Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar - Fundur nr. 79

Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar

Ár 2020, mánudaginn 16. nóvember, var haldinn 79. fundur neyðarstjórnar Reykjavíkur. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 09:35. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Þorsteinn Gunnarsson, Regína Ásvaldsdóttir, Ólöf Örvarsdóttir, Huld Ingimarsdóttir, Anna Kristinsdóttir, Árný Sigurðardóttir, Bjarni Brynjólfsson, Óskar Sandholt, Ebba Schram, Helgi Grímsson, Ómar Einarsson, Halldóra Káradóttir, Óli Jón Hertervig, Lóa Birna Birgisdóttir, Dagný Ingadóttir, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir og Pétur Krogh Ólafsson. 
Einnig sátu fundinn Jón Viðar Matthíasson og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. 
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Kynntar voru bráðabirgðasmittölur 15. nóvember 2020, hversu margir greindust jákvæðir af COVID-19 síðasta sólarhring, hlutfall landamærasmita, hlutfall innan sóttkvíar og hlutfall höfuðborgarsvæðisins.

  2. Jón Viðar Matthíasson fór yfir stöðuna á vettvangi almannavarnarnefndar. 

  3. Kynnt var staða málaflokka á fagsviðum: 
    a.    Ómar Einarsson upplýsir um stöðu mála á íþrótta- og tómstundasviði og vinnu sem fram fór um helgina við túlkun á nýjum reglugerðum varðandi íþróttastarf. 
    b.    Helgi Grímsson upplýsir um stöðu mála í grunn- og leikskólum og frístundaheimilum og fer yfir nýjar reglur vegna hólfana og grímuskyldu. 
    c.    Regína Ásvaldsdóttir upplýsir um stöðu mála á velferðarsviði og fer yfir stöðu mála varðandi bakvarðarverkefni Reykjavíkurborgar. 
    d.    Huld Ingimarsdóttir upplýsir um stöðu mála á menningar- og ferðamálasviði og upplýsir að menningarhús Reykjavíkur munu opna á miðvikudaginn kemur. 

  4. Rætt um fyrirkomulag sóttkvíar hjá fólki sem er væntanlegt til landsins í jólafrí, margir munu koma fyrr en venjulega.

Fundi slitið 10:05

PDF útgáfa fundargerðar
Neyðarstjórn Reykjavíkur 16.11.2020 - prentvæn útgáfa