Menningarráð
Ár 2026, miðvikudaginn 21. október var haldinn 5. fundur menningarráðs. Fundurinn var haldinn í Borgartúni 14, Laufbrekku og hófst kl. 12:06. Viðstödd voru: Rúnar Freyr Gíslason formaður, Eyþór Máni Steinarsson varamaður fyrir Þorvald Davíð Kristjánsson, Helga Margrét Marzellíusardóttir, Friðjón R. Friðjónsson, Líf Magneudóttir, Hlédís Maren Guðmundsdóttir og Skúli Helgason. Eftirtaldir embættismenn og starfsmenn sátu fundinn: Steinþór Einarsson, Elín Hrefna Ólafsdóttir, Helga Björnsdóttir og Fany Larota Catunta sem skrifaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning á Rannsóknarsetri skapandi greina um stöðu tónlistar í Reykjavík. MIR26100033
Erla Rún Guðmundsdóttir og Michael Hendrix frá Rannsóknarsetri skapandi greina taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Þakkað er fyrir fróðlega kynningu á skýrslu Rannsóknaseturs skapandi greina á stöðu lifandi tónlistarflutnings í Reykjavík. Þar kemur fram að fjöldi tónleika hefur merkilegt nokk aukist á undanförnum fjórum árum um 45% en bróðurparturinn af þeirri aukningu kemur til vegna tónleika í Hörpu og stærri tónleikastöðum. Minni staðir búa hins vegar við veika innviði eins og kom fram í tillögum sem spretthópur á vegum Tónlistarborgarinnar kynnti í menningar- og íþróttaráði sl. vor. Byggja þarf á því góða starfi sem Tónlistarborgin hefur unnið á síðustu árum og innleiða þær tillögur sem spretthópur undir forystu hennar lagði fram í byrjun ársins, þ.m.t. um endurreisn Úrbótasjóðs tónleikastaða, einföldun regluverks og leyfisveitinga og síðast en ekki síst að tónleikastöðum verði skipaður eðlilegur sess í borgarskipulagi sem mikilvægra menningarinnviða í borgarsamfélaginu.
-
Fram fer kynning á Íslandsstofu og verkefnum tengdum menningarhátíðum. MIR26100032
Kristjana Rós Guðjohnsen og Daði Guðjónsson frá Íslandsstofu taka sæti á fundinum undir þessum lið.
-
Lögð fram trúnaðarmerkt fjárhagsáætlun menningar- og íþróttasviðs ásamt trúnaðarmerktri gjaldskrá fyrir árið 2027. MIR26080015
Fjárhagsáætluninni er vísað til borgarráðs.
Andrés Bögebjerg Andreasen tekur sæti undir þessum lið.
Bókun undir þessum lið er færð í trúnaðarbók.
-
Lagt fram bréf Bandalags íslenskra listamanna dags. 15. október 2027 vegna fyrirkomulags áheyrnarfulltrúa í menningarráði. MIR26090011
Fulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Samfylkingarinnar tekur undir ósk Bandalags íslenskra listamanna (BÍL) um að BÍL haldi þeim fasta áheyrnarfulltrúa sem bandalagið hefur haft um árabil í menningar-og íþróttaráði og forverum þess. Það er mikil afturför ef með stofnun sérstaks menningarráðs er klippt á formlega aðkomu forystu BÍL að fagráðinu þar sem mótaðar eru áherslur, teknar ákvarðanir um aðgerðir og stefna mörkuð í menningarmálum borgarinnar. BÍL hefur gegnt veigamiklu hlutverki á undanförnum árum varðandi mótun menningarstefnu borgarinnar, innleiðingu hennar og umræðu í ráðinu um forgangsröðun í málaflokknum. Nauðsynlegt er að heildarsamtök listafólks eigi áfram við borðið með rödd sem tekið er mark á. Skorað er á meirihlutann að endurskoða þessa ráðstöfun og tryggja BÍL fastan áheyrnarfulltrúa á fundum menningarráðs, eins og verið hefur. Það væri líka í góðu samræmi við endurskoðun fyrri ákvarðana t.d. í skóla- og frístundaráði um að fella brott sæti áheyrnarfulltrúa frístundaheimila og félagsmiðstöðva og Reykjavíkurráðs ungmenna.
