Skipulags- og samgönguráð - Fundur nr. 70

Skipulags- og samgönguráð

Ár 2020, miðvikudaginn 6. maí kl. 09:03 var haldinn 70. fundur skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð. Ráðssal. Viðstödd voru: Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, Pawel Bartoszek, Kristín Soffía Jónsdóttir, Hjálmar Sveinsson, Valgerður Sigurðardóttir, Hildur Björnsdóttir, Katrín Atladóttir og áheyrnarfulltrúarnir Daníel Örn Arnarsson, Vigdís Hauksdóttir og Kolbrún Baldursdóttir. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Björn Axelsson, Ólöf Örvarsdóttir, Þorsteinn Rúnar Hermannsson, Ágústa Sveinbjörnsdóttir, Nikulás Úlfar Másson, Jóhanna Guðjónsdóttir og Gréta Mar Jósepsdóttir.
Fundarritari er Glóey Helgudóttir Finnsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Samgöngusáttmáli, stofnleiðir hjólreiða á höfuðborgarsvæðinu         Mál nr. US200123

    Lagt fram minnisblað Eflu og yfirlitskort, dags. 21. apríl 2020, tillaga hjólahóps SSH og Vegagerðarinnar um uppbyggingu stofnleiða hjólreiða á höfuðborgarsvæðinu næstu 15 ár með fjármagni samgöngusáttmála. 

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun:

    Ekkert eykur hjólreiðar og tryggir öryggi hjólreiðafólks jafnmikið og öflugir innviðir. Með samgöngusáttmálanum er loks stigið það skref að ríkið og sveitarfélög líta á hjólreiðar sem fullgildan faramáta til jafns við aðra. Við fögnum þessari framtíðarsýn og hlökkum til að sjá henni hrint í framkvæmd.

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Samfélagið hefur óhjákvæmilega tekið breytingum í kjölfar COVID-19 faraldursins. Fólk hefur séð jákvæð áhrif þess að ganga eða hjóla um borgarlandið. Göngu- og hjólastígar borgarinnar hafa aldrei verið jafn þétt setnir, hvort sem um er að ræða hjólandi vegfarendur eða gangandi. Þetta sýna talningar borgarinnar glöggt, en vegfarendum hefur fjölgað gífurlega í samanburði við aprílmánuð síðasta árs. Hjólabúðir borgarinnar standa flestar tómar, biðraðir hafa náð langt út úr dyrum og eftirspurnin hefur aldrei verið meiri. Mikilvægt er að styðja við þessa jákvæðu þróun með áframhaldandi uppbyggingu göngu- og hjólastíga í borginni, með áherslu á fjölgun stíga og aðgreiningu gangandi og hjólandi vegfarenda. Eins leggja fulltrúar Sjálfstæðisflokks áherslu á að borgin blási til stórsóknar í uppbyggingu upphitaðra göngu- og hjólastíga í borgarlandinu svo styðja megi við gangandi og hjólandi vegfarendur allan ársins hring. Við leggjum ríka áherslu á greiðar samgöngur fyrir alla – og mikilvægi þess að borgin styðji við margvíslega ferðamáta og tryggja borgarbúum frelsi og val um fjölbreytta samgöngukosti.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Bókun Flokks fólksins um minnisblað Eflu og yfirlitskort, dags. 21. apríl 2020, tillaga hjólahóps SSH og Vegagerðarinnar um uppbyggingu stofnleiða hjólreiða á höfuðborgarsvæðinu næstu 15 ár með fjármagni samgöngusáttmála. Fulltrúi Flokks fólksins vill benda á að gott er að  stefna að því að hjólastígar séu og verði hugsaðir sem samgönguæð. 
    Hjólreiðafólki þykir almennt best að hjóla á láréttri braut þegar verið er að nota hjól sem samgöngutæki. Þess vegna er mikilvægt að slíkir stígar liggi samhliða hæðarlínum, en brekkur ætti frekar að forðast. Í þessu gildir að betri er krókur en kelda. Samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir sýnist að hægt sé að huga betur að þessu atriði eða í það minnsta þarf að hafa þetta í huga og fylgja þeim reglum sem að þessu snúa þegar verkefninu framvindur.

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Samgöngumál og innviðauppbygging á að vera í forgangi á landinu öllu. „Hjólreiðaáætlun Reykjavíkur“ var kynnt í dag á fundi skipulags- og samgönguráðs. 8,2 milljarðar koma inn í verkefnið úr samgöngusáttmálanum. Átta þúsund og tvöhundruð milljónir í hjólastíga. Sjá ekki allir peningasóunina? Hvernig má það vera að íslenska ríkið sé að spandera sköttum landsmanna með þessum hætti og í gæluverkefni borgarstjóra og meirihlutans? Snjóflóðavarnir, vegakerfi, einbreiðar brýr á þjóðvegi 1, og aðrir innviðir landsins eru í molum. Sætta landsmenn sig við þessa geggjuðu peningasóun úr vösum landsmanna? Hvar er Sundabrautin? Hvað er samgöngumálaráðherra að hugsa?

