Menningar- og ferðamálaráð
Ár 2014, mánudaginn 27. október, var haldinn 222. fundur menningar- og ferðamálaráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst hann kl. 13:34. Viðstaddir: Elsa Hrafnhildur Yeoman formaður, Þórgnýr Thoroddsen, Dóra Magnúsdóttir, Stefán Benediktsson, Júlíus Vífill Ingvarsson, Marta Guðjónsdóttir og Ingvar Jónsson. Áheyrnarfulltrúi Vinstri grænna: Elín Oddný Sigurðardóttir. Áheyrnarfulltrúar BÍL: Kolbrún Halldórsdóttir og Jóna Hlíf Halldórsdóttir. Áheyrnarfulltrúi SAF: Þórir Garðarsson. Af hálfu starfsmanna: Svanhildur Konráðsdóttir og Auður Halldórsdóttir sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
1. Lögð fram 8 mánaða staða í rekstri Menningar- og ferðamálasviðs. Trúnaðarmál.
2. Skipan dómnefndar um Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2015. Lagt fram bréf Rithöfundasambands Íslands dags. 15. október 2014 þar sem fram kemur að Bjarni Bjarnason verði fulltrúi RSÍ í dómnefnd. Samþykkt að dómnefndina skipi Páll Valsson formaður, Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir og Bjarni Bjarnason. (RMF14060011)
3. Helga Árnadóttir framkvæmdastjóri SAF kynnir stöðuna í íslenskri ferðaþjónustu, vöxt, uppbygging, stefnumótun og önnur brýn verkefni.
4. Þorsteinn Örn Guðmundsson framkvæmdastjóri Meet in Reykjavík kom á fundinn og kynnir starfsemi Meet in Reykjavík og gildi hennar fyrir Reykjavík.
5. Ágúst Ágústsson markaðsstjóri Faxaflóahafna og kynnir málefni skemmtiferðaskipa og tengdri ferðamennsku í Reykjavík.
- kl. 15:58 víkur Elín Oddný Sigurðardóttir af fundi.
- kl. 16:15 víkur Júlíus Vífill Ingvarsson af fundi.
6. Einar Bárðarson forstöðumaður Höfuðborgarstofu kynnir aðgerðir og árangur sl. 12 mánaða og helstu verkefni framundan.
Fundi slitið kl. 16:33
Elsa Hrafnhildur Yeoman m.e.h.
Þórgnýr Thoroddsen m.e.h. Dóra Magnúsdóttir m.e.h.
Stefán Benediktsson m.e.h. Marta Guðjónsdóttir m.e.h.
Ingvar Jónsson m.e.h.