Öldungaráð
Ár 2026, föstudaginn 4. september var haldinn 96. fundur öldungaráðs. Fundurinn var aukafundur og haldinn á Höfðatorgi, Prestshúsi og hófst kl. 13.06. Fundinn sátu eftirfarandi fulltrúar: Albert Guðmundsson, Björn Gíslason, Steinunn Gyðu-og Guðjónsdóttir, Sigurður Á. Sigurðsson, Fanney Sigurbjörg Jóhannsdóttir og Pálmi V. Jónsson. Einnig sat fundinn eftirfarandi starfsfólk: Anna Kristinsdóttir, Berglind Magnúsdóttir og Valgerður Jónsdóttir sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning menningar- og íþróttasviðs á skýrslu starfshóps um frístundakort fyrir 67 ára og eldri. Lagt fram bréf menningar- og íþróttasviðs dags. 28. ágúst 2026 með afgreiðslu íþrótta- og útilífsráðs um að vísa skýrslunni til umsagnar öldungaráðs. MIR26060016
Umsögn öldungaráðs er samþykkt.
Vísað til íþrótta- og útilífsráðs.Jóhanna Garðarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Samfylkingarinnar tekur heilshugar undir þau markmið sem hér eru lögð fram um að jafna tækifæri til þátttöku í heilsueflingu og félagsstarfi með því að draga úr fjárhagslegum hindrunum. Óhjákvæmilegt er þó að skoða þessar áætlanir í samhengi við nýlega hækkun á máltíðum fyrir lífeyrisþega úr 1100 í 1900 krónur – eða um 73%. Máltíðaþjónustan stuðlar að góðri næringu og félagslegu samneyti hjá viðkvæmum hópi eldra fólks. Hjá reglulegum notanda þjónustunnar getur útgjaldaaukningin orðið meiri en sem nemur fyrirhuguðum frístundastyrk. Það skýtur skökku við að frístundakortið sé kynnt sem nýtt félagslegt úrræði þegar gjald fyrir annað úrræði með svipuð markmið hækkar gríðarlega. Jafnframt er rétt að vara við aukinni notkun tekjutenginga. Markmið þeirra er að sjálfsögðu að beina stuðningi til þeirra sem þurfa mest á honum að halda en þegar sífellt fleiri þjónustuþættir verða tekjutengdir getur lítil tekjuhækkun leitt til þess að mörg réttindi falli niður samtímis. Nú miðast máltíðaþjónustan og heimaþrif við eitt viðmið en afsláttur af fasteignagjöldum lífeyrisþega og frístundakort við önnur. Þetta getur skapað rugling og ósamræmi. Samkvæmt tillögunni gæti einstaklingur með 490.000 krónur í mánaðartekjur fengið frístundakort en ekki lækkað matarverð, en hjón með 400.000 kr hvort gætu fengið lækkað matarverð en ekki frístundakort.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á drögum að samþykkt fyrir notendaráð fatlaðs fólks og öldungaráð Reykjavíkurborgar. MSS26080081
Fulltrúi Samfylkingarinnar og Félags eldri borgara leggja fram svohljóðandi bókun:
Minnt er á að tilgangur öldungaráðsins samkvæmt drögum að samþykktum sem kynntar voru á fundinum er að það sé borgarstjórn, nefndum og ráðum Reykjavíkurborgar til ráðgjafar um málefni og hagsmuni borgarbúa sem eru 67 ára og eldri. Því er mikilvægt þegar teknar eru ákvarðanir sem hafa mikil áhrif á stóran hóp eldri Reykvíkinga að þær séu raunverulega bornar undir ráðið áður en þær eru teknar. Þetta á við um þegar máltíðir fyrir lífeyrisþega voru nýlega hækkaðar um 73% eða úr 1100 krónum í 1900 krónur en þessa ákvörðun hefði verið eðlilegt að bera undir öldungaráð áður en hún var tekin.
Fundi slitið kl. 14:06
Albert Guðmundsson Björn Gíslason
Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir Sigurður Á. Sigurðsson
Fanney Sigurbjörg Jóhannsdóttir Pálmi V. Jónsson
PDF útgáfa fundargerðar
fundargerð öldungaráðs 4.9.2026