Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar - Fundur nr. 78

Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar

Ár 2020, föstudaginn 13. nóvember, var haldinn 78. fundur neyðarstjórnar Reykjavíkur. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 09:00. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Þorsteinn Gunnarsson, Regína Ásvaldsdóttir, Huld Ingimarsdóttir, Anna Kristinsdóttir, Óskar Sandholt, Ebba Schram, Helgi Grímsson, Ómar Einarsson, Halldóra Káradóttir, Óli Jón Hertervig, Lóa Birna Birgisdóttir, Dagný Ingadóttir, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir og Pétur Krogh Ólafsson. 
Einnig sat fundinn Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. 
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Kynntar voru bráðabirgðasmittölur 12. nóvember 2020, hversu margir greindust jákvæðir af COVID-19 síðasta sólarhring, hlutfall landamærasmita, hlutfall innan sóttkvíar og hlutfall höfuðborgarsvæðisins.

  2. Rætt um mögulegar tilslakanir á samkomutakmörkunum 17. nóvember sem geta haft áhrif á starfsemi Reykjavíkurborgar. Mögulegar breytingar verða kynntar í hádegi 13. nóvember.

  3. Kynnt var staða málaflokka á fagsviðum: 
    a.    Helgi Grímsson upplýsir um stöðu mála í grunn- og leikskólum.
    b.    Regína Ásvaldsdóttir upplýsir um stöðu mála á velferðarsviði. 
    c.    Ómar Einarsson upplýsir um stöðu mála á íþrótta- og tómstundasviði. 
    d.    Huld Ingimarsdóttir upplýsir um stöðu mála á menningar- og ferðamálasviði.
    e.    Þorsteinn Gunnarsson upplýsir um stöðu mála í Ráðhúsi.

  4. Næsti fundur neyðarstjórnar er áætlaður 16. nóvember, en aukafundur verður boðaður ef tilkynning dagsins hefur í för með sér breytingar á starfsemi Reykjavíkurborgar.

Fundi slitið 9:25

PDF útgáfa fundargerðar
Neyðarstjórn 13.11.2020 - prentvæn útgáfa