Skipulags- og samgönguráð - Fundur nr. 78

Skipulags- og samgönguráð

Ár 2020, miðvikudaginn 12. ágúst kl. 09:06, var haldinn 78. fundur skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð Ráðssal. Viðstaddir voru: Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, Pawel Bartoszek, Aron Leví Beck, Sara Björg Sigurðardóttir, Eyþór Laxdal Arnalds, Hildur Björnsdóttir, Katrín Atladóttir og áheyrnarfulltrúarnir Vigdís Hauksdóttir, Daníel Örn Arnarsson og Kolbrún Baldursdóttir. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Björn Axelsson, Þorsteinn Rúnar Hermannsson og Gréta Mar Jósepsdóttir.
Fundarritari var Örn Sigurðsson.

Þetta gerðist:

Þetta gerðist:

  1. Hopp rafskútuleiga,          Mál nr. US200204

    Eyþór Máni Steinarsson og Ægir Þorsteinsson frá Hopp segja frá reynslunni af starfinu og tölfræði um notkun flotans.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihlutinn fagnar fjölbreyttum ferðamátum og tók nýrri tækni fagnandi þegar rafskútur bættust í flóru vistvænna samgagna. Borgin hefur markvisst byggt upp innviði fyrir samgönguhjólreiðar á síðustu árum og mun vera áframhaldandi samhliða uppbyggingu borgalínu. Það verður gert með nýrri hjólreiðaáætlun, sem nú þegar er hafin vinna við. Kannanir er sýna fram á mikla fjölgun virkra notenda á hjólastígum borgarinnar. Við mætum auknum fjölda þeirra sem nýta sér virka ferðamáta ekki með boðum og bönnum heldur með betri innviðum og aukinni fjárfestingu.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Gríðarleg fjölgun er á notkun slíkrar hjóla. Fulltrúi Flokks fólksins hefur áhyggjur af slysum sem hafa orðið á þessum hjólum og kunna að verða. Nú þegar hafa verið skráð nokkur slys. Fulltrúi Flokks fólksins hefur áhyggjur af þróuninni í ljósi reynslu annarra þjóða. Velta má fyrir sér hvort skipulagsyfirvöld Reykjavíkurborgar, ásamt rafskútuleigum hafi unnið með og verið í samvinnu við samgöngustofu og lögreglu um þessi mál? Rafhjólin eru komin til að vera, ekki er um það deilt. Samkvæmt umferðarlögum mega „rafhlaupahjól eingöngu vera á gangstéttum og göngustígum, ekki á götum. Gangandi vegfarendur eiga alltaf réttinn á gangstéttum eða göngustígum. Hjólreiðamaður eða sá sem er á rafmagnshlaupahjóli á að víkja fyrir gangandi vegfarenda. Þá er hjálmaskylda fyrir alla undir 16 ára aldri. Einnig er bannað að keyra á þeim undir áhrifum áfengis“. Borgaryfirvöld eiga að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að upplýsa um þessar reglur. Einnig er það á herðum skipulagsyfirvalda að sjá til þess að innviðir séu tilbúnir til að taka við þessari miklu fjölgun rafskútna/hjóla og að allar merkingar og skilti séu í lagi. Fulltrúi Flokks fólksins veltir fyrir sér hvort byrjað hafi verið á öfugum enda?

    Eyþór Máni Steinarsson og Ægir Þorsteinsson frá Hopp tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

  2. Zolo rafskútuleiga,          Mál nr. US200247

    Adam Karl Helgason frá Zolo segir frá reynslunni af starfinu og tölfræði um notkun flotans.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihlutinn fagnar fjölbreyttum ferðamátum og tók nýrri tækni fagnandi þegar rafskútur bættust í flóru vistvænna samgagna. Borgin hefur markvisst byggt upp innviði fyrir samgönguhjólreiðar á síðustu árum og mun vera áframhaldandi samhliða uppbyggingu borgalínu. Það verður gert með nýrri hjólreiðaáætlun, sem nú þegar er hafin vinna við. Kannanir er sýna fram á mikla fjölgun virkra notenda á hjólastígum borgarinnar. Við mætum auknum fjölda þeirra sem nýta sér virka ferðamáta ekki með boðum og bönnum heldur með betri innviðum og aukinni fjárfestingu.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Gríðarleg fjölgun er á notkun slíkrar hjóla. Fulltrúi Flokks fólksins hefur áhyggjur af slysum sem hafa orðið á þessum hjólum og kunna að verða. Nú þegar hafa verið skráð nokkur slys. Fulltrúi Flokks fólksins hefur áhyggjur af þróuninni í ljósi reynslu annarra þjóða. Velta má fyrir sér hvort skipulagsyfirvöld Reykjavíkurborgar, ásamt rafskútuleigum hafi unnið með og verið í samvinnu við samgöngustofu og lögreglu um þessi mál? Rafhjólin eru komin til að vera, ekki er um það deilt. Samkvæmt umferðarlögum mega „rafhlaupahjól eingöngu vera á gangstéttum og göngustígum, ekki á götum. Gangandi vegfarendur eiga alltaf réttinn á gangstéttum eða göngustígum. Hjólreiðamaður eða sá sem er á rafmagnshlaupahjóli á að víkja fyrir gangandi vegfarenda. Þá er hjálmaskylda fyrir alla undir 16 ára aldri. Einnig er bannað að keyra á þeim undir áhrifum áfengis“. Borgaryfirvöld eiga að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að upplýsa um þessar reglur. Einnig er það á herðum skipulagsyfirvalda að sjá til þess að innviðir séu tilbúnir til að taka við þessari miklu fjölgun rafskútna/hjóla og að allar merkingar og skilti séu í lagi. Fulltrúi Flokks fólksins veltir fyrir sér hvort byrjað hafi verið á öfugum enda?

    Adam Karl Helgason frá Zolo tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    (A) Skipulagsmál

  3. Afgreiðslufundir skipulagsfulltrúa Reykjavíkur, fundargerð         Mál nr. SN010070

    Lagðar fram fundargerðir embættisafgreiðslufunda skipulagsfulltrúa frá 12., 19. og 26. júní 2020 og 3., 10., 17. og 24. júlí 2020.

    Fylgigögn

  4. Heklureitur - Laugavegur 168 og 170-174, nýtt deiliskipulag     (01.242)    Mál nr. SN190730
    600169-5139 Hekla hf., Pósthólf 5310, 125 Reykjavík
    560997-3109 Yrki arkitektar ehf, Mýrargötu 26, 101 Reykjavík

    Lögð fram umsókn Yrki arkitekta ehf. dags. 9. desember 2019 um nýtt deiliskipulag fyrir Lóðirnar að Laugavegi 168 og 170-174, Heklureitur. Í tillögunni felst að lóðinni Laugavegur 170-174 verði skipt í tvennt og vestari hluti hennar verði lóðirnar Laugavegur 170 og 172. Lóðirnar nr. 168 og 172 verði nýttar undir allt að 250 íbúðir. Valkvæð heimild er um að lóðin nr. 168 verði nýtt undir gististarfsemi. Eystri hluti lóðarinnar Laugavegur 170-174 verður Laugavegur 174. Heimilt verðu að auka byggingarmagn á lóðinni, byggja þrjár hæðir ofan á núverandi byggingar og byggja við 3. hæð norðurhliðar núverandi álmu við Laugaveg. Nýju hæðirnar og viðbyggingin eru undir atvinnustarfsemi. Valkvæð heimild er um að nýja byggingarmagnið verði nýtt undir allt að 90 íbúðir. Gert er ráð fyrir sex hæða bílgeymsluhúsi og núverandi byggingar verða nýttar undir atvinnustarfsemi. Á öllum lóðum er gert ráð fyrir verslun og þjónustu á jarðhæð, samkvæmt uppdr. Yrki arkitekta ehf. dags. 10. janúar 2020. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. júlí 2020.

    Samþykkt, með fjórum greiddum atkvæðum, fulltrúa Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Pírata, að synja beiðni um breytingu á deiliskipulagi með vísun til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 2. júlí 2020. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá.
    Vísað til borgarráðs.

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Skipulag Heklureits er algeru uppnámi en meira en þrjú ár eru síðan borgin gerði viljayfirlýsingu um uppbyggingu á reitnum. Samskipti borgarinnar við þróunaraðila hafa verið stirð og lítil. Nú er borgin að hafna hugmyndum lóðarhafa og uppbygging sett enn frekar á ís. 

