Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar - Fundur nr. 88

Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar

Ár 2020, mánudaginn 21. desember, var haldinn 88. fundur neyðarstjórnar Reykjavíkur. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 9:30. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Anna Kristinsdóttir, Ebba Schram, Bjarni Brynjólfsson, Dagný Ingadóttir, Helgi Grímsson, Halldóra Káradóttir, Ómar Einarsson, Lóa Birna Birgisdóttir, Regína Ásvaldsdóttir, Óli Jón Hertervig, Óskar Sandholt, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir og Þorsteinn Gunnarsson. 
Einnig sátu fundinn Jón Viðar Matthíasson og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. 
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Kynntar voru bráðabirgðasmittölur 20. desember 2020, hversu margir greindust jákvæðir af COVID-19 síðasta sólarhring, hlutfall landamærasmita, hlutfall innan sóttkvíar og hlutfall höfuðborgarsvæðisins.

  2. Fram fer umræða um nýtt afbrigði kórónuveirunnar sem greinst hefur i Bretlandi. 

  3. Fram fer umræða um framkvæmd bólusetningar á höfuðborgarsvæðinu. 

  4. Fram fer umræða um uppfærða hólfaskiptingu á Höfðatorgi og Ráðhúsi eftir áramót og hvort unnt verður að fjölga starfsmönnum á starfsstöðum þar. Rætt um sérreglur vegna þeirra starfsmanna sem þegar hafa fengið Covid. 

  5. Kynnt var staða málaflokka á fagsviðum: 

    a.    Ómar Einarsson fer yfir stöðu mála á íþrótta- og tómstundasviði, aðallega vegna framkvæmd fjöldatakmarkana í sundlaugum. 

Fundi slitið 9:55.

PDF útgáfa fundargerðar
Neyðarstjórn Reykjavíkur 21. desember 2020 - prentvæn útgáfa