Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar - Fundur nr. 116

Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar

Ár 2022, mánudaginn 10. janúar, var haldinn 116. fundur neyðarstjórnar Reykjavíkur. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 09:38. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Anna Kristinsdóttir, Eva Bergþóra Guðbergsdóttir, Huld Ingimarsdóttir, Ólöf Örvarsdóttir, Árný Sigurðardóttir, Halldóra Káradóttir, Ómar Einarsson, Lóa Birna Birgisdóttir, Regína Ásvaldsdóttir, Helgi Grímsson, Óli Jón Hertervig, Óskar Jörgen Sandholt, Pétur Ólafsson, Ebba Schram og Þorsteinn Gunnarsson. Einnig sat fundinn Jón Viðar Matthíasson og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. 
Fundarritari var Dagný Ingadóttir. 

Þetta gerðist:

  1. Kynntar voru smittölur síðustu daga hvað varðar fjölda smita, nýgengi sem og einangrun og sóttkví fyrir höfuðborgarsvæðið. 

  2. Rætt um hugsanlegt neyðarstig almannavarna, virkjun viðbragðsáætlana og þá starfsemi borgarinnar sem þarf að haldast órofin. 

  3. Kynnt var staða á fagsviðum Reykjavíkurborgar: 

    a.    Regína Ásvaldsdóttir fór yfir stöðu mála á velferðarsviði.  
    b.    Helgi Grímsson fór yfir stöðu mála á skóla- og frístundasviði og bólusetningar barna sem hefjast í dag. 
    c.    Ómar Einarsson fór yfir stöðu mála á íþrótta- og tómstundasviði. 
    d.    Huld Ingimarsdóttir fór yfir stöðu á menningar- og ferðamálasviði. 
    e.    Ólöf Örvarsdóttir fór yfir stöðu mála á umhverfis- og skipulagssviði. 

Fundi slitið 10:04

PDF útgáfa fundargerðar
Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar 10.01.2022 - prentvæn útgáfa