Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar - Fundur nr. 87

Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar

Ár 2020, miðvikudaginn 14. desember, var haldinn 87. fundur neyðarstjórnar Reykjavíkur. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 9:30. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Anna Kristinsdóttir, Arna Schram, Árný Sigurðardóttir, Bjarni Brynjólfsson, Ebba Schram, Dagný Ingadóttir, Helgi Grímsson, Ómar Einarsson, Lóa Birna Birgisdóttir, Regína Ásvaldsdóttir, Óli Jón Hertervig, Óskar Sandholt, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir og Þorsteinn Gunnarsson. 
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Kynntar voru bráðabirgðasmittölur 13. desember 2020, hversu margir greindust jákvæðir af COVID-19 síðasta sólarhring, hlutfall landamærasmita, hlutfall innan sóttkvíar og hlutfall höfuðborgarsvæðisins.

  2. Kynnt var staða málaflokka á fagsviðum: 

    a.    Regína Ásvaldsdóttir fer yfir stöðu mála á velferðarsviði. 
    b.    Helgi Grímsson upplýsir um stöðu mála í grunn- og leikskólum. 
    c.    Arna Schram fer yfir stöðu mála á menningar- og ferðamálasviði, vegna m.a. hópamyndun í miðborgunni. Árny Sigurðardóttir kynnir ákvæði reglna um útiviðburði og grímuskyldu. 
    d.    Ómar Einarsson fer yfir stöðu mála á íþrótta- og tómstundasviði, aðallega vegna opnunar sundalauga fyrir helgi og hvernig gekk að framfylgja fjöldatakmörkunum. 

Fundi slitið 9:50.

PDF útgáfa fundargerðar
Neyðarstjórn Reykjavíkur 14. desember 2020 - prentvæn útgáfa