Menningarráð - Fundur nr. 6

Menningarráð

MENNINGARRÁÐ

Ár 2026, föstudaginn 13. nóvember var haldinn 6. fundur menningarráðs. Fundurinn var haldinn í Borgartúni 14, Hofi og hófst kl. 11:03. Viðstödd voru:  Rúnar Freyr Gíslason formaður, Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Helga Margrét Marzellíusardóttir, Friðjón R. Friðjónsson, Líf Magneudóttir, Hlédís Maren Guðmundsdóttir og Skúli Helgason.  Eftirtaldir embættismenn og starfsmenn sátu fundinn: Steinþór Einarsson, Arnfríður S Valdimarsdóttir, Elín Hrefna Ólafsdóttir og Fany Larota Catunta sem skrifaði fundargerð.

Þetta gerðist:
 

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram samþykkt fyrir menningarráð sem var breytt á fundi borgarstjórnar 20. október 2026, ásamt bréfi skrifstofu borgarstjórnar dags. 2. nóvember 2026. MSS26080081

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihluti menningarráðs leggur áherslu á að ráðið nýti umboð sitt til að efla menningarstarf í hverfum borgarinnar og fjölga tækifærum íbúa til að taka þátt í menningarlífinu. Við mótun stefnu til lengri tíma verði leitað snemma eftir sjónarmiðum íbúa, listafólks og annarra hagaðila. Þegar lagðar eru til breytingar á rekstri sem hafa áhrif á þjónustu við íbúa verði forsendur þeirra skýrðar eftir fremsta megni og áhrifin metin áður en ákvörðun er tekin.

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf Bandalags íslenskra listamanna dags. 4. nóvember 2026 um menningarmál hjá Reykjavíkurborg. MIR26110010

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihluti menningarráðs þakkar Bandalagi íslenskra listamanna (BÍL) fyrir erindið. Meirihlutinn tekur undir mikilvægi reglulegs samráðs við samtök listafólks og leggur til að fulltrúum BÍL verði boðið til fundar með menningarráði við fyrsta tækifæri. 
    Formaður menningarráðs og sviðsstjóri menningar- og íþróttasviðs munu fara yfir erindið og sjá til þess að spurningum bandalagsins verði svarað skriflega, í samráði við önnur svið borgarinnar eftir því sem við á. Í svörunum komi skýrt fram hvaða ákvarðanir hafa verið teknar, hvaða mál eru enn til skoðunar og hvert listafólk og menningarsamtök geta leitað með erindi sín.
     Varðandi uppsagnir leigusamninga tekur meirihlutinn fram að mikilvægt er að farið verði yfir stöðu þeirra sem þurfa að rýma húsnæði og hvaða raunhæfu kostir standa þeim til boða, í samráði við þá sem málið varðar. Þá er rétt að taka fram að við umfjöllun um framtíð Borgarbókasafnsins leggur meirihlutinn áherslu á að meta áhrif mögulegra breytinga á þjónustu og aðgengi íbúa í hverfum borgarinnar og leita sjónarmiða starfsfólks og notenda.
        
    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Vinstrisins og Miðflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Samfylkingarinnar, Vinstrisins og Miðflokksins árétta að mikilvægt er að forseti Bandalags íslenskra listamanna fái sæti sem áheyrnarfulltrúa í menningarráði en Bandalagið hefur haft áheyrnarfulltrúa í fagráði menningarmála undanfarna 2 áratugi. Bandalagið hefur gegnt veigamiklu hlutverki varðandi stefnumótun, haft skýra aðkomu að framkvæmd við úthlutun menningarstyrkja og gegnt faglegri ráðgjöf við ráð. Nauðsynlegt er að sú rödd hverfi ekki úr ráðinu.  Skorað er á meirihlutann að tryggja BÍL áheyrnarfulltrúa eigi síðar en á næsta fundi ráðsins þar sem jafnframt verði brugðist við þeim spurningum og sjónarmiðum sem koma fram í fyrirspurn forseta BÍL til ráðsins, varðandi hagræðingu og uppsagnir sem hafa áhrif á menningarstarf í borginni, uppsögn leigusamninga við 15 menningarhópa, niðurskurð á Borgarbókasafninu og menningarþjónustu o.fl.
     

