Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar - Fundur nr. 120

Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar

Ár 2022, mánudaginn 24. janúar, var haldinn 120. fundur neyðarstjórnar Reykjavíkur. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 09:32. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Ólöf Örvarsdóttir, Árný Sigurðardóttir, Ómar Einarsson, Elín Blöndal, Regína Ásvaldsdóttir, Helgi Grímsson, Óli Jón Hertervig, Óskar Jörgen Sandholt, Ebba Schram, Halldóra Káradóttir, Dagný Ingadóttir, Pétur Ólafsson og Þorsteinn Gunnarsson. Einnig sat fundinn Jón Viðar Matthíasson og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. 
Fundarritari var Helga Björk Laxdal. 

Þetta gerðist:

  1. Kynntar voru smittölur síðustu daga hvað varðar fjölda smita, nýgengi, einangrun og sóttkví fyrir höfuðborgarsvæðið.

  2. Kynnt var staða á fagsviðum Reykjavíkurborgar: 

    a.    Helgi Grímsson fór yfir stöðu mála á skóla- og frístundasviði. 
    b.    Regína Ásvaldsdóttir fór yfir stöðu mála á velferðarsviði.
    c.    Ólöf Örvarsdóttir fór yfir stöðu mála á umhverfis- skipulagssviði. 
    d.    Ómar Einarsson fór yfir stöðu mála á íþrótta- og tómstundasviði. 
    e.    Huld Ingimarsdóttir fór yfir stöðu mála á menningar- og ferðamálasviði.
    f.    Óskar Sandholt fór yfir stöðu mála varðandi rekstur stjórnsýsluhúsa á Höfðatorgi og í Ráðhúsi. 

Fundi slitið 9:50

PDF útgáfa fundargerðar
Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar 24.01.2022 - prentvæn útgáfa