Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar - Fundur nr. 94

Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar

Ár 2021, mánudaginn 1. febrúar, var haldinn 94. fundur neyðarstjórnar Reykjavíkur. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 9:36. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Regína Ásvaldsdóttir, Árný Sigurðardóttir, Lóa Birna Birgisdóttir, Óskar J. Sandholt, Bjarni Brynjólfsson, Helgi Grímsson, Þorsteinn Gunnarsson, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Ólöf Örvarsdóttir, Óli Jón Hertervig, Ebba Schram, Ómar Einarsson, Arna Schram, Halldóra Káradóttir, Anna Kristinsdóttir og Dagný Ingadóttir. Einnig sátu fundinn Jón Viðar Matthíasson og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Kynntar voru smittölur 25. janúar til 1. febrúar 2021, hversu margir greindust jákvæðir af COVID-19 síðasta sólarhring, hlutfall landamærasmita, hlutfall innan sóttkvíar og hlutfall höfuðborgarsvæðisins.

  2. Kynnt var staða málaflokka á fagsviðum: 

    a.    Regína Ásvaldsdóttir fer yfir stöðu mála á velferðarsviði og stöðu bólusetninga á starfsstöðvum sviðsins.
    b.    Helgi Grímsson fer yfir stöðu mála á skóla- og frístundasviði.
    c.    Arna Schram fer yfir stöðu mála á menningar- og ferðamálasviði.

Fundi slitið 9:49

PDF útgáfa fundargerðar
Neyðarstjórn Reykjavíkur 1. febrúar 2021 - prentvæn útgáfa