Menningar- og ferðamálaráð - og ferðamálaráð

Menningar- og ferðamálaráð

MENNINGAR- OG FERÐAMÁLARÁÐ

Ár 2007, mánudaginn 20. júní 2007, var haldinn 53. fundur menningar- og ferðamálaráðs. Fundurinn var haldinn í Viðeyjarstofu og hófst hann kl.15:45. Mættir: Kjartan Magnússon, formaður, Áslaug Friðriksdóttir, Jóhannes Bárðarson, Oddný Sturludóttir, Guðrún Erla Geirsdóttir og Hermann Valsson. Áheyrnarfulltrúi F-lista: Guðrún Ásmundsdóttir. Áheyrnarfulltrúar BÍL: Áslaug Thorlacius og Margrét Bóasdóttir. Af hálfu starfsmanna: Svanhildur Konráðsdóttir, Signý Pálsdóttir, Berglind Ólafsdóttir og Kristjana Nanna Jónsdóttir sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri kynnti undirbúning að starfs- og fjárhagsáætlanagerð Menningar- og ferðamálasviðs fyrir árið 2008 og drög að starfsáætlun Höfuðborgarstofu um markaðs- og ferðamál fyrir árið 2008.

2. Sif Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri viðburða, kynnti drög að starfsáætlun Höfuðborgarstofu um viðburði fyrir árið 2008.

2. Guðný Gerður Gunnarsdóttir, borgarminjavörður, kynnti drög að starfsáætlun Minjasafns Reykjavíkur og Landnámssýningarinnar 871 +/-2 fyrir árið 2008.

3. Anna Torfadóttir, borgarbókavörður, kynnti drög að starfsáætlun Borgarbókasafns Reykjavíkur fyrir árið 2008.

- Kl. 17:30 komu Guðmundur H. Björnsson og Jóhanna Hreiðarsdóttir á fundinn.

4. Hafþór Yngvason, safnstjóri, kynnti drög að starfsáætlun Listasafns Reykjavíkur fyrir árið 2008.

5. María Karen Sigurðardóttir, safnstjóri, kynnti drög að starfsáætlun Ljósmyndasafns Reykjavíkur fyrir árið 2008.

6. Elísabet Þórisdóttir, framkvæmdastjóri, kynnti drög að starfsáætlun Gerðubergs fyrir árið 2008.

7. Signý Pálsdóttir, skrifstofustjóri menningarmála, kynnti samninga, samstarf og sérverkefni á árinu 2008.

Stjórnendum á Menningar- og ferðamálasviði falið að vinna áfram að starfs- og fjárhagsáætlun 2008.

Fundi slitið kl. 18:50

Kjartan Magnússon
Guðmundur H. Björnsson Oddný Sturludóttir
Jóhannes Bárðarson Guðrún Erla Geirsdóttir
Jóhanna Hreiðarsdóttir Hermann Valsson
Áslaug Friðriksdóttir