Menningarráð - Fundur nr. 4

Menningarráð

Ár 2026, föstudaginn 2. október var haldinn 4. fundur menningarráðs. Fundurinn var haldinn í Borgartúni 14, Hofi og hófst kl. 11:03. Viðstödd voru:  Rúnar Freyr Gíslason formaður, Friðjón R. Friðjónsson, Helga Margrét Marzellíusardóttir, Hlédís Maren Guðmundsdóttir, Líf Magneudóttir, Skúli Helgason og Þorvaldur Davíð Kristjánsson. Eftirtaldir embættismenn og starfsmenn sátu fundinn: Steinþór Einarsson, Arnfríður Sólrún Valdimarsdóttir, Elín Hrefna Ólafsdóttir,  Helga Björnsdóttir og Fany Larota Catunta sem skrifaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 23. september 2026 þar sem fram kemur að á fundi forsætisnefndar 22. september 2026 hafi verið samþykkt að vísa endanlegri tillögu að nýrri samþykkt íþrótta- og útilífsráðs til umsagnar ráðsins. MIR26090010

    Menningarráð gerir engar athugasemdir við samþykktina.

    Fylgigögn

  2. Fram fer kynning á Listahátíð í Reykjavík. MIR26040005    

    Lára Sóley Jóhannesdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Menningarráð leggur fram svohljóðandi bókun:

    Menningarráð þakkar fyrir kynningu á Listahátíð í Reykjavík 2026 og fagnar því hversu einstaklega vel heppnuð hátíðin var. Hátíðin er mikilvægur þáttur í menningarlífi borgarinnar og skapar vettvang fyrir fjölbreytta listsköpun og alþjóðlegt samstarf. Ráðið lýsir áhuga á að kannaðir verði möguleikar á því að Listahátíð verði haldin árlega. Jafnframt verði skoðað hvort samningar til lengri tíma geti skapað hátíðinni aukinn stöðugleika og fyrirsjáanleika og styrkt forsendur langtímaundirbúnings og samstarfs. Þá telur menningarráð mikilvægt aðstandendur hátíðarinnar, ríkið og Reykjavíkurborg hefji samtal, í samvinnu við aðra samstarfsaðila um þessar hugmyndir, þar á meðal umfang, fjármögnun og næstu skref.

    Fulltrúi Samfylkingar leggur svohljóðandi bókun:

    Þakkað er fyrir afbragðs kynningu á Listahátíð í Reykjavík. Þrátt fyrir mikið framboð af menningarefni í borginni stendur Listahátíð enn fyrir sínu sem krúnudjásn sem dregur fram það sem er spennandi, frumlegt og framúrskarandi í íslensku menningarlífi samhliða viðburðum erlendra gesta í fremstu röð.  Áhersla hátíðarinnar á inngildingu, aðgengi og ókeypis viðburði fyrir almenning er til mikillar fyrirmyndar. Æskilegt væri að gera lengri samning við hátíðina, verðbæta framlög ríkis og borgar og skoða fýsileika þess að hafa hátíðina sem árlegan viðburð, til að styrkja stöðu hennar, gera kynningarstarf markvissara og setja hátíðina enn betur á kortið alþjóðlega.

  3. Lögð fram skýrsla sviðsstjóra MÍR dags. 29. september 2026 varðandi kortlagningu möguleika tengda Viðey. MIR26060020

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar  og Vinstrisins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Vinstrisins í menningarráði þakka fyrir minnisblaðið og greinargóða samantekt á þeirri vinnu sem farið hefur fram um málefni Viðeyjar. Mikilvægt er að hafa góða yfirsýn yfir þau fjölbreyttu sjónarmið sem tengjast sérstöðu eyjarinnar, sögu hennar, náttúru og menningarlegu gildi. Minnisblaðið er gagnlegt innlegg í þá umræðu og dregur fram ýmsa þætti sem vert er að hafa til hliðsjónar þegar fjallað er um möguleika Viðeyjar til framtíðar. Áframhaldandi umræða um málefni eyjarinnar þarf að taka mið af þessu samhengi og byggja á heildstæðri sýn þar sem ólík sjónarmið fá viðeigandi vægi.

    Fulltrúi Samfylkingar leggur fram svohljóðandi bókun:

    Þakkað er fyrir skýrslu sviðsstjóra varðandi Viðey. Fulltrúi Samfylkingarinnar minnir á að fyrir liggja nýlegar tillögur þverpólitísks stýrihóps um leiðir til að efla Viðey sem býr yfir einstakri sögu, náttúru og menningu og einboðið er að nýta þá vinnu til að byggja upp og efla Viðey sem áfangastað borgarbúa og ferðafólks. Stýrihópurinn lagði m.a. til að efla fræðsluhlutverk Viðeyjar gagnvart grunnskólabörnum með það að markmiði að öll börn heimsæki Viðey a.m.k. einu sinni á grunnskólagöngunni og vinni verkefni því tengd, jafnframt tillögur um að tryggja viðhald þeirra sögufrægu mannvirkja sem eru í eynni og sömuleiðis styrkja enn frekar friðarskírskotun Viðeyjar með því að setja upp systurverk Friðarsúlunnar sem stofnun Yoko Ono hefur lýst sig reiðubúna til að láta reisa og fjármagna. Nærtækt er að hrinda þessum tillögum stýrihópsins í framkvæmd svo Viðey geti á ný dafnað sem einstök perla í borgarlandinu.