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Pírata leggja fram svohljóðandi gagnbókun:

    Við fulltrúar Pírata, Viðreisnar og Samfylkingarinnar fögnum metnaðarfullri tillögu um uppbyggingu stofnleiða á höfuðborgarsvæðinu næstu 15 árin. Hjólreiðar eru mikilvægur og sívaxandi samgöngumáti. Talningar og ferðavenjukannanir sýna að hjólreiðafólki fjölgar hratt á höfuðborgarsvæðinu. Hjólreiðar eru hagkvæmur samgöngumáti, þær hafa góð áhrif á umhverfið, lýðheilsu og lífsgæði og skapa betri borg. Undanfarin ár hefur verið gert stórátak í lagningu hjólastíga í Reykjavík og á höfuðborgarsvæðin öllu. Það hefur skilað sér í auknum hjólreiðum sem er fagnaðarefni. Ör þróun í smíði og framleiðslu rafhjóla mun líklega fjölga þeim verulega sem kjósa þennan fararmáta. Metnaðarfull uppbygging vandaðra hjólastíga á höfuðborgarsvæðinu næstu árin er mjög brýn.

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi gagnbókun:

    Meirihlutinn getur/má gera það sem hann vill á meðan hann er við völd. En að sækja hjólapeninga í tóman ríkissjóð er dæmalaust. Ekki kemur Akureyringurinn, Vestfirðingurinn eða Austfirðingurinn hjólandi til Reykjavíkur að sinna erindum sínum í stjórnsýsluhúsum ríkisins sem búa nú þegar við skert aðgengi sem er á ábyrgð sama meirihluta. Ég spyr á ný – hvað er samgöngumálaráðherra að hugsa?

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Pírata leggja fram svohljóðandi gagnbókun:

    Vandséð er hvernig uppbygging hjólastíga í Reykjavík skerði lífsgæði Vestfirðinga.

    Ragnar Gauti Hauksson frá Eflu tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  2. Bústaðavegur 151-153, kynning         Mál nr. US200104

    Kynning á fyrirhuguðum framkvæmdum við Bústaðaveg 151-153.

  3. 9.30-9:45 Skyggnisbraut, kynning         Mál nr. US200106

    Kynning á breytingum á Skyggnisbraut.

    (A) Skipulagsmál

  4. 10:05-10:35 Suðurlandsbraut 34/ 
    Ármúli 31, lýsing /deiliskipulag    (01.265.2)    Mál nr. SN190500
    530117-0570 Reitir - iðnaður ehf., Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
    501193-2409 ALARK arkitektar ehf, Dalvegi 18, 201 Kópavogur

    Kynnt staða vinnu við gerð deiliskipulagstillögu fyrir svæðið.

    Friðjón Sigurðarson frá Reitum, Kristján Ásgeirsson og Samúel Torfi Pétursson frá ALARK taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Bókun Flokks fólksins við framlagningu skipulagslýsingar dags. í ágúst 2019 vegna breytingu á deiliskipulagi Suðurlandsbrautar 34/Ármúla 31, en þar á að rísa þétt og blönduð byggð, allt að 450 íbúðir, atvinnuhúsnæði og leik- og grunnskóli. Fulltrúi Flokks fólksins er að sjá þessi gögn og heyra nákvæmlega þessar lýsingar í fyrsta sinn og getur ekki eftir örstutta kynningu myndað sér skoðun á þeirri umbyltingu sem á að verða á þessum reiti. Ítrekað er mikilvægi þess að fá gögn send með dagskrá til að geta rýnt þau fyrir fundinn. Breytingar sem lagt er til að verði eru gríðarmiklar. Myndir sem sýndar eru líkjast í engu því útliti og aðstæðum sem þarna eru núna. Gert er ráð fyrir að stór hluti af núverandi húsnæði á lóðinni víki. Hvaða hús eru það sem munu víkja, hve mörg, hvaða starfsemi er í þeim nú og hvernig mátast skipulagsbreytingin við eigendur þeirra. Það vakna margar spurningar. Hér er ekki verið að gagnrýna eða segja að þetta geti ekki orðið vel heppnað og glæsilegt heldur frekar er verið að leggja áherslu á að kjörnir fulltrúar fái mýmörg tækifæri til að rýna í þetta til að mynda sér skoðanir enda gætu þeir viljað koma með umsögn eða ábendingar, eða frekari spurningar.