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Að hafna þessari umsókn á breytingu á deiliskipulagi á Heklureit er valdníðsla stjórnvaldsins Reykjavíkurborgar á hendur einkaaðila gæti hugsanlega verið brot á eignarétti og yfirráðum eigna í þessu tilfelli lóðar. Í borgarráði þann 25. júní sl. var afturkölluð viljayfirlýsing frá 3. maí 2017 um samstarf milli borgarinnar og Heklu hf. vegna fyrirhugaðs flutnings fyrirtækisins í Suður Mjódd og þróun lóða félagsins við Laugaveg, samhliða flutningi á starfsemi þess. Afturköllunin var ákveðin í ljósi þess að samþykktar voru breyttar skipulagsáætlanir fyrir lóðir Heklu hf að Laugavegi og af því að ekki voru skilgreind ákvæði um uppbyggingarhraða í Suður Mjódd innan 2 ára frá undirritun viljayfirlýsingarinnar. Engin niðurstaða er því í málinu, nema sú að málið er á byrjunarreit og er til þess fallin að hrekja fyrirtækið úr borginni. Þetta mál er dæmalaust klúður að hálfu borgarinnar. 

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Pírata leggja fram svohljóðandi gagnbókun:

    Sveitarfélög fara með ábyrgð á skipulagi alls lands innan sinna marka. Umrædd lóð er á lykilsvæði á nýjum þróunarás og fyrsta áfanga borgarlínu og því mikilvægt að vel til takist. Uppbyggingin þarf að taka mið af aðalskipulagi og framtíðaruppbyggingu innan borgarinnar. Það er ekki valdníðsla að samþykkja ekki allar hugmyndir sem koma frá lóðarhöfum heldur ábyrgð yfirvalda að skipuleggja byggt umhverfi á sjálfbæran hátt með þarfir núverandi og komandi kynslóðir í huga.

    Björn Ingi Edvardsson verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  5. Furugerði 23, breyting á deiliskipulagi     (01.807.4)    Mál nr. SN170927
    640517-0850 EA11 ehf., Skólavörðustíg 12, 101 Reykjavík
    531107-0550 Arkís arkitektar ehf., Kleppsvegi 152, 104 Reykjavík

    Lögð fram umsókn Arkís arkitekta ehf. f.h. EA11 ehf. mótt. 14. desember 2017 varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 23 við Furugerði. Í breytingunni felst að fjarlægja núverandi mannvirki og koma fyrir íbúðum á lóð. Nýir byggingarreitir verði skilgreindir á lóðinni sem skipt er upp í reit A og reit B og lóð sameinuð, kvöð um nýtingu lóðar fyrir götu á reit B verður aflétt o.fl., samkvæmt deiliskipulags-, skýringar- og skilmálauppdráttum Arkís arkitekta ehf. dags. 16. júlí 2020. Einnig er lögð fram húsakönnun Borgarsögusafns Reykjavíkur dags. 19. janúar 2018 og umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 28. maí 2018.

    Samþykkt, með fjórum greiddum atkvæðum, fulltrúa Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Pírata, að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá.
    Vísað til borgarráðs.

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Uppbygging í Furugerði er mjög umdeild og hefur íbúaráð Háaleitis- og Bústaða komið athugasemdum á framfæri við skipulagsráð. Þá hafa íbúar óskað eftir fundi um málið sem ekki hefur farið fram. 

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fyrir fundinum liggur erindi frá íbúaráði Háaleitis- og Bústaðahverfis undir öðrum dagskrárlið og er mjög einkennilegt að þessi mál séu ekki rædd saman. Íbúaráðið lýsir yfir miklum áhyggjum vegna þessa máls. Íbúar eru hræddir um skemmdir á húsum sínum þegar farið verður að sprengja fyrir bílakjallara því grunnt er niður á klöpp. Einnig hafa íbúar miklar áhyggjur af skorti á bílastæðum því nú þegar er takmarkað magn bílastæða og einnig eru áhyggjur af hljóðvist. Íbúaráðið bendir á fleiri þætti s.s að takmarkað pláss er fyrir gangstéttir og þröngt verði um bíla. Aðal áhyggjur íbúaráðsins eru þó þær að byggingamagnið á reitnum er allt of mikið og stendur til að margfalda það miðað við fyrirliggjandi aðalskipulag. Íbúaráðið bendir á að „í B-hluta aðalskipulags 2010-2030 kemur fram um þennan reit: „ÍB33 Gerði-vestur. Svæðið er að mestu fullbyggt og fastmótað. Möguleiki er á lítilsháttar þéttingu íbúðarbyggðar (4-6 íbúðir) við Furugerði, næst Bústaðavegi (Gróðrarstöðin Grænahlíð).“ Núverandi aðalskipulag gerir ráð fyrir 4-6 íbúðum, en í breytingartillögun er því haldið fram að heimild sé fyrir 49 íbúðum og að stefnt sé að byggingu 32 íbúða.“ Þessi tillaga kemur algjörlega aftan að íbúum á þessu svæði og vinnubrögð borgarinnar eru forkastanleg.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Verið er að gera breytingar á deiliskipulagi „Espigerði“. Fyrir liggur einnig á fundi 12. ágúst athugasemdalisti íbúa Háaleitis og Bústaðahverfis. Meðal þess sem fram kemur á athugasemdalista er að íbúar hafi áhyggjur af skorti á bílastæðum. Á svæðinu er nú þegar takmarkað magn bílastæða og miðað við núverandi fyrirætlanir er gert ráð fyrir bílakjallara en að þar séu aðeins stæði fyrir íbúa. Ekki sé gert ráð fyrir neinum stæðum við húsin sjálf, svo sem fyrir gesti og aðra og því ekki gert ráð fyrir að gestir komi akandi. „ Fulltrúi Flokks fólksins vill taka undir áhyggjur íbúa í þessu hverfi vegna skorts á bílastæðum samkv. þessari athugasemd og fleiri er varðar þrengsl á gangstéttum og hljóðvist. Fulltrúa Flokks fólksins finnst að hér megi sjá í hnotskurn hvert skipulagsyfirvöld stefna leynt og ljóst í skipulagsmálum víða í borginni. Verið er að auka byggingarmagn gríðarlega en ekki fylgja bílastæði í hlutfalli við aukningu íbúða Brátt mun það ekki standa Reykvíkingum sem hyggjast kaupa nýbyggingar til boða að geta lagt í námunda við heimili sín. Skipulagsyfirvöld bjóða sums staðar upp á miðlægan bílastæðakjallara í hverfi eða í besta falli deilistæði. Hafa borgarbúar verið spurðir hvort þeir séu sáttir við þetta skipulag?

    Sólveig Sigurðardóttir verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  6. Fegrunarviðurkenningar 2020, tilnefningar trúnaðarmál         Mál nr. SN200308

    Kynntar tillögur til fegrunarviðurkenninga fyrir árið 2020 vegna lóða fjölbýlishúsa og stofnana og vegna endurbóta á eldri húsum. Skráð í trúnaðarmálabók skipulags- og samgönguráðs. 

    Sólveig Sigurðardóttir verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    (B) Byggingarmál

  7. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, fundargerð         Mál nr. BN045423

    Fylgiskjal með fundargerð þessari er fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 1074 frá 30. júní 2020, nr. 1075 frá 7. júlí 2020, nr. 1076 frá 14. júlí 2020, nr. 1077 frá 21. júlí 2020 og nr. 1078 frá 28. júlí 2020.

    (D) Ýmis mál

    Fylgigögn

  8. Athugasemdir íbúa Háaleitis og Bústaðahverfis, vegna Aðalskipulags Reykjavíkur         Mál nr. US200241

    Lagt fram erindi starfsmanns íbúaráða, dags. 3. júlí 2020, f.h. íbúaráðs Háaleitis og Bústaða þar sem framsend er umsögn íbúaráðsins dags. 2. júlí 2020 og fylgiskjal með henni (bréf íbúa í Fururgerði til íbúaráðs Háaleitis- og Bústaðahverfis, ódags.).

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Athygli vekur að íbúaráð Háaleitis og Bústaða beinir erindi sínu vegna uppbyggingu við Furugerði beint til Skipulagsráðs. Eðlilegt væri að halda fund með íbúum og taka fyrir erindi íbúaráðs áður en breyting á deiliskipulagi Furugerðis væri afgreitt úr ráðinu. 

