Menningar- og íþróttaráð - Fundur nr. 29

Menningar- og íþróttaráð - Fundur nr. 29

Menningar- og íþróttaráð

Ár 2026, föstudaginn 8. maí var haldinn 29. fundur menningar- og íþróttaráðs. Fundurinn var haldinn í Borgartúni 14, Hofi og hófst kl. 09:03. Viðstödd voru: Skúli Helgason formaður, Aðalsteinn Haukur Sverrisson, Birna Hafstein, Birkir Ingibjartsson varamaður fyrir Kristinn Jón Ólafsson, Friðjón R Friðjónsson, Sara Björg Sigurðardóttir og Stefán Pálsson.  Jafnframt: Jóna Hlíf Halldórsdóttir áheyrnarfulltrúi BÍL. Eftirtaldir embættismenn og starfsmenn sátu fundinn: Elín Hrefna Ólafsdóttir, Atli Steinn Árnason, Helga Friðriksdóttir og Helga Björnsdóttir sem skrifaði fundargerð. 

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram lokaskýrsla starfshóps, dags. maí 2026 um þátttöku fatlaðra barna og ungmenna í skipulögðu íþróttastarfi í Reykjavík. MIR25010006

    Samþykkt og vísað til meðferðar við gerð fjárhagsáætlunar.

    • kl. 09:21 víkur Helga Friðriksdóttir af fundi.

    Fulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Starfshópur um þátttöku fatlaðra barna í íþróttastarfi var stofnaður í kjölfar vísbendinga um að þátttökuhlutfall þessa hóps í skipulögðu íþróttastarfi væri miklu lægra en annarra ungmenna. Vinna hópsins staðfesti þennan grun og dró jafnframt fram mikilvægar upplýsingar og tölfræði sem ekki hefur áður legið fyrir og er hér um merkilega úttekt að ræða. Í skýrslunni eru settar fram góðar tillögur um verkefni sem hrinda mætti af stokkunum til að auka þátttöku fatlaðra barna í íþróttum, allt frá kynningarstarfi til niðurgreiðslu á þjálfunarkostnaði. Brýnt er að horft verði til tillagna hópsins á næstu árum við gerð fjárhagsáætlunar, enda ættu allir að vera sammála um nauðsyn þess að auka þátttöku fatlaðra ungmenna í íþróttastarfi, bæði innan sérstakra félaga en þó ekki síður innan rótgróinna hverfafélaga borgarinnar.

    Fylgigögn

  2. Fram fer umræða um val á borgarlistamanni Reykjavíkur 2026.  Lögð fram tilnefning um borgarlistamann 2026 sem útnefndur verður 17. júní 2026.  Trúnaðarmál fram að útnefningu.  MIR26040004

    Samþykkt.

  3. Lögð fram að nýju umsókn Klifursambands Íslands dags. 13. apríl 2026, sbr. 5. lið fundargerðar menningar- og íþróttaráðs frá 21. apríl 2026, um viðurkenningu Toppstöðvarinnar sem þjóðarleikvangs í klifri. MIR26040004.

    Menningar- og íþróttasviði er falið að vinna umsögn.

    Fylgigögn

  4. Lagt fram að nýju skilabréf spretthóps, dags. 17. apríl 2026, sbr. 4. lið fundargerðar menningar- og íþróttaráðs frá 21. apríl 2026, um tilraunaverkefni á notkun Frístundakortsins ásamt skýrslu um tillögur til að efla þátttöku barna og ungmenna í frístundastarfi. MSS26020075

    Samþykkt.

    Fylgigögn

  5. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 29. apríl 2026 þar sem fram kemur að á fundi borgarráðs 16. apríl 2026 hafi tillögu Kjartans Magnússonar dags. 16. apríl 2026 um afnot af styttu af sr. Friðriki Friðrikssyni verið vísað til meðferðar menningar- og íþróttaráðs.

     Jafnframt lagt fram minnisblað skrifstofu menningar- og íþróttasviðs dags. 5. maí 2026 varðandi tillöguna.

    Samþykkt að vísa tillögunni frá. 

    Fulltrúar í menningar- og íþróttaráði leggja fram svohljóðandi bókun:

    Tillögu óháðs borgarfulltrúa er vísað frá enda leiða upplýsingar frá stjórnendum Listasafns Reykjavíkur í ljós að hún byggist á misskilningi. Ákvarðanir um lán listaverka safnsins til annarra safna fara eftir föstum ferlum og engin formleg ósk hefur komið fram um slíkt millisafnalán.  Rétt er þó að benda á að líkt og kemur fram í svari safnstjóra Listasafns Reykjavíkur er ekkert sem formlega kemur í veg fyrir að Listasafn Sigurjóns Ólafssonar geti fengi verkið að millisafnaláni að skilyrðum og tryggingum uppfylltum. 

    Fylgigögn

  6. Lagt fram bréf skrifstofustjóra menningarborgar dags. 6. maí 2026 þar sem lagt er til að samningar við Bókmenntahátíð í Reykjavík, Tjarnarbíó og Stórsveit Reykjavíkur verði endurnýjaðir til þriggja ára. 

    Samþykktir samningar til þriggja ára við Bókmenntahátíð í Reykjavík og Stórsveit Reykjavíkur.  Samþykkt að samningur við Tjarnarbíó verði til eins árs.  Fulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá.

    Fulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Samstarfsflokkarnir leggja áherslu á mikilvægi þess að endurnýja þrjá mikilvæga samninga á menningarsviðinu. Í fyrsta lagi er um að ræða Bókmenntahátíð í Reykjavík sem fyrir löngu hefur sannað gildi sitt sem einn helsti viðburður Bókmenntaborgarinnar Reykjavík þar sem tækifæri gefst til að eiga stefnumót við marga helstu rithöfunda þjóðarinnar og erlenda gesti. Í öðru lagi er nauðsynlegt að stuðla að meiri stöðugleika í rekstri Tjarnarbíós með nýjum samningi þar sem góður stígandi er í starfsemi þessa heimilis sjálfstæðra sviðslista.  Loks er það samningur við Stórsveit Reykjavíkur sem er einstök á sínu sviði hér á landi og þó víðar væri leitað sem útvörður frumsköpunar og flutnings á djassskotinni sveiflu í stórsveitarbúningi.

     

    Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Framsókn situr hjá í þessu máli formsins vegna, fulltrúi telur að betra væri að ný borgastjórn taki afstöðu um styrktarmál í ljósi þess að vika er til kosninga

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 11:10

Skúli Helgason Birkir Ingibjartsson

Sara Björg Sigurðardóttir Stefán Pálsson

Aðalsteinn Haukur Sverrisson Birna Hafstein

Friðjón R. Friðjónsson

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð menningar- og íþróttaráðs 8. maí 2026 - Prentvæn útgáfa