  5. Færsla Hringbrautar, Skógarhlíð, breyting á deiliskipulagi vegna smáhýsa         Mál nr. SN190658

    Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Færslu Hringbrautar vegna afmörkunar nýrrar lóðar fyrir smáhýsi: Skógarhlíð. Velferðarsvið Reykjavíkurborgar leitast eftir að koma fyrir smáhýsum á völdum stöðum í borginni sem búsetuúrræði fyrir skjólstæðinga sína. Í breytingunni felst að koma fyrir allt að 3 smáhýsum á nýrri lóð, samkvæmt uppdr. Trípólí arkitekta dags.  30. október 2019 br. 22. apríl 2020. Tillagan var auglýst frá 7. janúar 2020 til og með 3. mars 2020. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir/umsögn: Atli Ágústsson dags. 7. janúar 2019, Vilborg María Alfreðsdóttir dags. 20. janúar 2020, Snorri Guðjónsson dags. 20. janúar 2020, Daði Sveinsson dags. 21. janúar 2020, Sigrún Halla Halldórsdóttir dags. 20. janúar 2020, Hreinn Elíasson dags. 22. janúar 2020, Ásdís Auðunsdóttir dags. 22. janúar 2020, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir dags. 22. janúar 2020, Sigrún Halldórsdóttir dags. 22. janúar 2020, Jóhann Már Valdimarsson dags. 22. janúar 2020, Sigurmon Hartmann og Gróa Sif dags. 22. janúar 2020, Jóhann A. Kristjánsson dags. 22. janúar 2020, Herdís Þorsteinsdóttir dags. 22. janúar 2020, Arnar Jónsson dags. 22. janúar 2020, Sigríður Ása Sigurðardóttir dags. 22. janúar 2020, Torfi G. Yngvason dags. 22. janúar 2020, Torfi G. Yngvason f.h. Bus Hostel ehf. dags. 22. janúar 2020, Þóra Lárusdóttir dags. 22. janúar 2020, Anna Guðný Björnsdóttir dags. 23. janúar 2020, Linda Jóhannsdóttir dags. 23. janúar 2020, Guðrún Ólafsdóttir dags. 23. janúar 2020, Anna Rósa Gestsdóttir dags. 23. janúar 2020, Íris Ólafsdóttir dags. 23. janúar 2020, Bára Brandsdóttir dags. 23. janúar 2020, Guttormur Ingi Einarsson dags. 23. janúar 2020, Eyrún Pétursdóttir dags. 23. janúar 2020, Hrafnhildur Fanngeirsdóttir dags. 23. janúar 2020, Pétur T. Gunnarsson dags. 23. janúar 2020, Hrafnhildur Lárusdóttir dags. 24. janúar 2020, Karen Christensen og Guðjón Guðmundsson dags. 24. janúar 2020, Jóhanna Hjálmtýsdóttir dags. 24. janúar 2020, Abdelaziz Hamou dags. 24. janúar 2020, Jóhanna Ólafsdóttir dags. 24. janúar 2020, Björn Jónsson og Sigríður Jóna Berndsen dags. 24. janúar 2020, Halldóra Ólafsdóttir dags. 28. janúar 2020, Vegagerðin dags. 29. janúar 2020, Einar Örn Einarsson dags. 30. janúar 2020, Snarrótin dags. 30. janúar 2020, Edda Árnadóttir dags. 1. febrúar 2020, Stefán Arnórsson dags. 1. febrúar 2020, Egill Matthíasson, Erna Matthíasdóttir og Sigríður Matthíasdóttir dags. 3. febrúar 2020, Björk Kristjánsdóttir dags. 3. febrúar 2020, Óskar Ómarsson dags. 4. febrúar 2020, Halldóra Æsa Aradóttir dags. 4. febrúar 2020, Íris Ólafsdóttir dags. 4. febrúar 2020, Matthías Bjarnason dags. 5. febrúar 2020, Laufey Pétursdóttir og Erla Steingrímsdóttir dags. 8. febrúar 2020, Helga Júlía Vilhjálmsdóttir dags. 13. febrúar 2020, Þorgerður Benediktsdóttir og Örvar Rudolfsson dags. 15. febrúar 2020, Svavar Guðmundsson og Elín Kristmundsdóttir dags. 16. febrúar 2020, Guðjón Guðmundsson dags. 16. febrúar 2020, Ása Benediktsdóttir dags. 16. febrúar 2020, Karen Christensen dags. 17. febrúar 2020, Helga Sigurðardóttir dags. 17. febrúar 2020, Tryggvi Baldursson dags. 17. febrúar 2020, Guðmundur Garðarsson og Hjördís dags. 17. febrúar 2020, Björn Valdimarsson og Sigríður Líba Ásgeirsdóttir dags. 17. febrúar 2020, Arnheiður Anna Elísdóttir dags. 17. febrúar 2020, Pétur Karlsson dags. 17. febrúar 2020, Aníta Elínardóttir dags. 17. febrúar 2020, Svanhildur Þorsteinsdóttir dags. 18. febrúar 2020, ályktun stjórnar íbúasamtaka 3. hverfis dags. 18. febrúar 2020, Guðrún Þorgerður Ágústsdóttir dags. 18. febrúar 2020, Hreinn Bernharðsson dags. 18. febrúar 2020, Magnús Axelsson dags. 18. febrúar 2020, Lena Viderö dags. 18. febrúar 2020, Veitur dags. 18. febrúar 2020, Ágúst Hjörtur Ingþórsson og Hulda Anna Arnljótsdóttir dags. 19. febrúar 2020, Guðbjörg Eiríksdóttir dags. 25. febrúar 2020 og Íbúaráð Miðborgar og Hlíða dags. 26. febrúar 2020. Eftirtaldir sendu póst þar sem ekki eru gerðar athugasemdir: Birkir Fjalar Viðarsson dags. 24. janúar 2020, Rúnar Steinn Rúnarsson dags. 24. janúar 2020 og Tryggvi Bragason dags. 24. janúar 2020. Einnig er lagður fram tölvupóstur Margrétar M. Norðdahl formanns íbúaráðs Miðborgar og Hlíða, dags. 18. febrúar 2020 þar sem óskað er eftir framlengingu á umsagnarfresti. Einnig er lögð fram umsögn Skipulagsfulltrúa dags. 24. apríl 2020.