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fyrir fundinum liggur erindi frá íbúaráði Háaleitis- og Bústaðahverfis undir öðrum dagskrárlið og er mjög einkennilegt að þessi mál séu ekki rædd saman. Íbúaráðið lýsir yfir miklum áhyggjum vegna þessa máls. Íbúar eru hræddir um skemmdir á húsum sínum þegar farið verður að sprengja fyrir bílakjallara því grunnt er niður á klöpp. Einnig hafa íbúar miklar áhyggjur af skorti á bílastæðum því nú þegar er takmarkað magn bílastæða og einnig eru áhyggjur af hljóðvist. Íbúaráðið bendir á fleiri þætti s.s að takmarkað pláss er fyrir gangstéttir og þröngt verði um bíla. Aðal áhyggjur íbúaráðsins eru þó þær að byggingamagnið á reitnum er allt of mikið og stendur til að margfalda það miðað við fyrirliggjandi aðalskipulag. Íbúaráðið bendir á að „í B-hluta aðalskipulags 2010-2030 kemur fram um þennan reit: „ÍB33 Gerði-vestur. Svæðið er að mestu fullbyggt og fastmótað. Möguleiki er á lítilsháttar þéttingu íbúðarbyggðar (4-6 íbúðir) við Furugerði, næst Bústaðavegi (Gróðrarstöðin Grænahlíð).“Núverandi aðalskipulag gerir ráð fyrir 4-6 íbúðum, en í breytingartillögun er því haldið fram að heimild sé fyrir 49 íbúðum og að stefnt sé að byggingu 32 íbúða.“Þessi tillaga kemur algjörlega aftan að íbúum á þessu svæði og vinnubrögð borgarinnar eru forkastanleg.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Í athugasemdalista íbúaráðsins segir: „Íbúar hafa áhyggjur af skorti á bílastæðum. Á svæðinu er nú þegar takmarkað magn bílastæða og miðað við núverand fyrirætlanir er gert ráð fyrir bílakjallara en að þar séu aðeins stæði fyrir íbúa. Ekki sé gert ráð fyrir neinum stæðum við húsin sjálf, svo sem fyrir gesti og aðra og því ekki gert ráð fyrir að gestir komi akandi. „ Fulltrúi Flokks fólksins vill taka undir áhyggjur íbúa í þessu hverfi vegna skorts á bílastæðum samkvæmt þessari athugasemd.Fulltrúa Flokks fólksins finnst að hér megi sjá í hnotskurn hvert skipulagsyfirvöld stefna leynt og ljóst í skipulagsmálum víða í borginni. Verið er að auka byggingarmagn gríðarlega en ekki fylgja bílastæði í hlutfalli við aukningu íbúða Brátt mun það ekki standa Reykvíkingum sem hyggjast kaupa nýbyggingar til boða að geta lagt í námunda við heimili sín. Skipulagsyfirvöld bjóða sums staðar upp á miðlægan bílastæðakjallara í hverfi eða í besta falli deilistæði. Hafa borgarbúar verið spurðir hvort þeir séu sáttir við þetta? Sams konar má sjá í hugmyndum um hverfisskipulag í Breiðholti. Þar fá eigendur séreigna að bæta við íbúð en ekki skal fylgja bílastæði. Þar verður veitt heimild að byggja hæðir ofan á blokkir en ekki skal fjölga bílastæðum.

    Fylgigögn

  9. Grensásvegur 1, kæra 60/2020     (01.460.0)    Mál nr. SN200454
    701211-0140 Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Borgartúni 21, 105 Reykjavík

    Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 14. júlí 2020 ásamt kæru dags. 13. júlí 2020 þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa frá 16. júní 2020 um að veita byggingarleyfi fyrir byggingu 5 hæða fölbýlishúss, hús A, með 50 íbúðum, tveimur stigahúsum, geymslu- og bílakjallara, það fyrsta af fjórum nýbyggingum á lóð nr. 1 við Grensásveg.

  10. Laugavegur, Bolholt, Skipholt, kæra 61/2020     (01.251.1)    Mál nr. SN200455
    701211-0140 Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Borgartúni 21, 105 Reykjavík

    Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 14. júlí 2020 ásamt kæru dags. 14. júlí 2020 þar sem kærð er samþykkt borgarráðs frá 19. mars 2020 á tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir reit sem afmarkast af Laugavegi til norðurs, Bolholti til Suðurs, Skipholti til suðurs og Laugavegi 174 og Skipholt 31.

  11. Koparslétta 6-8, kæra 56/2020, umsögn     (34.533)    Mál nr. SN200422
    701211-0140 Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Borgartúni 21, 105 Reykjavík

    Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 26. júní 2020 ásamt kæru dags. 26. júní 2020 þar sem kærð er samþykkt borgarráðs frá 2. apríl 2020 um breytingu á deiliskipulagi Esjumela á Kjalarnesi vegna lóðarinnar nr. 6-8 við Koparsléttu. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra dags. 2. júní 2020.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fyrir liggur kæra vegna breytingu á deiliskipulagi Esjumela á Kjalarnesi vegna lóðarinnar nr. 6-8 við Koparsléttu. Í gögnum kærunnar er þess er krafist að úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felli úr gildi ákvörðun borgarráðs 2. apríl 2020 um að samþykkja breytinguna. . Í breytingunum felst m.a. að skipulögð er um 5 hektara lóð fyrir Malbikunarstöð Höfða þar sem fyrirtækið hyggst flytja starfsemi sína á Esjumela. Það er mat Flokks fólksins kæra þessi er réttmæt enda hér um að ræða ákvörðun sem hefur neikvæð umhverfis- og sjónræn áhrif og sem mun skerða gæði útivistar fyrir nærliggjandi svæði. Hér er verið að búa til stóra lóð undir malbikunarstöð, sem óhjákvæmilega mun hafa áhrif á umhverfið.

    Pawel Bartoszek víkur af fundi undir þessum lið.

  12. Bústaðavegur/Kringlumýrarbraut, kæra 13/2020, umsögn, úrskuður         Mál nr. SN200130
    701211-0140 Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Borgartúni 21, 105 Reykjavík

    Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 20. febrúar 2020 ásamt kæru dags. 20. febrúar 2020 þar sem kærð er ákvörðun skipulags- og samgönguráðs frá 29. janúar 2020 um framkvæmdaleyfi til breikkunar og færslu Bústaðavegar að íbúðabyggð við Beikihlíð og Birkihlíð. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra dags. 29. mars 2020. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 14. júlí 2020. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kæranda um ógildingu ákvörðunar skipulagsfulltrúa Reykjavíkurborgar frá 7. febrúar 2020 um að veita framkvæmdaleyfi til breikkunar og færslu Bústaðavegar.

  13. Brekkustígur 6B, kæra 24/2020, umsögn, úrskurður     (01.134.1)    Mál nr. SN200199
    701211-0140 Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Borgartúni 21, 105 Reykjavík

    Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 31. mars 2020 ásamt kæru dags. 24. mars 2020 þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa þann 3. mars sl. um að samþykkja byggingarleyfisumsókn eigenda að Brekkustígs 6B þess efnis að byggja hæð og ris, setja nýjar svalir og útistiga á bakhlið hússins. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra dags. 7. apríl 2020. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 14. júlí 2020. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kærenda um ógildingu ákvörðunar byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 3. mars 2020 um að samþykkja umsókn um leyfi til að byggja hæð og ris á hús á lóð nr. 6B við Brekkustíg og setja nýjar svalir og útistiga á bakhlið þess.

  14. Seljaland 1-7, nr. 5-7 - kæra 25/2020, umsögn, úrskurður     (01.871)    Mál nr. SN200213
    701211-0140 Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Borgartúni 21, 105 Reykjavík

    Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 7. apríl 2020 ásamt kæru dags. 7. apríl 2020 þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúans að krefjast ekki byggingarleyfis vegna gluggaframkvæmda íbúðareiganda í fjöleignahúsinu að Seljalandi 5-7, lóð nr. 1-7 við Seljaland. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra dags. 12. apríl 2020. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 30. júní 2020. Úrskurðarorð: Umdeild gluggaskipti í íbúðarherberginu í kjallara fjöleignahússins að Seljalandi 5-7 eru ekki háð byggingarleyfi.

