Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar - Fundur nr. 114

Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar

Ár 2021, mánudaginn 20. desember, var haldinn 114. fundur neyðarstjórnar Reykjavíkur. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 13:30. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Anna Kristinsdóttir, Eva Bergþóra Guðbergsdóttir, Huld Ingimarsdóttir, Ólöf Örvarsdóttir, Árný Sigurðardóttir, Halldóra Káradóttir, Ómar Einarsson, Lóa Birna Birgisdóttir, Regína Ásvaldsdóttir, Helgi Grímsson, Óli Jón Hertervig, Óskar Jörgen Sandholt, Pétur Ólafsson, Ebba Schram og Þorsteinn Gunnarsson. Einnig sátu fundinn Jón Viðar Matthíasson og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. 
Fundarritari var Dagný Ingadóttir. 

Þetta gerðist:

  1. Kynntar voru smittölur síðustu daga, hversu margir greindust jákvæðir af COVID-19, hlutfall landamærasmita og hlutfall innan sóttkvíar. Einnig rætt um mögulega aukningu smita næstu vikur. 

  2. Rætt um ákvæði nýrrar reglugerðar um takmörkun á samkomum vegna farsóttar sem mun taka gildi frá og með 23. desember 2021. 

  3. Kynnt var staða á fagsviðum Reykjavíkurborgar: 

    a.    Helgi Grímsson fór yfir stöðu mála á skóla- og frístundasviði. 
    b.    Regína Ásvaldsdóttir fór yfir stöðu mála á velferðarsviði. 
    c.    Ómar Einarsson fór yfir stöðu mála á íþrótta- og tómstundasviði. 
    d.    Huld Ingimarsdóttir fór yfir stöðu mála á menningar- og ferðamálasviði. 
    e.    Ólöf Örvarsdóttir fór yfir stöðu mála á umhverfis- og skipulagssviði.
    f.    Dagný Ingadóttir og Óskar Jörgen Sandholt fóru yfir stöðu mála varðandi stjórnsýsluhúsin. 

  4. Rætt um útsendingu fréttatilkynningar um starfsemi borgarinnar m.t.t. ákvæða í nýrri reglugerð. 

Fundi slitið 13:55

PDF útgáfa fundargerðar
Neyðarstjórn Reykjavíkur 20.12.2021 - prentvæn útgáfa