Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar - Fundur nr. 86

Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar

Ár 2020, miðvikudaginn 11. desember, var haldinn 86. fundur neyðarstjórnar Reykjavíkur. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 9:00. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Anna Kristinsdóttir, Árný Sigurðardóttir, Bjarni Brynjólfsson, Ebba Schram, Dagný Ingadóttir Halldóra Káradóttir, Helgi Grímsson, Huld Ingimarsdóttir, Lóa Birna Birgisdóttir, Regína Ásvaldsdóttir, Óli Jón Hertervig, Óskar Sandholt, Ómar Einarsson, Pétur Ólafsson og Þorsteinn Gunnarsson. 
Einnig sat fundinn Jón Viðar Matthíasson. 
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Kynntar voru bráðabirgðasmittölur 10. desember 2020, hversu margir greindust jákvæðir af COVID-19 síðasta sólarhring, hlutfall landamærasmita, hlutfall innan sóttkvíar og hlutfall höfuðborgarsvæðisins.

  2. Kynnt var staða málaflokka á fagsviðum: 

    a.    Ómar Einarsson fer yfir stöðu mála á íþrótta- og tómstundasviði vegna opnun sundlauga. Rætt um opnunartíma um jól og áramót. 
    b.    Regína Ásvaldsdóttir fer yfir stöðu mála á velferðarsviði. 
    c.    Helgi Grímsson upplýsir um stöðu mála í grunn- og leikskólum. 
    d.    Ólöf Örvarsdóttir fer yfir stöðu mála á umhverfis- og skipulagssviði, rætt um heimildir til að halda áramótabrennur. 

  3. Rætt um undirbúning vegna bólusetninga og farið yfir þau atriði sem verið er að vinna í samráði með Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Almannavörnum. Búið að bjóða aðstöðu til bólusetninga í grunnskólum og verður málið áfram unnið með hinum sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu.

Fundi slitið 9:50.

PDF útgáfa fundargerðar
Neyðarstjórn Reykjavíkur 11. desember 2020 - prentvæn útgáfa