  15. Norðurstígur og Nýlendugata, kæra 45/2020, umsögn, úrskurður     (01.132)    Mál nr. SN200360
    701211-0140 Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Borgartúni 21, 105 Reykjavík

    Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 5. júní 2020 ásamt kæru dags. 5. júní 2020 þar sem kærð er fyrirhuguð framkvæmd við Norðurstíg sem kynnt var bréflega þann 6. maí sl. af umhverfis- og skipulagssviði. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra dags. 8. júní 2020. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 3. júlí 2020. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kærenda um ógildingu ákvörðunar skipulagsfulltrúa Reykjavíkurborgar frá 29. maí 2020 um að veita framkvæmdaleyfi fyrir endurgerð á Norðurstíg milli Vesturgötu og Geirsgötu, svo og á Nýlendugötu á milli Norðurstígs og Ægisgötu.

  16. Norðurstígur og Nýlendugata, kæra 49/2020, umsögn, úrskurður     (01.132)    Mál nr. SN200411
    701211-0140 Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Borgartúni 21, 105 Reykjavík

    Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 16. júní 2020 ásamt kæru dags. 13. júní 2020 þar sem kærð er fyrirhuguð framkvæmd á Norðurstígsreit sem kynnt var bréflega þann 6. maí sl. af umhverfis- og skipulagssviði. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra dags. 16. júní 2020. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 3. júlí 2020. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kærenda um ógildingu ákvörðunar skipulagsfulltrúa Reykjavíkurborgar frá 29. maí 2020 um að veita framkvæmdaleyfi fyrir endurgerð á Norðurstíg milli Vesturgötu og Geirsgötu, svo og á Nýlendugötu á milli Norðurstígs og Ægisgötu.

  17. Búland 1-31 2-40, kæra 82/2019, umsögn, úrskurður         Mál nr. SN190508
    701211-0140 Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Borgartúni 21, 105 Reykjavík

    Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 22. ágúst 2019 ásamt kæru dags. 21. ágúst 2019 þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa dags. 22. júlí 2019 þess efnis að framkvæmdir á lóðinni Búland 36, Búland 1-31 og 2-40, falli undir undanþáguákvæði byggingarreglugerðar nr. 112/2012 í e. lið greinar 2.3.5 og því muni byggingarfulltrúi ekki aðhafast frekar í málinu. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra dags. 18. september 2019 og úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 27. mars 2020. Úrskurðarorð: Felld er úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 22. júlí 2019 að aðhafast ekki vegna framkvæmda á baklóð við Búaland 36. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 6. júlí 2020 ásamt endurupptökubeiðni dags. 25. júní 2020 sem varðar framkvæmdir við Búland 38. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra dags. 17. júlí 2020.

  18. Kjalarnes, Esjumelar, breyting á deiliskipulagi - R19070109     (34.2)    Mál nr. SN190542
    530269-7609 Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík

    Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 2. júlí 2020 vegna samþykktar borgarráðs s.d. á breytingu á deiliskipulagi fyrir athafnasvæði við Esjumela á Kjalarnesi.

    Fylgigögn

  19. Reykjavíkurflugvöllur, breyting á deiliskipulagsmörkum, breyting á deiliskipulagi     (01.6)    Mál nr. SN200416

    Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 2. júlí 2020 vegna samþykktar borgarráðs s.d. á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Reykjavíkurflugvallar.

    Fylgigögn

  20. Gufuneshöfði, breyting á deiliskipulagi     (02.2)    Mál nr. SN200163
    681194-2749 Kanon arkitektar ehf, Laugavegi 26, 101 Reykjavík
    530269-7529 Faxaflóahafnir sf., Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík

    Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 2. júlí 2020 vegna samþykktar borgarráðs s.d. á breytingu á deiliskipulagi Hamrahverfis vegna Gufuneshöfða.

    Fylgigögn

  21. Grettisgata 20A og 20B, breyting á deiliskipulagi     (01.182.1)    Mál nr. SN200257
    641108-0490 Xyzeta ehf., Ármúla 18, 108 Reykjavík
    420299-2069 ASK Arkitektar ehf., Geirsgötu 9, 101 Reykjavík

    Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 2. júlí 2020 vegna samþykktar borgarráðs s.d. á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi reits 1.182.1 með síðari breytingum vegna lóðanna nr. 20A og 20B við Grettisgötu.

    Fylgigögn

  22. Hverfisgata 46, breyting á skilmálum deiliskipulags     (01.172.0)    Mál nr. SN200262
    671106-0750 Þingvangur ehf., Smiðsbúð 7, 210 Garðabær

    Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 2. júlí 2020 vegna samþykktar borgarráðs s.d. á auglýsingu á tillögu að breytingu á skilmálum deiliskipulags vegna lóðarinnar nr. 46 við Hverfisgötu.

    Fylgigögn

  23. Mýrargata 21 og 23, Óbreyting á deiliskipulagi     (01.116)    Mál nr. SN190436
    010562-3419 Einar Ólafsson, Hvassaleiti 39, 103 Reykjavík
    670901-2110 Söfnuður Moskvu-Patríarkatsins, Öldugötu 44, 101 Reykjavík

    Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 2. júlí 2020 vegna samþykktar borgarráðs s.d. á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Nýlendureits, reits 1.131, vegna lóðarinnar nr. 21-23 við Mýrargötu.

    Fylgigögn

  24. Vogabyggð svæði 1, breyting á deiliskipulagi     (01.45)    Mál nr. SN200339
    020975-5989 Þorsteinn Ingi Garðarsson, Hléskógar 14, 109 Reykjavík
    701017-0990 Gelgjutangi ehf., Kjalarvogi 7-15, 104 Reykjavík

    Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 2. júlí 2020 vegna samþykktar borgarráðs s.d. á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vogabyggðar fyrir svæði 1 vegna lóðar nr. 1.6.

    Fylgigögn

  25. Sigtúnsreitur, veitulóð, breyting á deiliskipulagi     (01.36)    Mál nr. SN200418

    Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 2. júlí 2020 vegna samþykktar borgarráðs s.d. á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Sigtúnsreits vegna stofnunar nýrrar lóðar fyrir Veitur ohf. við Engjateig.

    Fylgigögn

  26. Skerjafjörður Þ5, deiliskipulag         Mál nr. SN170833

    Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 2. júlí 2020 vegna samþykktar borgarráðs s.d. á auglýsingu á tillögu að deiliskipulagi fyrir nýjan Skerjafjörð.

    Fylgigögn

  27. Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030. Elliðaárvogur - smábátahöfn, breyting á aðalskipulagi - Strandsvæði ST9 - breyting á hafnargarði.         Mál nr. SN200326

    Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 2. júlí 2020 vegna samþykktar borgarráðs s.d. á auglýsingu á tillögu að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 fyrir Elliðaárvog vegna smábátahafnar.

    Fylgigögn

  28. Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030. Stefna um íbúðarbyggð, breyting á aðalskipulagi         Mál nr. SN200328

    Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 2. júlí 2020 vegna samþykktar borgarráðs s.d. á auglýsingu á tillögu að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur vegna stefnu um íbúðarbyggð.

    Fylgigögn

  29. Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030. Nýi Skerjafj. Breytt landnotkun, breyting á aðalskipulagi         Mál nr. SN200325

    Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 2. júlí 2020 vegna samþykktar borgarráðs s.d. á auglýsingu á tillögu að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur vegna byggðar í Skerjafirði.

    Fylgigögn

  30. Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030. Sértæk búsetuúrræði, breyting á aðalskipulagi         Mál nr. SN200329

    Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 2. júlí 2020 vegna samþykktar borgarráðs s.d. á auglýsingu á tillögu að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur vegna sértækra búsetuúrræða og landnotkun.

    Fylgigögn

  31. Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030. Endurnýjun leyfa til gististaða, breyting á aðalskipulagi         Mál nr. SN200421

    Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 2. júlí 2020 vegna samþykktar borgarráðs s.d. á auglýsingu á tillögu að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur er varðar endurnýjun leyfa til gististaða vegna eldri leyfa í flokki I.

    Fylgigögn

  32. Vesturbæjarsundlaug - Hofsvallagata 54, breyting á deiliskipulagi     (01.526.1)    Mál nr. SN190383
    570480-0149 Reykjavíkurborg - eignasjóður, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík

    Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 25. júní 2020 vegna samþykktar borgarráðs s.d. á að falla frá breytingu á deiliskipulagi Vesturbæjarsundlaugar, lóð nr. 54 við Hofsvallagötu.

    Fylgigögn

  33. Línbergsreitur, Grandagarði, breyting á deiliskipulagi         Mál nr. SN190526
    430715-0970 Línberg ehf., Tjarnargötu 28, 101 Reykjavík
    420299-2069 ASK Arkitektar ehf., Geirsgötu 9, 101 Reykjavík

    Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 2. júlí 2020 vegna samþykktar borgarráðs s.d. á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Örfiriseyjar - Vesturhafnar vegna lóðanna nr. 16-32 við Fiskislóð og nr. 39-93 við Grandagarð.

