Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar - Fundur nr. 110

Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar

Ár 2021, mánudaginn 16. ágúst, var haldinn 110. fundur neyðarstjórnar Reykjavíkur. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 9:00. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Anna Kristinsdóttir, Eva Bergþóra Guðbergsdóttir, Dagný Ingadóttir, Huld Ingimarsdóttir, Ólöf Örvarsdóttir, Óskar Ísfeld Sigurðsson, Halldóra Káradóttir, Ómar Einarsson, Lóa Birna Birgisdóttir, Regína Ásvaldsdóttir, Helgi Grímsson, Óli Jón Hertervig, Karen María Jónsdóttir, Pétur Ólafsson, Ebba Schram og Þorsteinn Gunnarsson.
Einnig sat fundinn Jón Viðar Matthíasson. 
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Kynntar voru smittölur síðustu daga, hversu margir greindust jákvæðir af COVID-19, hlutfall landamærasmita og hlutfall innan sóttkvíar. 

  2. Kynnt var staða á fagsviðum Reykjavíkurborgar: 

    a.    Regína Ásvaldsdóttir fór yfir stöðu mála á velferðarsviði. 
    b.    Helgi Grímsson fóru yfir stöðu mála á skóla- og frístundasviði. 
    c.    Ólöf Örvarsdóttir fór yfir stöðu mála á umhverfis- og skipulagssviði. 
    d.    Ómar Einarsson fór yfir stöðu mála á íþrótta- og tómstundasviði.
    e.    Huld Ingimarsdóttir fór yfir stöðu mála á menningar- og ferðamálasviði. 
    f.    Helga Björk Laxdal fór yfir framlengdar heimildir ráða og nefnda til fjarfunda.. 
    g.    Lóa Birna Birgisdóttir fór yfir stöðu mála varðandi leiðbeiningar til starfsmanna varðandi sóttkví.

  3. Fram fór umræða um fundi og verkefni neyðarstjórnar Reykjavíkur bæði til næstu vikna og til lengri tíma. 

Fundi slitið 9:34.

PDF útgáfa fundargerðar
Neyðarstjórn Reykjavíkur 16.08.2021 - prentvæn útgáfa