Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar - Fundur nr. 76

Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar

Ár 2020, föstudaginn 6. nóvember, var haldinn 76. fundur neyðarstjórnar Reykjavíkur. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 09:05. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Þorsteinn Gunnarsson, Regína Ásvaldsdóttir, Huld Ingimarsdóttir, Anna Kristinsdóttir, Óskar Sandholt, Ebba Schram, Árný Sigurðardóttir, Helgi Grímsson, Ómar Einarsson, Halldóra Káradóttir, Óli Jón Hertervig, Ólöf Örvarsdóttir, Bjarni Brynjólfsson, Lóa Birna Birgisdóttir, Dagný Ingadóttir og Pétur Krogh Ólafsson. 
Einnig sátu fundinn Jón Viðar Matthíasson og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. 
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Kynntar voru bráðabirgðasmittölur 5. nóvember 2020, hversu margir greindust jákvæðir af COVID-19 síðasta sólarhring, hlutfall landamærasmita, hlutfall innan sóttkvíar og hlutfall höfuðborgarsvæðisins. 

  2. Kynnt var staða málaflokka á fagsviðum: 
    a.    Helgi Grímsson upplýsir um stöðu mála í grunn- og leikskólum. 
    b.    Ólöf Örvarsdóttir upplýsir um stöðu mála á umhverfis- og skipulagssviði.
    c.    Ómar Einarsson upplýsir um stöðu mála á íþrótta- og tómstundasviði. 
    d.    Huld Ingimarsdóttir upplýsir um stöðu mála á menningar- og ferðamálasviði. 

  3. Kynnt voru helstu atriði sem fram komu á fundi almannavarnarnefndar höfuðborgarsvæðisins 6. nóvember 2020. 

  4. Fram fer umræða um starfsdag leik- og grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu 2. nóvember sl. 

  5. Fram fer umræða um kynningu á starfsemi og hlutverk almannavarna, sveitarfélaga og neyðarstjórna þegar lýst hefur verið yfir almannavarnaástandi sem fram fór á fundi borgarráðs 5. nóvember sl. 

  6. Kynnt var viðbragðsáætlun Reykjavíkurborgar frá 13. febrúar 2020 sem samþykkt var á fundi borgarráðs 5. nóvember sl. 
    Viðbragðsáætlunin verður send Ríkislögreglustjóra. 

Fundi slitið 9:35

PDF útgáfa fundargerðar
Neyðarstjórn Reykjavíkur 6.11.2020 - prentvæn útgáfa