Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar - Fundur nr. 85

Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar

Ár 2020, miðvikudaginn 9. desember, var haldinn 85. fundur neyðarstjórnar Reykjavíkur. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 8:30. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Anna Kristinsdóttir, Árný Sigurðardóttir, Bjarni Brynjólfsson, Ebba Schram, Dagný Ingadóttir Halldóra Káradóttir, Helgi Grímsson, Lóa Birna Birgisdóttir, Óli Jón Hertervig, Ólöf Örvarsdóttir, Regína Ásvaldsdóttir, Óskar Sandholt, Ómar Einarsson, Pétur Ólafsson, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir og Þorsteinn Gunnarsson. 
Einnig sat fundinn Jón Viðar Matthíasson. 
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Kynntar voru bráðabirgðasmittölur 8. desember 2020, hversu margir greindust jákvæðir af COVID-19 síðasta sólarhring, hlutfall landamærasmita, hlutfall innan sóttkvíar og hlutfall höfuðborgarsvæðisins.

  2. Rætt um ákvæði nýju sóttvarnarreglugerðarinnar sem tekur gildi 10. desember. Aðalbreytingarnar varða opnun sundlaugarnar og opnun ylstrandar. Stjórnsýsluhúsin opna líka þann dag.  

  3. Kynnt var staða málaflokka á fagsviðum: 

    a.    Ómar Einarsson fer yfir stöðu mála á íþrótta- og tómstundasviði vegna opnun sundlauga. 
    b.    Regína Ásvaldsdóttir fer yfir stöðu mála á velferðarsviði. Rætt um ákvæði reglugerðarinnar varðandi stöðu eldri borgara á hjúkrunarheimilum yfir jólahátíðina.
    c.    Helgi Grímsson upplýsir um stöðu mála í grunn- og leikskólum. 
    d.    Ólöf Örvarsdóttir fer yfir stöðu mála á umhverfis- og skipulagssviði, rætt um heimildir til að halda áramótabrennur. 

  4. Rætt um undirbúning vegna bólusetninga og farið yfir þau atriði sem verið er að vinna í samráði með Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Almannavörnum. Búið að bjóða aðstöðu til bólusetninga í grunnskólum og verður málið áfram unnið með hinum sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu.

Fundi slitið 8:50

PDF útgáfa fundargerðar
Neyðrastjórn Reykjavíkur 9.12.2020 - prentvæn útgáfa