    Fylgigögn

  34. Ártúnshöfði, austurhluti, breyting á deiliskipulagi vegna smáhýsa     (04.071)    Mál nr. SN200134

    Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 25. júní 2020 vegna samþykktar borgarráðs s.d. á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ártúnshöfða - eystri vegna afmörkunar nýrra lóðar fyrir smáhýsi.

    Fylgigögn

  35. Kjalarnes, Nesvík, deiliskipulag         Mál nr. SN190734
    660504-2060 Plúsarkitektar ehf, Fiskislóð 31, 101 Reykjavík
    511202-3450 Íslenskar fasteignir ehf., Laugavegi 182, 105 Reykjavík

    Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 14. maí 2020 vegna samþykktar borgarráðs s.d. á auglýsingu á tillögu að deiliskipulagi fyrir Nesvík á Kjalarnesi.

    Fylgigögn

  36. Dunhagi, Hjarðarhagi og Tómasarhagi,, deiliskipulag         Mál nr. SN200207

    Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 2. júlí 2020 vegna samþykktar borgarráðs s.d. á auglýsingu á tillögu að deiliskipulagi fyrir svæði sem afmarkast af Dunhaga 18-20, Hjarðarhaga 27-33 og Tómasarhaga 32-46.

    Fylgigögn

  37. Bólstaðarhlíð 20, breyting á deiliskipulagi     (01.274.0)    Mál nr. SN200109
    600269-4889 Skóli Ísaks Jónssonar ses., Bólstaðarhlíð 20, 105 Reykjavík
    530214-0870 Teiknistofan Storð ehf., Laugavegi 178, 105 Reykjavík

    Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 2. júlí 2020 vegna samþykktar borgarráðs s.d. á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir lóð nr. 20 við Bólstaðarhlíð.

    Fylgigögn

  38. Nýr Landspítali við Hringbraut, breyting á deiliskipulagi     (01.19)    Mál nr. SN200395
    500810-0410 Nýr Landspítali ohf., Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
    681194-2749 Kanon arkitektar ehf, Laugavegi 26, 101 Reykjavík

    Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 2. júlí 2020 vegna samþykktar borgarráðs s.d. á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Nýs Landspítala við Hringbraut.

    Fylgigögn

  39. Reykjavíkurhöfn, Klettasvæði, breyting á deiliskipulagi vegna smáhýsa     (01.33)    Mál nr. SN200408

    Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 2. júlí 2020 vegna samþykktar borgarráðs s.d. á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Reykjavíkurhöfn vegna Klettasvæðis.

    Fylgigögn

  40. Tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um neyðarnúmer, vegna bílastæða, umsögn (USK2020070023)         Mál nr. US200208

    Lögð er fram tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins sem barst skipulags- og samgönguráði 11. júní 2020 og var vísað til umsagnar þjónustu- og nýsköpunarsviðs. Einnig er lögð fram umsögn dags. 6. ágúst 2020. 

    Fellt með fjórum greiddum atkvæðum, fulltrúa Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Pírata. Fulltrúa Sjálfstæðisflokksins sitja hjá.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun:

    Bilanavakt Bílastæðasjóðs er starfrækt utan opnunartíma sem aðstoðar aðila við úrlausn mála. Tillagan er því felld. 

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um að Reykjavíkurborg hafi neyðarnúmer/þjónustusíma sem hægt er að hringja í eftir hefðbundinn opnunartíma þjónustuvers hefur verið felld. Tillagan var send til umsagnar þjónustu- og nýsköpunarsviðs sem hefur ekkert að gera með þessa tillögu. Rökin fyrir að fella tillöguna er því ekki byggð á umsögn þeirra sem hafa með þessi mál að gera. Þessi þjónusta sem Flokkur fólksins er að reyna að fá bætta er ekki í góðu lagi. Fólk hefur lent í miklum vandræðum í bílastæðahúsum. Af afgreiðslunni að dæma lítur ekki út fyrir að laga eigi þessa hluti. Fulltrúi Flokks fólksins hefur fengið ábendingar frá þeim sem lokast hafa inni í bílastæðahúsum og ekki fundið leiðir til að kalla eftir hjálp. Almennt séð er það ólíðandi að fólk geti ekki hringt í neitt númer, neyðar- eða þjónustunúmer þegar það lendir í vandræðum í einhverjum af stofnunum Reykjavíkurborgar eftir að lokun. Hér þarf að bæta úr hið snarasta. Það myndi breyta miklu að hafa þjónustu/neyðarsíma sem fólk hefur aðgang að ef það lendir í vandræðum í borginni. Þótt tillagan hafi verið felld er það enn von fulltrúa Flokks fólksins að bílastæðasjóður taki til greinar þessar ábendingar, í það minnsta merki betur hvað fólks skuli gera lendi það í vandræðum.

    Fylgigögn

  41. Fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins úr borgarráði, umsögn (USK2020060064):         Mál nr. US200213

    Lögð er fram fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins sem barst borgarráði 11. júní 2020 og var vísað til meðferðar skipulags- og samgönguráðs. Einnig er lögð fram umsögn deildarstjóra náttúru og garða, dags. 7. júlí 2020.

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Grjóthrúgurnar á Granda eru víst ekki grjóthrúgur að mati borgarinnar. Markmiðið með grjóthrúgunum er víst það að breyta svæðinu yfir í „náttúrlegt yfirbragð með strandgróðri.“ Nú er viðurkennt að grjóthrúgurnar voru ekki mikið ígrundaðar og boðað er þær verði lækkaðar. Þetta verk er algert flopp. Á Grandanum er fallegur úthagagróður sem þarf ekki að slá sem fellur vel að strandlengjunni og skerðir ekki útsýni íbúa, akandi, gangandi og hjólandi vegfarenda yfir á Snæfellsnesið. Þessi lífsgæði hafa nú verið skert með grjóthrúgunum. Fram kemur í máli borgarinnar að breyta ætti svæðinu yfir í náttúrulegt yfirbragð með strandgróðri. Þvílíkt dæmalaust rugl. Upp úr grjóthrúgunum sprettur nú njóli og annað illgresi sem á ekkert skilt við strandgróður. Dafnar illgresið svo vel í grjóthrúgunum að þær eru nánast komnar á kaf. Einnig hefur verð bent á hættu af grjóthrúgunum að í vondum veðrum gæti grjótið fokið bæði á bíla, gangandi og hjólandi vegfarendur. Ekki þarf að taka fram að gríðarleg óánægja er hjá þeim aðilum sem búa á Grandanum með þetta gríðarlega inngrip í náttúrulíf á þessu svæði sem kemur eins og skrattinn á sauðaleggnum inn á gróna og fallega strandlengju. 

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Af svari að dæma um grjóthrúgur á Eiðsgranda virðist verkefnið allt vera vanhugsað. Lagt er út í það án þess að hugsa það til enda. Lesa má í hverri línu umsagnarinnar þótt það sé ekki sagt beinum orðum að “ákvörðun um mölina var ekki mikið ígrunduð og að manirnar urðu óþarflega háar”. Hér eru enn ein mistökin í skipulagsmálum að ræða sem kosta mun borgarbúa fé. Í þessu verkefni alla vega virðist sem framkvæmdin hafi ekki verið hugsuð til enda. Fulltrúi Flokks fólks kallar eftir að meiri skynsemi sé sýnd í þessum málum og minnt er á enn og aftur að verið er að sýsla með fé borgarbúa.

    Fylgigögn

  42. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu:         Mál nr. US200235

    Tillaga Flokks fólksins að sama ívilnun gildi fyrir visthæfa bíla, þe. 90 mín. frítt í stæði í bílastæðahúsum og í götustæði. Það er ekki rökrétt að bjóða visthæfu bílaeigendum að leggja frítt í stæði á götu í 90 mínútur en ekki í bílastæðahúsi. Með því að hafa ekki sömu ívilnun í bílastæðahúsinu eru skipulagsyfirvöld að hvetja þessar bílaeigendur að leggja frekar bíl sínum á götu en í bílastæðahúsi. Hér eru skipulagsyfirvöld í mótsögn við sjálfa sig. Þau agnúast út í bílaeigendur sem koma í miðborgina á bíl sínum en gera hins vegar fátt til að hvetja þá til að a.m.k. nýta sér bílastæðahúsin sem eru mörg hver illa nýtt.Samkvæmt samgöngustjóra (17. 2. 20) er nýting húsanna á þessum tíma almennt lítil, 10-15% nýting ef langtímanotendur með mánaðarkort eru taldir með. Engu að síður sjá skipulagsyfirvöld ofsjónum yfir lækkun tekna bílastæðasjóðs ef gjaldfrjálst verður í bílahúsin frá kl. 22:00 til kl. 08:00 eins og ein af tillögu Flokks fólksins gekk út á. Ef lagt er yfir nótt frá kl. 22:00 að kvöldi og sótt rétt kl. 8:00 morguninn eftir þarf sem dæmi að greiða 1.050 kr. í Stjörnuporti, og Vitatorgi en 1.320 kr.

