Menningar- og íþróttaráð - Fundur nr. 23

Menningar- og íþróttaráð

Ár 2026, föstudaginn 27. febrúar var haldinn 23. fundur menningar- og íþróttaráðs. Fundurinn var haldinn í Borgartúni 14, Hofi og hófst kl. 09:09.  Viðstödd voru:  Skúli Helgason formaður, Kristinn Jón Ólafsson, Kjartan Magnússon, Sara Björg Sigurðardóttur og Stefán Pálsson.  Jafnframt:   Aðalsteinn Haukur Sverrisson og Helga Margrét Marzellíusardóttir varamaður fyrir Friðjón R Friðjónsson tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti. Eftirtaldir embættismenn og starfsmenn sátu fundinn: Steinþór Einarsson, Atli Steinn Árnason, Helga Friðriksdóttir og Helga Björnsdóttir sem skrifaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á aðstöðumálum tónlistar í borginni.  
    Jafnframt lagðar fram aðgerðartillögur spretthóps um aðstöðumál tónlistar í borginni.  MIR26020004.
    Lögð fram málsferðartillaga um að vísa aðgerðartillögunum til meðferðar sviðsstjóra.
    Samþykkt.  
        
    Fulltrúar Samfylkingar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Samstarfsflokkarnir þakka spretthópi um aðstöðumál lifandi tónlistarflutnings í Borginni fyrir öfluga og góða vinnu við mótun tillagna um aðgerðir til úrbóta.  Tillögurnar sýna vel fram á þær áskoranir sem tónleikastaðir standa frammi fyrir en aðgerðirnar eru skýrar og markvissar og lúta að því að Reykjavíkurborg viðurkenni tónleikastaði sem mikilvæga menningarinnviði; að úrbótasjóður tónleikastaða verði endurvakinn og að leyfisveitingaferli verður endurskoðuð og einfölduð. Ánægjulegt er að sjá að vinna spretthópsins og samráðsferlið við tónleikahaldara hefur þegar leitt til þess að Samtök smærri tónleikastaða hafa verið stofnuð. Tillögunum verður nú vísað til sviðsstjóra sem hafi umsjón með innleiðingaráætlun og nánari útfærslu tillagna í samvinnu við viðeigandi svið og stofnanir borgarinnar.

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Reykjavík er ekki lengur tónlistarborg. Eftir kynningu á aðgerðatillögum spretthóps um aðstöðumál lifandi tónlistarflutnings í Reykjavík er ljóst að enn eitt tónlistarvígið er við það að falla. Lifandi tónlistarflutningur hefur hingað til byggst nær alfarið á frumkvæði og ástríðu þeirra sem starfa í faginu en borgaryfirvöld hafa ekkert gert til að aðlaga regluverk að raunverulegum aðstæðum greinarinnar. Leyfisveitingar eru kostnaðarsamar og flóknar og núverandi kerfi einkennist fremur af tortryggni en stuðningi gagnvart starfsemi sem telst ein af grunnstoðum menningarlífs borgarinnar. Óskýr stefna um staðsetningu tónleikastaða hefur auk þess leitt til síendurtekinna árekstra milli rekstraraðila, íbúa og stjórnvalda. Brýnt er að ráðist verði þegar í stað í heildstæða úttekt á regluverki og framkvæmd þess með það að markmiði að skapa raunhæf og sanngjörn starfsskilyrði fyrir lifandi tónlistarflutning í Reykjavík. Jafnframt er nauðsynlegt að stjórnvöld vinni breytingarnar í nánu samráði við tónlistarfólk og rekstraraðila tónleikastaða og taki mið af faglegri þekkingu þeirra við mótun lausna. Jafnframt er lagt til að kanna innleiðingu stuðningskerfa á borð við þau sem þekkjast í Danmörku og Noregi fyrir tónleikastaði, þar sem kveðið er á um virkt og samræmt samstarf ríkis og sveitarfélaga um rekstrarumhverfi lifandi tónlistar.

