Menningar- og ferðamálaráð - Fundur nr. 302

Menningar- og ferðamálaráð

Ár 2018, mánudaginn 23. apríl var haldinn 302. fundur menningar- og ferðamálaráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst hann kl. 13.30. Viðstaddir: Elsa Hrafnhildur Yeoman, Þórgnýr Thoroddsen, Margrét M. Norðdahl, Stefán Benediktsson, Örn Þórðarson, Elísabet Gísladóttir og Þorgerður Agla Magnúsdóttir. Áheyrnarfulltrúi BÍL: Erling Jóhannesson. Áheyrnarfulltrúi SAF: Rannveig Grétarsdóttir. Af hálfu starfsmanna: Huld Ingimarsdóttir, Sif Gunnarsdóttir, Signý Pálsdóttir, Arna Schram og Inga María Leifsdóttir sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á starfslokum Signýjar Pálsdóttur, fráfarandi skrifstofustjóra menningarmála, á Menningar- og ferðamálasviði.

  2. Fram fer kynning á greiningarvinnu vegna ferðamálastefnu Reykjavíkurborgar. RMF18040008

    Karen María Jónsdóttir, deildarstjóri Upplýsingamiðstöðvar ferðamanna, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

  3. Fram fer kynning á nýjum barnabókaverðlaunum kenndum við Guðrúnu Helgadóttur. RMF18040006

    - Kl. 13.46 tekur Bergþór Smári Pálmason Sighvats sæti á fundinum.

  4. Lögð fram tilnefning um borgarlistamann 2018 sem útnefndur verður 17. júní 2018.
    Samþykkt. Trúnaðarmál fram að útnefningu. RMF18020005

  5. Lögð fram tillaga að tilnefningu menningar- og ferðamálaráðs í valnefndir vegna samkeppni um útilistaverk í Vogabyggð. Samþykkt að Elsa Yeoman taki sæti í forvalsnefnd og Signý Pálsdóttir í dómnefnd. RMF18030004

    Fylgigögn

  6. Fram fer kynning á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík sem fram fer 1.-17. júní nk. RMF17100005

    Vigdís Jakobsdóttir, listrænn stjórnandi hátíðarinnar, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

  7. Fram fer kynning á Iceland Airwaves 2018 frá nýjum rekstraraðilum hátíðarinnar. RMF16080010

    Ísleifur B. Þórhallsson, framkvæmdastjóri Senu Live, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

  8. Fram fer umræða um nýjan samning vegna Iceland Airwaves. Samþykkt að fela sviðsstjóra menningar- og ferðamálasviðs að ganga frá samningi.

  9. Fram fer kynning á Aðalstræti 10. RMF17090009

    Guðbrandur Benediktsson, safnstjóri Borgarsögusafns, og Helga Maureen Gylfadóttir, verkefnastjóri sýninga á Borgarsögusafni, taka sæti á fundinum undir þessum lið.

Fundi slitið klukkan 15:30