Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar - Fundur nr. 115

Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar

Ár 2022, mánudaginn 3. janúar, var haldinn 115. fundur neyðarstjórnar Reykjavíkur. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 09:37. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Anna Kristinsdóttir, Eva Bergþóra Guðbergsdóttir, Huld Ingimarsdóttir, Ólöf Örvarsdóttir, Árný Sigurðardóttir, Halldóra Káradóttir, Ómar Einarsson, Lóa Birna Birgisdóttir, Regína Ásvaldsdóttir, Helgi Grímsson, Óli Jón Hertervig, Óskar Jörgen Sandholt, Pétur Ólafsson, Ebba Schram og Þorsteinn Gunnarsson. Einnig sátu fundinn Jón Viðar Matthíasson og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. 
Fundarritari var Dagný Ingadóttir. 

Þetta gerðist:

  1. Kynntar voru smittölur síðustu daga, hversu margir greindust jákvæðir af COVID-19, hlutfall landamærasmita, hlutfall innan sóttkvíar og hlutfall þeirra sem fóru í sýnatöku og greindust síðar jákvæðir af COVID-19. Einnig rætt um stöðu bólusetninga. 

  2. Kynnt var staða á fagsviðum Reykjavíkurborgar: 

    a.    Helgi Grímsson fór yfir stöðu mála á skóla- og frístundasviði. 
    b.    Regína Ásvaldsdóttir fór yfir stöðu mála á velferðarsviði. 
    c.    Ómar Einarsson fór yfir stöðu mála á íþrótta- og tómstundasviði.

  3. Rætt um að ákvæði til bráðabirgða II í lögum um almannavarnir, nr. 82/2008 (borgaraleg skylda) hafi fallið úr gildi þann 1. janúar 2022. 

Fundi slitið 10:10

PDF útgáfa fundargerðar
Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar 3.1.2022 - prentvæn útgáfa