Menningar- og ferðamálaráð - Fundur nr. 304

Menningar- og ferðamálaráð

Ár 2018, mánudaginn 28. maí var haldinn 304. fundur menningar- og ferðamálaráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst hann kl. 13.36. Viðstaddir: Þórgnýr Thoroddsen, Kristján Freyr Halldórsson, Margrét M. Norðdahl, Stefán Benediktsson, Örn Þórðarson og Marta Guðjónsdóttir. Áheyrnarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina: Rakel Dögg Óskarsdóttir. Áheyrnarfulltrúi BÍL: Erling Jóhannesson. Áheyrnarfulltrúi SAF: Þórir Garðarsson. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Arna Schram, Huld Ingimarsdóttir, Sif Gunnarsdóttir og Inga María Leifsdóttir sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á þriggja mánaða uppgjöri menningar- og ferðamálasviðs. RMF18050002

  2. Fram fer kynning á viljayfirlýsingu um stofnun safns í nafni Nínu Tryggvadóttur. RMF18050004

    Sigurður Björn Blöndal, formaður borgarráðs, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  3. Fram fer kynning á rafvæðingu gestakorts Reykjavíkur. RMF14110001

    Unnar Geir Unnarsson, verkefnastjóri rafvæðingar gestakorts Reykjavíkur á Höfuðborgarstofu, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

  4. Fram fer kynning á viðhorfskönnun meðal erlendra ferðamanna í Reykjavík 2017. RMF18050006

    Ágúst Elvar Bjarnason, verkefnastjóri ferðamála á Höfuðborgarstofu, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

Fundi slitið klukkan 15:20

Marta Guðjónsdóttir