    Fylgigögn

  3. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar frá fundi menningarráðs frá 21. október 2026 um greiningu á kynningar- og markaðsstarfi safna Reykjavíkurborgar og tækifærum til aukinnar aðsóknar. MIR26100025
        
    Samþykkt með sex atkvæðum fulltrúa Sjálfsæðisflokksins, Viðreisnar, Miðflokksins og Samfylkingar . Fulltrúi Vinstrisins situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihluti menningarráðs vill leggja áherslu á að auka aðsókn að söfnum Reykjavíkurborgar og gera íbúum og gestum auðveldara að kynna sér sýningar, viðburði og aðra starfsemi safnanna.
    Með tillögunni vill meirihlutinn fá skýrari mynd af því hvaða kynningarleiðir hafa skilað árangri, til hvaða hópa þær hafa náð og hvar tækifæri eru til að ná til fólks sem sækir söfnin síður. Yfirlit yfir aðsókn að hverju safni, kortasölu og endurnýjanir, eftir því sem gögn liggja fyrir, nýtist til að forgangsraða í kynningarstarfinu.
    Meirihlutinn leggur jafnframt áherslu á að kanna hvernig söfnin geti unnið betur saman og nýtt þær kynningarleiðir sem þegar eru fyrir hendi, meðal annars í samstarfi við Visit Reykjavík, til að efla sölu og nýtingu Menningarkorts Reykjavíkur og stafræna Reykjavíkurborgarkortsins.

    Fulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:

    Eðlilegt er að greina tækifæri til að auka aðsókn að söfnum borgarinnar með sérstakri greiningu á kynningar- og markaðsstarfi safnanna.  Þar er þó mikilvægt að horfa líka til þeirra breytinga sem hafa orðið með Markaðsstofu og Áfangastofu höfuðborgarsvæðisins en margt bendir til þess að við þá skipan hafi fjarlægð frá vettvangi safna borgarinnar aukist og ytra kynningar- og markaðsstarf í þágu safnanna veikst.  Mikilvægt er að rýna vel þá þróun og afleiðingar hennar og leggja fram tillögur til úrbóta sem geti leitt til aukinnar aðsóknar ferðamanna og heimafólks í hin frábæru söfn borgarinnar.

    Fulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Sú þróun sem endurspeglast í tillögu meirihlutans vekur áhyggjur varðandi sýn kjörinna fulltrúa á hlutverk Reykjavíkurborgar þegar það kemur að menningu og listum og viðhorfi þeirra til lýðræðisins. Fullmikil áhersla þessa meirihluta á  hefðbundna hagræna mælikvarða og arðsemiskröfur getur orðið til þess að skyggja á það grundvallarhlutverk og þá samfélagslegu þýðingu sem lista- og menningarstofnanir borgarinnar gegna. Það samræmist illa mennta- og menningarhlutverki Reykjavíkurborgar að meta söfnin út frá fjárhagslegri skilvirkni, fyrst og fremst, eins og þessi tillaga ber með sér. Frekar en að móta nýja sjálfstæða pólitíska sýn um eflingu lista- og menningarstarfs ætlar meirihlutinn að byggja stefnu sína á stjórnunarháttum úr atvinnulífinu sem Vinstrið telur að eigi enga samleið með þeim almannahagsmunum sem standa þarf vörð um á sviði lýðræðis, lista og menningar og sem Reykjavíkurborg ber að sinna. Það þarf ekki enn eina rýnina og greininguna eða svona tillögu til að ráðast strax í að efla söfnin og aðsókn þeirra enn frekar og til framtíðar, heldur fylgja áætlunum og fjármagna þær.

     

    Fylgigögn

  4. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar frá fundi menningarráðs frá 21. október 2026 um skipun starfshóps vegna 20 ára afmæli afhjúpunar friðarsúlunnar. MIR26100024
        
    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi breytingartillögu: 

    Lagt er til að Skúli Helgason fulltrúi Samfylkingar taki sæti í starfshópnum.

    Samþykkt.

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihluti menningarráðs telur að tuttugu ára afmæli Friðarsúlunnar í Viðey árið 2027 sé gott tilefni til að kynna verk Yoko Ono fyrir íbúum og gestum og halda á lofti boðskap þess um frið og alþjóðlega samvinnu. Lagt er til að starfshópur móti tillögur að afmælisdagskrá og samstarfsverkefnum í samráði við viðeigandi aðila. Við mótun dagskrárinnar verði lögð áhersla á að almenningur eigi greiðan aðgang að viðburðum. Hópurinn skili tillögum sínum til menningarráðs eigi síðar en vorið 2027 og geri þar grein fyrir framkvæmd og áætluðum kostnaði.

    Fulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:

    Það er gott framtak og sjálfsagt að fagna 20 ára afmæli Friðarsúlunnar á næsta ári með myndarlegum hætti.  Friðarsúlan hefur verið merkilegt kennileiti í borginni frá 9. október til 8. desember ár hvert og táknrænt fyrir áherslu John Lennon og Yoko Ono á friðarbaráttu og andstöðu við hernað. Nú gefst gullið tækifæri til að koma í framkvæmd tillögu stýrihóps um eflingu Viðeyjar sem lagði til að systurverk Friðarsúlunnar, Friðarskjól verði sett upp í eynni. Vel fer á því að hafa fulltrúa minnihlutans í þessum hópi til að undirstrika gildi þess að vinna þverpólitískt í málum sem þessum.
     