    Ása Dýradóttir frá Tónlistarborginni og Geoffrey Þór Huntingdon-Williams formaður Samtaka smærri tónleikastaða taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 19. febrúar 2026 þar sem fram kemur að tillaga borgarfulltrúa Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna um nýtingu frístundastyrks fyrir stutt námskeið hafi verið samþykkt á fundi borgarstjórnar 17. febrúar 2026.  Menningar- og íþróttaráði er falið að undirbúa tilraunaverkefni til að hægt sé að nýta frístundastyrkinn fyrir styttri námskeið..  Jafnframt lagt fram erindisbréf um spretthóp menningar- og íþróttaráðs vegna málsins. MSS26020075
    Samþykkt.

    Fulltrúar Samfylkingar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Árlega eru á fjórða þúsund barna sem nýta ekki frístundastyrkinn sinn, börn sem koma frá tekjulágum heimilum, börn einstæðra foreldra, fötluð börn og börn af erlendum uppruna. Mikilvægt er að leita leiða til að tryggja að ekkert barn sitji eftir þegar kemur að skipulögðu íþrótta- og frístundarstarfi og þessi tillaga er eitt skref. Um er að ræða tilraunaverkefni sem felst í því að endurskoða reglur um frístundakortið þannig að hægt verði að nýta styrkinn í styttri námskeið í þeirri von að fleiri börn nýti styrkinn. Núverandi reglur gera ráð fyrir að námskeið þurfi að vera að lágmarki í 8 vikur til að vera gjaldgeng í tengslum við nýtingu frístundastyrksins og hefur afmörkun þeirrar tímalengdar m.a. tekið mið af sjónarmiðum um félagsleg áhrif. Spretthópnum verður falið að kortleggja stöðuna, ræða við hagaðila, meta áhrifin og koma með tillögur um breytingar á núverandi reglum á grundvelli tilraunaverkefnisins.

    Fylgigögn

  3. Fram fer umræða um Toppstöðina.  MIR25090001.

  4. Lögð fram auglýsing, ódags., varðandi tilraunaverkefni um ungbarnavænar sundlaugar í Breiðholtslaug í mars og könnun fyrir gesti í sundlaugum borgarinnar um upplifun sinni af þjónustu og aðstöðu fyrir börn og barnafjölskyldur, sbr. 4. lið fundargerðar menningar- og íþróttaráðs frá 26. september 2025 um samþykkt tillögu um spretthóp um ungbarnavænar sundlaugar.  MIR25090007

    Menningar- og íþróttaráð leggur fram svohljóðandi bókun:

    Menningar- og íþróttaráð fagnar tilraunaverkefninu í Breiðholtslaug þar sem hitastig innilaugar verður hækkað í 35°C á sunnudögum í mars, ungbarnaleikföng verði aðgengileg og áhersla lögð á rólegt og barnvænt umhverfi. Þetta er mikilvægt skref í átt að markmiðum um bætta þjónustu við ungbarnafjölskyldur í sundlaugum borgarinnar. Fyrstu niðurstöður spretthópsins sýndu að grunnþjónusta er almennt góð en tækifæri til úrbóta eru skýr. M.a. vatnshiti nær víða ekki ráðlögðum 34-36°C og afgirt svæði í búningsklefum er aðeins í einni laug. Menningar- og íþróttaráð hlakkar til að sjá niðurstöður könnunarinnar sem að greinir þarfir ungbarnafjölskyldna enn frekar og leggur áherslu á að mótuð verði framkvæmdaáætlun með skýrum tímaramma og forgangsröðun í tengingu við fjárhagsáætlun. Með þjónustuhönnun og beinu samráði við foreldra byggjum við upp heilbrigðari lífsstílsvenjur frá unga aldri og styðjum við fjölskyldutengsl í öruggu umhverfi.

