Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar - Fundur nr. 96

Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar

Ár 2021, mánudaginn 15. febrúar, var haldinn 96. fundur neyðarstjórnar Reykjavíkur. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 9:30. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Regína Ásvaldsdóttir, Árný Sigurðardóttir, Lóa Birna Birgisdóttir, Óskar J. Sandholt, Bjarni Brynjólfsson, Helgi Grímsson, Þorsteinn Gunnarsson, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Ólöf Örvarsdóttir, Óli Jón Hertervig, Ebba Schram, Ómar Einarsson, Arna Schram, Halldóra Káradóttir, Anna Kristinsdóttir og Dagný Ingadóttir. Einnig sátu fundinn Jón Viðar Matthíasson og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Kynntar voru smittölur 8. til 14. febrúar 2021, hversu margir greindust jákvæðir af COVID-19 síðasta sólarhring, hlutfall landamærasmita, hlutfall innan sóttkvíar og hlutfall höfuðborgarsvæðisins.

  2. Lögð fram tilkynning frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis dags. 12. febrúar sl. þar sem fram kemur að almannavarnastig fært úr neyðarstigi í hættustig vegna COVID-19.

  3. Fram fer umræða um fyrirkomulag og tíðni sótthreinsunar og þrifa hjá Reykjavíkurborg m.a. í skólahúsnæði vegna breytingar af neyðarstigi yfir á hættustig. 

  4. Kynnt var staða málaflokka á fagsviðum: 

    a.    Regína Ásvaldsdóttir fer yfir stöðu mála á velferðarsviði m.a. vegna bólusetninga starfsfólks hjúkrunarheimila og starfsfólks í heimahjúkrun.
    b.    Helgi Grímsson fer yfir stöðu mála á skóla- og frístundasviði.
    c.    Ómar Einarsson fer yfir stöðu mála á íþrótta- og tómstundasviði.
    d.    Ólöf Örvarsdóttir fer yfir stöðu mála á umhverfis- og skipulagssviði.
    e.    Arna Schram fer yfir stöðu mála á menningar- og ferðamálasviði.

Fundi slitið 9:50.

PDF útgáfa fundargerðar
Neyðarstjórn Reykjavíkur 15. febrúar 2021 - prentvæn útgáfa