Menningar- og ferðamálaráð
Ár 2013, mánudaginn 11. nóvember var haldinn 200. fundur menningar- og ferðamálaráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst hann kl. 13.31. Viðstödd: Einar Örn Benediktsson formaður, Margrét Kristín Blöndal, Ósk Vilhjálmsdóttir, Eva Baldursdóttir, Líf Magneudóttir, Áslaug Friðriksdóttir og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir. Áheyrnarfulltrúar BÍL: Kolbrún Halldórsdóttir og Erla Þórarinsdóttir. Áheyrnarfulltrúi SAF: Þórir Garðarsson.
Af hálfu starfsmanna: Berglind Ólafsdóttir, Signý Pálsdóttir og Auður Halldórsdóttir sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
1. Ferða- og markaðsmál í ferðamannaborginni Reykjavík.
Einar Bárðarson forstöðumaður Höfuðborgarstofu kom á fundinn og kynnti helstu verkefni 2014 í samræmi við áherslur ferðamálastefnu Reykjavíkur, vinnu við mörkun, niðurstöður viðhorfskönnunar meðal erlendra ferðamanna og önnur ferðamálatengd verkefni.
Þorsteinn Örn Guðmundsson framkvæmdastjóri Ráðstefnuborgarinnar Reykjavíkur – Meet in Reykjavík kom á fundinn og gerði grein fyrir starfsemi og áherslum 2014.
- 14.55 vék Eva Baldursdóttir af fundinum.
Inga Hlín Pálsdóttir forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu kom á fundinn og kynnti stöðu samstarfsverkefnisins Ísland allt árið og áherslur 2014.
2. Skipun dómnefndar um Bókmenntaverðlaun Tómasar 2014. Frestað. (RMF13110002)
3. Breytingar á gildandi samþykktum menningar- og ferðamálaráðs og breytingartillaga á samþykkt menningar- og ferðamálaráðs. Frestað. (RMF13100004)
Fundi slitið kl. 15.33
Einar Örn Benediktsson
Margrét Kristín Blöndal Ósk Vilhjálmsdóttir
Líf Magneudóttir Áslaug Friðriksdóttir
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir