Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar - Fundur nr. 81

Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar

Ár 2020, mánudaginn 23. nóvember, var haldinn 81. fundur neyðarstjórnar Reykjavíkur. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 9:03. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Anna Kristinsdóttir, Árný Sigurðardóttir, Bjarni Brynjólfsson, Ebba Schram, Dagný Ingadóttir, Halldóra Káradóttir, Helgi Grímsson, Huld Ingimarsdóttir, Lóa Birna Birgisdóttir, Óli Jón Hertervig, Ólöf Örvarsdóttir, Regína Ásvaldsdóttir, Óskar Sandholt, Ómar Einarsson og Þorsteinn Gunnarsson. 
Einnig sat fundinn Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. 
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Kynntar voru bráðabirgðasmittölur 22. nóvember 2020, hversu margir greindust jákvæðir af COVID-19 síðasta sólarhring, hlutfall landamærasmita, hlutfall innan sóttkvíar og hlutfall höfuðborgarsvæðisins.

  2. Kynnt var staða málaflokka á fagsviðum: 

    a.    Helgi Grímsson upplýsir um stöðu mála í grunn- og leikskólum, aðallega varðandi mötuneyti grunnskóla og fjölda nemenda í mat hverju sinni. 
    b.    Regína Ásvaldsdóttir upplýsir um stöðu mála á velferðarsviði. Engar breytingar um helgina en áhyggjur af kostnaði m.a. vegna aukinna sóttvarna. Ákall um aukinn opnunartíma sundstaða (opna fyrr) sem hefur komið upp í samtölum við eldri borgara. Það þarf að undirbúa þjónustu við jaðarhópa vegna mögulegrar fjórðu bylgju. 
    c.    Ómar Einarsson fer yfir stöðu mála í íþróttamálum, barnastarfið er komið af stað en þrýstingur er á að opna afreksstarfið. 
    d.    Huld Ingimarsdóttir upplýsir um stöðu mála á menningar- og ferðamálasviði og opnun menningarhúsa í síðustu viku.

Fundi slitið 9:19

PDF útgáfa fundargerðar
Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar 23.11.2020 - prentvæn útgáfa