Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar - Fundur nr. 93

Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar

Ár 2021, mánudaginn 25. janúar, var haldinn 93. fundur neyðarstjórnar Reykjavíkur. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 9:30. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Regína Ásvaldsdóttir, Árný Sigurðardóttir, Lóa Birna Birgisdóttir, Óskar J. Sandholt, Bjarni Brynjólfsson, Helgi Grímsson, Þorsteinn Gunnarsson, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Helga Björk Laxdal, Óli Jón Hertervig, Ebba Schram, Ómar Einarsson, Arna Schram, Halldóra Káradóttir, Anna Kristinsdóttir og Dagný Ingadóttir. Einnig sat fundinn Jón Viðar Matthíasson.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Kynntar voru bráðabirgðasmittölur 24. janúar 2021, hversu margir greindust jákvæðir af COVID-19 síðasta sólarhring, hlutfall landamærasmita, hlutfall innan sóttkvíar og hlutfall höfuðborgarsvæðisins.

  2. Kynnt var staða málaflokka á fagsviðum: 

    a.    Helgi Grímsson fer yfir stöðu mála á skóla- og frístundasviði, fjölda smitaðra barna og starfsmanna í grunn- og leikskólum og fjölda í sóttkví. Samþykkt að gera ráð fyrir óbreyttum opnunartíma leikskóla á gildistíma reglugerðar um takmarkanir á skólahaldi.
    b.    Regína Ásvaldsdóttir fer yfir stöðu mála á velferðarsviði.
    c.    Ómar Einarsson fer yfir stöðu mála á íþrótta- og tómstundasviði.
    d.    Arna Schram fer yfir stöðu mála á menningar- og ferðamálasviði. 
    e.    Ólöf Örvarsdóttir fer yfir stöðu mála á umhverfis- og skipulagssviði.

Fundi slitið 9:48

PDF útgáfa fundargerðar
Neyðarstjórn Reykjavíkur 25. janúar 2021 - prentvæn útgáfa