    Fylgigögn

  5. Lögð fram að nýju uppfærð tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar frá fundi menningarráðs frá 21. október 2026 um framtíðarskipulag Borgarbókasafns Reykjavíkur. MIR26100026

    Samþykkt með fjórum atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar. Fulltrúar Vinstrisins, Samfylkingar og Miðflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihluti menningarráðs telur að borgarbókasöfnin eigi að vera aðgengilegir samkomustaðir í hverfum Reykjavíkur þar sem fólk á öllum aldri getur lesið, lært, sótt viðburði og hist. Markmið uppfærðrar tillögu er að byggja á því góða starfi sem þegar er unnið og efla bókasafnsþjónustuna í takt við þarfir íbúa. Með tillögunni er lagt til að menningar- og íþróttasvið vinni úttekt innan fjárheimilda sviðsins og byggi á gildandi stefnu Borgarbókasafnsins.
    Meirihlutinn leggur sérstaka áherslu á að úttektin varpi ljósi á aðgengi að þjónustunni í einstökum hverfum, aðstöðu gesta og starfsfólks og hvernig söfnin geti stutt betur við lestur og læsi barna og ungmenna. Jafnframt verði horft til fjölbreytts bókakosts, þjónustu við íbúa af erlendum uppruna og samfélagslegs hlutverks safnanna.
    Samráð við starfsfólk, stjórnendur, fagfólk og notendur verði hluti af úttektinni frá upphafi. Menningarráð fái niðurstöður hennar til umfjöllunar innan fjögurra mánaða frá samþykkt tillögunnar. Meirihlutinn leggur áherslu á að þegar afstaða verður tekin til einstakra tillagna um breytingar liggi fyrir skýrt mat á áhrifum þeirra á þjónustu og aðgengi íbúa.

    Fulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:

    Meirihlutinn hefur eftir mikla og verðskuldaða gagnrýni breytt fyrri tillögu um framtíðarskipulag Borgarbókasafns Reykjavíkur sem hafði á sér skýrt yfirbragð hagræðingaráforma og niðurskurðar. Þar var vegið að safni sem leikur lykilhlutverk á tímum þegar mikil þörf er á að efla lestrarfærni og lesskilning barna og ungmenna auk þess sem það gegnir fjölbreyttu hlutverki sem þekkingarmiðstöð og samfélagshús fyrir borgarbúa á öllum aldri. Sjálfsagt er að fara yfir starfsemi, stefnu og skipulag safnsins til framtíðar en mikilvægt er að hlífa safninu við niðurskurði og uppsögnum á þessum afdrifaríku tímum hnignandi lestrarfærni. Það er hins vegar ekki gert í fyrstu fjárhagsáætlun hægri meirihlutans þar sem safnið þarf að mæta óvenju hárri hagræðingarkröfu um allt að 85 m. kr sem nemur 5% af árlegum fjárframlögum safnsins.  Þá er skýrt að ef meirihlutanum er alvara með að efla Borgarbókasafnið er nærtækasta verkefnið að setja metnaðarfull áform fyrri meirihluta um endurbætur á aðalútibúi safnsins í Grófarhúsi í forgang en þar liggur fyrir vinningstillaga úr alþjóðlegri hönnunarsamkeppni sem endurspeglar stórhug og metnað fyrir hönd þessa höfuðsafns í myndarlegri safnaflóru borgarinnar.

    Fulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Miðflokksins fagnar jákvæðara orðalagi um starfsemi Bókasafnsins en áður hefur verið á tímabilinu. Stefna Miðflokksins er að standa vörð um bókasöfn borgarinnar og efla þau enn frekar.

    Fulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Miðpunktur mannlífs í hverfum er yfirskrift stefnu og aðgerðaráætlunar Borgarbókasafnsins frá 2025-2028. Talsverð vinna hefur verið lögð í að móta stefnu og greina þætti í starfsemi Borgarbókasafnsins á undanförnum árum sem ætlað er að efla, styrkja og þróa þessi mikilvægu mennta- og menningarsöfn. Það er því talsverður tvíverknaður í þessari tillögu meirihlutans og væri honum frekar nær að leggja til fjármagn og sýn svo unnt sé að framkvæma þær tillögur þegar liggja fyrir í núverandi stefnu og aðgerðaráætlun Borgarbókasafnsins til 2028. Það er von fulltrúa Vinstrisins að meirihlutinn standi á bak við orð sín um að það standi ekki til að skera niður í starfsemi bókasafnanna heldur efla þau og sýni það þá í verki og taki til baka þann niðurskurð sem þegar hefur farið fram og er boðaður á næsta ári í fjárhagsáætlun.


     

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 12:25

Rúnar Freyr Gíslason Þorvaldur Davíð Kristjánsson

Helga Margrét Marzellíusardóttir Friðjón R. Friðjónsson

Líf Magneudóttir Hlédís Maren Guðmundsdóttir

Skúli Helgason

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð menningarráðs 13.11.26