    Fylgigögn

  5. Lögð fram auglýsing, ódags., um opnunartíma sundstaða um páskana 2026.  MIR24020058.

    Fulltrúar Samfylkingar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Ákveðið hefur verið að allar sundlaugar Reykjavíkur verði opnar alla daga yfir páskahátíðina. Þetta felur í sér breytingu frá fyrra fyrirkomulagi, en áður hafa einstaka sundlaugar verið lokaðar á páskadag og annan í páskum. Markmið breytingarinnar er að tryggja bætta og samræmda þjónustu við gesti sundlauga yfir hátíðardagana en mikil aukning í aðsókn leiddi til þessara breytinga og sú reynsla skilaði sér í 25% aukningu gesta frá 2023-2025. Sundlaugarnar í Reykjavík er samverustaður íbúa á öllum aldri og mikilvægt að skapa vettvang fyrir fjölskyldufólk og ferðamenn í páskafríinu.

    Fylgigögn

  6. Lagt fram bréf skrifstofustjóra menningarmála dags. 25. febrúar 2025 varðandi skipun fulltrúa í innkaupanefnd Listasafns Reykjavíkur. MIR2600021.
    Samþykkt.

  7. Lögð fram aðgerðaráætlun sviðsins vegna stefnu um fjölmenningarborgina Reykjavík 2026-2030. MSS25110035
    Samþykkt.

    Fulltrúar Samfylkingar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:
        
    Stefna Reykjavíkurborgar um fjölmenningarborgina 2026-2030 felur í sér metnaðarfull markmið um inngildingu allra hópa. Íþróttafélög og menningarstofnanir borgarinnar hafa þar sérstaklega mikilvægu hlutverki að gegna. Aldraðir innflytjendur og flóttafólk er hópur sem verið hefur afskiptur þegar kemur að íþróttum og heilsueflingu. Sama gildir um ýmiss konar þátttöku innflytjenda í menningarstarfi, þar geta t.a.m. bókasöfn borgarinnar komið að með ýmsum hætti líkt og þau hafa gert svo vel. Fulltrúar samstarfsflokkanna lýsa ánægju með aðgerðaráætlun sviðsins í málaflokknum.

    Fylgigögn

  8. Lögð fram að nýju tillaga faghóps um styrkveitingar um styrki ráðsins á sviði menningarmála fyrir árið 2026 sem samþykkt var á fundi menningar- og íþróttaráðs 28. nóvember 2025.  Í faghópnum sátu:   Gunnar Andreas Kristinsson (formaður), Helga Guðrún Óskarsdóttir, Hanna Björk Valsdóttir og Jóna Hlíf Halldórsdóttir, tilnefnd af Bandalagi íslenskra listamanna og Búi Bjartmar Aðalsteinsson, tilnefndur af Miðstöð hönnunar og arkitektúrs. Trúnaður ríkti um tillöguna fram að úthlutun styrkjanna sem fram fór 11. febrúar 2026.

    Samstarfssamningar 2026-2028 
    6.500.000     Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík- 24.9.-4.10.2026 
    4.500.000     Óperudagar 2026 
    3.500.000     List án landamæra 
    3.500.000     Samstarfssamningur milli Myndhöggvarafélagsins í Reykjavík og                 Reykjavíkurborgar 
    3.000.000     Kammersveit Reykjavíkur - starfsemi árið 2026 
    2.000.000     UNGI Sviðslistahátíð -fyrir börn og með börnum 
    1.500.000     Dans Afríka Barakan Festival Iceland 2026

    Samstarfssamningur 2026-2027 
    4.500.000     Sequences myndlistartvíæringur - samstarfssamningur til 3-5 ára 
            