    Samþykkt með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Pírata sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með þeim breytingum sem koma fram í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. apríl 2020. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá.
    Vísað til borgarráðs.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Bókun Flokks fólksins við framlagningu mála, færsla Hringbrautar, Skógarhlíð, breyting á deiliskipulagi vegna smáhýsa og Veðurstofuhæð einnig breyting á deiluskipulagi vegna smáhýsa. Flokkur fólksins gerir ekki efnislega athugasemd við þessa tillögu um færslu Hringbrautar. Fulltrúi Flokks fólksins veit að það hefur verið mjög erfitt að finna smáhýsunum stað í borgarlandinu og er það áhyggjuefni. Fulltrúi Flokks fólksins vill hins vegar nefna í þessari bókun að undir báðum þessum liðum eru birt tugir nafna fólks sem sendu inn athugasemdir/umsögn. Fulltrúa Flokks fólksins finnst þetta óþarfi og veltir fyrir sér hvort þessi nöfn séu birt með vitund þessara einstaklinga? Hverjir senda inn athugasemdir snertir málið ekki að neinu leyti og því finnst fulltrúa Flokks fólksins engin þörf á að birta nöfn þeirra sem senda inn athugasemdir í dagskrá fundarins. Þessu má breyta og mun Flokkur fólksins koma með tillögu um það.

    Sólveig Sigurðardóttir verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    -    Kl. 11:00 víkur Kristín Soffía Jónsdóttir af fundi.
    -    Kl. 11:00 tekur Aron Leví Beck sæti á fundinum.

    Fylgigögn

  6. 10:35-10:50 Veðurstofuhæð, Bústaðavegur, breyting á deiliskipulagi vegna smáhýsa         Mál nr. SN190659

    Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Veðurstofuhæðar vegna afmörkunar nýrrar lóðar fyrir smáhýsi: Bústaðavegur. Velferðarsvið Reykjavíkurborgar leitast eftir að koma fyrir smáhýsum á völdum stöðum í borginni sem búsetuúrræði fyrir skjólstæðinga sína. Í breytingunni felst að koma fyrir allt að 5 smáhýsum á nýrri lóð, samkvæmt uppdr. Teiknistofunnar Stiku dags. 30. október 2019. Tillagan var auglýst frá 7. janúar 2020 til og með 3. mars 2020. Eftirtaldir sendu inn athugasemdir/umsögn: Vilborg María Alfreðsdóttir dags. 20. janúar 2020, Snorri Guðjónsson dags. 20. janúar 2020, Daði Sveinsson dags. 21. janúar 2020, Sigrún Halla Halldórsdóttir dags. 21. janúar 2020, Hreinn Elíasson dags. 22. janúar 2020, Ásdís Auðunsdóttir dags. 22. janúar 2020, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir dags. 22. janúar 2020, Sigrún Halldórsdóttir dags. 22. janúar 2020, Jóhann Már Valdimarsson dags. 22. janúar 2020, Sigurmon Hartmann og Gróa Sif dags. 22. janúar 2020, Jóhann A. Kristjánsson dags. 22. janúar 2020, Herdís Þorsteinsdóttir dags. 22. janúar 2020, Arnar Jónsson dags. 22. janúar 2020, Sigríður Ása Sigurðardóttir dags. 22. janúar 2020, Torfi G. Yngvason dags. 22. janúar 2020, Torfi G. Yngvason f.h. Bus Hostel ehf. dags. 22. janúar 2020, Þóra Lárusdóttir dags. 22. janúar 2020, Anna Guðný Björnsdóttir dags. 23. janúar 2020, Linda Jóhannsdóttir dags. 23. janúar 2020, Guðrún Ólafsdóttir dags. 23. janúar 2020, Anna Rósa Gestsdóttir dags. 23. janúar 2020, Íris Ólafsdóttir dags. 23. janúar 2020, Bára Brandsdóttir dags. 23. janúar 2020, Guttormur Ingi Einarsson dags. 23. janúar 2020, Eyrún Pétursdóttir dags. 23. janúar 2020, Hrafnhildur Fanngeirsdóttir dags. 23. janúar 2020, Pétur T. Gunnarsson dags. 23. janúar 2020, Hrafnhildur Lárusdóttir dags. 24. janúar 2020, Karen Christensen og Guðjón Guðmundsson dags. 24. janúar 2020, Jóhanna Hjálmtýsdóttir dags. 24. janúar 2020, Abdelaziz Hamou dags. 24. janúar 2020, Jóhanna Ólafsdóttir dags. 24. janúar 2020, Björn Jónsson og Sigríður Jóna Berndsen dags. 24. janúar 2020, Eirný Þórólfsdóttir og Garðar Adolfsson dags. 25. janúar 2020, Kolbeinn Brynjarsson dags. 26. janúar 2020, Halldóra Ólafsdóttir dags. 28. janúar 2020, Einar Örn Einarsson dags. 30. janúar 2020, Björk Kristjánsdóttir dags. 3. febrúar 2020, Óskar Ómarsson dags. 4. febrúar 2020, Halldóra Æsa Aradóttir dags. 4. febrúar 2020, Hrund Þrándardóttir dags. 4. febrúar 2020,  Laufey Pétursdóttir og Erla Steingrímsdóttir dags. 8. febrúar 2020,  Þorgerður Benediktsdóttir og Örvar Rudolfsson dags. 15. febrúar 2020, Ása Benediktsdóttir dags. 16. febrúar 2020, Helga Sigurðardóttir dags. 17. febrúar 2020, Guðmundur Garðarsson og Hjördís dags. 17. febrúar 2020, Björn Valdimarsson og Sigríður Líba Ásgeirsdóttir dags. 17. febrúar 2020, Þórhildur Kristinsdóttir og Jón Ævar Pálmason dags. 17. febrúar 2020, Arnheiður Anna Elísdóttir dags. 17. febrúar 2020, Pétur Karlsson dags. 17. febrúar 2020, Sigríður Kristín Axelsdóttir dags. 17. febrúar 2020, Aníta Elínardóttir dags. 17. febrúar 2020, Svanhildur Þorsteinsdóttir dags. 18. febrúar 2020, Veðurstofa Íslands, ályktun stjórnar íbúasamtaka 3. hverfis dags. 18. febrúar 2020, Guðrún Þorgerður Ágústsdóttir dags. 18. febrúar 2020, Magnús Axelsson dags. 18. febrúar 2020, Lena Viderö dags. 18. febrúar 2020, Ragnar Ármannsson dags. 18. febrúar 2020, Veitur dags. 18. febrúar 2020, Ágúst Hjörtur Ingþórsson og Hulda Anna Arnljótsdóttir dags. 19. febrúar 2020, Guðbjörg Eiríksdóttir dags. 25. febrúar 2020 og Íbúaráð Miðborgar og Hlíða dags. 26. febrúar 2020. Eftirtaldir sendu póst þar sem ekki eru gerðar athugasemdir: Birkir Fjalar Viðarsson dags. 24. janúar 2020, Rúnar Steinn Rúnarsson dags. 24. janúar 2020 og Tryggvi Bragason dags. 24. janúar 2020. Einnig er lagður fram tölvupóstur Margrétar M. Norðdahl formanns íbúaráðs Miðborgar og Hlíða, dags. 18. febrúar 2020 þar sem óskað er eftir framlengingu á umsagnarfresti. Einnig er lögð fram umsögn Skipulagsfulltrúa dags. 4. maí 2020.

