Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar - Fundur nr. 92

Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar

Ár 2021, mánudaginn 18. janúar, var haldinn 92. fundur neyðarstjórnar Reykjavíkur. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 9:31. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Regína Ásvaldsdóttir, Árný Sigurðardóttir, Lóa Birna Birgisdóttir, Óskar J. Sandholt, Bjarni Brynjólfsson, Helgi Grímsson, Þorsteinn Gunnarsson, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Helga Björk Laxdal, Óli Jón Hertervig, Ebba Schram, Ómar Einarsson, Arna Schram, Halldóra Káradóttir, Anna Kristinsdóttir og Dagný Ingadóttir. Einnig sátu fundinn Jón Viðar Matthíasson og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. 
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Kynntar voru bráðabirgðasmittölur 17. janúar 2021, hversu margir greindust jákvæðir af COVID-19 síðasta sólarhring, hlutfall landamærasmita, hlutfall innan sóttkvíar og hlutfall höfuðborgarsvæðisins.

  2. Rætt um framkvæmd bólusetninga á höfuðborgarsvæðinu og upplýst um að Reykjavíkurborg mun veita heilsugæslunni afnot af húsnæði Korpuskóla til bólusetninga ef þörf krefur.

  3. Kynnt var staða málaflokka á fagsviðum: 

    a.    Regína Ásvaldsdóttir fer yfir stöðu mála á velferðarsviði. 
    b.    Helgi Grímsson fer yfir stöðu mála á skóla- og frístundasviði, fjölda smitaðra barna og starfsmanna í grunn- og leikskólum og fjölda í sóttkví. 
    c.    Ómar Einarsson fer yfir stöðu mála á íþrótta- og tómstundasviði.
    d.    Arna Schram fer yfir stöðu mála á menningar- og ferðamálasviði. 

Fundi slitið 9:48

PDF útgáfa fundargerðar
Neyðarstjórn Reykjavíkur 18. janúar 2021 - prentvæn útgáfa