    Listhópur Reykjavíkur 2026 
    2.500.000     Elja kammersveit 2026

    Styrkir 2026 
    3.000.000     Gallery Hakk / Sýningarárið 2026 
    3.000.000     Starfsemi Caput-hópsins 2026 
    2.000.000     Open listamannarekið sýningarrými 
    2.000.000     Starf kammerhópsins Nordic Affect 6 
    1.500.000     Áburður: Sýningarröð Slökkvistöðvarinnar 2025-2026 
    1.500.000     Extreme Chill Festival 2026 
    1.500.000     Queer Situations - alþjóðleg bókmenntahátíð 
    1.500.000     Reykjavík Early Music Festival 
    1.500.000     Starfsemi Cantoque Ensemble 2026 
    1.200.000     JÚLÍ-26 Sumarvinnustofur Dansverkstæðisins 
    1.000.000     Albúm 
    1.000.000     Á milli - starfsþróunartækifæri fyrir upprennandi listamenn í hjarta             Reykjavíkur 
    1.000.000     Bókumbók. Bókverka og sýningarrými 
    1.000.000     Brösótt ferðalag 
    1.000.000     DesignTalks 2026 
    1.000.000     FLEY - samsýning ungra hönnuða 
    1.000.000     Hallensteins Hús 
    1.000.000     Komum út í mínus Festival 
    1.000.000     KULDAKAST - Vetrarhátíð Verkvinnslunnar 
    1.000.000     Latin American Film Festival Reykjavík 2026. 4th Edition. 
    1.000.000     List og áhrif Magnúsar Pálssonar 
    1.000.000     Reykjavík Folk Festival 2026 
    1.000.000     Sýningar og viðburðir í sýningarrými Fyrirbæri (2026) 
    1.000.000     Tónleikaröð Jazzklúbbsins Múlans í Hörpu 
    1.000.000     Ungmennadanshópurinn Forward 
    1.000.000     UngRIFF - allt árið 
    800.000     Arabískar nætur – menningarveisla í Reykjavík 
    800.000     Associate Gallery - sýningarár 2026 
    800.000     Gagnkynhneigð - Landsátak 
    800.000     Garg bókabúð 
    800.000     Kíton X Snælda 
    800.000     Litrík Reykjavík 7 
    800.000     Physical Cinema Festival - Hreyfimyndahátíð Reykjavíkur 
    800.000     Píanókvartettinn Negla: Starfsárið 2026. 
    800.000     Sinfóníuhljómsveit áhugamanna, æfingar og tónleikar 2026 
    800.000     Starf Sinfóníuhljómsveitar unga fólksins 2026 
    800.000     Tímavilla 
    800.000     Tóma rýmið 
    800.000     Upptakturinn 15 ára 
    700.000     Barna- og fjölskyldudagskrá á Dansverkstæðinu 
    700.000     Kammertónleikar Camerarctica 2026 
    700.000     S27 
    700.000     Starfsemi, rekstur og tónleikahald Lúðrasveitar verkalýðsins 
    700.000     Öskubuska eftir Rossini – á íslensku hjá Sviðslistahópnum Ösku 
    600.000     15:15 Tónleikasyrpan 
    600.000     Jazz í Djúpinu 2026 
    600.000     Kammermúsíkklúbburinn 2026 
    600.000     Sveppafár (e.Mushroomania) 
    600.000     Tónleikar viibra á Listahátíð í Reykjavík 2026 
    500.000     100 ára afmæli Karlakórs Reykjavíkur árið 2026 
    500.000     Einkasýning í Listasafni Reykjavíkur 
    500.000     Fjöltyngdar prinsessusögustundir á Borgarbókasafninu 
    500.000     Hæ / Hi 2026 
    500.000     Innblástur 
    500.000     Jóhannesarpassía J.S. Bach (1749) 
    500.000     Krakkakaffihúsið 
    500.000     Leikhús í Hannesarholti 
    500.000     Pabba Reif 
    500.000     Unaðsreiturinn 
    500.000     Vá! 
    500.000     Velkomin heim 8 
    500.000     Viltu sjá hvar ég á heima? 
    500.000     Vorvindar IBBY og Barnabóka barsvar 
    400.000     Icelandic nuances - útgáfutónleikar á Myrkum Músíkdögum. 
    400.000     Leirlistafélagið 45 ára / 45 Years of Ceramics 
    300.000     Coffee & Collage: Creative Collage Workshops at Gerðuberg Library 
    300.000     Katla kemur 
    300.000     Tónar við Tjörnina 
    200.000     Audio Walk in Reykjavík
     

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 11:15

Skúli Helgason Sara Björg Sigurðardóttir

Kristinn Jón Ólafsson Stefán Pálsson

Kjartan Magnússon

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð menningar- og íþróttaráðs frá 27. febrúar 2026