    Samþykkt að falla frá tillögu með vísan til umsagnar Skipulagsfulltrúa frá 4. maí 2020.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Bókun Flokks fólksins við framlagningu mála, færsla Hringbrautar, Skógarhlíð, breyting á deiliskipulagi vegna smáhýsa og Veðurstofuhæð einnig breyting á deiluskipulagi vegna smáhýsa. Flokkur fólksins gerir ekki efnislega athugasemd við þessar tillögur um færslu Hringbrautar og breytingu á deiliskipulagi á Veðurstofuhæð. Fulltrúi Flokks fólksins veit að það hefur verið mjög erfitt að finna smáhýsunum stað í borgarlandinu og er það áhyggjuefni. Fulltrúi Flokks fólksins vill hins vegar nefna í þessari bókun að undir báðum þessum liðum eru birt tugir nafna fólks sem sendu inn athugasemdir/umsögn. Fulltrúa Flokks fólksins finnst þetta óþarfi og veltir fyrir sér hvort þessi nöfn séu birt með vitund þessara einstaklinga? Hverjir senda inn athugasemdir snertir málið ekki að neinu leyti og því finnst fulltrúa Flokks fólksins engin þörf á að birta nöfn þeirra sem senda inn athugasemdir í dagskrá fundarins. Þessu má breyta og mun Flokkur fólksins koma með tillögu um það.

    Sólveig Sigurðardóttir verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  7. Hlíðarendi/Flugvallarvegur, breyting á deiliskipulagi     (01.62)    Mál nr. SN200158
    501213-1870 Veitur ohf., Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík
    501193-2409 ALARK arkitektar ehf, Dalvegi 18, 201 Kópavogur

    Lögð fram umsókn Kristjáns Ásgeirssonar ohf. dags. 22. apríl 2020 ásamt greinargerð ALARK arkitekta ehf. dags. 22. apríl 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Hlíðarenda. Í breytingunni felst afmörkun nýrrar lóðar fyrir dreifistöð rafmagns við Flugvallarveg, samkvæmt uppdr. ALARK arkitekta ehf. dags. 22. apríl 2020.

    Samþykkt að falla frá grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda með vísan til 2.ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt með vísan til a liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur nú skipulags- og samgönguráðs án staðfestingar borgarráðs. 

