisblað sviðsstjóra til borgarráðs, dags. 27. júní 2021, rekstrarleyfi fyrir 5 ára leikskóladeild við Skóla Ísaks Jónssonar, umsögn sviðsstjóra fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 24. júní 2021, samningur um framlag skóla- og frístundasviðs til sjálfstætt starfandir leikskóla, undirritaður 31. janúar 2019 ásamt viðauka dags. 12. júlí 2019 um aukið framlag til Skóla Ísaks Jónssonar vegna reksturs leikskóladeildar fyrir fimm ára börn. SFS2021050216

    Fylgigögn

  7. Lagt fram bréf borgarstjórans í Reykjavík um aukið framlag til Landakotsskóla, dags. 25. júní 2020, bréf sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 29. júní 2021, minnisblað sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 27. júní 2021, umsögn fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 2. júní 2021, þjónustusamningur undirritaður 19. september 2019 ásamt fylgiskjölum. SFS2021120117

    Fylgigögn

  8. Lagt fram bréf borgarstjórans í Reykjavík um aukið framlag til Suðurhlíðaskóla, dags. 2. júlí 2021, bréf sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs til borgarráðs, dags. 29. júní 2021, minnisblað sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs til borgarráðs, dags. 27. júní 2021, umsögn fjármála- og áhættustýringasviðs, dags. 21. júní 2021 og þjónustusamningur undirritaður 13. maí 2019 ásamt viðauka undirrituðum 30. júlí 2020. SFS2020050001

    Fylgigögn

  9. Lagt fram minnisblað sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 16. ágúst 2021 um hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs 2021. SFS2021020157

    Fylgigögn

  10. Lagt fram minnisblað sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 16. ágúst 2021, um nemendaverðlaun skóla- og frístundaráðs 2021. SFS2021040095

    Fylgigögn

  11. Fram fer umræða um stöðu mála á vettvangi skóla- og frístundastarfs í Reykjavík.

    -    Kl. 15.37 víkur Helgi Grímsson af fundinum. 
    -    Kl. 15.42 víkur Soffía Vagnsdóttir af fundinum. 

  12. Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Hversu mörg börn 12 mánaða og eldri eru á biðlista eftir plássi á leikskólum Reykjavíkur. Hversu mörg af þeim hafa náð 18 mánaða aldri. Hversu mörgum börnum hefur verið úthlutað plássi á leikskólum en hafa ekki hafið vistun?

    SFS2021080303

  13. Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Hvað hefur miklu fjármagni verið varið í endurbætur, ráðgjöf, flutning á nemendum, kaup á búnað, leigu á öðru húsnæði vegna Fossvogsskóla árin 2018, 2019, 2020 og 2021. Eins hvað hafa endurbætur á Korpuskóla í Staðahverfi kostað eftir árið 2019, 2020 og 2021. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks vilja með þessari fyrirspurn vita heildarupphæð sem verkið stendur orðið í. Ef fulltrúarnir hafa gleymt einhverjum þáttum í upptalningu sinni þá er óskað eftir því að þeim verði bætt við svarið. Eins vilja fulltrúarnir vita hver var upphafleg kostnaðaráætlun í verkinu og hvað átti að vinnast með henni?

    SFS2021080261

  14. Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Hversu margir kennarar hafa sagt upp störfum s.l. 24 mánuði í Fossvogsskóla?

        SFS2018120034

  15. Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Hversu mörg börn hafa hætt skólavist eða fært sig um skóla s.l. 24 mánuði frá Fossvogsskóla?

        SFS2018120034

  16. Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Hefur verið gerð regluleg könnun um ánægju starfsfólks við Fossvogsskóla, hvernig koma þær mælingar út?

    SFS2018120034

  17. Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Óskað er eftir yfirliti um þær framkvæmdir og það viðhald sem farið var í á leikskólum borgarinnar í sumar. Þar komi fram hvort verk- og tímaáætlanir hafi staðist eða hvort tafir hafi orðið. Ennfremur að þar komi fram hvort slíkar tafir hafi haft áhrif á skólastarf og þá hvernig hafi verið brugðist við þeim töfum. 

