Skipulags- og samgönguráð - Fundur nr. 36

Skipulags- og samgönguráð

Ár 2019, föstudaginn 10. maí kl. 10:06, mun skipulags- og samgönguráð Reykjavíkur halda 36. fund sinn. Fundurinn var sameiginlegur með umhverfis- og heilbrigðisráði og er 21. fundur þess. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð. Ráðssal
Viðstödd voru: Sigurborg Ó. Haraldsdóttir, Gunnlaugur Bragi Björnsson, Kristín Soffía Jónsdóttir, Hildur Björnsdóttir, Valgerður Sigurðardóttir, Ólafur Kr. Guðmundsson og áheyrnarfulltrúarnir Daníel Örn Arnarsson, Baldur Borgþórsson, Ásgerður Jóna Flosadóttir, Líf Magneudóttir, Inga María Hlíðar Thorsteinson, Marta Guðjónsdóttir og Vigdís Hauksdóttir. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Hreinn Ólafsson, Guðmundur B. Friðriksson, Ámundi V. Brynjólfsson, Hjalti J. Guðmundsson, Árný Sigurðardóttir, Ásdís Ásbjörnsdóttir og Marta Grettisdóttir. Fundarritari var Glóey Helgudóttir Finnsdóttir. 

Þetta gerðist:

  1. Skipulags- og samgönguráð, áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins. 
             Mál nr. US190158

    Lagt fram bréf forstætisnefndar dags. 7. maí 2019 þar sem tilkynnt er að Ásgerður Jóna Flosadóttir tekur sæti sem áheyrnarfulltrúi í skipulags- og samgönguráði í stað Þórs Elís Pálssonar 

  2. Umhverfis- og skipulagssvið, Fjárhagsáætlun 2020-2024, skuldbindingar og áhættur í rekstri umhverfis- og skipulagssviðs.         Mál nr. US190148

    Kynntar skuldbindingar og áhættur í rekstri umhverfis- og skipulagssviðs. 

    -    Kl. 10:18 tekur Sabine Leskopf sæti á fundinum. 
    -    Kl. 10:24 tekur fulltrúi atvinnulífsins Ólafur Jónsson sæti á fundinum.

    Kynnt.

  3. Umhverfis- og skipulagssvið, Fjárhagsáætlun 2020-2024, Fjárfestingaáætlun umhverfis- og skipulagssviðs         Mál nr. US190149

    Kynnt drög að fjárfestingaáætlun umhverfis- og skipulagssviðs. 

    Kynnt.

  4. Umhverfis- og skipulagssvið, Fjárhagsáætlun 2020-2024 Jafnréttisskimun á tillögum út frá kynjaðri fjárhags- og starfsáætlun         Mál nr. US190151

    Kynnt jafnréttisskimun á tillögum út frá kynjaðri fjárhags- og starfsáætlun

    Steinunn Rögnvaldsdóttir sérfræðingur tekur sæti á fundinum undir þessum lið. 

    Kynnt.

  5. Umhverfis- og skipulagssvið, Áætlun um greiningu þjónustuþátta út frá kynjaðri fjárhags- og starfsáætlun         Mál nr. US190150

    Lögð fram áætlun um greiningu þjónustuþátta út frá kynjaðri fjárhags- og starfsáætlun,.

    -    Kl. 11:37 tekur Hjálmar Sveinsson sæti á fundinum. 

    Staðfest með fjórum atkvæðum Fulltrúa Pírata, fulltrúa Samfylkingarinnar og fulltrúa Viðreisnar, fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðsluna.

    Kl. 11:53 víkur Gunnlaugur Bragi Björnsson af fundi.

    Steinunn Rögnvaldsdóttir sérfræðingur tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

  6. Umhverfis- og skipulagssvið, ársuppgjör 2018         Mál nr. US190139

    Kynnt rekstraryfirlit Umhverfis- og skipulagssviðs 2018, ásamt verkstöðuskýrsla nýframkvæmda 2018. 

    Kynnt.

  7. Umhverfis- og skipulagssvið, Viðhorfskönnun 2019         Mál nr. US190102

    Kynntar helstu niðurstöður úr viðhorfskönnun umhverfis- og skipulagssviðs 2019. 
    Kynnt.

  8. Reglur um gerð og framkvæmd fjárhagsáætlunar hjá Reykjavikurborg .,          Mál nr. US190155

    Lagðar fram til kynningar reglur um gerð og framkvæmd fjárhagsáætlunar hjá Reykjavikurborg.

  9. Tíma- og verkáætlun, vegna undirbúnings og afgreiðslu fjárhagsáætlunar´.         Mál nr. US190156

    Lögð fram til kynningar tíma- og verkáætlun vegna undirbúnings og afgreiðslu fjárhagsáætlunar og fimm ára áætlunar 2020-2024.

  10. Fyrirspurn fulltrúa Miðflokksins, varðandi kynjaða fjárhags- og starfsáætlun         Mál nr. US190159
    Lögð fram fyrirspurn fulltrúa Miðflokksins í 8 liðum, varðandi jafnréttisskimun á tillögum út frá kynjaðri fjárhags- og starfsáætlun.

    1. Hvenær var byrjað með jafnréttisskimun á tillögum út frá kynjaðri fjárhags- og starfsáætlun hjá Reykjavíkurborg? 2. Hvað eru mörg stöðugildi sem sjá um jafnréttisskimun hjá Reykjavíkurborg á tillögum út frá kynjaðri fjárhags- og starfsáætlun? 3. Hver metur hvaða verkefni fara í jafnréttisskimun eða fara öll verkefni í skimun? 4. Er til skýrsla sem sýnir árangur verkefnisins, ef svarið er jákvætt þá er óskað eftir að hún verði send borgarfulltrúum? 5. Hefur jafnréttisskimunin einhvern tímann leitt til þess að fjárhags- og starfsáætlun hafi verið breytt? 6. Ef svarið er já - hvaða verkefni voru það og voru þau til hækkunar eða lækkunar á fjárheimildum? 7. Hvað kostar verkefnið á ári? 8. Hvað er áætlað að jafnréttisskimunin komi til með að kosta samkvæmt fjárhagsáætlun borgarinnar 2020 - 2024 sundurliðað eftir árum?
    Frestað.