    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, Skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar og til umsagnar bílastæðasjóðs.

  43. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu:         Mál nr. US200236

    Tillaga Flokks fólksins að bíllinn verði aðgengilegur allan sólarhringinn í bílastæðahúsum og að kostnaður við að leggja í bílastæðahús verði áþreifanlega minni en ef lagt er á götum úti. Bílastæðasjóður Reykjavíkurborgar rekur sjö bílastæðahús. Viðurkennt hefur verið af skipulagsyfirvöldum að skammtímastæði þar eru illa nýtt seint á degi og um kvöld.Þar er ekki boðið upp á að greiða með t.d. leggja.is eða öðru sambærilegu. Samkvæmt heimasíðu Bílastæðasjóðs er dýrara að leggja í bílastæðahúsum en út á götu á gjaldsvæðum 2-4. Í bílastæðahúsum þarf að greiða gjald fyrir allan þann tíma sem bíl er lagt og ekki er boðið upp á ívilnanir fyrir metan- eða rafbíla eða frítt stæði í 90 mín eins og í gjaldstæði á götum. Á heimasíðu bílastæðasjóðs eru ekki upplýsingar um nýjar reglur um gjaldskyldu og gjaldskyldusvæði sem samþykktar voru 12. september 2029. Helstu breytingar voru að gjaldskylda er nú á sunnudögum og lengja á gjaldskyldu á gjaldsvæði 1 til 20:00 á virkum dögum. Eru þær reglur kannski ekki búnar að taka gildi?Ef bílastæðahús eiga að vera nýtt með fullnægjandi hætta þurfa þau að vera opin allan sólarhringinn þannig að þeir sem vilja dvelja í miðbænum fram yfir miðnætti geta lagt þar.

    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, Skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar og til umsagnar bílastæðasjóðs.

  44. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu:         Mál nr. US200237

    Tillaga að bílastæðasjóður birti á heimasíðu sinni réttar upplýsingar um gjaldskyldutíma. Samþykkt var sl. vetur á fundi skipulags- og samgönguráðs 12. september 2019 að lengja gjaldskyldu á svæði 1 til klukkan 20 á vikum dögum og á laugardögum og að bæta við gjaldskyldu á svæðinu á sunnudögum frá klukkan 10-16. Á heimasíðu bílastæðasjóðs kemur þessi breyting ekki fram, nema að þessar nýju reglur hafi ekki tekið gildi? Ef þær hafa gert það þá hefur heimasíðan ekki verið uppfærð. Upplýsingar á heimasíðunni gefa til kynna núna að gjaldskyldu ljúki kl. 18 en ekki 20 í gjaldstæði 1 og að engin gjaldskylda sé á sunnudögum. Einnig segir að gjald sé innheimt á virkum dögum milli 9-18 og á laugardögum 10-16 og í P4 8-16 . Auk þess eru aðrar upplýsingar einnig villandi. Í dálknum gjaldskyld svæði eru sunnudagar ekki nefndir. Neðar á heimasíðunni er listi yfir daga sem ekki er tekið gjald en þar eru sunnudagar ekki heldur nefndir.  Þessar mikilvægu upplýsingar skipta máli fyrir fólk sem veltir fyrir sér hvort það vilji heimsækja bæinn á sunnudögum og þurfi þá e.t.v. að leggja í gjaldskyld svæði. https://www.bilastaedasjodur.is/gjaldskylda/gjaldsvaedin.

    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar og til umsagnar bílastæðasjóðs.

  45. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:         Mál nr. US200238

    Í gögnum um uppbyggingu í Skerjafirði kemur fram að draga eigi úr byggingarheimildum atvinnusvæðis í Skerjafirði. Nú þegar er þetta svæði ekki mikið atvinnusvæði. Spurt er þess vegna hvað átt sé við hér, hvernig atvinnusvæði er verið að vísa til? 

    Vísað til umsagnar umhverfis - og skipulagssviðs, skrifstofu skipulagsfulltrúa.

  46. Tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins úr borgarráði (USK2020070089):         Mál nr. US200244

    Flokkur fólksins leggur til að skipulagsyfirvöld leggi sitt að mörkum til að efla starfsemi í Mjódd. Úr göngugötunni í Mjódd er aðkoma í fjölmargar verslanir og þangað koma margir. Gera mætti fjölmargt fyrir götuna til að gera hana meira aðlaðandi. Stundum er þar götumarkaður en fjölmargt annað mætti koma til sem laðaði að aldna sem unga. Yfirbyggð gata eins og göngugatan í Mjódd og það útisvæði sem er þar í kring s.s. litlu torgin við innganga til norðurs og suðurs bíður upp á ótal tækifæri. Þar mætti sem dæmi spila tónlist, söng, dans og annað sem gleðja myndu gesti og gangandi. Þá er einnig ónotuð lóð við Álfabakka 18. Ekki er séð að nein sérstök stefna ríki um svæðið í Mjódd. Vel mætti vinna markvisst að því að gera þetta svæði að helsta kjarna Breiðholtsins. Með því að glæða götuna lífi mun það auka aðsóknina og breikka hóp viðskiptavina. Takist vel til myndu fleiri fyrirtæki og verslanir vilja vera á svæðinu sem er sérstaklega vel staðsett því aðkoma er góð úr mörgum áttum. Gera ætti göngugötuna í Mjódd að afþreyingarmiðaðri göngugötu og er þá átt við göngugötu sem fólk sækir í ýmist til að versla, fá sér kaffi og/eða upplifa viðburði. 

    Tillögunni fylgir greinargerð.

    Fellt með fjórum greiddum atkvæðum, fulltrúa Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Pírata. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun:

    Reykjavíkurborg heldur ekki viðburði í verslunarkjörnum í einkaeigu en meirihlutinn hefur á þessu kjörtímbili lagt vinnu við að fegra ásýnd svæðis í kringum Mjóddina og er sú vinnan enn þá yfirstandandi. Vinna við borgalínu mun fara í gang þegar annar áfangi fer í vinnu og þá gefst tækifæri til að skipuleggja svæðið í heild sinni. Tillagan er því felld.

    Áheyrnarfulltrú Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins úr borgarráði, um eflingu starfsemi í Mjódd hefur verið felld af skipulagsyfirvöldum. Það er mat fulltrúa Flokks fólksins þegar bókun meirihlutans er skoðuð að skipulagsyfirvöld hafi ekki mikinn áhuga á öðrum göngugötum en þeim sem tilheyra miðbænum. Á göngugötum í miðbænum halda borgaryfirvöld oft viðburði. Á þeim götum eru verslanir líka í einkaeigu fjölmargra. Reykjavíkurborg hefur reyndar haldið viðburð í göngugötunni í Mjódd svo fyrir því er fordæmi, því miður eru þeir allt of fáir. Borgin á eignir í Mjóddinni og ber ákveðna ábyrgð ásamt fleirum á bílastæðunum, aðgengi og öryggi þar. Hvernig á að túlka þetta öðruvísi en skipulagsyfirvöld hafi minni áhuga á úthverfum en miðbænum? Vinna við borgarlínu þarf ekki að koma í veg fyrir að lífga megi upp göngugötunni í Mjódd. Eitt útilokar ekki annað í þessum efnum. Fulltrúi Flokks fólksins fagnar endurgerð torga. Ef lífgað yrði upp á göngugötuna myndu fleiri ganga um torgin. 