        SFS2021080304

  18. Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokks óska eftir stöðu ráðningarmála í leikskólum, grunnskólum og frístundundaheimilum Reykjavíkurborgar fyrir komandi vetur. 

    SFS2021080305

  19. Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu:

    Tillaga um að börn innflytjenda sem stunda nám í stoðdeild Álftamýraskóla flytjist ekki út í almennan bekk fyrr en þau eru tilbúin til þess að mati skóla og foreldra. Upp á síðkastið hefur afgreiðsla mála þeirra sem sækja um hæli orðið hraðari sem er af hinu góða. Dvöl barns í stoðdeildinni hefur samhliða styst því þegar foreldrar þeirra fá hæli þá flytjast þau út í almennan hverfisskóla án tillits til hvort þau eru tilbúin til þess eða ekki. Dæmi eru um að barn sem er ekki tilbúið er flutt út í almennan bekk þar sem einstaklingsþjónusta er minni en veitt er í stoðdeildinni. Barnið er jafnvel ekki farið að tala mikla íslensku. Fulltrúi Flokks fólksins studdi tilkomu stoðdeildarinnar og hefur reynt að fylgjast með hvernig gengur s.s. í samskiptum barnanna sem eru af ólíkum menningarheimum. Stoðdeildin er skammtímaúrræði og eiga börnin að fara út í almennan bekk þegar þau er tilbúin að mati fulltrúa Flokks fólksins, hvorki fyrr né seinna. Flutningur út í hverfisskólann á að vera á þeirra forsendum en ekki kerfisins. Ef aðkoma ráðuneytis getur liðkað til í þessum málum s.s. með aðstoð frá íslenskuverum þarf það að ræðast strax svo hægt sé að koma á móts við þarfir allra barna með fullnægjandi hætti.

        Frestað. SFS2021080307

  20. Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um mötuneytismál í grunnskólum Reykjavíkur. Hvernig er rekstrarformi/fyrirkomulagi mötuneyta háttað í skólunum? Í hve mörgum skólum skammta börnin sér sjálf? Hvernig er fjölbreytni matar háttað? Í hve mörgum skólum er boðið upp á ávexti og grænmeti með matnum? Í hve mörgum skólum vigta börnin sjálf og skrá það sem þau leifa? Hvað er mikil matarsóun í grunnskólum Reykjavíkur? Hversu miklum mat er hent? Óskað er að svarið sé í samræmi við leiðbeiningar sem Evrópusambandið hefur gefið út um samræmda aðferðarfræði sem nota ber við að mæla matarsóun en hefja átti slíkar mælingar 2020 (sjá Skýrslu starfshóps um Tillögur að aðgerðum gegn matarsóun, gefið út af Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu). Hafa börnin verið spurð um hvað þau vilja helst fá í matinn í skólanum?

        SFS2021080308

  21. Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu:

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að skóla- og frístundasvið kaupi skólamöppur frá Múlalundi. Fram til þessa hefur Reykjavíkurborg hunsað Múlalund – vinnustofu SÍBS varðandi kaup á margskonar skólavörum ólíkt öðrum sveitarfélögum. Í þrjú ár hefur Múlalundur, sem er vinnustofa fyrir fólk með skerta starfsorku, reynt að fá Reykjavíkurborg að samningaborðinu. Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að þessu verði breytt hið snarasta og að Reykjavíkurborg hefji viðskipti við Múlalund enda ekki stætt á öðru. Um 80 prósent starfsmanna Múlalundar er með lögheimili í Reykjavík og það eru löng bið eftir plássi þar. Þótt vörur séu ívið dýrari þá er það dropi í hafið. Á móti skapar Reykjavíkurborg atvinnu fyrir hóp sem er í brothættri stöðu. Starfsemin í Múlalundi er félagslega og tilfinningalega mikilvæg fyrir starfsfólkið. Borgin vill ekki versla við Múlalund en vill að Múlalundir ráði fleiri starfsmenn til að framleiða vörur sem Reykjavíkurborg vill ekki kaupa. Þetta er óskiljanlegt. Fulltrúi Flokks fólksins lagði fram fyrirspurn í júlí af hverju ekki er verslað við Múlalund. Í svari verst fjármálasviðið með því að bera við rammasamningi. Reykjavíkurborg hefur fulla heimild til þess að víkja frá rammasamningum þegar um er að ræða viðskipti við verndaða vinnustaði eins og Múlalund.