    (B) Byggingarmál

    Fylgigögn

  8. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, fundargerð         Mál nr. BN045423

    Fylgiskjal með fundargerð þessari er fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 1065 frá frá 28. apríl 2020.

    Fylgigögn

  9. Nafnanefnd, tillaga að nýjum götunöfnum í Elliðaárvogi, svæði 2.         Mál nr. US200132

    Lagt er fram erindi nafnanefndar þar sem gerð er tillaga að nöfnum gatna á svæði 2 í Elliðaárvogi.

    Samþykkt.

    (D) Ýmis mál

    Fylgigögn

  10. Gerðarbrunnur 44, málskot     (05.054.7)    Mál nr. SN200149
    230853-3719 Gísli Gíslason, Gerðarbrunnur 44, 113 Reykjavík

    Lagt er fram málskot dags. 1. mars 2020 vegna neikvæðrar afgreiðslu skipulagsfulltrúa frá 18. október 2020 um að gera auka íbúð á neðri hæð hússins á lóð nr. 44 við Gerðarbrunn, stækka bílgeymslu/geymslu, fjarlægja stiga á milli hæða og færa inngang efri hæðar á vesturhlið, samkvæmt uppdr. Arkamon ehf. ódags. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 17. október 2019.

    Frestað.

  11. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn,          Mál nr. US200125

    Í fyrirspurn sem áheyrnarfulltrúi Flokk fólksins lagði fram fyrir rétt um ári síðar varðandi lélegt aðgengi fyrir hreyfihamlaða einstaklinga á stoppistöð Strætó bs. við Suðurlandsbraut norðan megin, á móts við Laugardalshöll, hvort það stæði til að lagfæra umhverfi þessarar stoppistöðvar svo fatlað fólk kæmist með auðveldum hætti að göngubraut yfir Suðurlandsbraut? Svarið var að það væri á framkvæmdaáætlun fyrir 2020. Nú er sumar á næsta leiti, og spurt er hvort lagfæring á umræddri stoppistöð sé á lista yfir framkvæmdaráætlun borgarinnar. 

    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, Skrifstofu framkvæmda og viðhalds.

  12. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:         Mál nr. US200124

    Fyrirspurn Flokks fólksins vegna afnotar Bandalags skáta af reit í Hádegismóum til að reisa bækistöðvar. Um er að ræða einstakt land, með einstaka náttúru. Flokkur fólksins óskar að vita hvað Bandalag íslenskra skáta greiðir fyrir lóðina. 

    Framsent til skrifstofu borgarstjóra og borgarritara.

  13. 13.    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi tillögu,          Mál nr. US200131

    Í aðgerðarpakka borgarráðs vegna neikvæðra efnahagslegra áhrifa Covid-19 faraldursins er lögð til flýting fjárfestinga og viðhalds á vegum Reykjavíkurborgar til að auka atvinnu og umsvif í efnahagslífinu. Gert er ráð fyrir viðbótarfjárfestingum borgarsjóðs og B- hluta fyrirtækja geti samanlagt orðið um 5 milljarðar króna á árinu og enn meiri árið 2021. Í ljósi þess er því lagt til að farið verði í lagfæringar og endurbætur á göngu- og hjólastígum borgarinnar sem margir hverjir eru komnir á löngu tímabært viðhald. Ennfremur er lagt til að farið verði í almenna hreinsun og viðhald á útivistarsvæðum í borgarlandinu. Þá er  lagt til að farið verði í aukin þrif hreinsun og viðhald gatna. 

    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, Skrifstofu framkvæmda og viðhalds.

    -    Kl. 12:33 víkur Valgerður Sigurðardóttir af fundi
    -    Kl. 12:41 víkur Hjálmar Sveinsson af fundi.
    -    Kl. 12:44 víkur Katrín Atladóttir af fundi.
    -    Kl. 12:50 víkur Aron Leví Beck af fundi.

  14. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu:         Mál nr. US200128

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að borgarstjóri og skipulagsyfirvöld nota ekki núverandi ástand til að minnka aðgengi að miðbænum. Lagt er til að borgarstjóri noti ekki hið viðkvæma ástand vegna COVID-19 veirunnar til að þrýsta málum í gegn sem eru jafnvel í óþökk fjölda borgarbúa. Fulltrúa Flokks fólksins finnst það blasa við að borgarstjóri og skipulagsyfirvöld ætli að nota tækifærið í þessu ástandi til koma áformum sínum um að loka fyrir bílaumferð í miðbænum hraðar í gegn. Sagt er að rekstraraðilar vilji stækka staði sína til að virða tveggja metra regluna og leggur borgarstjóri til frekari lokanir gatna í því sambandi. Inn í umræðuna reyndi borgarstjóri að draga þá Þórólf og Víði sem hafa nú sagst ekki hafa neina skoðun á hvort  göngugötur dragi almennt úr eða auki smithættu. Hverjir hafa viljað stækka staði sína? Eru það veitingastaðir? Hvað með aðrar verslanir, eiga þær að færa varning sinn út á götu? Þessar hugmyndir eru með öllu óraunhæfar og munu skaða miðbæinn. Með því að loka fleiri götum verður verra aðgengi fyrir bíla. Miðbærinn er nú mannlaus vegna veirufaraldurs. Borgarstjóri vill notfæra sér veirufaraldurinn til að loka fleiri götum fyrir umferð. Tveggja metra reglan er notuð sem yfirskyn og sagt að rekstraraðilar vilji þetta. 

    Vísað frá með atkvæðum fulltrúa Viðreisnar og Pírata. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá.

    Fulltrúar Viðreisnar og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun:

    Borgin er í sífelldri þróun og umhverfi rekstraraðila í miðbænum er að taka snörum breytingum vegna Covid faraldursins. Það er nauðsynlegt að bregðast við á hverjum tíma með það að markmiði að huga að heilsu borgarbúa sem og góðu mannlífi. Aukið göngusvæði í miðborginni, unnið í góðu samráði við haghafa gerir hvoru tveggja. Tillaga þessi felur hins vegar í sér gildisdóma um skoðanir borgarstjóra, lýsingu á afstöðu áheyrnarfulltrúa Flokks fólks til þessara meintu afstöðu ásamt spurningum sem óljóst er hver eigi að svara. Tillagan er ekki tæk til afgreiðslu og er henni vísað frá.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi gagnbókun:

    Fulltrúi Flokks fólksins lagði  til að borgarstjóri og skipulagsyfirvöld noti ekki núverandi ástand til að minnka aðgengi að miðbænum.. Tillögunni hefur verið vísað frá. Það hefur hins vegar ekki farið milli mála að meirihlutinn hefur reynt  að nota hið viðkvæma ástand vegna COVID-19 veirunnar til að þrýsta skipulagsmálum í miðbænum hraðar í gegn og kom það skýrt fram þegar borgarstjóri reyndi að fá sóttvarnalækni og yfirlögregluþjón í lið með sér í þeirri von að hægt væri að nýta göngugötumálið í tengslum við meinta mögulega smithættu. Þetta eru upplýsingar sem komu í fréttum. Bókun sem kemur með frávísun tillögunnar felur að mati Flokks fólksins í sér gildisdóma um Flokk  fólksins sem bendir á það augljósa. Máli er greinilega viðkvæmt hjá borgarmeirihlutanum. Nær væri að taka sér tak og huga að sátt og samvinnu við rekstraraðila sem hafa orðið illa úti vegna breytinga á einum mikilvægustu og áður vinsælustu götum miðbæjarins. Flokkur fólksins telur að borgarstjóri þurfi að gæta betur að sér þegar hann er í opinberri umræðu um þessi mál sér í lagi ef hann ætlar að tengja skipulagsmál við Covid. 19.

  15. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu:          Mál nr. US200129

    Flokkur fólksins leggur til að skipulagsyfirvöld eigi alvöru viðræður og samstarf við rekstraraðila miðbæjarins til að ræða björgunaraðgerðir s.s. hvernig markaðsátak hægt er að fara í fyrir miðborgina. Fara þarf í almennar aðgerðir sem nýtast öllum. Almennar aðgerðir þurfa m.a. að fela í sér samvinnu við bílastæðasjóð og Strætó b sem gefa þurfa eftir í gjöldum til að laða að fólk. Breyta verður aksturstefnum á Laugavegi þannig að ekið verði í vesturátt niður alla götuna. Opna þarf hliðin enda er nú komið í lög að um þessar götur megi P merktir bílar aka og leggja. Það hefur komið fram í niðurstöðum m.a. Maskínu könnunar að miklar áhyggjur eru af fækkun fólks í miðbænum. Fyrir veirufaraldurinn var orðið fátt um annað fólk í bænum en ferðamenn. Götulokanir á svæðinu höfðu haft þau áhrif að verslun og viðskipti hrundi í miðbænum utan veitingahúsareksturs. Covid-19 áhrifin bættust síðan ofan á og mun sennilega líða talsverður tíma áður en sjá má stóra hópa ferðamanna í bænum. En orsök faraldursins engum að kenna. En flótti verslana af svæðinu er á ábyrgð meirihlutans. Þrátt fyrir hávær mótmæli og beiðni um samráð ákvað meirihlutinn að halda sig við einhliða ákvörðun sína um götulokanir eins og þau tilkynntu í   meirihlutasáttmálanum. 

    Vísað frá með atkvæðum fulltrúa Viðreisnar og Pírata. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá.

