Menningar- og ferðamálaráð
Ár 2013, mánudaginn 22. apríl var haldinn 188. fundur menningar- og ferðamálaráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst hann kl. 13.38. Viðstaddir: Einar Örn Benediktsson formaður, Margrét Kristín Blöndal, Ósk Vilhjálmsdóttir, Kristín Soffía Jónsdóttir, Marta Guðjónsdóttir, Áslaug Friðriksdóttir og Þór Steinarsson. Áheyrnarfulltrúi BÍL: Kolbrún Halldórsdóttir. Af hálfu starfsmanna: Svanhildur Konráðsdóttir, Signý Pálsdóttir og Auður Halldórsdóttir sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
1. Lagt fram bréf frá skrifstofustjóra skrifstofu borgarstjóra dags. 17. apríl sl. um að Ósk Vilhjálmsdóttir taki sæti Stefáns Benediktssonar og Þór Steinarsson taki sæti Davíðs Stefánssonar í menningar- og ferðamálaráði og jafnframt að Líf Magneudóttir taki sæti Þórs sem varamaður í ráðinu. (RMF13010020)
2. Lagt fram tveggja mánaða rekstraryfirlit. Trúnaðarmál.
3. Lögð var fram svohljóðandi tillaga:
Lagt er til að ráðist verði í úttekt á kostum og göllum þess að sameina rekstur Minjasafns Reykjavíkur og Víkurinnar - Sjóminjasafnsins í Reykjavík undir einum hatti. Jafnframt verði metnir kostir og gallar þess að umsjón með starfsemi og rekstri í Viðey og rekstur Ljósmyndasafns Reykjavíkur verði felldur inn í slíkt skipulag. Tillögunni fylgdi greinargerð.
Tillagan var samþykkt. (RMF13050025)
- kl. 13.58 kom Þór Steinarsson á fundinn.
4. Páll Guðjónsson framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu kynnti Sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins. (RMF13040006)
5. Óskar Dýrmundur Ólafsson hverfisstjóri Breiðholts kynnti drög að stefnu og starfsáætlun fyrir Breiðholt 2013-2014. (RMF13030009)
- kl. 14.46 vék Áslaug Friðriksdóttir af fundi.
6. Hrönn Hrafnsdóttir verkefnastjóri kom á fundinn og kynnti tillögur stýrihóps um umhverfis- og auðlindastefnu Reykjavíkurborgar. (RMF13030006)
7. Hanna Styrmisdóttir listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík kom á fundinn og kynnti Listahátíð í Reykjavík 2013. (RMF13010019)
- kl. 15.28 vék Margrét Kristín Blöndal af fundi.
- kl. 15.35 vék Ósk Vilhjálmsdóttir af fundi.
Fundi slitið kl. 15.40
Einar Örn Benediktsson
Kristín Soffía Jónsdóttir Ósk Vilhjálmsdóttir
Marta Guðjónsdóttir Þór Steinarsson