        Frestað. SFS2021080310

  22. Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um hvernig skóla- og frístundasvið hyggst bregðast við niðurstöðum dagforeldra sem sýna að meirihlutinn er óánægður með upplýsingagjöf borgarinnar til dagforeldra? Samkvæmt könnun eru aðeins um 40% dagforeldra mjög eða frekar ánægður með upplýsingagjöf frá Reykjavíkurborg vegna starfa þeirra sem dagforeldri. Tæpur þriðjungur var frekar eða mjög óánægður með upplýsingagjöfina. Dagforeldrar hafa óskað eftir að fá hærri niðurgreiðslur frá borginni með börnunum. Ekki hefur verið hlustað á þetta. Það sem kostar hins vegar ekki neitt er að sýna þessari stétt tilhlýðilega virðingu en það er sláandi að sjá í niðurstöðum að dagforeldrar upplifa að embættismenn Reykjavíkurborgar beri ekki virðingu fyrir starfi þeirra. Dagforeldrum finnst að talað sé niður til þeirra líkt og vistun barna hjá dagforeldri væri síðri kostur en vistun í leikskóla. Dagforeldrum fannst að taka þyrfti meira tillit til þeirra við innritun barna í leikskóla enda fengju þeir iðulega seint upplýsingar um hvenær börn kæmust að á leikskólum. Þá hefði verið skortur á upplýsingum til dagforeldra vegna stöðunnar hverju sinni á tímum Covid 19 faraldursins. Hvað hyggst skóla- og frístundasvið gera í þessu? Hvernig á að bregðast við?

    SFS2021080309

  23. Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Öryrkjabandalag Íslands og lögmaður fjögurra fatlaðra barna hafa stigið fram og segir að einstaklingsmiða þurfi þjónustuna að börnunum. Hótað er málsókn ef ekki verði úr bætt. Hvernig ætlar skóla- og frístundasvið að bregðast við ásökunum sem fram eru bornar í málum þessara fjögurra fötluðu barna sem ekki fá þörfum sínum mætt í grunnskólum borgarinnar. Sama gildir um fjölmörg önnur börn og má ætla að verði lögsótt í málum þessara fjögurra muni fleiri fylgja á eftir. Fulltrúi Flokks fólksins hefur margoft bent á að skóli án aðgreiningar sé vanbúinn og geti þ.a.l. ekki sinnt þörfum allra barna. Réttindi fatlaðra barna til náms eru brotin í grunnskólum landsins vegna þess hversu vanbúinn hann er að sinna þörfum barna með ólíkar þarfir. Til að skólar án aðgreiningar standi undir nafni þurfa þeir að bjóða upp á alla þá fjölbreyttu þjónustu sem börn kunna að hafa þörf fyrir. Í grunnskólum borgarinnar er auk þess langur biðlisti eftir lögbundinni þjónustu eins og þjónustu sálfræðinga og talmeinafræðinga. Nú bíða 1.484 börn eftir þjónustu skólaþjónustu grunnskólanna og má ætla að í þeim hópi séu fjölmörg börn með sérþarfir. 

    SFS2021080311

PDF útgáfa fundargerðar
skola-_og_fristundarad_2408.pdf