    Fulltrúar Viðreisnar og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun:

    Ólíkt því sem tillagan heldur fram er mikið samstarf í gangi við rekstraraðila miðbæjarins. Unnið er með stórum hóp hagaðila í miðborginni og starfsfólki Reykjavíkur með það að markmiðið að móta saman aðgerðarpakka til að bregðast við afleiðingum af Covid-19 fyrir miðborgina. Var hópurinn stofnaður á stórum stöðufundi hagaaðila í verkefnisstjórn miðborgarmála. Hagsmunasamtök í miðborginni auk verkefnisstjóra miðborgarmála hjá Reykjavíkur sjá um hópinn. Meðlimir eru núna 202 og er hópurinn mjög virkur. Auk þessa er búið fá aðstöðu í Aðalstræti 2 þar sem verkefnisstjórar sem sinna miðborginni munu koma sér fyrir og vera til staðar fyrir rekstraraðila í sumar, bæði hvað varðar miðlun upplýsinga, aðstoð við leyfisveitingar og allskyns er varðar borgarlandið. Sviðsstjóri USK hefur einnig hafið samtal við forsvarsmenn veitingaaðila sem hafa áhuga á samstarfi um Kvosina, Laugaveg og Óðinstorg. Tillögu þessari er því vísað frá og ásökunum um skort á alvöru samstarfi alfarið hafnað.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi gagnbókun:

    Tillögu Flokks fólksins um að skipulagsyfirvöld eigi alvöru viðræður og samstarf við rekstraraðila miðbæjarins til að ræða björgunaraðgerðir hefur verið vísað frá. Flokkur fólksins harmar hvernig borgaryfirvöld hafa komið fram við rekstraraðila og hvernig ríghaldið er í einhliða ákvörðun sem skráð er í sáttmála þeirra um  lokun gatna. Vonast var til að meirihlutanum myndi bera gæfa til að stíga skref til baka og vinna frá grunni með öllum rekstraraðilum. Sagt er að unnið sé með stórum hópi hagsmunaðila en þegar rætt er við tugi slíkra kemur annað í ljós. Öll vitum við flótta þeirra af svæðinu og ekki þarf annað en að ganga um svæðið til að sjá hvernig komið er. Staðreyndin er sú að mjög margir eru ósáttir aðallega þeir sem fullyrða og hafa sýnt fram á að með lokun gatna fyrir umferð hrundi verslun þeirra og var þetta sérstaklega slæmt þegar ákveðið var að loka allt árið um kring. Þetta atriði verður að skoða, kannski að prófa aftur að opna fyrir umferð og sjá hvort meira líf komi í bæinn. Nú er ferðamenn horfnir vegna Covid. Covid var engum að kenna en að Íslendingar sem koma lengra að séu hættir að koma í bæinn er á ábyrgð meirihlutans.

  16. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn,          Mál nr. US200133

    Í febrúarmánuði 2019 lögðu fulltrúar Sjálfstæðisflokks fram tillögu þess efnis að Reykjavíkurborg myndi hefja stórsókn í upphitun göngu- og hjólastíga í borginni. Tillagan hefur ekki enn hlotið afgreiðslu. Óskað er eftir upplýsingum um stöðu málsins og hvers vegna það hefur tafist með þessum hætti? Jafnframt er óskað eftir skriflegum svörum um það hver staðan er á hjólreiðaáætlun Reykjavíkurborgar 2015-2020? Hvenær fer vinna af stað við næstu hjólreiðaáætlun og hverjir munu skipa stýrihóp um málefnið?

    Frestað.

  17. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu,          Mál nr. US200134

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að ekki verði birt hvorki í dagskrám eða fundargerðum nöfn þeirra sem senda inn athugasemdir eða kvartanir vegna skipulagsmála. Það er víst algengt er í skipulags- og samgönguráði að nöfn þeirra sem senda inn athugasemdir eru birt í dagskrá. Að birta nöfn þeirra sem senda inn athugasemdir telur fulltrúi Flokks fólksins vera óþarfi. Ef horft er til nafnabirtinga þeirra sem senda inn kærur þá eru þau gögn iðulega merkt trúnaðargögn. Því skýtur skökku við að sjá að nöfn þeirra sem senda inn athugasemdir eru birt. Hver er munurinn á þessu tvennu þegar kemur að reglum um birtingu nafna? Hér hlýtur að þurfa að gæta jafnræðis. Tími kann að vera kominn að reglur og samþykktir sem lúta að þessu atriði verði endurskoðaðar. Vel kann að vera að þær séu orðnar barn síns tíma. Oft er um að ræða viðkvæm skipulagsmál. Skipulagsmál geta t.d. verið mjög tilfinningaleg fyrir suma. 

    Frestað.

  18. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn,          Mál nr. US200135

    Nöfn þeirra sem sendu inn athugasemdir vegna staðsetninga smáhýsa hafa verið birt í dagskrá fyrir fundinn. Þetta er sagt vera venja í samgöngu- og skipulagsráði. Fulltrúi Flokks fólksins spyr hvort það sé með leyfi aðila? Einnig er spurt hvort þetta rými við persónuverndarlög ? Kærur eru t.d. merktar sem trúnaðargögn. Hver er munurinn á þessu tvennu, kærur vs. athugasemdir þegar kemur að reglum um birtingu nafna í dagskrá? Hvernig er fjallað um nafnabirtingar innsendra mála í reglum og samþykktum borgarinnar?Flokkur fólksins vill árétta að mikilvægt er að hafa í huga að það er ekki víst að fólk sem sendir inn athugasemdir og umsagnir vilji að nöfn þeirra séu birt í dagskrá eða fundargerðum. Skipulagsmál eru fyrir mörgum afar tilfinningaleg mál.

    Frestað.

Fundi slitið klukkan 13:17

Pawel Bartoszek Hildur Björnsdóttir