Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar - Fundur nr. 119

Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar

Ár 2022, mánudaginn 17. janúar, var haldinn 119. fundur neyðarstjórnar Reykjavíkur. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 09:35. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Anna Kristinsdóttir, Eva Bergþóra Guðbergsdóttir, Huld Ingimarsdóttir, Ólöf Örvarsdóttir, Árný Sigurðardóttir, Halldóra Káradóttir, Ómar Einarsson, Lóa Birna Birgisdóttir, Regína Ásvaldsdóttir, Helgi Grímsson, Óli Jón Hertervig, Óskar Jörgen Sandholt, Pétur Ólafsson, Ebba Schram og Þorsteinn Gunnarsson. Einnig sat fundinn Jón Viðar Matthíasson og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. 
Fundarritari var Dagný Ingadóttir. 

Þetta gerðist:

  1. Kynntar voru smittölur síðustu daga hvað varðar fjölda smita, nýgengi, einangrun og sóttkví fyrir höfuðborgarsvæðið sem og fjölda smita í aldurshópnum 0-16 ára. 

  2. Kynnt var staða á fagsviðum Reykjavíkurborgar: 

    a.    Helgi Grímsson fór yfir stöðu mála á skóla- og frístundasviði. 
    b.    Ómar Einarsson fór yfir stöðu mála á íþrótta- og tómstundasviði. 
    c.    Huld Ingimarsdóttir fór yfir stöðu mála á menningar- og ferðamálasviði.
    d.    Ólöf Örvarsdóttir fór yfir stöðu mála á umhverfis- skipulagssviði. 
    e.    Regína Ásvaldsdóttir fór yfir stöðu mála á velferðarsviði og kynnti sviðsmyndagreiningu vegna Covid-19. 
    f.    Lóa Birna Birgisdóttir ræddi um heildstæða yfirsýn yfir starfsmenn og stofnanir borgarinnar vegna fjölda í einangrun og sóttkví og í því tilliti möguleikum á tilfærslum starfsmanna ef þörf krefur.

Fundi slitið 10:11

PDF útgáfa fundargerðar
Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar 17.01.2022 - prentvæn útgáfa