    Fylgigögn

  47. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu:         Mál nr. US200240

    Tillaga Flokks fólksins að fresta framkvæmdum við endurgerð Hegningarhússins við Skólavörðustíg þar til betur árar og nýta fjármagnið til að styrkja og auka grunnþjónustu, velferð og skólaþjónustu. Flokkur fólksins leggur til að endurgerð Hegningarhússins við Skólavörðustíg verði frestað og þær milljónir 342 sem verja á í verkið verði frekar nýtt til að auka og bæta við grunnþjónustu borgarbúa. Nú er ekki tíminn til að skera niður fjármagn í beina þjónustu við borgarbúa og til þess að hægt sé að sporna við niðurskurði er mikilvægt að forgangsraða í þágu fólksins fyrst og fremst. Hér er um framkvæmd sem vel má bíða betri tíma svo fremi sem Hegningarhúsið liggi ekki undir skemmdum. Not er fyrir bæði fjármagnið og verktaka í önnur brýnni verkefni. Húsið lítur vel út og er ekki umhverfinu til skammar. Það á sína sögu og verður mikilvægt að halda í hana og þegar betur árar, gera þá húsið upp. Það fjárfestingarátak sem nú er í gangi ætti að miðast að nauðsynlegum hlutum frekar en áhersla sé lögð á framkvæmdir sem eru engan vegin nauðsynlegar. Fjögur ár eru nú liðin síðan fangelsinu var lokað og hefur engin starfsemi verið þar síðan. Ekki skaðar að bíða í ein til tvö ár til viðbótar.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins afturkallar tillöguna.

  48. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:         Mál nr. US200248

    Spurt er hvort leiðbeiningum sé ávallt fylgt og af hverju ekki séu til íslenskar leiðbeiningar/reglur? Við hönnun hraðahindrana í Reykjavík er erlendum leiðbeiningum fylgt, oftast norskum eða dönskum. Þar er lýst mismunandi gerðum og formi eftir aðstæðum. Sérstakar leiðbeiningar eru um útfærslu 30 km/klst „hliða“ í Reykjavík á þeim stöðum þar sem 30km/klst hverfi eru afmörkuð.Fulltrúi Flokks fólksins óskar að vita af hverju ekki eru til íslenskar leiðbeiningar eða reglur um gerð hraðahindrana í ólíkum aðstæðum sem taki mið af reynslu við notkun hraðahindrana hér á landi? Einnig er spurt hvort þessum norsku og dönsku leiðbeiningum hafi ávallt verið fylgt til hins ýtrasta? Ef ekki, í hvaða tilfellum var þeim ekki fylgt og hverjar voru ástæður þess að gerðar voru undantekningar?

    Frestað.

  49. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu:         Mál nr. US200249

    Tillaga Flokks fólksins um að fresta/frysta samþykktarferli hverfisskipulags Breiðholts vegna COVID aðstæðna þar til hægt verði að hafa íbúaráðsfundi í Breiðholti. Eins og sakir standa er ekki hægt að bjóða upp á mannmarga viðburði til að ræða hugmyndir um nýtt hverfisskipulag í Breiðholti svo vel sé. Um er að ræða stórfelldar breytingar sem íbúar þess verða að fá fulla aðkomu að til að geta sett sig inn í það, mótað skoðanir og komið þeim á framfæri. Á með staðan er svona vegna COVID er það ábyrgðarhluti ef borgaryfirvöld ætla að kalla saman fólk á fundi til að ræða skipulag eða annað ef því er að skipta. Skipulagsyfirvöld geta nýtt tímann til að yfirfara þær ábendingar sem þegar hafa borist og aðlagað hverfisskipulagið að þeim. Nú hafa sem dæmi margir stigið fram og lýst áhyggjum sínum yfir stefnu skipulagsyfirvalda að þrengja að bíleigendum með þeim hætti að erfitt er að finna bílastæði. Bílastæðaskortur er nú þegar víða í Breiðholti sem dæmi í Seljahverfi og Austurberginu. Það er skortur á bílastæðum hjá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti þegar dagskólinn er. En ekkert skal gert nema í samráði við íbúana og séu íbúar ósammála innbyrðis eða ósammála skipulagsyfirvöldum er mikilvægt að kosið verði um þau atriði. Einfaldur meirihluti muni þá ráða. 

    Frestað.

  50. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:         Mál nr. US200250

    Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir að vita hvort og hvernig gæðaeftirlit með strætisvögnum er háttað? Dæmi eru um að vagnar séu ekki með ljósin í lagi svo fátt sé nefnt sem fólk hefur tekið eftir. Er virkt eftirlit haft með vögnunum? Spurt er hvort einhver gangi t.d. reglulega um vagnanna og skoðar þá innan og utan til að kanna hvort allt sé í lagi með þá?

    Frestað.

  51. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:         Mál nr. US200251

    Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir upplýsingum um hver er kostnaður af þessum grjótmönum sem settar voru á Eiðsgranda og hver mun viðbótarkostnaður verða við lagfæringu þeirra? Í svari við fyrirspurn Sjálfstæðisflokksins um málið segir: „Að nú hafi verið tekin ákvörðun um að laga manirnar, lækka þær og laga betur að landinu. Síðan verður sáð og gróðursettur strandgróður í svæðið. Manirnar séu ekki grjóthrúgur heldur er sé þetta uppgröftur úr stígnum og lag af möl yfir en ekki hafi unnist tími til að huga nægilega vel að frágangi. En fremur að ákvörðun um mölina var ekki mikið ígrunduð og manirnar höfðu ekki verið hannaðar heldur unnar beint í landið. Manirnar urðu óþarflega háar og sérstaklega ein mönin sem er of há og of brött og lokar sýn úr Rekagranda og að alltaf hafi staðið til að græða upp manirnar með gróðri sem ekki væri hægt að hefja fyrr en að vori.“ Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir upplýsingum um kostnað alls verkefnisins og sundurliðun eftir verkþáttum.

    Frestað.

  52. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu:         Mál nr. US200253

    Flokkur fólksins leggur til að skipulagsyfirvöld endurskoði, áður en lengra er haldið með nýtt hverfisskipulag í Breiðholti, þær ábendingar sem birtar hafa verið á samfélagsmiðlum sérstaklega hvað varða áhyggjur íbúa á frekari skorti á bílastæðum í hverfinu. Vinnutillögur fyrir hverfisskipulag Breiðholts gera ráð fyrir að íbúðum fjölgi um 3000 í hverfinu án þess að þeim fylgi bílastæði í sambærilegu hlutfalli. Endurskoða þarf hugmyndir sem lúta að mögulegum bílastæðum sem ættu að fylgja þeim aukaíbúðum sem eigendur sérbýlishúsa mega byggja/innrétta á lóðum sínum. Í hugmyndunum er ekki gert ráð fyrir að þessar aukaíbúðir fái bílastæði. Verði það raunin mun það rýra gildi eignarinnar enda fólk almennt síður tilbúið að leiga eða kaupa eign þar sem það eða gestir þeirra geti ekki lagt bíl sínum nálægt. Eldri borgarar og hreyfihamlaðir nota frekar bíl en hjól til að ferðast um sem dæmi. Einnig þarf að endurskoða það blokkarbyggingarmagn sem áætlað er að byggja í Breiðholti. Byggja á mikið af blokkum í hverfi sem hefur hvað flestar blokkirnar í borginni. Gengið er á græn svæði og leikvelli sem ekki er boðlegt. Byggja á litlar íbúðir en ekki er séð að skortur verði á litlum íbúðum ef horft er til yfirstandandi framkvæmda í borginni og íbúðir sem ekki hafa selst.

    Frestað.

  53. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:         Mál nr. US200254

    Bílar sem brenna bensín eða dísel eyða og menga mest á litlum hraða í fyrsta gír, svo ekki sé talað um kyrrstöðu. Þá brenna þeir og menga til einskis. Flestir nýir einkabílar af öllum gerðum eru í dag með hugbúnað sem lokar fyrir eldsneyti til vélarinnar þegar verið er að hægja á ferðinni og stöðvar síðan vélina þegar menn stoppa, t.d. á ljósum, en ræsir síðan sjálfvirkt vélina aftur þegar bremsunni er sleppt. Þetta á ekki við um þá vagna sem Strætó notar. Þeir eru alltaf í gangi í akstri, sem og þegar stoppað er á ljósum eða á stoppistöðvum í lengri og skemmri tíma. Það er alltaf bílstjórans á þessum vögnum því að ákveða hvenær drepið er á vélinni og hvenær ekki. Borgarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram eftirfarandi fyrirspurnir: Hver er stefna Strætó. bs. hvað þetta varðar? Hvað er bílstjórum Strætó bs. kennt og uppálagt í þessum efnum? Óskað er eftir að fá yfirlit yfir þá þjálfun og fyrirmæli sem strætisvagnabílstjórar fá hvað þetta varðar og þá er átt einnig við hvort bílstjórar fái ekki þau fyrirmæli að hafa vagna aldrei í lausagangi á biðstöð s.s. á Hlemmi eða í Mjódd?

