Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar - Fundur nr. 91

Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar

Ár 2021, mánudaginn 11. janúar, var haldinn 91. fundur neyðarstjórnar Reykjavíkur. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 9:33. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Anna Kristinsdóttir, Arna Schram, Árný Sigurðardóttir, Ebba Schram, Bjarni Brynjólfsson, Dagný Ingadóttir, Helgi Grímsson, Halldóra Káradóttir, Ómar Einarsson, Lóa Birna Birgisdóttir, Regína Ásvaldsdóttir, Óli Jón Hertervig, Óskar Sandholt, Ólöf Örvarsdóttir, Pétur Ólafsson, Þorsteinn Gunnarsson og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir.
Einnig sátu fundinn Jón Viðar Matthíasson og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. 
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Kynntar voru bráðabirgðasmittölur 10. janúar 2021, hversu margir greindust jákvæðir af COVID-19 síðasta sólarhring, hlutfall landamærasmita, hlutfall innan sóttkvíar og hlutfall höfuðborgarsvæðisins.

  2. Rætt um endurkomu starfsfólks Reykjavíkurborgar til vinnu eftir jólaleyfi erlendis og framkvæmd reglna um sóttkví. Rætt um mikilvægi þess að uppfæra allar upplýsingasíður á öðrum tungumálum en íslensku. 

  3. Rætt um ákvæði og breytingar á starfsemi Reykjavíkurborgar vegna nýrrar reglugerðar um takmörkun á samkomum vegna farsóttar sem taka mun gildi 13. janúar nk. Rætt var um ákvæði vegna fjöldatakmarkana í listasöfnum, ákvæði um líkamsrækt og íþróttaiðkun, breytingar á fyrirkomulagi funda nefnda og ráða og endurskoðun reglna um fjölda gesta í stjórnsýsluhúsum.

Fundi slitið 9:56

PDF útgáfa fundargerðar
Neyðarstjórn Reykjavíkur 11. janúar 2021 - prentvæn útgáfa