Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar - Fundur nr. 97

Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar

Ár 2021, miðvikudaginn 24. febrúar, var haldinn 97. fundur neyðarstjórnar Reykjavíkur. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 8:30. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Dís Sigurgeirsdóttir, Árný Sigurðardóttir, Lóa Birna Birgisdóttir, Óskar J. Sandholt, Bjarni Brynjólfsson, Helgi Grímsson, Þorsteinn Gunnarsson, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Ólöf Örvarsdóttir, Óli Jón Hertervig, Ebba Schram, Ómar Einarsson, Arna Schram, Helga Benediktsdóttir, Anna Kristinsdóttir og Dagný Ingadóttir. Einnig sátu fundinn Jón Viðar Matthíasson og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Kynntar voru smittölur 15. til 23. febrúar 2021, hversu margir greindust jákvæðir af COVID-19 á tímabilinu, hlutfall landamærasmita, hlutfall innan sóttkvíar og hlutfall höfuðborgarsvæðisins.

  2. Fram fer kynning á nýrri reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar sem gildir til 17. mars og reglugerð um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar til 30. apríl. 

  3. Fram fer umræða um mögulegar breytingar á fyrirkomulagi vegna fjarvinnu starfsmanna Reykjavíkurborgar, takmörkunum í mötuneytum og stjórnsýsluhúsum í kjölfar nýrra fjöldatakmarkana. 

Fundi slitið 9:05.

PDF útgáfa fundargerðar
Neyðarstjórn Reykjavíkur 24. febrúar 2021 - prentvæn útgáfa