Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar - Fundur nr. 89

Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar

Ár 2020, miðvikudaginn 30. desember, var haldinn 89. fundur neyðarstjórnar Reykjavíkur. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 9:00. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Anna Kristinsdóttir, Ebba Schram, Bjarni Brynjólfsson, Dagný Ingadóttir, Helgi Grímsson, Halldóra Káradóttir, Ómar Einarsson, Lóa Birna Birgisdóttir, Regína Ásvaldsdóttir, Óli Jón Hertervig, Óskar Sandholt, Árný Sigurðardóttir, Ólöf Örvarsdóttir og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir.
Einnig sat Jón Viðar Matthíasson fundinn. 
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Kynntar voru bráðabirgðasmittölur 29. desember 2020, hversu margir greindust jákvæðir af COVID-19 síðasta sólarhring, hlutfall landamærasmita, hlutfall innan sóttkvíar og hlutfall höfuðborgarsvæðisins.

  2. Fram fer umræða um framkvæmd bólusetninga á hjúkrunarheimilum og búsetukjörnum í Reykjavík og almennt um framkvæmd bólusetningar á höfuðborgarsvæðinu í janúar. 

  3. Kynntar voru breytingar á reglugerð um takmarkanir á skólahaldi vegna farsóttar og áhrifa þeirra á starf grunnskóla í Reykjavík.

  4. Fram fer umræða um uppfærða hólfaskiptingu á Höfðatorgi og Ráðhúsi eftir áramót og hvort unnt verður að fjölga starfsmönnum á starfsstöðum þar. Rætt um sérreglur vegna þeirra starfsmanna sem þegar hafa fengið Covid. 

  5. Kynnt var staða málaflokka á fagsviðum: 

    a.    Hegli Grímsson fer yfir stöðu mála á skóla- og frístundasviði. 
    b.    Regína Ásvaldsdóttir fer yfir stöðu mála á velferðarsviði. 
    c.    Ólöf Örvarsdóttir fer yfir stöðu mála á umhverfis- og skipulagssviði. 
    d.    Ómar Einarsson fer yfir stöðu mála á íþrótta- og tómstundasviði. 

Fundi slitið 9:16.

PDF útgáfa fundargerðar
Neyðarstjórn Reykjavíkur 30. desember 2020 - prentvæn útgáfa