    Fylgigögn

  4. Lagt fram svar skrifstofustjóra menningarborgar dags 29. september 2026 við fyrirspurn fulltrúa Samfylkingarinnar um tónleikahald í borginni sbr. 3. fund menningarráðs 11. september 2026. MIR26090015

    Fulltrúi Samfylkingar leggur fram svohljóðandi bókun:

    Spretthópur um bætta aðstöðu fyrir lifandi tónleikahald í borginni starfaði frá desember 2025 til febrúar 2026 og skilaði tillögum 27. febrúar 2026. Þar var ein tillaga tekin út fyrir sviga og samþykkt í MÍR þann 10.apríl 2026 um að úrbótasjóður tónleikastaða yrði endurreistur með 10 milljóna króna framlagi. Sú tillaga var lögð fyrir borgarráð þann 16. apríl sem tillaga borgarstjóra til fullnaðarafgreiðslu og samþykkt með þeim hætti að til sjóðsins yrði varið 10 m.kr. til úthlutunar á árinu 2026 og sviðsstjóra menningar- og íþróttasviðs falið að vinna úthlutunarreglur. Jafnframt var samþykkt að tillagan yrði fjármögnuð úr ramma menningar- og íþróttasviðs. Jafnframt var samþykkt að öðrum tillögum spretthópsins verði vísað til skrifstofu borgarstjórnar til umsagnar. Fulltrúi Samfylkingarinnar leggur á það áherslu að þessi samþykkt borgarráðs nái fram að ganga án frekari tafa svo endurreisa megi úrbótasjóðinn sem fyrst enda þörfin brýn fyrir úrbætur í aðstöðumálum minni tónleikastaða í borginni.

    Fylgigögn

  5. Fulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svofellda tillögu:

    Lagt er til að menningar-og íþróttasviði verði falið að rýna hvernig megi koma til móts við þá fimmtán hópa á menningarsviðinu sem fengu uppsögn á leigusamningum við Reykjavíkurborg á dögunum. Leitað verði leiða til að finna aðstöðu fyrir starfsemi þessara hópa í húsnæði í eigu borgarinnar eða annarra aðila. Lagt er til að myndaður verði spretthópur með fulltrúum skrifstofu menningarborgarinnar, Eignaskrifstofu borgarinnar og Bandalags íslenskra listamanna.  Spretthópurinn hafi samráð við fulltrúa fyrrnefndra hópa sem voru með leigusamninga við borgina.  Spretthópurinn skili tillögum sínum eigi síðar en 15. nóvember 2026.

    Greinargerð fylgir tillögunni. MIR26100003

    Samþykkt að vísa tillögunni til meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs í tengslum við kortlagningu og rýni á eignasafni Reykjavíkurborgar sem borgarráð hefur samþykkt, með það fyrir augum að húsnæðisþarfir þeirra menningarhópa sem tillagan varðar verði teknar til skoðunar í því samhengi.

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar, Samfylkingar og Miðflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúarnir taka fram að við kortlagningu og rýni á eignasafni Reykjavíkurborgar, sem borgarráð hefur samþykkt, er meðal annars gert ráð fyrir að metið verði hvernig nýta megi eignir borgarinnar betur í þágu skapandi greina. Fulltrúarnir beina því til umhverfis- og skipulagssviðs að eðlilegt sé að húsnæðisþarfir þeirra menningarhópa sem tillagan varðar verði skoðaðar í samhengi við það verkefni. Með vísun tillögunnar til umhverfis- og skipulagssviðs er málinu beint í þann farveg.

    Fulltrúi Samfylkingar leggur fram svohljóðandi bókun:

    Í menningarstefnu Reykjavíkurborgar segir að Reykjavík sé borg þar sem listafólki finnst gott að búa og skapa í. Mikilvæg forsenda þess er að listafólk hafi aðgang að húsnæði á viðráðanlegu verði. Borgin hefur leigt út slík rými á undanförnum árum til listafólks til fjölbreyttrar sköpunar. Nýr meirihluti hefur sagt upp leigusamningum við fimmtán menningarhópa á þeim forsendum að brunavarnir á viðkomandi stöðum séu óviðunandi. Sannarlega þurfa brunavarnir að vera í lagi en mikilvægt er að fórna ekki ómetanlegu uppbyggingarstarfi sem listamenn hafa sjálfir lagt gríðarlegan tíma, vinnu, og eigin fjármuni til að standa straum af, eins og bent er á í yfirlýsingu stjórnar Sambands íslenskra myndlistarmanna og ályktun BÍL. Stjórn BÍL gerir alvarlegar athugasemdir við vinnubrögðin og bendir á að þau samræmist ekki menningarstefnu Reykjavíkurborgar, þar sem lögð er skýr áhersla á samstarf, samtal og þátttöku menningarlífsins í mótun borgarinnar. Tillaga fulltrúa Samfylkingarinnar felur í sér að menningar- og íþróttasviði verði falið að leita allra leiða til að finna annað húsnæði fyrir viðkomandi listhópa. Samráð verði haft við viðkomandi hópa og reynt til þrautar að finna lausnir sem afstýra afdrifaríku menningarslysi í borginni. Lagt er til að spretthópurinn vinni hratt og skili tillögum til menningarráðs fyrir 15. nóvember næstkomandi.

    • kl. 12:42 víkur Líf Magneudóttir af fundi

Fundi slitið kl. 12:48.

Rúnar Freyr Gíslason Helga Margrét Marzellíusardóttir

Þorvaldur Davíð Kristjánsson Friðjón R. Friðjónsson

Hlédís Maren Guðmundsdóttir Skúli Helgason

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð menningarráðs 020.10.26