    Frestað.

  54. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:         Mál nr. US200255

    Nú hefur úrskurðarnefnd kærunefndar útboðsmála fellt úr gildi hönnunarsamkeppni sem Vegagerðin, Reykjavíkurborg og Kópavogsbær stóðu fyrir um hönnun brúar yfir Fossvog. Fimm hönnunar- og arkitektastofur af þeim ellefu sem ekki voru valdir í forvalið kærðu valið til kærunefndar útboðsmála sem hefur stöðvað keppnina tímabundið. Alls sendu sautján hönnunar- og arkitektastofur inn tillögur. Alvarlegar athugasemdir eru gerðar í úrskurðinum við vinnubrögð Vegagerðarinnar og eru hún, Reykjavíkurborg og Kópavogur gert að greiða skaðabætur samkvæmt úrskurðarorði. Fram kemur í úrskurðinum að "Efla hf. hafi fengið óeðlilegt forskot á aðra þátttakendur. Jafnframt hafi einn dómnefndarmenn verið starfsmaður Eflu hf. og tiltekinn starfsmaður Vegagerðarinnar, sem hafi staðfest ákvörðun dómnefndar um val þátttakenda, verið eigandi, stjórnarmaður og starfsmaður Eflu hf. þar til fyrir skömmu. Dómnefndin hafi því verið vanhæf til ákvarðanatöku í forvalinu". Í þessu máli er alla vega víst að Reykjavíkurborg ber ákvarðanaábyrgð og skaðabætur greiðast úr vasa útsvarsgreiðenda. Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir upplýsingum um hvað þessi mistök í útboðsmálum munu kosta borgarbúa og hvaða úrbætur Reykjavík hyggst gera á verklagi í ljósi úrskurðarins?

    Frestað.

  55. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólkins leggur fram svohljóðandi tillögu:         Mál nr. US200256

    Borgarfulltrúi Flokks fólksins leggur til að borgarstjórn samþykki að lagfæra vatnsflæðisvandamál við Leirubakka í Breiðholti. Í fjölda ára hefur verið kvartað yfir vatnsflæði sem kemur í leysingum (hláku). Það kemur úr holtinu ofan við Stöng. Stöng liggur frá Arnarbakka og upp að Breiðholtsbraut og er með hita til snjóbræðslu sem eykur enn vatnsflæðið. Vatnið rennur inn Leirubakkann og hefur í gegnum árin valdið tjóni á malbiki. Þegar frystir og þiðnar að þá veldur þetta vatn tjóni á malbikinu sem liggur inn Leirubakkann. Stundum rennur vatnið inn allan Leirubakkann og endar í niðurfalli innst sem hefur ekki undan og stíflast. Þegar frystir er erfitt að hreinsa frá niðurfallinu, sem lendir oft á íbúum að gera. Vandamál sem þessi eiga ekki að vera viðvarandi. Þetta er hægt að laga og hefði átt að laga um leið og vandinn kom í ljós. Lagt er til að niðurföllin neðan við Stöng í Arnarbakkanum verði lagfærð þannig að þau taki við vatninu sem kemur úr brekkunni og úr holtinu. Jafnframt er lagt til að Reykjavíkurborg lagfæri malbikið í Leirubakkanum. Íbúar eiga ekki að þurfa að laga skemmdir sem vatn hefur valdið sem kemur langt að vegna galla í hönnun niðurfalla við Stöng í Arnarbakka.

    Frestað.

  56. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu:         Mál nr. US200257

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að skipulagsyfirvöld borgarinnar setji rafmagns- og metan bíla á lista yfir það sem þau kalla vistvænan ferðamáta.Í nýju hverfisskipulagi Breiðholts er farið mörgum orðum um vistvænan ferðamáta en ekki minnst á vistvæna bíla. Áhersla er lögð á að gera vistvænum ferðamátum hátt undir höfði og að aðgengi allra sé tryggt, óháð hreyfigetu. Ekki einu orði er minnst á rafmagns- eða metanbíla heldur einungis hjól og síðan væntanlega borgarlínu. Telja skipulagsyfirvöld þar með að hreyfihamlaðir sem dæmi notist frekar við hjól en bíl? Nú eru aðeins 10 ár þar til bannað verður að flytja inn bensín- og díselbíla. Skipulagsyfirvöld verða að fara að sætta sig við að þau koma ekki öllum á hjól og þurfa því að viðurkenna að einkabíllinn mun áfram verða einn helsti ferðamáti borgarbúa. Það er mat fulltrúa Flokks fólksins að nú ætti að leggja alla áherslu á að styðja og hvetja til orkuskipta og taka rafmagns og metanbílinn inn í flokkinn „vistvænn ferðamáti“.

    Frestað.

  57. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu:         Mál nr. US200258

    Í Reykjavík hafa borgar- og skipulags yfirvöld sýnt getuleysi þegar kemur að þessum málaflokki. Það líður að því að plássin fyrir kistur í Gufuneskirkjugarði klárist en reiknað er með plássi fyrir kistur í mesta lagi 3-4 ár í viðbót og þá þarf að fara að jarða Reykvíkinga í kirkjugarðinum í Kópavogi. Kirkjugarðurinn við Úlfarsfell hefur lengi verið í undirbúningi. Skipulagsyfirvöld hafa dregið það árum saman að hefja framkvæmdir. Ítrekað hefur skipulagsyfirvöldum verið gert ljóst að brýn þörf er á nýjum grafarsvæðum og að hraða þurfi framkvæmdum á kirkjugarðinum við Úlfarsfell en skipulagsyfirvöld hafa látið málið sem vind og eyru og þjóta. Það er miður að borgaryfirvöld sjái ekki nauðsyn þess að fullklára kirkjugarð þar sem Reykvíkingar sem óska þess að vera jarðaðir í kistu fái að hvíla. Fulltrúi Flokks fólksins leggur auk þess til að gert verði átak í Hólavallagarði en honum þarf að halda betur við en gert hefur verið. Aðeins hluti garðsins hefur verið tekinn í gegn en annar hluti hans er að grotna niður. Skipulagsyfirvöld borgarinnar hafa til margra ára ekki sýnt Hólavallagarði nægjanlega virðingu og ekki úthlutað til hans nauðsynlegum fjármunum til að halda honum við.

    Frestað.

  58. Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:          Mál nr. US200259

    Fyrirspurn til Strætó bs. 1. Hvað hafa margir farþegar ferðast með Strætó bs. það sem af er þessu ári? 2. Hver var farþegafjöldinn á árunum 2019, 2018, 2017 og 2016? 3. Hvenær var reglan um talningu innstiga í vagna tekin upp í stað ferða sem greitt var fyrir pr. farþega? 4. Hverjar er tekjur Strætó bs. af farþegum það sem af er þessu ári? 5. Hverjar voru tekjur Strætó bs. af farþegum á árunum 2019, 2018, 2017 og 2016? 6. Í hverju felst viðauki við ráðningarsamning framkvæmdastjóra Strætó bs. sem stjórn Strætó bs. samþykkti á fundi sínum þann 19. júní sl.?

    Frestað.

  59. Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:         Mál nr. US200260

    Á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 1. júlí sl. var beiðni um deiliskipulagsbreytingu fyrir lóð nr. 20 við Bólstaðarhlíð, Ísaksskóli hafnað. Í breytingunni fólst að skilgreina byggingarreit fyrir battavöll á lóð sem er 20 x 13 metrar ásamt því að hækka núverandi girðingu á auðausturhorni lóðar. Nú einum og hálfum mánuði síðar hefur battvöllurinn ekki enn verið fjarlægður. 1. Hvers vegna er ekki búið að fjarlægja völlinn í samræmi við höfnun/synjun skipulags- og samgönguráðs? 2. Hvaða stofnun/eining innan borgarinnar á að fjarlægja völlinn? 3. Hvað hefur gerst í málinu síðan synjunin gekk í gegn?

    Frestað.

  60. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi tillögu:         Mál nr. US200261

    Lagt er til að teknar verði upp rafrænar undirskriftir í skipulags- og samgönguráði. 

    Frestað.

    -    Kl. 11:19 víkur Katrín Atladóttir af fundi.

    Fylgigögn

Fundi slitið klukkan 11:42

Pawel Bartoszek Sara Björg Sigurðardóttir

Hildur Björnsdóttir