Fylgigögn
-
Lagt fram trúnaðarmerkt bréf skrifstofustjóra menningarborgar dags. 12. október 2026 um skipun dómnefnda vegna Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar, Bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar og Barnabókaverðlauna Guðrúnar Helgadóttur fyrir árið 2027. MIR26100010
Samþykkt.
-
Lagt fram minnisblað skrifstofustjóra menningarborgar dags. 16. október 2026 ásamt drögum að nýjum reglum um Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar, Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar og Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur. MIR26100017
Samþykkt
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar dags. 15. október 2026 um skipun starfshóps vegna 20 ára afmæli afhjúpunar friðarsúlunnar. MIR26100024
Frestað.
Fylgigögn
-
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi tillögu um greiningu á kynningar- og markaðsstarfi safna Reykjavíkurborgar og tækifærum til aukinnar aðsóknar:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar í menningarráði leggja til að menningar og íþróttasviði verði falið að taka saman yfirlit yfir kynningar- og markaðsstarf fyrir söfn Reykjavíkurborgar og Menningarkort Reykjavíkur á síðustu fimm árum. Í yfirlitinu verði, eftir því sem upplýsingar eru til, gerð grein fyrir aðgerðum, markhópum, og árangri, eftir því hvernig hann hefur verið metinn.
Yfirlitið sýni einnig sögulega þróun kortasölu, hlutfall endurnýjana og aðsóknar að hverju safni fyrir sig. Ef gögn og tölulegt árangursmat liggur fyrir má yfirlitið líka sýna kennitölur á borð við kostnað við markaðssetningu fyrir hvern seldan miða (e. CAC) eða kort eða meðallengd áskrift hvers viðskiptavinar að korti (e. LTV).
Jafnframt verði sviðið beðið um mat á því hvernig megi efla sölu og nýtingu bæði Menningarkorts Reykjavíkur og stafræna Reykjavíkurkortsins sérstaklega með tilliti til auknu samstarfs milli stofnana og markvissari nýtingu þeirra kynningarleiða sem þegar eru fyrir hendi.Greinargerð fylgir tillögunni. MIR26100025
Frestað.
Fylgigögn
-
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi tillögu um greiningu á rekstri og framtíðarskipulagi Borgarbókasafns Reykjavíkur.
Lagt er til að menningar- og íþróttasviði verði falið að framkvæma heildstæða greiningu á rekstri, starfsemi og framtíðarskipulagi Borgarbókasafns Reykjavíkur og leggja fram tillögur að aðgerðum sem stuðlað geta að aukinni hagkvæmni, betri nýtingu fjármuna og öflugri þjónustu við íbúa borgarinnar.
Greinargerð fylgir tillögunni. MIR26100026
Frestað.
Fylgigögn
-
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi tillögu um að stofna stýrihóp um endurnýjun samþykkta Listasafns Reykjavíkur.
Meirihlutinn leggur til að uppfæra samþykktir Listasafns Reykjavíkur, auka skýrleika í innkaupum safnsins gagnvart menningarráði, kortleggja safneignina í samræmi við safnalög, fagleg viðmið og langtímahagsmuni safnsins sem og auka sýnileika reykvísks listafólks.
Meirihlutinn leggur til að stofnaður verði stýrihópur. Hlutverk hópsins verði að rýna og leggja til breytingar á gildandi samþykktum Listasafns Reykjavíkur, móta tillögur að grisjunarstefnu fyrir safnið með safnstjóra, sem og stefnu innkaupanefndar í samstarfi við starfandi innkaupanefnd.
Við störf sín skal hópurinn byggja á faglegum sjónarmiðum safnafræði, safnalögum, siðareglum ICOM og þeim markmiðum sem fram koma í gildandi samþykktum Listasafns Reykjavíkur.
Greinargerð fylgir tillögunni. MIR26100028
Samþykkt.
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 13:38
Rúnar Freyr Gíslason Eyþór Máni Steinarsson
Helga Margrét Marzellíusardóttir Friðjón R. Friðjónsson
Líf Magneudóttir Hlédís Maren Guðmundsdóttir
Skúli Helgason
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð menningarráðs frá 21. október 2026 - prentvæn útgáfa